Morgunblaðið - 25.04.1998, Síða 1

Morgunblaðið - 25.04.1998, Síða 1
A Ð R A L A N D S B 1998 LA UGARDA GUR 25. APRIL BLAÐ ■■■■ w , ''.iíÍ ' i !7* GOLF Frábært hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafsteinsson er í fremstu röð að loknum þremur keppnisdögum á golfmóti á Rimini á Italíu sem er í áskorendamótaröðinni. Leifur Geir fór 18 holumar á 68 höggum í gær, fjórum undir pari, og er í 5. til 7. sæti, tveimur höggum á eftir fyrsta manni. Hann fagnaði sumri með því að fara hringinn á 74 höggum í fyrradag og var í 23. til 27. sæti, en 50 fyrstu af 150 fengu að halda áfram. „Þetta gekk mjög vel hjá mér og ég var í góðum gír,“ sagði Skagamaðurinn við Morgunblaðið í gærkvöldi spurður um keppni dagsins. „Eg spilaði rosa- lega vel og náði átta fuglum en var kiaufi á fjórum holum þar sem ég fékk skolla. Þá var ég of ákafur og þrípútt- aði einu sinni þegar ég ætlaði mér fugl.“ Birgir Leifur var á 69 höggum eftir fyrsta dag en sagði eftir 36 holur að nú gæti hann farið að taka áhættu. „Ég gerði það og yfirleitt skilaði áhætt- an árangri en ég má samt ekki fara of geyst. Samt sem áður er ég ánægður með árangurínn sem lofar góðu fyrir síðasta hring.“ Stephen Hendry úti í kuldanum og Steve Davis á sömu leið STEPHEN Hendry, sexfaldur heimsmeistari í snóker, sá sæng sína upp reidda þegar hann mætti Jimmy Wliite í fyrstu umferð heimsmeist- aramótsins f Sheffield á Englandi. Þegar hlé var gert á leiknum síðasta vetrardag var staðan 8:1 og White hélt uppteknum hætti sumardaginn fyrsta, vann sannfærandi 10:4. White, sem hefur sex sinnum leikið til úrslita, aldrei sigrað en fjór- um sinnum tapað fyrir Hendry í úrslituni, lét mótherjann ekki slá sig út af laginu og gerði það sem til þurfti til að sigra. „Ég vildi ljúka þessu af sem fyrst en þegar spil- að er við Stephen er leikurinn ekki búinn fyrr en menn hafa tekist í hendur." White hefur ekki ver- ið upp á sitt besta að undanförnu en sigurinn breytti miklu. Möguleikai- hans á titlinum voru taldir 50-1 en eftir sigurinu 12-1. „Nú á ég mikla möguleika á að verða meistari og ef ég held áfram að leika á sömu braut sé ég ekki hvað ætti að koma í veg fyrir það.“ Hendry tók ósigrinum sem sannur fþróttamað- ur. „Ég samgleðst honum verði hann meistari. Ég verð að viðurkenna að ég átti von á að sigra en hann var frábær, hefur aldrei leikið svona vel á inóti mér. Hefði liann leikið svona í úrslitaleikjum hefði hann fagnað heimsmeistaratitli." Rammarnir fóru þannig, skor Hendrys á und- an: 12-106, 67-70, 7-78, 23-103, 2-71, 0-84, 21-56, 91-2, 18-79, 72-59, 82-26, 71-54, 29-78, 39-62. Steve Davis, sexfaldur heimsmeistari, virðist ætla sömu Ieið og Hendry en Mark Williams frá Wales var 11:5 yfir í gærkvöldi þegar leik þeirra var hætt. Þeir Ijúka viðureigninni í dag en Willi- ams, sem vann sjö ramma í röð, þarf aðeins að sigra í tveimur römmum til viðbótar til að fara áfram. KNATTSPYRNA Leiftur fékk lið frá Úkraínu Leiftur í Ólafsfirði mætir liði frá Ukraínu í fyrstu umferð Getrauna- deildar Evrópu, Intertoto-keppn- inni, og á fyrst heimaleik en dregið var í fyrstu þrjár umferðimar í gær. Keppnin verður með nýju sniði í ár þar sem lið frá helstu knatt- spyrnuþjóðum ætluðu að hunsa keppnina sem fyrr yrði fyrirkomu- laginu ekki breytt. 40 lið byrja í fyrstu umferð og leika heima og að heiman 20. eða 21. júní og 27. eða 28. júní en leikið er með útsláttar- fyrirkomulagi. Sigurvegararnir 20 bætast í hóp 12 liða af 20 sem rað- að er og lendir sigurvegarinn úr viðureignum Leifturs á móti fyrsta liði Danmerkur. Þeir leikir eiga að fara fram 4. eða 5. júlí og 11. eða 12. júlí. í þriðju umferð koma hin átta röðuðu lið og þá mætir sigur- vegarinn úr fyrrnefndum leikjum fyrsta liði frá Hollandi 18. eða 19. júlí og 25. júlí. Að þremur umferð- um loknum verða 12 lið eftir og verður sami háttur hafður á og áð- ur í fjórðu umferð en leikið verður 29. júlí og 5. ágúst. Að lokum leika síðustu sex liðin um þrjú sæti í Evrópukeppni félagsliða, UEFA- keppninni, 11. og 25. ágúst. Þau átta lið sem koma síðast inn í keppnina eru frá Ítalíu, Frakk- landi, Spáni, Þýskalandi, Hollandi, Portúgal, Englandi og Belgíu en engin þjóð á rétt á að senda fleiri en tvö lið. SKIÐI / ANDRESAR ANDAR LEIKARNIR Sumar og sól í Hlíð- arfjalli ANDRÉSAR andar leikarn- ir á skíðum hófust í Hlíðar- Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson KNATTSPYRNA Eyjólfur bjargvættur fjalli við Akureyri á sumar- daginn fyrsta. Þá var reynd- ar ekki mjög sumarlegt í fjallinu en í gær var allt ann- að upp á teningnum; sól var og blíða og keppni gekk mjög vel. Þá var keppt bæði í göngu og alpagreinum, með- al annars í stórsvigi ellefu ára, þar sem þessi stúlka spreytti sig í keppni við jafn- aldra sína en það eru börn á aldrinum sex til tólf ára sem taka þátt í leikunum. Akureyringar hafa verið sigursælir á leikunum til þessa, sem skýrist hugsan- lega á því að besta skíðafær- ið á landinu í vetur hefur einmitt verið í Hlíðarfjalli, þannig að þeir hafa æft við bestar aðstæður. Eyjólfur Sverrisson, landsliðs- maður í knattspyrnu, tryggði ný- liðum Hertha dýrmætt stig í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi þegar hann jafnaði 1:1 á móti Bielefeld 10 mínútum fyrir leikslok. „Við höfðum tapað tveimur leikj- um í röð og ástandið í Berlín var vægast sagt á suðupunkti," sagði Eyjólfur við Morgunblaðið. „Stað- an í deildinni er íljót að breytast og eftir gott gengi vorum við komnir á hættusvæði en stigið bjargaði okk- ur. Við erum í níunda sæti og eig- um þrjá leiki eftir, við Bochum, Leverkusen og Duisburg.“ Eyjólfur lék í þriggja manna vöm liðsins sem fyrr en fór fram undir lokin og skoraði í fyrstu sóknartilburðum sínum. „Við feng- um klaufamark á okkur í fyrri hálf- leik en annars lékum við vel í vörn og sókn, einkum eftir hlé. Spilið gekk vel og nóg var af fyrirgjöfun- um en við náðum ekki að nýta þær. Undir lokin sagði þjálfarinn mér að fara fram, ég tók hann á orðinu, fékk boltann þegar ég nálgaðist mark mótherjanna, tók hann með mér á ferðinni og sópaði honum á milli fóta markvarðarins. Þungu fargi var af okkur létt og gaman var að gera þetta mikilvæga mark. Þetta var þriðja mark mitt í deild- inni í vetur og allt hafa þetta verið úrslitamörk svo ég get verið ánægður eins og allir aðrir hérna í Berlín.“ KÖRFUKNATTLEIKUR: HELGI JÓNAS OG ANNA MARÍA KJÖRIN BEST/B4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.