Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.03.1998, Blaðsíða 3
+ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1998 C 3 v Reuters VONBRIGÐI leikmanna Bayern Miinchen voru skiljanlega mikil í leikslok í Dortmund í gærkvöldi enda líklegt að tapið hafi gert út um vonir liðsins á að vinna einhvern titil á leiktíðinni. Hér er framherjinn Carsten Janker með grátstafinn í kverkunum en Nevio Scala þjálfari Dortmund huggar hann. liðsins, en hann var þá nýkominn inn á sem varamaður. Markið skoraði hann eft- ir hornspyrnu Brasilíumannsins Roberts Carlos. Þriðja og síðasta markið kom á 89. mínútu og var það Femando Hierro sem gerði það úr vítaspyrnu. Þetta mark var huggun harmi gegn hjá Hierro, sem missir af fyrri leiknum í undanúrslitum, þar sem hann fékk gult spjald í leiknum, en hafði fyrri í keppninni fengið annað slíkt. Þetta var 600. mark Real Madrid í Evrópukeppni. „Lið Real Madrid er líklega það besta í dag,“ sagði Christophe Daum, þjálfari Leverkusen, að leikslokum. „Það er ekki einungis skipað góðum leikmönnum, held- ur leika þeir sem ein heild og uppskera samkvæmt því.“ HANDKNATTLEIKUR /1. DEILD KARLA Beláný aftur markakóngur Mikil spenna í lokaumferð 1 .deildar karla sem fer fram í kvöld Fátt virðist geta komið í veg fyrir að nngverski leikmaðurinn Zoltan Bel- áný, hjá ÍBV, verði markahæstur í 1. deildarkeppninni annað árið í röð. Þegar ein umferð er eftir hefur Beláný skorað 161 mark, en næstur á blaði kemur Sigurður Sveinsson, HK, sem er meiddur, með 151 mark. Ragnar Óskars- son, IR, er í þriðja sæti með 147 mörk og þá kemur Valdimar Grímsson með 137 mörk. Það er spenna á toppi og botni þegar síðasta umferðin fer fram í kvöld. Fjögur lið geta náð efsta sæt- inu. Fram með 65 -f mörk í plús og KA með 68 mörk, standa best að vígi, þá kemur Afturelding með 43 mörk og FH með 48 mörk í plús. Stjarnan og HK berjast um áttunda sætið í úrslitakeppninni og er staða HK vænlegri, þar sem liðið mætir Breiðabliki, en Stjarnan leikur við Aftureldingu í Mos- fellsbæ. Það er ómögu- legt að spá fyrir um hvaða lið mætast í úr- slitakeppninni. Breiðablik er fallið, en ÍR og Víkingur verjast falli. Ef liðin verða jöfn að stigum, þurfa þau að leika aukaleiki um fall. Röð annarra liða ræðst hins vegar af markamun. Fj. leikja U J T Mörk Stig FRAM 21 15 0 6 560: 495 30 KA 21 13 3 5 580: 512 29 UMFA 21 14 1 6 543: 500 29 FH 21 12 4 5 552: 504 28 VALUR 21 11 4 6 505: 475 26 HAUKAR 21 11 3 7 572: 537 25 ÍBV 21 11 2 8 586: 557 24 STJARNAN 21 10 0 11 539: 538 20 HK 21 8 2 11 519: 517 18 ÍR 21 5 2 14 510: 555 12 VÍKINGUR 21 5 1 15 500: 551 11 BREIÐABL. 21 0 0 21 453: 678 0 ÍÞRÓTTIR KÖRFUKNATTLEIKUR Jafnræði og mikil spenna ÚRSLITAKEPPNIN í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, DHL-deíldinni, hefst í kvöld með tveimur leikjum og síðari tveir leikirnir í 8-liða úrslitum verða annað kvöld. í kvöld leika Grindavík og ÍA annars vegar og hins vegar KR og Tindastóll. Á morgun taka Njarðvíking- ar á móti KFÍ og Haukar fá Keflvíkinga í heimsókn. Það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í undanúrslit og í þeim, og í úr- slitunum, þarf lið að sigra í þremur leikjum til að hafa betur. Forráðamenn og þjálfarar félag- anna voru sammála um það á blaðamannafundi í gær að sjaldan eða aldrei hefði úrvalsdeildin verið eins jöfn og spennandi og sögðust menn því eiga von á skemmtilegri og spennandi úrslitakeppni. „Eg held það verði mikið fjör í úrslita- keppninni í ár, ekki síst vegna þess að liðin eru það jöfn að ógjörningur er að segja fyrir um úrslit. Stuðn- ingsmenn félaganna munu því ör- ugglega fjölmenna til að hvetja sína menn, eða það vona ég að minnsta kosti. Ég held það megi enginn láta þessa úrslitakeppni framhjá sér fara,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga. Það má segja að sex af átta liðum í úrslitakeppninni séu svo gott sem jöfn að stigum. Grindvíkingar urðu í efsta sæti með 38 stig, tíu stigum meira en næstu lið og í áttunda sæti urðu Skagamenn með fjórum stig- um minna en næstu lið fyrir ofan. KR, Haukar og Njarðvík enduðu öll með 28 stig og KFÍ, Keflavík og Tindastóll urðu öll með 26 stig þannig að jafnara getur það vart verið. Það er forvitnilegt að bera saman þau lið sem mætast í átta liða úrslit- unum og verður það gert hér á eftir. Grindavík - ÍA Miðað við tölulegar upplýsingar úr DHL-deildinni í vetur er nokkuð ljóst að Grindavík á að hafa betur í viðureigninni við Skagamenn. Grindavík fékk 16 stigum meira í deildinni og sigraði í báðum leikjum liðanna, 85:84 á Akranesi og 71:64 í Grindavík. Grindvíkingar skora mest í leikjum sínum, 90,5 stig að meðaltali í leik, en Skagamenn minnst, 76 stig að meðaltali, en þeir nýta skot sín betur en Grindvíking- ar, eru með 47,1% skotanýtingu en UMFG 44,8%. Skagamenn hafa hins vegar fengið 77,3 stig á sig að meðaltali í vetur en Grindvíkingar 80 stig. Hvað fráköst varðar standa Grindvíkingar betur að vígi, þeir tóku 54,1% þeirra frákasta sem í boði voru í leikjum þeirra í deildinni en Skagamenn 51,4% og þarna munar rúmum sex fráköstum í leik að meðaltali. Hjá Skagamönnum leikur Damon Johnson 37 mínútur að meðaltali og Bjarni Magnússon hefur leikið í 32,3 mínútur að meðaltali. Fjórir leikmenn Grindvíkinga leika hins vegar meira en 30 mínútur, Helgi Jónas Guðfmnsson (35,9 mín.), Kon- stantinos Tsartsaris (34,9), Walsh Kvennalið Þróttar í Neskaupstað hefndi ófaranna úr bikarúrslite- leiknum á laugardaginn og skellti Is- landsmeisturum IS, 3:1, í öðrum undanúrslitaleik liðanna, 15:13, 11:15, 17:16 og 15:6 og liðin leika því oddaleik á laugardaginn. Það var mikil stemmning á Neskaupstað í gærkvöldi og um 300 manns fylgdust með leiknum, rúmlega 17% bæjar- búa og þeir áttu sinn þátt í frábæru Jordan (34,5) og Pétur Guðmunds- son (31,1). Pétur og Johnson eru þeir einu sem hafa verið í byrjunar- liðum félaganna í öllum 22 leikjum deildarinnar. Talsverð breyting hefur orðið á tölfræði Grindavíkurliðsins eftir að Konstantinos Tsartsaris, Grikkinn hávaxni, kom til félagsins. Áður en hann kom tók liðið 69,1% varnar- frákasta en tekur nú 71,0%. Tölurn- ar í sóknarfráköstum eru 30,6% áð- ur en 41,6% nú og úr 48,9% í 56,7% alls í fráköstum. Áður varði liðið 0,7 skot að meðaltali í leik en núna eru það 5,4 skot. KR - Tindastóll KR-ingar tala nú um fyrir og eft- ir Jón og eiga við Jón Sigurðsson þjálfara sem tók við liðinu um ára- mótin. Þetta er ekki að ástæðulausu því liðið hefur leikið mun betur eftir að hann tók við og sigrað í 10 af 12 leikjum, en áður hafði það aðeins sigrað í fjórum af tíu leikjum sínum. Liðið skorar sex stigum meira að meðaltali í leik og fá auk þess 8,7 stigum minna á sig í leik. KR og Tindastóll unnu hvort sinn leikinn er liðin áttust við í deildinni í vetur, KR vann 76:68 á Sauðárkróki í byrjun febrúar en Tindastóll vann 67:66 er liðin mættust á Nesinu í byrjun nóvember. Hið nýja íþrótta- hús á Sauðárkróki, sem tekið var í notkun í haust, virðist ekki nýtast félaginu eins vel og það gamla því Tindastóll hefur sigrað í sex leikjum heima en í sjö á útivelli. Skotanýt- ing Tindastólsmanna í heimaleikj- um í vetur er 48,2% en er 49,8% á útivelli, vítanýtingin er 65,0% heima en 67,5% úti og skotanýting mótherjanna er 45,7% á Sauðár- króki en 44,0% þegar liðið leikur á útivelli. Hlutfall frákasta er 50,2% á heimavelli en á útivelli taka Tinda- stólsmenn 57,7% frákasta sem í boði eru. Tindastóll fékk fæst stigin á sig í vetur, tveimur færri en Haukar, og mótherjarnir gerðu aðeins 75,3 stig að meðaltali gegn þeim. Torrey John er einn þriggja leikmanna sem leikur meira en 30 mínútur, en hann leikur ekki með í úrslitakeppninni. í hans stað er kominn Nate Taylor. Hinir sem leika meira en 30 mínút- ur eru Sverrir Þór Sverrisson (31,4) og Arnar Kárason (30,1). Hjá KR er það aðeins Keith Vassel (34,6 mín.) sem leikið hefur meira en 30 mínút- ur að meðaltali í vetur. Enginn leik- maður hefur verið í byrjunarliði í öllum 22 leikjunum. gengi Þróttarastúlkna. „Þetta var yndislega ljúft. Við sýndum að við getum alveg unnið þær. Við lögðum áhersluna á að pressa uppgjafirnar stíft og það gekk vel. Ég verð að þakkað áhorfendum stuðninginn, en þeir voru hreint út sagt frábærir,“ sagði Petrún Jónsdóttir, fyrirliði Þróttar, en hún ásamt Sesselju Jóns- dóttir og Miglenu Apostolovu voru bestu menn liðsins. Haukar - Keflavík Haukar sigi-uðu með einu stigi í báðum leikjum félaganna í deild- inni, 68:67 í Hafnarfírði og 87:86 í Keflavík og því greinilegt að viður- eignir liðanna verða jafnar og spennandi. Haukar fengu 75,5 stig á sig að meðaltali í vetur en Keflvík- ingar 85,3 stig. Á móti kemur að Keflavík skoraði 89,2 stig að meðal- tali en Haukar 83,6. Fleira bendir til þess að vörn Hauka sé góð, því skotanýting mótherja þeirra í leikj- um gegn Haukum er 43,2%, sem er það lægsta í deildinni, en mótherjar Keflvíkinga hittu úr 50,1% skota sinna í leikjum við liðið. Haukar tóku 75% frákasta sem í boði voru í vörninni en Keflvíkingar 68,1% og í sókninni taka Haukar 42,2% frákasta, og eru á toppnum þar, en Keflvíkingar 32,6%. Og enn eitt dæmið um vörn Hauka: liðið er í efsta sæti hvað villur varðar, fékk á sig 21,5 villur að meðaltali í leik. Skotanýting liðanna er svo til jöfn, en Keflvíkingar hafa vinning- inn í vítaskotum, hitta úr 73,8% vítaskota og þar eru fremstir þeir Gunnar Einarsson með 97% nýt- ingu og Guðjón Skúlason með 93,3% nýtingu. Tveir leikmenn hafa verið í byrj- unarliði félaganna í leikjunum 22 í vetur, Sherick Simpson í Haukum og Guðjón Skúlason úr Keflavík. Allt sem hér er sagt miðar við að úrslit leiks KFÍ og Hauka, sem KFÍ vann með einu stigi, standi. Haukar kærðu, töldu að gleymst hafi að láta þá fá eitt stig og því hefði leiknum í raun lyktað með jafntefli og því hefði átt að framlengja. Dómstóll vestri dæmdi KFÍ í hag og dómstóll KKÍ tekur niálið fyrir í dag. Njarðvík - KFÍ Staðan eftir tvo leiki liðanna í deildinni í vetur er 1:1. KFÍ vann 94:86 um miðjan desember á ísa- firði en Njarðvík hafði betur, 93:74, í Njarðvík fyrir rúmri viku. ísfirð- ingar hafa staðið sig vel í vetur, léku til úrslita í bikarkeppninni og greinilegt að þar vestra voru menn ekki með hugann við að halda sér bara í deildinni, markmiðið var sett hærra. Mikil fastheldni er hjá ísfirðing- um, því þeir hafa verið með sama byrjunarliðið í 19 leikjum og fjórir leikmenn hafa leikið meira en 30 mínútur að meðaltali í vetur, David Bevis (39,8), Marcos Salas (37,7), Friðrik Stefánsson (36,8) og Olafur Jón Ormsson (31,2). Tölulegur samanburður á liðun- um sýnir að þau eru ansi jöfn. Þar sem helst skilur á milli er að Njarð- vík er með 74,9% vítanýtingu en KFÍ 67,3%. Njarðvíkingar hafa ver- ið á góðri siglingu að undanförnu, sigrað í átta af síðustu níu leikjum og virðast vera að sækja í sig veðrið á öllum sviðum. Miklar mannabreytingar urðu hjá félaginu fyrir tímabilið og það hefur tekið sinn tíma að hrista það saman á ný og sést það ef til vill hvað best á því að 12 leikmenn hafa átt sæti í byrjunarliði félagsins þrátt fyrir að þrír leikmenn hafi verið í byrjunarliðinu í öllum leikj- unum 22. Þetta eru þeir Teitur Ör- lygsson, Friðrik Ragnarsson og Páll Kristinsson. Hjá ísfirðingum eru einnig þrír leikmenn sem hafa verið í byrjunar- liði í öllum leikjunum, David Bevis, Marcos Salas og Baldur Jónasson. Sjö leikmenn hafa átt sæti í byrjun- arliðinu þannig að það hefur oftast verið eins skipað. BLAK ÍS tapaði eystra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.