Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1998 B 3
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Sigurður Bjarnason segir árangur Bad Schwartau hafa farið fram úr vonum
vera á
Allir
Sigurður fór til Þýskalands sum-
arið 1996 og lék einn vétur með
GWD Minden í 1. deildinni, en
kunni ekki vel við sig og skipti yfir í
herbúðir Bad Schwartau sl. sumar
og segir það vera eins og hvítt og
svart frá dvölinni í Minden. „Hér er
allt í föstum skorðum og agi mikill.
Æfingar eru fjölbreyttar og þjálfar-
inn nær að blanda saman kerfís-
bundum handknattleik og einstak-
lingsframtaki þar sem hver leik-
maður fær að njóta sín til fulls. Það
er vart hægt að segja að ég hafi
fengið frídag síðan æfingar hófust
sl. sumar. Fyrir vikið hef ég ekki
verið í jafn góðri æfingu og nú í
langan tíma. En þrátt fyrir mikinn
aga þá eru æfingar fjölbreytilegar
og skemmtilegar og við erum aldrei
að gera sömu hlutina æfingu eftir
æfingu." Þjálfari er Milomir Mijar-
tovich og er fæddur og uppalinn í
Júgóslavíu en hefur búið í Þýska-
landi undanfarin ár.
ina.“ í sókninni segist Sigurður hafa
verið að leika í stöðu skyttu vinstra
megin og vera sáttur við sinn hlut,
en markaskorunin hefur dreifst
jafnt á milli liðsmanna að því undan-
skildu að Marek Kordoweecki sker
sig úr, sem markahæsti maður
deildai-innar. Hann tekur öll víta-
köst og hefur skorað úr á annað
hundrað í vetur.
Samningurin
endurnýjaður
Sl. sumar gerði Sigurður eins árs
samning við Schwai-tau, sem var
uppsegjanlegur af hálfu beggja aðila
í vor, en forráðamenn félagsins voru
ekkert að hika við að bjóða Sigurði
áframhaldandi samning og verður
hann því í herbúðum liðsins á næsta
vetri. „Þeir komu að máli við mig í
desember og buðu mér nýjan samn-
ing til eins árs. Boðið var gott, auk
þess sem mér líkar vel hér. Því var
ég ekkert að hika við að skrifa undir
nýjan samning og vera með liðinu í
l. deild, enda vilja allir leika þar á
meðal bestu handknattleiksmanna
heims.“
Bad Schwartau varð í öðru sæti í
deildinni í fyrra og því var stefnan
sett á að fara upp í vetur og því fékk
félagið til liðs við sig þrjá leikmenn
til að styrkja hópinn. Auk Sigurðar
komu Edgar Schwank skytta og
Jörg Engelhardt markvörður frá
Hamlen. Hins vegar varð styrkurinn
af Schwank minni en efni stóðu til
því hann lék ekki ekkert með vegna
meiðsla fyrr en nokkuð var liðið á
janúar. „Fyrir næstu leiktíð ætla
forsvarsmenn félagsins að taka svip-
aðan pól í hæðina og kaupa fáa en
góða leikmenn. Líklega verða aðeins
keyptir tveir leikmenn - Tomislav
Farkas frá Minden og línumaðurinn
Mike Bezdicek frá Lemgo.“ Auk
þeirra sem að framan er getið eru
m. a. innan vébanda liðsins Svíinn
Per Thorson, Rússinn Dmítrí Kar-
lov og markvörðurinn.
Sigurður sagði ennfremur að mik-
ill munur væri á að leika í 1. eða 2.
deild. „í fyrstu deild er hver leikur
úrslitaleikur, en í annarri deild eru
kannski átta eða tíu hörkuleikir yfir
tímabilið því betri liðin eru ekki
fleiri en svo. Hins vegar er ljóst að
það verður að vinna þessa leiki til
þess að eiga möguleika á að komast
upp úr deildinni og það höfum við
gert að útileiknum við Nordhorn
undanskildum. Þeir hafa hins vegar
verið að tapa fyrir lakari liðunum."
Sigurður hefur ekki verið í ís-
lenska landsliðinu í handknattleik
undanfarin misseri en segist ekki
hafa gefið vonina um að vinna sér
sæti í liðinu upp á bátinn. „Eg hef
ekki misst vonina um sæti í landslið-
inu, bíð bara eftir kalli frá landsliðs-
þjálfaranum. En eins og staðan er
nú er ég ánægður með hvernig mér
hefur gengið með mínu félagsliði í
vetur, það er aðalatriðið."
„MARKMIÐ okkar í haust var að fara upp í fyrstu deild, en ég
held að enginn hafi átt von á að okkur gengi jafn vel og raun ber
vitni um,“ segir Sigurður Bjarnason handknattleiksmaður með
Bad Schwartau í Þýskalandi. Um helgina tryggði féiagið sér sig-
ur í norðurhluta 2. deildar og leikur í fyrstu deild næsta haust,
en tvö ár eru liðin síðan félagið var þar síðast. Enn eru fjórar
umferðir eftir af deildarkeppninni en Nordhorn sem er í öðru
sæti er níu stigum á eftir og á ekki möguleika á að komast upp
fyrir Sigurð og félaga. „Við höfum gert þetta með stæl og nú er
bara að Ijúka þeim leikjum sem eftir eru með sama hætti,“ segir
Sigurður en Bad Schwartau hefur aðeins tapað einum ieik í vet-
ur, fyrir Nordhorn á útivelli, en unnið hina leikina 29. Þá komst
liðið í 8-liða úrslit í bikarkeppninni.
SIGURÐUR Bjarnason kominn í 1. deild á ný í Þýskalandi. „Hef
ekki gefið upp vonina að leika aftur með landsliðinu."
Hef bætt varnarleikinn
Aðalkeppinautarnir í vetur, auk
liðs Nordhorn, hafa verið Hansa
Rostock og Duderstadt. „Nú stend-
ur keppnin um annað sætið á milli
Nordhorn og Rostock og síðar-
nefnda liðið á eftir að fá Nordhorn í
heimsókn. Það er síður en svo auð-
velt að sækja stig til Rostock. Það
fengum við að reyna á dögunum.
Náðum að merja sigur undir lokin,
28:25 eftir að hafa verið undir í hálf-
leik. Eini leikurinn sem við höfum
tapað í vetur var gegn Nordhorn á
þeirra heimavelli."
Sigurður segist hafa verið að leika
jafnt í vörn sem sókn á þessari leik-
tíð eftir að hafa nær einvörðungu
verið í sókninni hjá Minden. „Með
aðstoð þjálfarans hef ég bætt varn-
arleikinn verulega hjá mér, enda
leggur hann mikla áherslu á vörn-
FRJALSIÞROTTIR / URVALSMÓTIN
Milljónir í verðlaun
Vegleg peningaverðlaun verða í
boði í nýju úrvalsdeildarmóta-
röð Alþjóða frjálsíþróttasambands-
ins, IAAF, sem hleypt verðm- af
stokkunum í sumar. Þar verður
keppt í sjö greinum í karlaflokki og
fimm í kvennaflokki. Sigurvegari
hverrar greinar á hverju mótanna
sjö fá tæplega 1.100 þúsund króna í
sinn hluta, annað sætið gefur rúm-
ar sjö hundruð þúsund krónur og
þriðja sætið rúmar 400 þúsund
krónur. Líkt og áður var á stiga-
mótum IAAF verður einnig stiga-
keppni allra þátttakenda og fá þrír
stigahæstu keppendurnir peninga-
verðlaun í mótslok, sem verða í
Moskvu 5. september. Sá stiga-
hæsti fær 3,6 milljónir kr., annað
sætið rúmar tvær milljónir og
þriðja sætið gefur tæpa hálfa aðra
milljón. Loks verður sérstökum
verðlaunasjóð, um 70 milljónum
kr., skipt á milh þeirra sem ná að
vinna sínar greinar á öllum mótun-
um sex, lokamótið undanskilið.
Þótt þessar upphæðir þyki ekki
háar í flestum greinum íþrótta er
um verulegar upphæðir í heimi
frjálsíþrótta þar sem aðeins eru
örfá ár síðan frjálsíþróttamönnum
var heimilt að taka við greiðslum
fyrir að stunda íþrótt sína.
Daly
með 18
hogg
JOHN Daly segist ekki taka
það nærri sér þött hann hafi
leikið 6. holuna á Bay Hill á
18 höggum á síðasta degi
golfmóts í Fiórída um helg-
ina en holan er par finim.
Vinstra megin við brautina
er vatn og upphafshögg hins
stóra og stæðilega kylfings
lenti í vatninu. Hann lét bolt-
ann falla í sérstökum fallreit
við hlið brautarinnar og
ákvað að reyna að komast
yfir vatnið með því að nota
trékylfu númer þrjú. Það
mistókst og svo aftur og aft-
ur og aftur og þegar bolti
hans komst loks yfir vatið,
um 250 metra högg, var
kappinn kominn með 13
högg. Heppniu var ekki með
Daly því boltinn lá illa og
næsta högg rétt náði inn á
braut. lnnáhöggið var ágætt
en boltinn lenti á steini rétt
við flötina og hoppaði þaðan
i glompu. Þaðan sló hann inn
á flöt og púttaði tvívegis.
Alls 18 högg. „Ég vissi að ég
kæmist yfir með þrjú trénu,
en því miður notaði ég fúll-
mörg högg til þess,“ sagði
Daly og virtist ekki taka
óhappið nærri sér. Hann lék
næstu holu á fugli og lauk
hringnum á 85 höggum, tíu
yfir pari.