Morgunblaðið - 10.03.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
KAPPAKSTUR
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 B 5
Silfurflaugar McLaren
stungu aff í Melboume
FINNINN Mika Hákkinen
komst við er hann stóð á
efsta þrepi verðlaunapallsins
eftir fyrsta formúla-1
kappakstur ársins á sunnudag
í Melbourne f Ástralíu. Hann
tók forystu strax við rásmark-
ið og virtist lengi vel ætla að
fara með öruggan sigur af
hólmi, en forystan gufaði upp
er hann ók fyrir misskilning
inn á bílskúrasvæðin á 36.
hring af 58. Félagi hans,
Skotinn David Coulthard, tók
við forystu og hvarf úr augsýn
en hægði á undir lokin og gaf
frá sér sigurinn; leyfði
Hákkinen að draga sig uppi
og hleypti honum fram úr er
tveir hringir voru eftir. „Heið-
ursmannasamkomulag,“ sagði
Coulthard en áhorfendum
fannst sem þeir hefðu verið
rændir. Voru komnir til að
horfa á 58 hringja einvígi um
sigur sem síðar kom í Ijós að
samið hafði verið um að lyki í
raun á fyrsta hring.
McLaren-bílamir sýndu mikla
yfirburði á æfingum og tíma-
tökum á fostudag og laugardag og
voru í sérflokki í sjálf-
Ágúst um kappakstrinum.
Ásgeirsson Ökuþórar liðsins
skriter vissu hvert stefndi og
lögðu á ráðin fyrir-
fram. Þeir hófu keppni af fremsta
rásmarki og til þess að færa liðinu
hámarksfjölda stiga í keppni
bílsmiða úr mótinu ákváðu þeir að
slást ekki innbyrðis eftir fyrstu
beygju. „Við höfðum samið um að
sá okkar er yrði á undan inn í
fyrstu beygjuna fengi að vera óá-
reittur í forystu. Eg gekk að slíku
því ég þóttist viss um að verða á
undan Mika fyrir homið. En þegar
mér var tjáð í talstöðina hvaða mis-
tök höfðu átt sér stað og hann verið
kallaður inn á bílskúrasvæðið fyrir
misskilning ákvað ég eftir nokkra
umhugsun að orð skyldu standa.
Það tel ég að hafi verið drengi-
legt,“ sagði Coulthard eftir keppn-
ina. Hann bætti við að hann hefði
því einungis komist í forystu að
Hákldnen var ranglega kallaður
inn til dekkjaskipta sem ekki áttu
að eiga sér stað fyrr en nokkmm
hringjum seinna.
Keppnisstjórinn, Ron Dennis,
varði gjörðir sinna manna og sagði
að í næstu keppni, í Brasilíu eftir
þrjár vikur, myndi sama regla
gilda en eftir það hefðu þeir frítt
spil og gætu slegist innbyrðis.
Atvikið hefur valdið nokkru upp-
námi og ekki þótt til þess fallið að
bæta ímynd kappakstursíþróttar-
innar. Deilt er á ráðabruggið því
með því sé hægt að efast um að
íþróttin snúist fyrst og fremst um
einvígi einstaklinga um sigur og
sæti. Spurt er m.a. um siðferði veð-
mangara sem bjóða upp á veðmál
þegar fyrir fram er ákveðið hver
skuli vinna. Komist upp um slík at-
vik í hestaíþróttum lenda knapam-
ir venjulega í fangelsi. Sambæri-
legt atvik átti sér stað í síðustu
keppninni í fyrra, í Jerez á Spáni,
er Coulthard var skipað að hleypa
Hákkinen fram úr er nokkrir
hringir voru eftir svo Finninn gæti
sigrað. Sá atburður hvarf í fárinu
sem hlaust af uppgjöri Kanada-
mannsins Jacques Villeneuves og
Þjóðarverjans Michaels
Schumachers um heimsmeistara-
tign ökuþóra.
Lftil spenna
Fyrir utan það er Hákkinen var
að draga Coulthard uppi á síðustu
hringjunum varð ástralski
kappaksturinn eiginlega aldrei
7 m t
B J -r/' j
} li'P-.. m , m 1
Reuters
FINNINN Mika Hákkinen komst við er hann tók við sigurlaunum fyrir fyrsta kappakstur ársins í Mel-
bourne á sunnudag. Við hlið hans stendur Skotinn David Coulthard en þeir aka fyrlr McLaren sem
hafði fáheyrða yfirburðl og komu báðir bílarnir f mark hring á undan öllum öðrum.
Reuters
MICHAEL Schumacher, fyrrverandi heimsmeistari, stendur yflr
bfl sínum sem bræddi úr sér eftir 25 kflómetra af 305.
spennandi. Svo fáheyrðir voru yfir-
burðir McLaren-bílanna, að þegar
upp var staðið höfðu þeir hringað
alla keppinauta sína sem á annað
borð komust í mark því 13 bílar af
22 gáfust upp á leiðinni. í því sam-
bandi vakti mesta athygli að Mich-
ael Schumacher varð að stöðva
Ferrari-bíl sinn á sjötta hring er
vélin bræddi úr sér. Heimsmeistar-
inn frá 1994 og ‘95 er ekki vanur að
sýna tilfinningar en er hann steig
upp úr bíl sínum leyndu vonbrigðin
sér ekki, hann hristi hausinn af
gremju og fleygði stýrinu frá sér.
Heimsmeistarinn Villeneuve átti
heldur aldrei möguleika og varð
fimmti. Williams-bíllinn stendur
McLaren greinilega langt að baki
þótt Þjóðverjinn Heinz-Harald
Frentzen hafi orðið þriðji. Vil-
leneuve játaði eftir keppnina að
það væri ólíðandi niðurlæging að
vera hringaður.
Umdeilt
bremsukerfi
„Þeir flugu fram úr, það er ekki
bara dekkjunum að þakka, þar
kemur fleira til,“ sagði Villeneuve
um yfirburði McLaren-bílanna.
Með því víkur hann óbeint að um-
deildu bremsukerfi þeirra. Fyrir
helgi rituðu sex keppnislið með
Ferrari í broddi fylkingar Al-
þjóðakstursíþróttasambandinu (F-
IA) bréf og fóru þess á leit að sam-
bandið skýrði afstöðu sína til
bremsukerfis McLaren sem liðin
telja að brjóti í bága við reglur. Er
um að ræða hátæknilegan raf-
eindastýribúnað sem kemur í veg
fyrir að hjólin læsist og gefur öku-
þórnum jafnframt kost á að
stjóma bremsun milli hjóla. Með
því standa McLaren-bílamir betur
að vígi við akstur inn í og út úr
beygjum og mátti greinilega sjá í
sjónvarpsútsendingu að þeir virt-
ust í mun betra jafnvægi í beygj-
unum og rásuðu ekki sem bílar
keppinautanna. Sagði Hákkinen að
bíllinn væri mun betri en í fyrra og
þeir Coulthard gætu nánast valið
að vild þá línu sem þeir ækju gegn-
um beygjur.
En fleira en bremsur virðast
ráða yfirburðum McLaren og
þurfa keppinautamir að bæta bíla
sína mikið áður en þeir verða sam-
keppnishæfir.
FOLK
■ DAVID Coulthard, sem er Skoti,
olli breskum kappakstursáhuga-
mönnum vonbrigðum í Melbourne.
Með því að hleypa Mika Hákkinen
fram úr sér gaf hann ekki einungis
frá sér sigur annað árið í röð og
sinn fjórða í 59 mótum. Einnig
bmstu með því vonir Breta um
fimmta breska sigurinn í röð í
Ástralíu.
■ HAKKINEN var vart hugað líf
eftir harða ákeyrslu á vegg í ástr-
alska kappastrinum 1995. Lá hann
margar vikur milli heims og helju á
sjúkrahúsi. Læknamir sem önnuð-
ust hann komu í bílskúr McLaren
fyrir upphaf keppni á sunnudag og
heilsuðu upp á hann. Hákkinen
vann sinn annan sigur í formúla-1 í
Melboume, hinn fyrsta í Jerez á
Spáni í október sl.
■ HAKKINEN hóf keppni í for-
múlu-1 með Lotus árið 1991 en
gekk til liðs við McLaren tveimur
ámm seinna sem félagi Ayrtons
Senna. Sá fór 1994 til Williams,
hafði í raun sætaskipti við Coult-
hard.
■ OLFVIER Panis hjá Prost-liðinu
var sektaður um 2.500 dollara fyrir
að yfirgefa bíl sinn án þess að taka
hann úr gír eða losa kúplinguna
eftir að hann snerist á brautinni í
tímatöku.
■ DAMON Hill, heimsmeistari
1996, var sektaður um 1.000 doll-
ara fyrir að aka of hratt á bílskúra-
svæðinu. Þá þótti Michael
Schumacher sem hann reyndi að
halda aftur af sér í tímatökum og
steytti hnefa til Hill er hann komst
fram úr. „Ég get ekki gufað upp í
hvert sinn sem Schumacher er í
brautinni,“ sagði Hill og vísaði
ásökunum um ódrengskap á bug.
■ HILL, sem keppir nú fyrir Jord-
an, hafnaði í áttunda sæti og sagði
að bæta þyrfti bílinn til að ná ofar.
Hermt er að Jordan-Uðið sé að
endurhanna hann. Aðeins níu bílar
luku keppni og vom fjórir öku-
mannanna breskir; Coulthard,
Hill, Eddie Irvine hjá Ferrari sem
varð fjórði og Johnny Herbert er
varð sjötti á Sauber-bíl.
■ RON Dennis keppnisstjóri McL-
aren brást illur við og sakaði keppi-
nautana um óheiðarlegar njósnir
er ljósmyndari, sem er mágur
Willems Toets, loftaflsfræðings
Ferrari, var staðinn að verki í bíl-
skúr McLaren. Virðist það ekki
vefjast fyrir Ferrari að beita
vafasömum meðulum því í fyrra
reyndist liðið stunda umfangsmikl-
ar hleranir á fjarskiptum keppi-
nautanna.
■ BRIDGESTONE hjólbarðafyrir-
tækið fagnaði sínum fyrsta sigri á
sunnudag eftir en Goodyear-barð-
ar höfðu verið uhdir bílunum sem
unnu 109 keppnir í röð þar á und-
an.
■ JACQUES Villeneuve þótti sárt
að verða hringaður. Sárari vora
honum úrslitin þar sem hann tap-
aði veðmáli við félaga sinn Heinz-
Harald Frentzen um hversu langt
þeir yrðu á eftir McLaren-bílunum.
Frentzen hafði haldið því fram að
McLaren myndi hringa Williams-
bilana en heimsmeistaranum kok-
hrausta þótti það fáránleg tilgáta
og lagði fé undir.
■ NU er tækifærið komið fyrir þá
sem hafa áhuga á að taka þátt í for-
múla-1 kappakstri. McLaren hefur
hannað og smíðað keppnisbíl með
tveimur sætum og er ætlunin að
leyfa hæstbjóðendum að kynnast
kappakstri af eigin raun úr far-
þegasætinu. Tekjumar munu
renna til góðgerðarmála.
■ WTLLMMS-bílarnir vora þeir
einu sem náðu lakari tímum í tíma-
tökum í Melboume en í fyrra og
þykja nýjar reglur sem áttu að
draga úr ökuhraða ekki hafa skilað
tilætluðum árangri.