Morgunblaðið - 15.02.1998, Síða 15

Morgunblaðið - 15.02.1998, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1998 B 15 ( ( ( ( ( ( i $ ( ( \ ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( 4 ( Morgunblaðið/RAX FATS Domino kom tvisvar hingað til að skemmta á Broadway. Morgunblaðið/RAX TÓNLEIKAGESTIR á Broadway risu á fætur og hylltu Domino og félaga. trúi frá þeim hefur komið og kannað aðstæður og gefið góð meðmæli, að allt öryggi sé í góðu lagi, tæknibún- aður og fjölmargt annað sem skiptir þá máli. Við vorum með margar stórsýningar á Broadway á níunda áratugnum t.d. sýningu sem hét „Innrás bresku Bítlanna". Pá komu hingað ýmsar breskar hljómsveitir sem voru mjög vinsælar og eru enn í dag, Tremoles, Searches, Dozy, Beaky, Mick og Tich, Swinging Blue Jeans, Marmelade, The Holl- ies og Mamas and The Papas sem komu tvisvar." Og þú hættir með Broadway við Alfabakka í lok níunda áratugarins? „Já, og seldi þá Reykjavíkurborg og svo seldi Reykjavíkurborg aftur Arna Samúelssyni staðinn. Við byggðum húsið saman, ég og Árni, ég neðri hæðina og hann bíóið uppi.“ Nýr skemmtistaður í lok árs 1987 Olafur Laufdal var á sama tíma og hann var með veitingahúsarekst- ur í Álfabakka með nýjan stað í Ár- múlanum. Hann opnaði skemmti- stað í nýju glæsilegu húsi, Hótel Is- landi, 17. desember 1987 og fyrsta veislan sem þar var haldin var á níutíu ára afmæli Blaðamannafélags Islands. Á Hótel íslandi kom fram hver erlenda stórstjai-nan af annarri úr heimi skemmtanalífsins. „Tom Jones kom fram hér á Hótel íslandi í ársbyrjun 1990. Pað kom mér mest á óvart hvað hann var í góðu formi. Hann var eins og ungur íþróttamaður. Röddin var frábær. Enn í dag er hann stór- stjarna í Las Vegas. Hann var með frægt atriði. Kvenfólkið henti í hann nærbuxum og hann tók þær og þurrkaði sér í framan og fleygði þeim aftur út í salinn. Þá kom hingað eitt árið þekktur bandarískur tónlistarmaður með hljómsveit sína, Doktor Hook. Hann var nokkuð skrautlegur náungi og alltaf með öngul á sér og hann sæmdi okkur Gústa rótara heiðurs- orðu, öngli, í barminn." Pað er of langt mál í stuttu blaða- viðtali að segja ítarlega frá öllum þeim erlendu listamönnum sem fram hafa komið á vegum Ólafs Laufdals. Þeir skipta tugum og meðai þeirra eru danski háðfuglinn, eftirherman og söngvarinn, Victor Borge, landi hans, Kim Larsen, trú- bador og rokksöngvari, Tammy Wynette, fræg bandarísk þjóðlaga- söngkona og goðsögn, Kris Kristo- fersson, kunnur kvikmyndaleikari og þjóðlagasöngvari, Yoko Ono, og sá þekkti djassisti píanóieikari og tónskáld, Herbie Hancock, og stór- hljómsveitir á borð við, Tommy Dorsey orchester og frægar hljóm- sveitir frá sjöunda áratugnum, The Shadows, Blood-Sweat and Tears, Boney M og Smokie. Tónlistarsagan rifjuð upp Hvenær hófuð þið að rifja upp tímabil í tónlistarsögunni? „Pað var árið 1982. Fyrsta sýn- ingin var Rokksagan og hluti úr þeirri sýningu verður með þegar rokkstjömur Islands - frumherj- arnir - verða heiðraðir núna í janú- ar og febrúar á Broadway. Síðan kom hver sýningin af annarri. Dægurlagahátíðin „Komdu í kvöld“ með Jóni Sigurðssyni, „Manstu lag- ið“, og þar komu t.d. fram Sigurður Ólafsson, Þuríður dóttir hans og Skafti Ólafsson, „Týnda kynslóðin" - þar sem fjölmargar hljómsveitir áratuganna á undan komu fram, „Gullárin" með KK-sextettinum. Yfirleitt voru þetta þrjátíu til fjöru- tíu sýningar og engin undir þrjátíu sýningar. Sýningin, „Allt vitlaust", fór í yfir eitt hundrað sýningar. „Best af öllu“, 25 ára afmæli Ríó tríósins fékk mikla aðsókn og einnig sýningarnar, „Ómar í aldar- fjórðung" og „Stjörnur Ingimars Eydals“, „Rokkað á himninum“, „Aftur til fortíðar“, „Love me Tender“, „Hljómar", sýning með vinsælustu hljómsveit sjöunda ára- tugarins fékk frábærar undirtektir. Síðan kom svo, „í syngjandi sveiflu" með Geirþiundi Valtýssyni. Geirmundur er með eina vinsæl- ustu hljómsveit landsins. Það er alltaf mikil aðsókn þegar hljómsveit Geirmundar er auglýst og hann er yfirleitt bókaður tvö ár fram í tím- ann. „Rokk, trúður og trylltar meyjar“, var sýning með söng og dansi frá rokktímabilinu og „Rock 93“ var svipuð sýning. „Grease", var sýning sem sett var upp á Broadway og byggð á lögum úr kvikmyndinni. John Travolta sem lék stórt hlutverk í myndinni kom hingað á eina sýningu á „Allt vit- laust“ og þótti mikið til koma og var yfir sig hrifinn. Hann var á leið í flugvél sinni yfir hafið og hafði heyrt um að þetta væri góð sýning og hann lenti vélinni á Keflavíkur- flugvelli. Sýningin hans Björgvins, „Pó líði ár og öld“ gekk á þriðja ár. Þá vorum við með sýningu, „Úr söngbók Gunnars Þórðarsonar“ sem var viðamikil og glæsileg sýn- ing byggð á lögum eftir eitt helsta tónskáldið okkar. „Braggablús - söngbók Magnús- ar Eiríkssonar" var hér í fyrra og gekk mjög vel. í haust hófst svo sýning Björgvins Halldórssonar, „I útvarpinu heyrði ég lag“ og stendur hún enn við mjög góðar viðtökur gesta. Þá hafa verið hér skemmtanir með Álftagerðis- bræðrum. Þeir troðfylla húsið enda er þetta frábær kvartett og sá besti síðan MA-kvartettinn hætti að koma fram. Undanfarin ár hefur fjöldi manna komið að þessari vinnu t.d. söngv- arar og tónlistarmenn. Þá er ég líka með Fegurðarsamkeppni íslands sem er hér árlega. Það er mjög fjöl- breyttur rekstur hér á Broadway og allt frá jólatrésskemmtunum, skólaböllum eða yfir i fremstu og flottustu veislur sem haldnar eru hér á landi. Þá eru hér árshátíðar allra helstu fyrirtækja landsins og fólk kemur hér saman við ýmis tækifæri og gleðst á góðra vina fundi.“ Ólafur Laufdal hefur ástæðu til að vera ánægður. Hann er með hundruð manna í vinnu og vaxandi umsvif. Hann býr að mikili reynslu sem nýtist honum vel í því sem hann er að gera í dag. Lokað á mánudag vegna flutninga - Opnum á nýjum stað á þi m m m Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og sjóðanna lokuð mánudaginn 16. febrúar. Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga flytja Frá og með þriðjudeginum 17. febrúar starfsemi sína í nýtt húsnæði við Banka- verður skrifstofa sjóðanna í Bankastræti stræti 7. Þess vegna verður skrifstofa opin virka daga frá 8:05 til 16:00. Nýtt símanúmer: 510 6100 • Bréfsími: 510 6150 f(LSR C(LH HIHr ^ STARFSMANNA RÍKISINS ~ HJÚKRUNARFRÆDINOA - kjarni málsins! 4 i (

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.