Morgunblaðið - 10.03.1998, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Kærkominn sigur
Jordan mættur
Grindvíkingar unnu Tindastól örugglega og
tóku við deildarbikarnum að leikslokum
ÞAÐ biðu margir spenntir eftir að sjá
nýja erlenda leikmanninn hjá Grindavík.
Walsh Jordan heitir kappinn og mætti til
leiks illa sofinn og þreyttur eftir langt
flug, enda lenti vél hans á sunnudags-
morguninn. Það er þó Ijóst að þarna er á
ferðinn mjög snöggur leikmaður, hann
spilaði góða vörn lengstum en var með
afleita skotnýtingu eins og reyndar flest-
ir leikmanna beggja liða. Eftir afleitan
fyrri hálfleik, en þá var staðan 32:23
heimamönnum í vil, tóku bæði lið sig á
og sýndu oft ágæta tilburði í þeim seinni
en leiknum lauk með öruggum sigri
heimamanna sem skoruðu 77 stig gegn
64 stigum gestanna.
að tók gestina fjórar mínútur að komast á
blað og reyndar skoruðu þeir einungis 8 stig
á fyrstu tólf mínútunum. Heimamenn voru lítið
■■■■■■ frískari en höfðu þó skorað 15 stig
Garðar Páll eftir tólf mínútur. Bæði lið hittu
Vignisson mjög illa í fyrri hálfleik en spiluðu þó
skrifar lengstum ágæta vöm. Staðan í hálf-
leik var 32:23 heimamönnum í vil.
í síðari hálfleik var það Torrey John sem tók
til sinna ráða og skoraði 12 af fyrstu 14 stigum
gestanna. Þá var staðan 40:37 og Torrey búinn
að vera illviðráðanlegur. Heimamenn náðu þó að
hægja á Torrey John og náðu aftur að auka for-
skot sitt sem þeir héldu örugglega til loka leiks.
Bestir í liði heimamanna voru Pétur Guð-
mundsson, Helgi Jónas og Konstantinos Tsarts-
aris. Hjá gestunum bar mest á Torrey John og
José Maria Narang sem skoruðu 45 af 64 stigum
liðsins.
Að leik loknum fengu Grindvíkingar afhend-
an bikarinn fyrir deildarmeistaratitilinn. Bene-
dikt Guðmundsson, þjálfari Grindvíkinga, var
að vonum kampakátur að leikslokum og sagði
að nú væri stefnt á að taka íslandsmeistaratitil-
inn. Aðspurður um nýja leikmanninn sagði
Benedikt: „Jordan kom í morgun og það má eig-
inlega segja að hann hafí verið hálfdottandi í
fyrri hálfleik. Hann sýndi okkur þó að hann
kann ýmislegt og hann er gríðarlega fljótur og
með fínar sendingar. Skotnýtingin hans var lé-
leg eins og reyndar mörgum í þessum leik en
koma Jordans gefur okkur færi á fleiri hraða-
upphlaupum. Hann og Helgi Jónas koma til
með að skipta með sér leikstjórnandahlutverk-
inu og miðað við ferðaþreytuna hjá Jordan er ég
bara bjartsýnn.“ Um leikinn sagði Benedikt:
„Við spiluðum fína vörn allan tímann og ég vil
segja sem svo að vömin sé komin úr fríi. Sókn-
arleikurinn var stirður hjá okkur en ég hef ekki
áhyggjur af því. Við verðum fljótir að slípa hann
til.“
Æstir Borgnesingar áttu von á
jöfnum leik er Skallagrímur
mætti Keflavík í Borgarnesi. En
leikurinn er einn sá
ingimundur besti sem heimamenn
Ingimundarson hafa sýnt í langan
skrifar tíma. Keflvíkingar
skoruðu fyrstu stigin
en heimamenn börðust vel og
höfðu forystu í hálfleik. í síðari
hálfleik var barist af sama krafti
og Skallagrímur vann sannfærandi
sigur, 101:87.
Heimamenn vora ákveðnir strax
í byrjun en sumir Keflvíkingar
virkuðu áhuga- og kæralausir og
náðu sér aldrei á strik. Trúlega
talið Skallagrím auðvelda bráð.
Seinni hálfleikurinn byrjaði með
mildum krafti. Hraðinn var mikill,
harkan jókst er á leikinn leið og
Skallagrímsmenn gáfu langskytt-
um Keflvíkinga h'tinn frið. Er leið
á seinni hálfleikinn komst Páll Ax-
el heldur betur í gang, skoraði þá
fjórar þrigga stiga körfur í röð og
sneri leiknum heimamönnum í vil.
Guðjón Skúlason Keflvíkingur
hitti hins vegar illa úr langskotum
sínum.
Lið Skallagríms hefur sjaldan
leikið betur og kom áhangendum
sínum skemmtilega á óvart. Páll
Axel, Seamus Lonergan, Bragi og
Tómas áttu allir mjög góðan leik.
Páll Axel skoraði átta þriggja stiga
körfur úr tíu tilraunum og Tómas
átti fimmtán stoðsendingar. í liði
Keflavíkur vora Kristján Elvar
Guðlaugsson og Gunnar Einarsson
bestir.
Auðvelt
hjá KR
■^R-ingar sóttu Þórsara heim á
■VAkureyri um helgina og fóru
með auðveldan sigur af hólmi,
115:85. Þrátt fyrir
tapið er Ijóst að Þór
heldur sér í deildinni
þar sem ÍR-ingar töp-
uðu viðureign sinni en
þessi lið hafa vermt neðstu sæti
deildarinnar mikinn hluta tíma-
bilsins og háð þar harða baráttu
við að halda sér í deildinni.
Leikurinn var jafn framan af en
um miðjan fyrri hálfleik breyttu
KR-ingar vamaraðferð sinni og
réðust til atlögu við Þórsara framar
á vellinum. Þetta réðu heimamenn
illa við og töpuðu boltanum hvað
eftir annað í hendur KR-inga sem
þökkuðu jafnaharðan fyrir sig með
Reynir B.
Eiríksson
skrifar
Þýðingarmikið hjá UMFN
Baráttan var aftur til staðar og
það var fyrst og fremst góður
vamarleikur sem færði okkur
þennan sigur. Við náð-
Bjorn um að leika vel * UPP“
Biöndal hafí og síðan aftur í
skrífar síðari hálfleik og það
réð úrshtum," sagði
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, eftir að lið hans
hafði unnið sannfærandi og þýðing-
armikinn sigur á ísfirðingum,
93:74, í Njarðvík á sunnudags-
kvöldið. í hálfleik var staðan 42:40
fyrir KFÍ.
Grindvíkingar eru í efsta sæti
deildarinnar, en baráttan um
næstu sæti er afar hörð og ljóst er
röðun í næstu sæti ræðst ekki fyrr
en í síðustu umferðinni.
Njarðvíkingar hófu leikinn með
miklum krafti og náðu strax góðu
forskoti. En ísfirðingar voru ekki á
því að gefa neitt og með góðum leik
tókst þeim að komast inn í leikinn
og höfðu tveggja stiga forskot í
hálfleik. ísfirðingum tókst hins
vegar ekki eins vel upp í síðari
hálfleik og þeim tókst ekki að svara
kraftmiklum leik heimamanna.
Njarðvíkingar náðu þá strax tök-
um á leiknum. Þeir vora grimmir í
vöm og náðu hvað eftir annað að
slá gestina út af laginu með stífri
pressuvöm. Sóknarleikurinn var
einnig ágætur og þegar upp var
staðið var munurinn 19 stig og ör-
uggur og sanngjam sigur í höfn.
„Við getum engum um kennt nema
sjálfum okkur,“ var það eina sem
Guðjón Þorsteinsson, liðsstjóri Is-
firðinga, vildi láta hafa eftir sér um
leik sinna manna.
Bestu leikmenn Njarðvfkinga
vora þeir Petey Sessoms, Logi
Gunnarsson og Páll Kristinnson
sem saman gerðu 70 stig! Teitur
Örlygsson lék einnig ágætlega. Da-
vid Bevis, Ólafur Ormsson, Friðrik
Stefánsson og Marcos Salas vora
bestir í liði gestanna.
Haukar grimmari
í fráköstunum
Haukar heimsóttu stóra bróður í
Reykjavík, Val, í næstsíðustu
umferð DHL-deildarinnar í
korfuknattleik á sunnudaginn.
^^^^1 Warren Pebles, leik-
Skúli Unnar maður Vals> Serði
Sveinsson fyrstu fimm stig leis-
skrífar ins á fyrstu 17 sekúnd-
unum en eftir það fór
að halla undan fæti hjá Val og
Haukar sigraðu 103:93.
Valsmenn þurfa samt ekki að
hafa neinar áhyggjur af því að falla
því ÍR-ingar töpuðu og Hlíðar-
endaliðið því öraggt um áframhald-
andi sæti í deildinni. Haukar héldu
forystunni eftir að þeir komust yfir
snemma í fyrri hálfleik og í leikhléi
munaði 15 stigum. Haukar vora
64:49 yfir eftir mjög góðan kafla
þar sem þeir breyttu stöðunni úr
45:49 í 45:60. Þessi munur hélst
meira og minna en í lokin skildu tíu
stig liðin.
Miklu munaði í þessum leik hvað
Haukar vora miklu grimmari og
ákveðnari við að taka fráköst. Þeir
tóku nærri helmingi fleiri fráköst
en Valsmenn og slíkt veit aldrei á
gott.
Peebles var í miklum ham á
sunnudaginn og gerði 46 stig auk
þess að spila félaga sína vel uppi.
Guðmundur Bjömsson átti einnig
ágætan leik og Bergur Emilsson í
fyrri hálfleik, en hann gerði ekki
stig eftir hlé.
Hjá Haukum hitti Ingvar Guð-
jónsson mjög vel og þeir Sherrick
Simpson og Baldvin Johnsen vora
harðir í fráköstunum. Þá áttu Pét-
ur Ingvarsson og Sigfús Gizurar-
son ágæta spretti.
Áhugaleysið
algjört
Leikur Skagamanna og IR-inga,
sem ÍA vann 72:66, var tíðinda-
lítill og afspymu lélegur. Lengst af
var sem menn biðu eingöngu eftir
því að leiktíminn liði
Pétur svo væri að kom-
Ottesen ast 1 sturtu. Mis-
skrífar heppnaðar sendingar
og ámóta hlutir var
það eina sem nóg var af. Heima-
menn höfðu forystu allan leikinn en
munurinn varð aldrei meiri en 13
stig.
Að loknum hálfleik var sem IR-
ingar reyndu af veikum mætti að
koma sér í gang en aldrei varð
munurinn minni en 3 stig. Er
greinilegt á leik liðsins að nálægð
þeirra við botn deildarinnar hefur
dregið úr þeim flestar vígtennur.
Sem dæmi um áhugaleysi ÍR-inga
þá fékk liðið aðeins á sig 3 villur í
fyrri hálfleik og alls 9 villur í leikn-
um.
Leikur Skagamanna var síður en
svo eitthvað til að hrópa húrra fyr-
ir. Ef að liðið ætlar að gera ein-
hveija hluti í úrslitkeppninni verð-
ur mikið að lagast í leik þess. Sér-
staklega er áberandi hvað Damon
Johnson er í miklu óstuði þessa
dagana og virðist mikill leiði vera í
pilti. Eini ljósi punkturinn í þess-
um leik var frammistaða Trausta
F. Jónssonar. Hann var sá eini sem
reif sig upp úr meðalmennskunni
og sýndi svo ekki verður um villst
að þar fer mikið efni.
Flestir leikmenn Skagamanna
léku undir getu, þó sýndi Pétur
Sigurðsson ágæt tilþrif, sem og
Bjami Magnússon og Dagur Þóris-
son. Hjá ÍR-ingum bar Eiríkur Ön-
undarson af öðrum leikmönnum.
Kevin Grandberg var mjög slakur í
fyrri hálfleik, en kom til í þeim síð-
ari og var mjög drjúgur við stiga-
skorun, sérstaklega í restina.
því að skora. Á skömmum tíma
náðu þeir góðu forskoti og lögðu
þar með granninn að öraggum
sigri sínum. Þegar flautað við til
hálfleiks var staðan 61:47 KR í vil.
Gestimir komu grimmir til
leiks eftir hlé og juku forskot sitt
jafnt og þétt og áttu Þórsarar
aldrei möguleika á að ógna sigri
þeirra.
Hjá Þór bar Jesse Ratcliff höf-
uð og herðar yfír aðra leikmenn,
skoraði 44 stig sem var rúmlega
helmingur af stigum Þórsara, auk
þess sem hann var iðinn við kol-
ann þegar kom að fráköstum.
Aðrir leikmenn náðu sér lítt á
strik. Hjá KR vora þeir Keith
Vassell og Nökkvi Már Jónsson
atkvæðamestir.
Brostu
þrátt
fyrir tap
ÞRÁTT fyrir
slakan dag og
tap gegn KR
gátu leiknienn
Þórs brosað,
eftir að þeir
heyrðu að ÍR
hafði tapað. ÍR
fellur því í 1.
deild en Þór
heldur sæti
sínu í úrvals-
deiidinni.
Morgunblaðið/Golli
SHERRICK Simpson átti ágætan leik fyrir Hauka er liðið vann Val á Hlíðarenda
á sunnudaginn. Hér leggur hann boltann í körfu Valsmanna.