Morgunblaðið - 04.02.1998, Blaðsíða 1
B
1998
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR
BLAD
FRJALSIÞROTTIR
Heims-
met hjá
Greene
MAURICE Green frá Bandaríkjun-
um setti í gær heimsmet í 60 m
hlaupi innanhúss á alþjóðlegu móti I
Madríd á Spáni. Mældist hann hafa
farið vegalengdina á 6,39 sekúnd-
um, 2rí00 betri tíma en landi hans
Andre Cason gerði á sama stað 14.
febrúar 1992. Greene hafði jafnað
það met á móti í Stuttgart um helg-
ina, en lagði allt í sölumar í gær-
kvöldi, enda andstæðingar hans
ekki af verri endanum, m.a. landi
hans Jon Drummond og Davidson
Ezinwa frá Nígeríu.
Eins og nærri má geta fagnaði
heimsmethafinn innilega enda er
þetta fyrsta heimsmetið sem hann
setur og hafði hann í nógu að snúast
við að gefa eiginhandaráritanir er
heimsmetið var í höfn eins og myndi
hér til hliðar sýnir.
Hann varð heimsmeistari í 100 m
hlaupi karla í Aþenu í fyrrasumar.
Greene er aðeins 23 ára og margir
telja að hann muni bæta heimsmet
Kanadamannsins Donovans Bailey í
100 m í sumar.
Þrátt fyrir heimsmetið er ljóst að
Greene getur gert betur. Hann
þjófstartaði og varð því kalla
hlauparana til baka. I annað sinn
sem hlaupurunum var skipað af
stað var viðbragð hans blandað hika
og þá hljóp hann niðurlútur fyrstu
20 metrana. Dummond varð annar á
6,50 og Ezinwa þriðji á 6,57.
Reuters
Theodóra fána-
berí í Nagano
THEODÓRA Mathiesen, skfðakona úr KR, verður
fánaberi íslans við opnunarhátíð Vetraróiympíu-
leikanna í Nagano á laugardaginn. Theodóra er
þriðja konan sem er fánaberi
íslands á vetrarleikum. Nanna
Leifsdóttir frá Akureyri var
fánaberi í Sarajevo 1984 og
Asta Halldórsdóttir frá Ísafírði
á leikunum í Lillehammer fyrir
fjórum ái’um.
Kristinn Björnsson átti upp-
haflega að vera fánaberi Is-
lands, en þar sem hann er við
æfingar í Svíþjóð og fer ekki til
Nagano fyrr en 10. febrúar
varð að fá staðgengil hans.
Ákveðið var að draga úr nöfn-
um hinna ólympfufaranna sjö og kom nafn Theó-
dóru upp.
Islensku ólympíufararnir, nema Kristinn Björns-
son, halda í dag frá Kaupmannahöfn til Nagano.
Kristján Vilhelmsson, aðaifararstjóri, fór reyndar
til Nagano í gær og mun taka á móti liðinu þar.
Nýtt ríkisfang
og nýir skór
AFRÍKUMETHAFINN í langstökki, Cheikh Toure
frá Senegal, hefur ákveðið að sækja um franskt rík-
isfang. Það þætti ekki ýkja merkilegt ef hann hefði
ekki tekið þá ákvörðun til þess eins að fá nýja skó,
en hann vonast til að fá auglýsingasamning við
íþróttavöruframleiðanda.
„Ég átti fjórða lengsta stökkið í heiminum í fyrra
[8,46 m] og varð sjöundi í heimsmeistaramótinu.
Samt fæ ég enga styrki eða samninga," sagði Toure
í Madrid í fyrradag, þar sem hami keppti á innan-
hússmóti í gærkvöldi.
„Ég veit af hveiju það er. Framleiðendurnir selja
ekki marga skó í Senegal. Þess vegna ætla ég að
skipta um ríkisfang.“ Toure hefur haft aðsetur í
Frakklandi í nokkur ár, en hann æfir nú í Monte
Carlo.
Nicklaus neitað
um undanþágu
SKIPTAR skoðanir eru um ákvörðun bandarfska
golfsambandsins, USGA, að veita Jaek Nicklaus
ekki undanþágu til að fá að leika á opna bandaríska
mótinu í júní nk., sem er eitt fjögurra stórmóta
hvers árs. „Gullni björninn“, eins og Nicklaus er oft
nefndur, hefur tekið þátt í 145 slíkum mótum í röð.
USGA veitti Arnold Palmer hliðstæða undanþágu
á hveiju ári í um tuttugu ár eftir síðasta sigur hans
á stórmóti, en tæp tólf ár eru liðin frá síðasta sigri
Nicklaus. Honum tókst enn fremur að komast í
gegnum fækkun keppenda eftir tvo keppnisdaga á
þremur stórmótum af fjórum á síðasta ári. Honum
stendur til boða að fara í undankeppni fyrir mótið,
en hann kveðst ekki ætla að nýta þann möguieika.
THEÓDÓRA
HANDKNATTLEIKUR
„Ögrandi verkefni“
Jóhann Ingi Gunnarsson hefur
tekið að sér ráðgjafahlutverk hjá
þýska 1. deildarliðinu Bayer Dorm-
agen, eins og Morgunblaðið greindi
frá í gær. Jóhann Ingi staðfesti þetta
í gær og kvaðst fara til Þýskalands í
næstu viku.
Tveir íslenskir landsliðsmenn leika
með Dormagen, Róbert Sighvatsson
og Héðinn Gilsson.
Jóhann Ingi þjálfaði í Þýskalandi á
sínum tíma, sem kunnugt er; fyrst lið
THW Kiel og síðan Tusem Essen.
„Það eru tíu ár síðan ég kom heim og
ég er búinn að leggja þjálfun á hill-
una. En þetta er ögrandi verkefni hjá
Dormagen þannig að ég ákvað að slá
til. Þetta rifjar vissulega upp gamlar
og góðar minningar; ég verð að við-
urkenna að hjartað tók smá kipp
þegar þeir höfðu samband við mig,“
sagði Jóhann Ingi við Morgunblaðið.
Þjálfari Dormagen er Hans-
Joachim Gossow og þrátt fyrir slakt
gengi liðsins eru forráðamenn fé-
lagsins ánægðir með störf hans. „Ég
lagði á það ríka áherslu að ég kæmi
ekki utan nema í fullu samráði við
þjálfarann og með samþykki hans.
Hann féllst á þessa hugmynd stjórn-
arinnar og því er ég tilbúinn," sagði
Jóhann Ingi. Hann heldur reyndar
ekki tii Þýskalands fyrr en í næstu
viku, sem fyrr segir; er nú staddur í
Finnlandi í viðskiptaerindum, kemur
heim í lok vikunnar og heldur utan á
ný eftir helgi.
„Forráðamenn Doimagen telja sig
vera með góðan mannskap og góðan
þjálfara en þrátt fyrir það segja þeir
liðið komið í öngstræti, sem það rati
ekki út úr. Það er ástæðan fyrir því
að þeir leituðu til mín. Ég verð ytra í
þrjá daga, fylgist með æfingum og fer
i gegnum andlegan undirbúning leik-
manna,“ sagði Jóhann Ingi. Hann
staðfesti það sem kom fram í blaðinu í
gær að forráðamenn Dormagen vildu
hafa hann til taks út keppnistímabilið.
Hann kvaðst þó ekki fara utan nema
endrum og sinnum. „En þeir báðu
mig um að semja ekki við neitt annað
félag í vetur (!)“ sagði Jóhann Ingi.
Dormagen mætir liði Grosswall-
stadt í þýsku deildarkeppninni um
næstu helgi á heimavelli og viku síðar
sækir liðið Patrek Jóhannesson og
samherja í Tusem Essen heim -
fyrsti leikur leikmanna Dormagen
eftir „heimsókn" Jóhanns Inga verð-
ur því gegn liðinu sem hann gerði að
þýskum meistara á sínum tíma, en er
nú í harðri fallbaráttu ásamt Dorm-
agen.
Sverrir gerði
Malmö
gagntilboð
SVERRIR Sverrisson, landsliðs-
maður í knattspyrnu úr IBV, er
hugsanlega á leið til Malmö í Sví-
þjóð eins og gi-eint hefur verið frá.
Hann var hjá félaginu á dögunum
og í kjölfarið gerði það honum til-
boð - bauð honum samning til
fimm ára. „Ég gerði þeim gagntil-
boð, lagði til að samningur yrði
gerður til þriggja ára,“ sagði
Sverrir við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en hann er nú staddur með
landsliðinu á Kýpur.
Hann sagðist hafa kunnað vel
við sig í Malmö. „Og vonandi
skýrist framhaldið á næstu dög-
um.“
KÖRFUKNATTLEIKUR: ÆVINTÝRI ÚRVALSDEILDARLIÐS ÍSFIRDINGA / B2