Morgunblaðið - 26.03.1998, Qupperneq 8
BLAK
Við erum
langbestir
ÞEGAR Valur Guðjón Vals-
son, fyrirliði Þróttar, tók við
Islandsbikarnum í gærkvöld,
lyfti hann honum hátt á loft
og hrópaði: „Við erum lang-
bestir!“ Það geta vart verið
margir sem efast um það því
þriðja árið í röð hefiir Þróttur
unnið allt sem hægt er að
vinna hér á landi.
Hann á af-
mæli í dag
LEIFUR Harðarson, þjálfari
Þróttar, átti afmæli í gær og
leikmenn Þróttar færðu hon-
um góða afmælisgjöf, örugg-
an sigur. En þeir gerðu fleira
því þegar bikarinn gekk á
milli manna sungu þeir af-
mælissönginn fyrir Leif, sem
var uppspilari og fyrirliði
Þróttar í mörg ár.
Stjarnan
fékk rautt
ÞRÓTTUR notaði sömu sex
leikmennina allan tímann en
þegar staðan var 12:2 í síð-
ustu hrinu kom Jón Óli inná
fyrir Magnús. Síðan bað liðið
um skiptingu þegar staðan
var 14:2 og þá átti Stefán að
koma inn fyrir Einar Hilmars-
son, en áður en af þvf varð
þurfti dómari að sýna Hall-
grími Sigurðssyni úr Stjörn-
unni rautt spjald og þar með
fékk Þróttur síðasta stigið og
því varð ekkert af skiptingu.
Allt er þá þrennt er
Morgunblaðið/Þorkell
ÞRÓTTUR vann allt sem hægt var að vinna f vetur. Hér fagna þeir Valur Guðjón Valsson fyrirliði,
Jón Óli Valdimarsson, Einar Hilmarsson, Fannar Þórðarson, Óli Daði Jóhannesson, Magnús Aðal-
steinsson, Áki Thoroddsen, Stefán Sigurðsson, Matthías Bjarki Guðmundsson, Einar Þór Ásgeirs-
son og Leifur Harðarson þjálfari.
Þróttarar unnu allt
Hafí einhver efast um hvaða fé-
lag er með besta liðið í blaki
karla hlýtur sá hinn sami að hafa
I sannfærst um það í
gærkvöldi að það er
Þróttur. Þróttarar
urðu í gær Islands-
meistarar er þeir
lögðu Stjörnuna, 3:0, í þriðja úr-
slitaleik liðanna í leik sem tók að-
Þetta var
allt of létt
„ÉG ÁTTI satt best að segja von á
að leikurinn yrði svona auðveldur.
Þetta var allt of létt og alls ekki
skemmtilegt því mótspyrnan var lít-
il sem engin. Það hefði mátt búast
við meiri mótspymu miðað við ann-
an leikinn, en svo varð ekki,“ sagði
Valur Guðjón Valsson, fyrirliði
Þróttar, eftir öruggan sigur.
Aðspurður hvort ekki hefði komið
á óvart að enginn úr hinu sigursæla
liði Þróttar hefði orðið fyrir valinu
þegar bestu og efnilegustu leik-
menn deildarinnar voru valdir,
sagði fyrirliðinn: „Jú, satt best að
segja kom það mér frekar á óvart,
en Emil [Gunnarsson úr Stjörn-
unni] lék vel í vetur og á þetta skil-
ið. En sé tekið tillit til hvemig þetta
þróaðist í vetur hefði ekki verið
óeðlilegt að við hefðum fengið ein-
hverja útnefningu. Þetta hlýtur alt-
ént að sýna að við erum með jafn-
asta liðið!"
Valur Guðjón sagði að nú væri
stefnan sett á að sigra í öllu á næsta
ári og síðan því næsta. „Við stefnum
að því að slá gömlu jöxlunum við en
þeir vora ósigrandi í mörg ár,“
sagði Valur Guðjón og vísaði þar
með til þess tíma er Þróttur var
nær ósigrandi á uppafi níunda ára-
tugarins.
Einhver fýla í
mannskapnum
Vignir Hlöðversson, besti maður
Stjörnunnar í gærkvöldi, var að
vonum ekki ánægður með leik liðs-
ins. „Þetta var afskaplega dapurt
hjá okkur og ég veit ekki hvers
vegna. Ef til vill höfum við talið að
þetta yrði frekar auðvelt þar sem
Einar Þór var meiddur, en það gekk
bókstaflega ekkert upp hjá okkur
núna. Það var einhver fyla í mann-
skapnum. En það er engin ástæða
til að leggja árar í bát því við erum
með ungt lið sem á eftir að láta
meira að sér kveða,“ sagði Vignir.
eins 56 mínútur. Þar með hefur
Þróttur unnið allt sem hægt er að
vinna, tapaði aðeins einum leik í
vetur, og það sama gerði liðið í
fyrra og einnig í hittiðfyrra.
Þróttarar þurftu í rauninni ekki
að sýna neitt í gærkvöldi til að
tryggja sér Islandsbikarinn. Þeir
vora miklu betri á öllum sviðum, í
uppgjöfum, móttöku, uppspili,
sókn, hávörn og lágvöm. Þrátt fyrir
að vera allt að því niðurlægðir af
Þrótti í gær er ástæðulaust fyrir
Stjörnumenn að örvænta. Þeir era
ungir að áram og í liðinu era mjög
góðir einstaklingar sem eiga fram-
tíðina fyrir sér. Þróttur sigraði 15:8
í fyrstu hrinunni, 15:7 í þeirri
næstu og 15:2 í þriðju.
Einhver taugaspenna sat greini-
lega í leikmönnum beggja liða í
upphafí leiks því fyrstu uppgjafir
liðanna fóra beinustu leið í netið.
Þegar Magnús Aðalsteinsson gaf
fyrst upp fyrir Þrótt skoraði hann
tvö stig án þess Stjarnan kæmi
knettinum yfir netið og síðar í sömu
hrinu endurtók Magnús leikinn auk
þess sem Áki Thoroddsen og Mattí-
as Bjarki Guðmundsson gerðu slíkt
hið sama.
Þróttarar léku af öryggi og eins
og þeir sem valdið hafa. Þeir
pressuðu uppgjafirnar og móttaka
gestanna var gjörsamlega í molum
og eins og oft þegar þannig er gekk
illa að sækja. Þrátt fyrir það tókst
Þrótti ekki að refsa gestum sínum
nægilega, þeir fengu aldrei fleiri en
tvö stig á meðan sami maður gaf
upp. En hægt og bítandi tókst það
þó.
Þrátt fyrir að Stjarnan hafi feng-
ið einu stigi minna í annarri hrinu
en þeirri fyrstu, var hún mun jafn-
ari og skemmtilegri, sérstaklega
tveir kaflar þar sem boltinn gekk
liða á milli eftir miklar sóknir. En
því miður fyrir þá sem komu til að
sjá skemmtilegan leik var þetta í
einu skiptin sem eitthvert fjör var í
Austurberginu.
I þriðju hrinu voru Stjörnumenn
búnir að játa sig sigraða enda gekk
hvorki né rak hjá þeim. Þróttur
komst í 6:0 og sigraði 15:2 á 14 mín-
útum. I þessari hrinu sýndu þeir
Magnús og Valur Guðjón Valsson,
fyrirliði Þróttar, hvernig hávörn á
að vera því þeir vörðu eina átta
kantskelli Stjömunnar í röð, og allt
í gólfið hjá gestunum, fyrst frá
Vigni Hlöðverssyni og síðan Ró-
berti, bróður hans.
Leikmenn Þróttar léku allir vel
og þess ber að geta að Einar Þór
Ásgeirsson var tognaður og lék
ekki með, en hann er gríðarlega
sterkur. Valur Guðjón spilaði vel
upp og dreifði sóknarleiknum vel
þannig að hávöm Stjömunnar átti í
hinum mestu vandræðum. I fyrstu
hrinu spilaði hann mikið á Áka á
miðjunni, notaði síðan kantana
meira í hinum hrinunum þó svo
hann læddi einum og einum bolta á
miðjuskellina.
Grannurinn að góðum leik er
móttakan og hún var hræðilega
slök hjá Stjörnunni þannig að Hall-
gn'mur Sigurðsson, uppspilari liðs-
ins, var allt annað en öfundsverður
af hlutverki sínu. Það heyrði til
undantekningar ef framspilið náði
fram fyrir sóknarlínuna þannig að
Hallgrímur var alltaf þrjá til fjóra
metra frá netinu og þá er erfitt að
sækja af einhverri aivöra. Það þarf
ekki að hafa mörg orð um leikmenn
Stjörnunnar. Enginn þeirra lék
eins og þeir eiga að sér, en Vignir
stóð sig þó lengstum ágætlega í
sókninni, skilaði boltanum oftast yf-
ir netið, en honum vora mislagðar
hendur í mótttökunni eins og öðr-
um Garðbæingum.
■ WIM Jansen knattspymustjóri
Celtic segir að vel komi til greina
að hann láti af störfum hjá félaginu
í vor er keppnistímabilinu lýkur.
Jansen segist ekki lynda við Jock
Brown framkvæmdastjóra Celtic.
Þá er aðstoðarmaður Jansens,
Murdo Macleod, einnig ósáttur við
hlutskipti sitt.
■ JANSEN virðist eiga í vandræð-
um með að festa sig í sessi því árið
1993 hætti hann hjá Feyenoord í
miðjum klíðum og ári síðar sagði
hann starfi sínu sem landsliðsþjálf-
ari Sádi Arabíu lausu eftir nokk-
urra mánaða dvöl.
■ HVAÐ sem segja má um Jansen
er ljóst að hann hefur lyft Celtic
upp úr öskustónni. Félagið er í
efsta sæti skosku úrvalsdeildarinn-
ar, er í undanúrslitum bikarkeppn-
innar og vann deildarbikarinn á
dögunum.
■ JOCK Brown segist hins vegar
ekki hafa heyrt af óánægju Jan-
sens og hann hyggist hætta í vor.
Sögusagnir í Hollandi, heimalandi,
Jansens, henna að hann renni hýru
auga til starfs þjálfara PSV Eind-
hoven er Dick Advocaat tekur við
Rangers í sumar.
■ ANNARS segja heimildir innan
PSV að forsvarsmenn félagsins
horfi til Bobby Robson í leit sinni
að næsta þjálfara liðsins. Harry
van Raaij stjórnarformaður PSV
mun hafa verið á Spáni á dögunum
og rætt þar við Robson um að hann
taki við liðinu.
■ HOLLENSK blöð segja að ef af
ráðningu Robsons verði skrifi hann
aðeins undir eins árs samning við
félagið og ráðning hans yrði bara
til bráðabirgða þar til framtíðar-
þjálfari fyndist, en Robson er 65
ára gamall. Horfa forráðamenn
PSV mjög til Eric Gerets núver-
andi þjálfara Club Briigge í Belg-
íu.
■ GERETS er samningsbundinn
Brugge til vorsins 1999 og víst er
að hann fær sig ekki lausan frá fé-
laginu fyrr en að þeim tíma liðnum,
en Gerets hefur lýst yfir áhuga á
að taka við PSV.
■ L4JV Wright hefur á ný verið
sendur til endurhæfingar í Frakk-
landi en kappanum hefur gengið
illa að fá sig góðan af meiðslum í
kálfa sem hafa hrjáð hann síðan í
janúar. Er vonast til þess að það
megi hressa hann fyrir leikinn við
Wolves í undanúrslitum bikar-
keppninnai- annan sunnudag.
■ EF það tekst ekki gæti svo farið
að Arsene Wenger knattspyrnu-
stjóri Arsenal verði í vanda með
fremstu víglínu liðsins því Dennis
Bergkamp hefur þriggja leikja
bann er Arsenal mætir Bolton nk.
þriðjudag og verður því ekki með
gegn Ulfunum fimm dögum síðar.
■ ALEX Ferguson knattspyrnu-
stjóri Manchester United festi á
þriðjudaginn kaup á Jonathan
Greening 19 ára gömulum fram-
herja frá 2. deildar liðinu York.
■ VINNIE Jones leikmaður
Wimbledon er á leiðinni til QPR í
1. deildinni fyrir rúmar 60 milljónir
króna. Honum er ætlað það hlut-
verka að vera þjálfari ásamt því að
leika með liðinu.
■ WINFRIED Schafer sem verið
hefur þjálfari Karlsruhe síðastliðin
12 ár var í gær sagt upp starfi sínu,
en féiagið er nú í 16. sæti af 18 lið-
um í 1. deildinni í Þýskalandi. Eft-
irmaður Schafers er Jörg Berger
fyrrverandi þjálfari Schalke.
■ JAPANSKA stórfyrirtækið Ca-
non hefur undirritað tveggja ára
samning um að vera aðalstyrktar-
aðili rússnesku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu og bikarkeppninnar
þar í landi næstu tvö árin.