Morgunblaðið - 08.04.1998, Side 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Fram - FH 24:22
Framhúsið; þriðji leikur í undanúrslitum um
íslandsmeistaratitil karla, þriðjudaginn 7.
apríl 1998.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 2:3, 9:3, 9:4,
10:5, 12:5, 12:6, 13:6, 12:12, 14:12, 14:15,
17:16, 18:17, 19:18, 19:19, 20:19, 20:20,
20:21, 21:22, 22:22, 24:22.
Mörk Fram: Oleg Titov 6/2, Sigurpáll
Ámi Aðaisteinsson 5/1, Guðmundur Helgi
Pálsson 4, Gunnar Berg Viktorsson 3, Daði
Hafþórsson 2, Magnús Arnar Arngrímsson
2, Njörður Árnason 2.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk FH: Sigutjón Sigurðsson 5/1, Sigur-
geir Árni Ægisson 4, Guðjón Árnason 3,
Gunnar Beinteinsson 3, Valur Arnarson 3,
Hálfdán Þórðarson 2, Guðmundur Pedersen
2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson, gerðu sin mistök eins og aðrir
f hita leiksins.
Áhorfendur: 1.314 greiddu aðgangseyri.
UMFN - Keflavík 93:88
íþróttahúsið í Njarðvík, undanúrslit í úrvals-
deildinni, DHL-deildinni í körfuknattliek,
fimmti leikur, þriðjudaginn 7. apríl 1998.
Gangur leiksins: 9:0, 21:8, 21:13, 27:21,
32:23, 38:31, 40:34, 40:41, 42:41, 47:49,
55:51, 62:57, 62:62, 67:65, 71:68, 73:74,
78:76, 86:76, 90:85, 93:88.
Stig Njarðvíkinga: Teitur Örlygsson 28,
Friðrik Ragnarsson 20, Petey Sessoms 18,
Páll Kristinsson 10, Örlygur Sturlusson 7,
Kristinn Einarsson 5, Guðjón Gylfason 5.
Stig Keflvíkinga: Falur Harðarson 35,
Kristján Guðlaugsson 15, Maurice Spillers
13, Guðjón Skúlason 10, Gunnar Einarsson
7, Fannar Ólafsson 6, Birgir Örn Birgisson
2.
Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Al-
bertsson. Gerðu sárafá mistök.
Áhorfendur: Fullt hús, ríflega 800 manns.
MBA-deildin
New Jersey - Charlotta......125:115
Orlando - Philadelphia.......113:92
San Antonio - Portland........75:79
Seattle - Phoenix............92:102
Íshokkí
NHL-deildin
Washington - Montreal...........2:2
Boston - Carolina...............0:3
Tampa Bay - NY Islanders........0:3
Dallas - Toronto................4:2
Colorado - Los Angeles..........1:3
Edmonton - Vancouver............3:2
Knattspyrna
Spánn
Reai Betis - Barcelona..........0:2
Staðan
1. Barcelona ..32 21 4 7 70:42 67
2. Real Madrid.. ..32 15 11 6 54:37 56
3. Sociedad ..32 13 13 6 50:31 52
4. Mallorca ..32 14 10 8 46:30 52
5. Celta Vigo.... ..32 15 6 11 45:39 51
6. Bilbao ..32 13 12 7 43:41 51
7. Real Betis ..32 14 8 10 41:41 50
8. Valencia ..32 14 6 12 48:35 48
9. Atletico ..32 12 11 9 64:48 47
10. Espanyol ..32 10 13 9 37:27 43
ii. Valladolid ..32 12 7 13 35:45 43
12. Deportivo ..32 10 12 10 36:34 42
13. Zaragoza ..32 10 11 11 39:48 41
14. Oviedo ..32 8 13 11 32:39 37
15. Merida ..32 9 9 14 30:45 36
16. Salamanca... ..32 9 8 15 31:41 35
17. Santander.... ..32 9 8 15 40:51 35
18. Compostela.. ..32 8 10 14 42:55 34
19. Tenerife ..32 8 10 14 33:49 34
20. Sporting Frakkland ..32 2 6 24 26:64 12
Olympique Lyon - Girondins Bordeaux.... 1:1
Nantes- Mónakó.....................1:1
Montpellier - Cannes...............1:0
Le Havre - AJ Auxerre..............2:2
Strasbourg - Bastia................1:1
Toulouse - Chateauroux.............1:1
RC Lens - Rennes................. 3:0
Staða efstu liða
1. RCLens.......31 19 4 8 47:28 61
2. Metz.........30 16 8 6 42:26 56
3. Marseille....30 16 6 8 45:24 54
4. Mónakó.......31 16 5 10 44:29 53
5. Bordeaux.....31 13 11 7 45:36 50
6. PSG..........30 14 7 9 41:30 49
7. Lyon.........31 14 5 12 34:34 47
8. AJ Auxerre...31 13 7 11 51:42 46
9. Bastia.......31 11 11 9 31:24 44
10. Nantes.......31 11 7 13 31:35 40
11. Montpellier..31 10 10 11 30:36 40
Holland
MVV Maastricht - PSV Eindhoven........2:1
Staðan
1. Ajax.........27 24 2 1 82:12 74
2. PSV..........28 18 8 2 73:32 62
3. Feyenoord....28 16 6 6 52:29 54
4. Heerenveen....27 15 5 7 44:35 50
5. Vitesse ....27 14 7 6 62:43 49
6. Tilburg......28 14 4 10 51:43 46
7. Sittard......27 12 4 11 38:43 40
8. NACBreda.....27 10 6 11 31:31 36
9. Sparta.......28 8 10 10 45:48 34
10. Twente.......28 8 9 11 31:36 33
11. Utrecht......28 10 3 15 50:59 33
12. Graafschap...28 8 8 12 37:35 32
13. Nijmegen.....28 10 1 17 31:53 31
14. Roda.........28 7 8 13 35:38 29
15. MVV..........29 8 4 17 29:63 28
16. Groningen....29 6 9 14 35:52 27
17. RKC .........29 7 6 16 40:59 27
18. Volendam.....29 4 6 19 27:79 18
Skotland
Dundee United - Dunfermline Athletic ....2:2
Staðan
1. Celtic.........30 19 6 5 55:19 63
2. Rangers........31 18 9 4 69:35 63
3. Hearts.........30 18 7 5 63:37 61
4. StJohnstone...31 11 7 13 32:37 40
5. Kilmarnock ....30 10 9 11 33:47 39
6. DundeeUtd....31 7 12 12 40:45 33
7. Motherwell...30 9 5 16 39:50 32
8. Aberdeen.....31 7 10 14 33:48 31
9. Dunfermline...31 7 10 14 38:63 31
10. Hibemian.....31 5 9 17 33:54 24
England
1. deild
Charlton - Wolverhampton...........1:0
Sheffield United - Middlesbrough...1:0
■ Paul Cascoigne meiddist á ökla og fór
af velli á 52. mín. eftir að Dean Saunders
hafði skorað fyrir Sheffield. Paul Merson
tókst ekki að skora úr vítaspyrnu fyrír Boro.
Tranmere - Portsmouth..............2:2
Staðan
1. Nott. For „41 25 8 8 72:39 83
2. Sunderland.... ..40 23 10 7 74:41 79
3. Charlton ..41 22 9 10 73:49 75
4. Middlesbr ..40 22 9 9 65:39 75
5. Shef. Utd ..39 18 14 7 57:41 68
6. Ipswich ..40 18 13 9 65:40 67
7. Birmingham. „41 16 15 10 53:34 63
8. Wolves „40 17 9 14 47:40 60
9. Bradford „41 14 14 13 44:45 56
10. WBA „41 15 11 15 41:47 56
11. Stockport „41 16 7 18 62:60 55
12. Oxford „41 15 8 18 55:55 53
13. Swindon „41 14 9 18 39:60 51
14. Crewe „40 15 5 20 46:57 50
15. Huddersfield, „41 12 11 18 47:60 47
16. Tranmere „40 12 11 17 45:50 47
17. Bury „41 9 19 13 39:50 46
18. Port Vale „41 12 9 20 50:58 45
19. QPR „41 10 15 16 45:56 45
20. Norwich „41 11 12 18 39:65 45
21. Man. City „41 11 10 20 47:49 43
22. Portsmouth... „41 11 10 20 44:58 43
23. Reading „41 11 9 21 38:69 42
24. Stoke „41 9 13 19 38:63 40
2. deild
Burnley - Blackpool................1:2
Fulham - Walsal!..................1:1
Grimsby - Luton...................0:1
Wigan - Boumemouth.................1:0
Staða efstu liða
1. Bristol City.41 24 9 8 65:33 81
2. Watford......41 21 14 6 61:38 77
3. Grimsby......41 18 13 10 52:32 67
4. Wrexham......41 17 14 10 50:46 65
5. Fulham.......41 18 10 13 51:38 64
6. Northampton...41 16 15 10 45:32 63
7. Gillingham...41 17 10 14 48:45 61
8. Bristol R....41 16 10 15 59:60 58
9. Blackpool....41 16 9 16 52:58 57
10. Chesterfíeld....41 14 15 12 41:38 57
11. Boumem.......41 14 12 15 50:48 54
12. Oldham.......40 13 14 13 54:47 53
13. Millwall.....41 14 10 17 41:49 52
14. Wigan........40 14 9 17 55:60 51
15. Wyeombe......41 12 15 14 47:51 51
16. York.........41 12 15 14 47:54 51
17. Luton........41 12 14 15 50:56 50
18. Preston......41 13 11 17 48:50 50
19. Walsall......40 13 11 16 40:46 50
Svíþjóð
Hammarby - Örebro................3:1
Norrköping - Elfsborg............0:0
Frölunda - Malmö.................0:0
Trelleborg - Halmstad.............1:3
Örgryte-AIK.......................0:0
Öster - Gautaborg.................0:0
Hácken - Helsingborg..............0:0
f kvöld
Íshokkí
íslandsmótið
Akureyri: SA-ÍBR.....19.30
• Þetta er annar leikur í úrslit-
um en SA vann 7:6 eftir bráða-
bana í fyrsta leik.
FERÐIR
Ferð til Kanarí
Fjölmargir kylfingar verða á ferð
og flugi um og eftir páskana
enda hafa íslenskir kylfingar yfir-
leitt reynt að lengja tímabilið með
því að skjótast til útlanda að vori
til og koma þá lagi á sveifluna áður
en tímabilið hefst hér heima. Bæði
Samvinnuferðir-Landsýn og Úr-
val/Útsýn eru með ferðir um pásk-
ana sem fullbókað er í og eftir páska
verður ferð með Úrvali/Útsýn til
Portúgals og Samvinnuferðir hafa
ákveðið að bjóða uppá ferð til Kan-
aríeyja.
Farið verður út miðvikudaginn
15. apríl og komið heim miðviku-
daginn 29. apríl og kostar ferðin
frá kr. 39.000 á mann í tvíbýli og
eru sex golfhringir á Maspalomas
veljinum innifaldir í verðinu.
I maí verða skrifstofurnar síðan
með enn fleiri ferðir því Samvinnu-
ferðir fara með hóp til Mallorka og
Úrval-Útsýn til Skotlands.
Arsenalferð
Arsenaklúbburinn efnir til hóp-
ferðar á síðasta heimaleik Arsenal
sunnudaginn 3. maí, en þá mætir
liðið Everton. Um er að ræða dags-
ferð og_ nánari upplýsingar er að
fá hjá Úrval/Útsýn.
FH-ingar fengu aukakast eftir að venjulegum leiktíma lauk; stilltu upp og Guðjóni Árnasyni tókst hið ótrúlega; náði skoti í gegnum geysiþéttan
varnarmúr Framara. Reynir Þór varði hins vegar og því varð að framlengja.
Ótrúlegar sveiflur
í Safamýrinni
FÉLÖGIN sem börðust um bikarmeistaratitilinn í langri og strangri
orrustu utan vallar jafnt sem innan, Fram og Valur, fá tækifæri til að
kljást á ný - að þessu sinni um íslandsmeistaratitilinn. Þetta er niður-
staðan í æsilegum, gríðarlega spennandi og kaflaskiptum oddaleik
Fram og FH í Framhúsinu. Eins og vera ber í sönnum úrslitaleik voru
taugar ieikmanna og áhorfenda þandar tii hins ýtrasta og fram á síð-
ustu stundu gat sigur hafnað hvorum megin sem var. Með örlítilli
heppni hafnaði sigurinn þeim megin sem einbeitingin og þrekið var
meira - Fram-megin, lokatöiur 24:22 eftir hreint ótrúlegar sveiflur.
Taugar leikmanna voru óstyrkar og
kom það greinilega niður á leiknum
strax í upphafí, mistök á mistök ofan
réðu ferð og þau fáu skot
Ivar sem rötuðu á markið voru
Benediktsson stöðvuð af markvörðunum,
skrífar sem þar meg gáfu tóninn
fyrir það sem komu skyldi,
en þeir voru óumdeilanlega bestu menn
liða sinna. Oleg Titov skoraði fyrsta mark
leiksins úr vítakasti þegar 2,55 mín. voru
liðnar. FH 1:1, aftur 2:2 og komust yfir
3:2 þegar leikið hafði verið í 6,55 mín. Þar
með urðu kaflaskipti í leiknum, leikmenn
Fram gerðu sjö mörk í röð á meðan 11
sóknir FH á 15,15 mínútum fóru í súginn.
Fram 'lék að vanda flata 6-0 vörn sem óá-
kveðnir sóknarmenn Hafnfirðinga fundu
enga leið framhjá. Þrátt fyrir að sóknar-
leikur Fram skilaði mörkum átti hann í
ákveðnum vandræðum vörn FH, en liðið
lék 5+1 vörn að vanda. Framarai- voru
þó hreyfanlegri í sókninni gegn þessum
vamarleik en í fyrri leikjum og Titov
reyndi að trufla Gunnar Beinteinsson
sem tók Magnús Arnar Arngrímsson úr
umferð. Það var fyrst og fremst góð
vörn, frábær markvarsla Reynis Þórs
Reynissonar, hann varði 15 skot í hálf-
leiknum, og hraðaupphlaup í kjölfarið
sem voru lykillinn að sjö marka forystu
heimamanna í leikhléi, 12:5. Helming
marka sinna í hálfleiknum gerðu
Framarar úr hraðaupphlupum.
Hafi einhver haldið að þar með væru
úrslitin ráðin, hafði sá hinn sami rangt
íyrir sér því síðari hálfleikurinn var ólík-
ur þeim fyrri. Leikmenn Framara urðu
værukærir í sóknarleiknum, vömin slak-
aði á og botninn datt úr markvörslunni
um leið. FH-ingar sýndu allt annan leik
bæði í vörn og sókn, minnkuðu smátt og
smátt forskot Framara. Guðjón Arnason
kom í stöðu leikstjórnanda og Valur Am-
arson í hans stað í skyttuhlutverkið. Við
þetta kom meiri ógnun í sóknina sem
skilað hverju markinu á fætur öðm. Um
leið greip um sig örvænting í liði
Framara sem sáu forskotið minnka hratt.
Fram gerði aðeins tvö mörk úr fyrstu 15
upphlaupum í hálfleiknum og Suik
Hyung Lee varði allt hvað af tók. Gunnar
Beinteinsson jafnaði á 17. mínútu, 14:14,
og kom sínum mönnum yfir 11 mínútum
fyrir leikslok, 15:14.
Lokakaflinn var æsilegur, Fram lék
sem fyiT flata 6-0 og FH 5+1. Gunnar
Berg Viktorsson kom inn í stöðu skyttu
vinstra megin hjá Fram og Magnús færði
sig á miðjuna og Gunnar Beinteinsson
fylgdi honum þangað^ sem skuggi. Páll
Beck leysti Sigurpál Árna Aðalsteinsson
af í horninu vegna meiðsla Sigurpáls sem
ekki kom meira við sögu. Eftir þetta var
jafnt á öllum tölum til enda. Titov kom
Fram yfir úr hraðaupphlaupi, 20:19 þeg-
ar 1,40 mín var eftir og Sigurjón Sigurðs-
son skoraði hinumegin vallarins þegar
1,12 mín voru eftir. Fram sótti í kjölfarið
og brotið var á Magnúsi þegar hálf mín-
Leikstjórnandinn Guðmundur Helgi
Pálsson gerði síðasta mark Fram og
gulltryggði þeim sætan sigurinn. „Þetta
var mjög erfitt - átti í raun
Edwin aldrei að verða svona
Flögnvaldsson erfitt,“ sagði hann. „Við
skrifar komum ekki rétt stemmdir
til síðari hálfleiks. Því fór
sem fór. Samt fannst mér við aldrei
missa tökin á leiknum, jafnvel þegar við
lentum undir,“ sagði Guðmundur Helgi.
„Ég get ekki lýst því,“ var svar Krist-
jáns Arasonar, þjálfara Hafnfirðinga,
þegar hann var spurður hversu mikií
vonbrigði tapið fyrir Fram væri. „Sókn-
arleikurinn var afleitur í fyrri hálfleik.
Síðan lögðum við áherslu á að einbeita
okkur að því að leika handknattleik og þá
losnaði um spennuna, en ég er mjög von-
svikinn vegna tapsins," sagði hann.
úta var eftir og vítakast dæmt. Þar með
mættust í hita leiksins tveh’ bestu hand-
knattleiksmenn landsins, Titov og Lee
markvörður FH og Titov skaut í stöng og
náði ekki að tryggja Fram sigur. FH-ing-
ar fóru upp en lánaðist ekki að skora, svo
að framlengja varð.
FH-ingar voru sterkari í fyiri hlutan-
um, skoruðu tvö mörk gegn einu heima-
manna. Svo virtist að FH-ingar væru
komnir í vanda með sóknarleik sinn í síð-
ari hlutanum. Þeir náðu ekki að skora úr
5 upphlaupum og sóknarleikmenn virtust
þreytulegir og uppiskroppa með hug-
myndir. Tókst þeim ekki að fylgja eftir
stórgóðum leik Lee markvarðar sem hélt
uppteknum hætti frá síðari hálfleik.
Hann var hins vegar ekki næg hindrun
fyrir Framara.
Afdrifarík mistök
Fram gerði tvö mörk í röð og komst í
23:22 þegar 1,25 mín. var eftir. FH-ingar
sóttu og Sigurjón átti skot í slána er slétt
mínúta var efth-, knötturinn bai'St út í
teiginn þar sem Gunnar Berg var innan
teigs, af honum hrökk boltinn til baka á
Reyni mai'kvörð og Framarar hófu sókn
sem endaði með sigurmarkinu 5 sekúnd-
um fyrir leikslok, 24:22. Dómurunum,
Gunnari Viðarssyni og Sigurgeh'i Sveins-
syni sást yfir að dæma vítakast á Fram,
er knötturinn fór af Gunnari Berg og til
Kristján var ekki ánægður með nokkr-
ar síðustu ákvarðanh- dómaranna í leikn-
um.
„Ég tók ekki eftir því hvort Gunnar
[Berg Viktorsson] var innan teigs þegar
hann tók frákastið [þegar Fram var einu
marki yfir og ein mínúta var eftir]. Ef
það reynist rétt er það algert hneyksli
vegna þess að dómarinn stóð tvo metra
frá Gunnai’i," sagði Kristján.
Ályktun hans um það hvort Gunnar
Berg hefði verið innan teigs var rétt.
Framarinn kom við knöttinn í eigin víta-
teig og lét hann falla til Reynis mark-
varðar. Að auki vildi Kristján fá dæmdan
ruðning á Oleg Titov í blálokin.
„Það er sárt að tapa vegna svo afdrifa-
ríkra mistaka dómara, en þetta eru mjög
jöfn lið og ég óska Frömm'um til ham-
ingju,“ sagði Kristján þjálfari.
markvarðar, einnig var til í dæminu
að reka Gunnar út af. FH-ingar mót-
mæltu en eins og fyrri daginn sann-
aðist að ekki tjáir að deila við dómar-
ann. Dýr mistökin að þessu sinni
kostuðu FH möguleikann á að jafna,
hið minnsta.
Segja má að þessi leikur hafi verið
stytt útgáfa af fyrri leikjum liðana í
undanúrslitunum og undirstrikaði
þær sveiflur sem hafa verið í þeim.
Varnir góðar og einstök markvarsla.
Bæði lið verðskulduðu að halda
áfram, en upp á slíkt var ekki boðið.
Nú var stund Guðmundar Guð-
mundssonar, hins snjalla þjálfara
Fram, að stýra liði í úrslitaleikjum
um íslandsmeistartitilinn. FH-ingar
kasta mæðinni eftir erfiðan vetur,
þvert um geð.
Þannig vörðu þeir
Reynir Þór Reynisson, Fram:
21/1 (8 til mótherja): 12 (4)
langskot, 3 (2) efth' gegn-
umbrot, 2 (0) úr hraðaupp-
hlaupi, 1 (1) úr horni, 2 (1) af
línu, 1 vítakast.
Suik Hyung Lee, FH: 27/1 (9
til mótherja): 12 (3) langskot, 1
(1) eftir gegnumbrot, 4 (1) úr
hraðaupphlaupi, 7 (3) úr horni,
2 (1) af línu, 1 vítakast.
SÓKNARNÝTING
Þriðji leikur liðanna í undanúrslitum,
leikinn í Reykjavík 7. apríl 1998
Mörk Sóknir % I Mörk Sóknir %
12 26 46 F.h 5 25 20
8 26 31 S.h 15 27 56
4 10 40 Framl. 2 9 22
24 62 39 Alls 22 61 36
9 Langskot 8
0 Gegnumbrot 2
8 Hraðaupphlaup 6
3 Horn 2
1 Lína 3
3 Víti 1
Misstum aldrei tökin
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1998 C 3,
KÖRFUKNATTLEIKUR
Okkur langaði svo
rosalega í úrslitin
„VIÐ höfðum þetta á viljanum. Við hættum aldrei og ég er í
skýjunum enda vorum við að leika við frábært lið, en eitthvað
verður að láta undan í svona leikjum og sem betur fer voru
það Keflvíkingar að þessu sinni,“ sagði Friðrik Ragnarsson,
fyrirliði Njarðvíkinga, eftir að þeir unnu sér rétt til að leika við
KR í úrslitum úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik. Njarðvíkingar
unnu nágranna sína úr Keflavík, 93:88, í fimmta undanúrslita-
leik liðanna. Leikurinn var hin mesta skemmtun, hraður, jafn
og merkilega vel leikinn miðað við hversu mikilvægur hann
var. Allir leikmenn börðust af krafti en miklu munaði að Njarð-
víkingar næðu að stöðva nokkra af lykilmönnum Keflvíkinga
og aðrir hittu mjög illa. En spennan var til staðar og sem
dæmi má nefna að í síðari hálfleik var sjö sinnum jafnt og
fjórtán sinnum skiptust liðin á um að hafa forystu. Það má ef
til vill segja að sígandi lukka sér best því bæði KR og Njarðvík
byrjuðu illa í vetur en mjökuðu sér upp stigatöfluna og enda
með því að leika til úrslita í deildinni.
Njarðvíkingar byrjuðu með
miklum látum og það var eins
og Keflvíkingar væru ekki mættir
■■■■■■I til leiks. Heimamenn
Skúli Unnar löbbuðu í gengum
Sveinsson hriplega vörnina og
sknfar gerðu níu fyrstu stig
leiksins á meðan gest-
irnir voru sýnu verri í sókn en vörn
því skot þeirra voru gjörsamlega
misheppnuð. Eftir tvær og hálfa
mínútu fannst Sigurði Ingimundar-
syni, þjálfara Keflvíkinga, komið
nóg og bað um leikhlé. I kjölfarið
tókst gestunum að skora og síðan
tróð Maurice Spillers með gríðar-
legum tilþrifum, kom á fleygiferð
og stökk upp rétt innan við víta-
línu.
Vonuðust Keflvíkingar til að þar
með hefði hann gefið tóninn, en því
miður fyrir þá náði Spillers sér ekki
á strik í sólminni, en lék vel í vörn-
inni þar sem hann tók fjölmörg frá-
köst. „Við spiluðum illa í sókninni
og hittum ekki á meðan þeir hittu
ágætlega," sagði Sigurður þjálflari
og vildi koma hamingjuóskum á
framfæri til Njarðvíkinga.
Þegar leikið hafði verið í 11 mín-
útur var staðan 21:8 og það eru ör-
ugglega ár og öld síðan Keflvíking-
ar hafa aðeins gert átta stig í heilar
11 mínútur, en það stóð til bóta.
Falur Harðarson fór íyrir gestun-
um og hægt og bítandi minnkuðu
þeir muninn og þegar 1,6 sekúndur
voru til leikhlés fékk Falur víti sem
hann skoraði úr og kom Keflavík yf-
ir í fyrsta sinn, 41:40. Það sem
meira var; Sturlaugur Örlygsson,
hinn ungi leikstórnandi Njarðvík-
inga, fékk þriðju villu sína ómaklega
er tæp mínúta var til hlés og þá
fjórðu er réttilega var dæmdur
ruðningur á hann.
Síðari hálfleikur var einstaklega
jafn og spennandi. Njarðvíkingum
tókst að halda Kristjáni Guðlaugs-
syni í skefjum, en hann kom inn á
um miðjan fyrri hálfleikinn og gerði
15 stig, þar af þrjár þriggja stiga
körfur. Guðjón fyrirliði Skúlason
var einnig í strangri gæslu svo og
Gunnar Einarsson. Fals var einnig
vel gætt en slíkt krefst fullrar ein-
beitingar hvert einasta sekúndubrot
og ef menn depluðu auga var Falur
búinn að skora!
Þegar staðan var 73:74 fyrir
Keflavík og 4,36 mín. til leiksloka
fékk Guðjón sína fímmtu villu og
varð að fara út af. „Ég hefði viljað
hafa Guðjón inni á í lokin. Það þekk-
ir það enginn betur en hann hvað
þarf að gera á lokamínútum svona
leikja," sagði Sigurður, þjálfari
Keflvíkinga. Njarðvíkingar gerðu
13 stig gegn tveimur og þegar tvær
mínútur voru eftir var staðan 86:76
og heimamenn hittu úr vítaköstun-
um á lokakaflanum þannig að sigur-
inn var þeirra.
Lið Njarðvíkur lék vel. Allir
lögðu sitt af mörkum og menn börð-
Nökkvi Már alltaf
í úrslitaleikjum
NÖKKVI Már Jónsson, sem nú leikur með KR, lýkur senn sjötta
keppnistímabilinu í úrvalsdeildinni - og getur státað af því einstaka
afreki að hafa leikið til úrslita um íslandsbikarinn öll árin! Nökkvi
lék með Keflvíkingum 1988-89 og 89-90, varð íslandsmeistari fyrra
keppnistímabilið eftir sigra á KR en tapaði í úrslitum fyrir KR
seinna árið. 1990-91 lék hann í Bandaríkjunum en 91-92 og 92-93
varð hann meistari með Keflvíkurliðinu. 1993-94 og 94-95 lék hann
með Grindvíkingum og tapaði bæði árin í úrslitum fyrir Njarðvíking-
um, 1996 og 1997 var Nökkvi meiddur og lék ekkert, en var reyndar
skráður í lið Grindvíkinga sem varð íslandsmeistari bæði árín.
Morgunblaðið/Einar Falur
FALUR Harðarson lék mjög vel fyrir Keflvíkinga í gær, en það
dugði ekki. Hér reynir Petey Sessoms að verja skot frá honum
en Gunnar Einarsson fylgist með úr fjarlægð.
Úrslitaslagurinn hefst
annan í páskum
FYRSTI úrslitaleikur KR og Njarðvíkur fer fram í íþróttahúsinu á
Seltjarnai'nesi á mánudaginn, annan dag páska, og annar leikurinn
verður háður í Njarðvík fimmtudaginn 16. apríl. Þriðji leikurinn verð-
ur þremur dögum síðar á Seltjarnarnesi og fjórða viðureignin í Njarð-
vík þriðjudaginn 21. apríl. Komi til oddaleiks fer hann fram á heima-
velli KR, íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi, fimmtudaginn 23. apríl - á
fyrsta degi sumars.
ust eins og þeir gátu.
Vörnin var lengstum
sterk og tókst að halda
lykilmönnum gestanna
á mottunni, öllum
nema Fali. Teitur átti
mjög góðan leik, bæði í
sókn og vörn, og ekki
stóð fyrirliðinn, Friðrik
Ragnarsson, honum
langt að baki og hefur
trúlega sjaldan leikið
betur en í vetur. „Við
vorum farnir að fínna
lyktina af úrslitaleikj-
unum og fannst kom-
inn tími til að við
kæmust þangað á nýj-
an leik,“ sagði fyrirlið-
inn. Petey Sessoms var
sterkur og gekk vel að
eiga við Maurice Spill-
ers sem þó er talsvert
þyngri en hann. Ann-
ars var það fyrst og
frems.t gríðarleg bar-
átta Njarðvíkinga sem
færði þeim sæti í úr-
slitarimmunni.
Falur Harðarson átti
frábæran leik og hefur
drengurinn sjaldan eða
aldrei leikið betur en í
úrslitakeppninni. Hann
vinnur hins vegar varla
leiki einn og það sem
brást í gærkvöldi var
hittni félaga hans.
Hinn ungi Fannar
Ólafsson átti fínan leik
og það verður gaman
að fylgjast með honum
í framtíðinni. Það sama
má segja um Njarðvík-
inginn Örlyg Sturlu-
son; hann á eftir að
verða mjög góður leik-
maður.
Urslitakeppnin
í körfuknattleik 1998
Fimmti leikur liðanna i undanúrslitum,
leikinn i Njarðvik 7. april 1998
NJARÐVÍK KEFLAVÍK
93 Skoruð stig 88
15/26 Vitahittni 13/17
6/16 3ja stiga skot 7/24
30/47 2ja stiga skot 26/55
24 Varnarfráköst 24
4 Sóknarfráköst 11
17 J Bolta náð 10
11 Bolta tapað 19
35 Stoðsendingar 19