Morgunblaðið - 19.03.1998, Side 4
Bergkamp
í þriggja
leikja bann
HOLLENDINGURINN Dennis
Bergkamp, sóknarleikmaður
Arsenal, fer í þriggja leikja
bann, eftir að hann var rekinn
af leikvelli á 33. mfn. fyrir að
gefa Steve Lomas, fyrirliða
West Ham, olnbogaskot í and-
litið í bikarleik liðanna, eftir
að Lomas togaði í peysu hans.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, segir að þetta
bann komi á versta tíma, þvf
að hann þarf á öllum sínum
mönnum að halda í lokabar-
áttunni í deild og bikar. „Ég
gerði rangt, er mjög leiður að
þetta hafi gerst,“ sagði Berg-
kamp, sem bað félaga sína af-
sökunar og skammast sín fyr-
ir framkomuna.
Hann missir af
undanúrslita-
leiknum gegn
Ulfunum á
Villa Park 5.
apríl og tveim-
ur deildarleikj-
um, gegn
Bolton 31. mars
og Newcastle
11. apríl. West
Ham réð ekki
við aðeins tíu
leikmenn Ar-
senal í 90 mín.
Fyrirliðinn
Tony Adams
skoraði sigur-
mark Arsenal,
4:3, í víta-
spyrnukeppni,
þar sem Aust-
urríkismaður-
inn Alex Mann-
ingen, hinn
ungi mark-
vörður liðsins,
20 ára, varði
eina spyrnu.
„Alex hefur
staðið sig frá-
bærlega að
undanförnu og
á hól skilið,"
sagði Martin
Keown um fé-
laga sinn. Þess
má geta til
gamans að
þegar Alex
kom til Ar-
senal sl. sumar, sagði hann að
hann myndi gefa David
Seaman tvö ár, áður en hann
tæki stöðuna frá honum.
Margir eru þeirrar skoðunar
að Seaman, sem hefur verið
meiddur, eigi erfitt með að
vinna sæti sitt aftur og hefur
Glenn Hoddle, landsliðsþjálf-
ari Englands, áhyggjur, þar
sem hann er besti markvörð-
ur Englands og mun verja
mark Englendinga í HM í
Frakklandi. Hann hefur rætt
við Wenger, sem var þjálfari
hans hjá Mónakó um árið.
Wenger hefur sagt Hoddle að
hafa ekki áhyggjur, Seaman
fari aftur í markið, þannig að
hann verður í Ieikæfingu þeg-
ar HM byijar.
Manningen segir að hann
sætti sig við að víkja fyrir
Seaman. „Hann er besti
markvörður í heimi, en ég
Iofa einu - ég hef ekki sagt
mitt síðasta orð, kem aftur.“
Seaman segist ætla að vera
aðalmarkvörður Arsenal
næstu árin, hann eigi eftir
þijú ár af samningi sínum.
Andy Kelly, markvörður
Sheff. Utd., varði þrjár víta-
spyrnur er liðið lagði
Coventry í vítaspyrnukeppni,
3:1. Sheff. Utd. mætir
Newcastle í undanúrslitum á
Old Trafford.
Tveir stjórnarmenn Newcastle sakaðir um kvennafar og peningabruðl
Hlutabréf í Newcastle
stóriækka í kjölfarid
GENGI hlutabréfa í knatt-
spyrnufélaginu Newcastle
United hefur stórlækkað eftir
að tveir forystumenn þess voru
bornir sökum um kvennafar og
peningabruðl. Douglas Hall,
forseti Newcastle, og Freddy
Shepherd, stjórnarmaður liðs-
ins, liggja undir þungum ásök-
unum um að hafa eytt gríðar-
legum fjármunum í kvenfólk og
skemmtanir. Samtal þeirra
Halls og Shepherds var hljóð-
ritað á ferð þeirra til Spánar og
birt i breskum götublöðum.
ÆT
Ahljóðrituninm gerðu þeir grín að
stuðningsmönnum liðsins fyrir
að kaupa keppnisbúninga liðsins
dýru verði, gortuðu af því hve marg-
ar konur þeir hefðu komist yfir,
sögðu Alan Shearer, leikmann liðs-
ins, leiðinlegan og sögðust hafa selt
Andy Cole til Man. Utd. fyrir metfé
vitandi að hann væri meiddur. Þá
líktu þeir konum í Newcastle við
hunda.
Bresku götublöðin hafa verið iðin
við að birta fréttir af málinu en það
hefur skaðað félagið gríðarlega.
Talið er að verðgildi hlutabréfa í því
hafí lækkað um 720 milljónir ís-
lenskra króna.
Stjórnarmenn biðjast
afsökunar
1 Stjómarmennirnir tveir,
Shepherd og Hall, báðust í gær af-
sökunar á ummælum sem höfð vom
eftir þeim í bresku blaði um helgina.
Stjóm félagsins sagði í yfirlýsingu
að ekki yrði gripið til frekari aðgerða
vegna málsins að svo stöddu.
Ævareiðir fylgismenn Newcastle
kröfðust afsagnar stjórnarmannanna
tveggja. í sameiginlegri yfirlýsingu
Shepherds og Halls biðjast þeir af-
sökunar á þeim óþægindum sem
málið hefur valdið. Einnig segir þar
að þeir sem þekki tvímenningana
geri sér grein fyrir að umrædd um-
mæli, sem þeim em eignuð, séu á
skjön við skapgerð þeirra.
Newcastle United Plc gaf einnig út
yfirlýsingu þar sem segir að óháðir
stjómarmenn, sem stjómin hafi beðið
um að skoða málið, telji óráðlegt að
grípa til aðgerða að svo stöddu, þar
sem verið sé að kanna lagalega stöðu
stjómarmannanna tveggja
Jóhannes til
Glasgow
Rangers
JÓHANNESI Karli Guðjóns-
syni, knattspyrnumanni frá
Akranesi, hefur verið boðið
að æfa með skoska liðinu
Glasgow Rangers í viku til tíu
daga. Jóhannes er 17 ára og
sonur Guðjóns Þórðarsonar
landsliðsþjálfara. Ekki er
ákveðið hvenær Skagamaður-
inn ungi fer til Skotlands.
Reuters
DÓMARINN Mike Reed rekur Dennis Bergkamp af leikvelli í bikarleiknum á Upton Park.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Michael Jordan
gerði gæfumuninn
Iichael Jordan átti mjög góðan
leik fyrir Chicago Bulls sem
vann Indiana Pacers 90:84 á útivelli í
NBA-ddldinni í körfuknattleik í fyrr-
inótt. Hann skoraði 36 stig, hitti úr 14
af 28 skotum sínum og skoraði fjögur
síðustu stig leiksins. Þegar sex mínút-
ur vom eftir hafði Indiana yfir 81:78,
en síðan komu sex stig í röð frá Bulls.
Ron Harper og Toni Kukoc gerðu 17
stig hvor og Dennis Rodman tók 19
fráköst. Chris Mullin var atkvæða-
mestur í liði heimamanna með 18 stig.
„Ég tel það mjög líklegt að við
mætum Indiana í úrslitakeppninni,"
sagði Jordan. „Við höfum sýnt og
sannað að við getum leikið vel á móti
bestu liðunum, hvort sem þau eru í
toppsætunum í austur- eða vestur-
deildinni.
Houston vann fjórða leikinn í röð
er Milwaukee kom í heimsókn, 96:91.
Clyde Drexler gerði 15 stig í leiknum
og fór þar með yfir 22.000 stiga múr-
Michael Jordan
inn. Matt Maloney var með 19 stig og
Hakeem Olajuwon 18 fyrir Houston.
Armon Gilliam og Ray Allen gerðu 20
stig hvor fyrir Milwaukee.
Boston Celtic tapaði fimmta leikn-
um í röð og nú fyrir Dallas á útivelli
99:93. Chris Anstey gerði 26 stig fyr-
ir Dallas og Khalid Reeves 20.
Antoine Walker var stigahæstur í
liði Boston með 23 stig og Ron
Mercer gerði 18.
Steve Smith gerði 21 stig fyrir
Atlanta sem vann Toronto á útivelli
117-105 og var þetta sjötti sigur liðs-
ins í síðustu sjö leikjum. Mookie
Blaylock náði fyrstu þrennunni í
þrjú ár, gerði 10 stig, tók 11 fráköst
og átti 12 stoðsendingar. Doug
Christie var langbestur í liði Toronto
og gerði 30 stig.
New York Knicks sigraði Phila-
delphiu 100:96 á heimavelli. Allan
Houston gerði níu af 31 stigi sínu á
síðustu þremur mínútum leiksins.
KNATTSPYRNA