Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 2
2 B LAUGAKDAGUR 25. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 B 3 ÚRSLIT Frjálsíþróttir 83. Víðavangshlaup ÍR KARLAR 12 ára og yngri: 1. Sveinbjörn Claessen............21.06 2. Jóhann Gísli Jóhannesson.......21.56 3. Arnar Gauti Markússon..........21.56 13 til 15 ára: 1. ÓlafurDan Hreinsson............18.33 2. EyþórHelgi Úlfarsson...........18.47 3. Björgvin Víkingsson............19.42 16 til 18 ára: 1. Stefán Ágúst Hafsteinsson......16.59 2. GunnarKarlGunnarsson...........17.09 3. ívar Guðjóns Jónasson..........19.53 19 til 39 ára: 1. Sigmar Gunnarsson..............15.24 2. Toby Benjamin Tanser...........15.50 3. Daníe! Smári Guðmundsson.......16.02 40 til 49 ára: 1. Örnólfur Oddsson...............17.38 2. Sighvatur Dýri Guðmundss.......17.54 3. Guðmann Elísson................18.06 50 til 59 ára: 1. Stefán Hallgrimsson............18.02 2. Birgir Sveinsson...............18.57 3. OrvilleG Utley.................19.36 60 ára og eldri: 1. Eysteinn Þorvaldsson...........23.24 2. Jón G Guðlaugsson..............24.10 3. Höskuldur Eyfjörð Guðmanns.....24.54 ' KONUR: 12 ára og yngri: 1. Þórdís Sara Þórðardóttir.......23.06 2. Gerður Gautsdóttir.............28.52 3. Dagbjört Steinarsdóttir........29.34 13 til 15 ára: 1. Rakel Ingólfsdóttir............20.18 2. Berglind Gunnarsdóttir.........20.37 3. Lilja Smáradóttir..............20.55 16 til 18 ára: 1. Gígja Gunnlaugsdóttir..........21.08 19 til 39 ára: 1. Martha Ernstsdóttir............17.25 2. Bryndís Emstsdóttir............18.27 3. Laufey Stefánsdóttir...........18.52 40 til 49 ára: 1. Helga Björnsdóttir.............20.27 2. Bryndís Magnúsdóttir...........21.10 3. Sigurbjörg Eðvarðsdóttir.......22.16 50 til 59 ára: 1. Fríða Bjarnadóttir.............23.34 2. Guðrún Sveinsdóttir............32.40 3. Guðrún Ólafsdóttir.............40.13 60 ára og eldri: 1. ÞorbjörgBjarnadóttir...........32.16 Knattspyrna Vináttulandsleikur Chile - Kólumbía...............2:2 Javier Margas 21., Marcelo Salas 84. - Leider Preciado 79., 82. 30.000. Þýskaland Hertha - Bielefeld.............1:1 Eyjólfur Sverrisson 80. - Stefan Kuntz 18. 46.762. Kaiserslautern - Gladbacli.....3:2 Oiaf Marschall 45., 60., 90. - Markus Hausweiler 16., Jörgen Petterson 43. 38.000. Staðan 1. Kaisersl ...31 18 9 4 56:36 63 2. Bayern ...31 17 8 6 63:36 59 3. Leverkusen. ...30 14 11 5 61:32 53 4. Stuttgart ...31 13 9 9 51:44 48 5. Rostock ...31 13 8 10 47:38 47 6. Schalke ...30 11 13 6 35:29 46 7. Bremen ...31 12 8 11 41:46 44 8. Duisburg ...31 10 10 11 40:42 40 9. Hertha ...31 11 7 13 38:48 40 10. Dortmund.... ...30 10 9 11 51:47 39 11. Wolfsburg;... ...31 11 6 14 37:44 39 12. HSV ...31 9 10 12 35:45 37 13. Köln ...30 10 5 15 44:56 35 14. 1860 ...31 9 8 14 39:51 35 15. Bochum ...30 9 7 14 35:44 34 16. Karlsruhe.... ...31 8 10 13 39:51 34 17. Giadbach ...32 7 11 14 47:57 32 18. Bielefeld ...31 7 7 17 38:51 28 Holland Ajax - Willem II Tilburg..........6:1 Volendam - MVV....................1:2 Patrick Leeflang 32. - Wasiu Taiwo 15., Emerson 68. 2906. England 1. deild Port Vale - Middlesbrough.........0:1 Deildabikarkeppni karla Ægir-Haukar.......................0:1 ÍBV - Vaiur.......................3:3 Skailagrimur - Tindastóll.........6:4 Dalvík - yölsungur................3:2 Leiftur- ÍR.......................2:3 Fylkir- Víðir.....................2:2 KA-KS.............................2:2 Keflavík - Grindavík..............4:1 Breiðablik - Reynir S.............7:0 Selfoss-FH........................0:5 Víkingur R. - Fram................1:3 ÍA - Þróttur R....................2:0 Fjölnir - Njarðvík................0:1 KR - Stjarnan.....................0:1 Leiknir R. - Afturelding..........1:0 Deildabikarkeppni kvenna ÍA - KR...........................0:4 Vaiur - Breiðablik................1:2 Íshokkí NHL-deildin Fyrstu leikir í úrslitakeppninni New Jersey - Ottawa...................1:2 ■ Eftir framlengingu. Philadelphia - Buffalo................2:3 Washington - Boston..................3:1 Pittsburgh - Montreal.................2:3 ■ Eftir framlengingu. Dallas- San Jose.....................4:1 Colorado - Edmonton...................2:3 Detroit - Phoenix....................6:3 St. Louis - Los Angeles..............8:3 ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR FRJALSIÞROTTIR SÓKNARNÝTING 16 29 55 F.h 16 29 55 12 27 44 S.h 9 27 33 28 56 50 Alls 25 56 47 5 Langskot 14 6 Gegnumbrot 1 2 Hraðaupphlaup 4 5 Horn 3 7 Lína 2 Fjóröi úrslitaleikur kvennaliðanna, leikinn í Hafnarfirði 23. apríl 1998 Lékum óskynsamlega „VIÐ getum sjálfum okkur um kennt því við lékum óskynsamlega í sókninni og vörnin fann sig aldrei allan leikinn," sagði Ragnheiður Stephensen Stjörnu- skytta, eftir leikinn. „Þar af leiðandi var Lijana í markinu ekki að verja eins og hún hefur gert að undanförnu því hún hafði enga vörn með sér. Það var því varnarleikurinn, sem gerði útslag- ið, við skoruðum að vísu 16 mörk fyrir hlé en fengum líka á okkur 16 og það á ekki að geta gerst. Við áttum mögu- leika á að jafna og fá framlenginu en það vantaði upp á viljann og grimmd- ina en þær voru líka að spila upp á líf og dauða á meðan við höfum einn leik upp á að hlaupa og það hefur eflaust haft einhver áhrif. Það verður erfítt að fara í fímmta leikinn þó ekki væri nema með tilliti til sögunnar því við höfum þrisvar tapað fímmta leik í úr- slit.um." FOLK ■ FILIPPO Inzaghi, markaskorar- inn mikli hjá Juventus, leikur á ný með liðinu á morgun, þegar efsta liðið fær Inter Milan í heimsókn. Fjórar umferðir eru eftir af ítölsku deildinni og Inter er aðeins einu stigi á eftir Juve, sem er á toppnum. Iuzaghi skarst á efri vör í síðari undanúrslitaleiknum gegn Mónakó í Meistarakeppni Evrópu í síðustu viku og sauma þurfti 24 spor i andlit hans. ■ PAOLO Montero, varnarmaður- inn sterki frá Uruguay, kemur aft- ur inn í lið Juventus eftir meiðsli og fær það hlutverk að gæta Bras- ilíumannsins frábæra Ronaldos. Hann gætti Ronaldos einnig í fyrri leik liðanna í vetur og gerði það frábærlega; Brasilíumaðurinn losn- aði aðeins einu sinni úr gæslunni en það reyndist að vísu nóg - þá lagði hann upp sigurmark Inter í leiknum! ■ HA UKASTÚLKUR léku með sorgarbönd í fjórða leiknum við Stjörnuna á fimmtudaginn, til minningar um Þorstein Þorsteins- son, sem var húsvörður í íþrótta- húsinu við Strandgötu en hann lést í vikunni eftir langvarandi veikindi. ■ MARGRÉT Theódórsdóttir harðjaxl í Stjörnunni fékk þungt högg í andlitið er leið að leikslok- um í Hafnarfirði á fímmtudaginn. Margrét, sem kallar ekki allt ömmu sína og hefur marga hildi háð á handboltavellinum, steinlá og vankaðist svo að hún varð að sitja á varamannabekknum um tíma. ■ HARPA Melsteð fyrirliði Hauka- stúlkna vann hlutkestið þegar Rögnvald Erlingsson dómari kastaði mynt fyrir fjórða leikinn við Stjörnuna. Harpa valdi ekki bolt- ann, heldur leikhelming. ■ DÓMARARNIR Stefán Arnalds- son og Rögnvald Erlingsson dæmdu leik Hauka og Stjörnunnar á fimmtudaginn og þeir dæma einnig síðasta úrslitaleik liðanna um Islandsmeistaratitilinn - í Garða- bænum í dag. ■ MIKA Hakkinen frá Finnlandi og Bretinn David Coulthard, öku- menn McLaren liðsins, náðu best- um tímum í fyrsta æfíngaakstri á Imola brautinni í San Marino í gær, en formula 1 kappakstur fer fram þar á morgun. ■ PETE Sampras frá Bandaríkjun- um komst í efsta sæti heimslistans í tennis á ný í gær. Marcelo Rios frá Chile sem komst í efsta sætið um daginn hefur ekki leikið um tíma vegna meiðsla. Sampras lék ekki í gær en Petr Korda, sem einnig átti möguleika á að ná efsta sæti, tapaði í átta manna úrslitum í Monte Carlo mótinu. ■ SEPP Blatter, framkvæmda- stjóri Alþjóða knattspyrnusam- bandsins, FIFA, sem er í framboði til forseta sambandsins, varði síma- miðasölu frönsku skipulagsnefndar- innar vegna HM í sumar en hún hefur víða verið harðlega gagnrýnd, Haukar ^lórk Sóknir % Stjarnan Mörk Sóknir % KA-menn leika um fimmta Grétar Þór Eyþórsson skrifar frá Svíþjóð KA vann sænska Drott 29:27 í norrænu meistarakeppninni í handknattleik í Gautaborg í gær og mætir norska liðinu Vik- ing í leik um 5. sætið en íslensku deildarmeistar- arnir byrjuðu á því að tapa 34:29 íyrir Runar frá Noregi. „Þetta var sérstaklega slakt hjá okkur og í raun óskiljanlegt hvað við vorum daufir,“ sagði Atli Hilmars- son, þjálfari KA, eftir fyrri leikinn. „Varnarleikurinn brást algerlega og við vorum eins og áhorfendur í vörn- inni. Fyrir vikið fór markvarslan for- görðum. Það er of mikið að fá á sig 34 mörk á móti ekki betra liði en Runar er. Ekkert í leik þeirra kom okkur á óvart, en við hreinlega leyfð- um þeim að eiga góðan leik. Þeir voru jú líka betur stemmdir en við og börðust betur. En við vinnum Runar með eðlilegum leik, það er ég sann- færður um. Það er eins og það liggi í undirmeðvitund okkar að keppnis- tímabilið sé búið og menn hafi ekki náð að hlaða batteríin upp á nýtt fyr- ir ný átök hér, en við ætlum að bjarga andlitinu og vinna Drott.“ Björgvin Björgvinsson tók í sama streng. „Við virtumst ekki vera til- búnir í þetta og lékum langt undir getu, sennilega var þetta slakasti leikur tímabilsins hjá okkur. Við lögðum upp með að spila vörnina fast, en þeir léku langt úti á vellinum og við komumst ekki almennilega í þá. Runar er ekki sterkt lið og ekk- ert kom okkur á óvart, en ég lofa að við spilum ekki svona illa aftur gegn Drott. Þeir eni þó varhugaverðir og mæta okkur örugglega ákveðnir eftir útreiðina gegn GOG.“ Tveir tapleikir hjá Val Valur mætir Drott í leik um sjö- unda sætið í norrænu meistara- keppninni í handknattleik en Vals- menn töpuðu tveimur fyrstu leikjum sínum. Fyrst 27:19 fyrir Redbergslid og í gær 28:23 fyrir Viking. Valsmönnum tókst að velgja sænsku meisturunum Redbergslid undir uggum í leik liðanna í Gauta- borg á fímmtudaginn. Þó lokatölurn- ar hafí verið 27:19 sænska liðinu í hag segir það ekki rétta sögu af gangi leiksins sem var mun jafnari en úrslitin gefa til kynna. Það var að- eins í lokin þegar Valsmenn fóru að taka áhættu til að jafna að Svíarnir nýttu sér mistök þeirra og skoruðu sex síðustu mörk leiksins. Valsmenn léku lengst af góðan varnarleik, með Guðmund Hrafn- kelsson í miklu stuði í markinu, hann varði t.d hvað eftir annað í fyrri hálf- leik úr dauðafæri frá stórstjörnu Svíanna Stefan Lövgren, sem þó náði sér upp I þeim' síðari og gerði alls 11 mörk. Valsmenn léku einnig af skynsemi í sókninni og héngu á boltanum þar til örugga færið kom. Tókst þeim þannig að halda hraða- upphlaupum Svíanna í skefjum. En lið Redbergslid er sterkt og þrátt fyrir að í liðið hafi vantað 2 metra skyttuna Jarnemyr og landsliðs- manninn Frandesjö voru landsliðs- mennirnir Löfgren, Vranjes og Gentzel of stór biti fyrir Valsara að þessu sinni. „Við lékum ekki okkar besta leik en vörnin var góð og Gummi mjög góður fyrir aftan hana,“ sagði Jón Kristjánsson, þjálfari Vals, um leik- inn við Svíana. „Redbergslid spilaði eins og við bjuggumst við og styrkur liðsins í hraðaupphlaupunum var okkur á köflum erfíður. En við get- um betur en þetta og þessi munur endurspeglar ekki muninn á ís- lensku og sænsku meisturunum. Þetta er kannske svolítið spurning um stemmningu hjá okkur, það hef- ur verið mikið að gerast að undan- förnu, fógnuður yfír unnum titlum og ég held að drengirnir séu á vissan hátt saddir eftir sigrana heima og því hefur orðið visst spennufall hjá okkur sem bitnaði á einbeitingunni núna.“ Guðmundur Hrafnkelsson sagði að Valsmenn hefðu verið lengi í gang „en við náðum okkur svo á strik, sér- staklega í byrjun seinni hálfleiks þegai- við jöfnuðum. Svo létum við dómarana fara óþai’flega í taugarnar á okkur og fengum því dóma á móti okkur og óþarfa brottvísanir og botninn datt úr þessu hjá okkur í lok- in. En ég er sáttur við mitt.“ Johan Eklund, þjálfari Red- bergslid, sagði að liðið hefði oft leikið betur „en þó náðum við góðum sprettum inn á milli. Við vissum ekk- ert um Val fyrir leikinn, en ég get ekki sagt að neitt hafí komið okkur sérstaklega á óvart í leik þeirra þó við höfum þurft að hafa mikið fyrir sigrinum. Við áttum þó klárlega von á öflugri mótspyrnu, sem við og fengum. Ef eitthvað er átti ég þó von á meiri langskotum, eins og hafa ein- kennt íslenskan handknattleik lengi.“ Peter Gentzel, markvörður, sagði að leikurinn hefði verið erfíður. „Þetta gekk upp og niður, en við höfðum þetta í lokin. Við byrjuðum ofsalega vel og maður átti von á að þetta yrði létt, en raunin varð önnur. Eg get ekki sagt að mótspyman hafí komið mér á óvart, en ég átti eigin- lega mest von á langskotum. Svo snerist sóknarleikur Valsmanna mest um línuspil! Júlíus Gunnarsson var mér þó erfiður í seinni hálfleik og gerði þrjú mörk í röð með skemmtilegum langskotum framhjá vörninni sem erfítt var að ráða við. Við mætum danska liðinu Virum í undanúrslitum og ég verð að segja að það gæti orðið okkur erfítt, enda með marga landsliðsmenn innan- borðs.“ Sögulegt ÍR-hlaup HIÐ árlega Víðavangshlaup ÍR, sem fram fór á sumardaginn fyrsta, varð sögulegt. Sigmar Gunnarsson úr UMSB sigraði í hlaupinu í sjötta skipti í röð og Martha Ernstsdóttir úr ÍR varð hlutskörpust í kvennaflokki. Þetta var í sjötta skipti sem hún sigrar. Sigur Sigmars var óvæntur og ekki Ijós fyrr en nokkru eftir að hlaupinu lauk. Hann kom nefnilega þriðji í mark; bræðurnir Sveinn og Björn Margeirssynir úr UMSS urðu á undan honum. Sveinn kom fyrstur í mark á 14,55 mín., Björn var næstur á 15,02 mín. og tími Sigmars var 15,24 mín. Bræðurnir voru síðan dæmdir úr leik fyrir að hlaupa ekki alveg rétta leið. Myndin er tekin við upphaf hlaupsins; Sveinn Sigmarsson (4) er lengst til vinstri fremst á myndinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg HAUKASTÚLKUR fögnuðu ógurlega 28:25 sigri á Stjörnunni í Hafnarfirði á fimmtudaginn því með honum náðu þær að jafna 2-2 í úrslitaleikj- um íslandsmótsins og fá hreinan úrslitaleik f dag, laugardag. Á myndinni sést Auður Hermannsdóttir fá útrás og fyrir aftan hana eru meðal annarra Thelma Björk Árnadóttir, Harpa Melsteð og Eva Harpa Loftsdóttir. Alma Hallgrímsdóttir markvörður Hauka eftir sigur á Stjörnunni í fjórða leik FILIPPO Inzaghi, framherjinn frábæri hjá Juventus. einkum vegna þess hvað fáir miðar eru til sölu og hvað erfítt er að ná símasambandi. ■ SÍMAMIÐASALAN hófst á mið- vikudag og reyndu 20 milljónir að ná sambandi en aðeins nokkur þús- und höfðu árangur sem erfiði og seldust um 15.000 miðar af 110.000. ■ VEÐBANKAR telja að Ronaldo frá Brasilíu verði markakóngur HM en Englendingurinn Alan Shearer ' er næstur á blaði. ■ FRANSKAR konur virðast ekki hafa mikinn áhuga á HM sam- kvæmt könnun í Frakklandi. 70% sögðust kæra sig kollótt en 21% sagðist bíða keppninnar með ofvæni og 80% sögðust verða fyrir von- brigðum félli Frakkland snemma úr keppni. ■ OTTMAR Hitzfeld fór í golf með toppum Bayern Miinchen á mið- vikudag og skrifaði síðan undir þjálfarasamning við félagið. Mich- ael Henke verður aðstoðarmaður hans en hann er nú aðstoðarmaður Nevios Scalas hjá Dortmund. ■ WALES leikur að minnsta kosti tvo heimaleiki í Evrópukeppni landsliða á Anfield í Liverpool - 5. september við Ítalíu og 9. júní 1999 við Danmörku. Astæðan er sú að völlurinn í Cardiff, sem á að taka 73.000 áhorfendur í sæti, verður ekki tilbúinn þegar þessir leikir fara fram. ■ ANGHEL Iordanescu, landsliðs- þjálfari Rúmeníu, var æfur út í Knattspyrnusamband Rúmeníu fyr- ir að fækka um tvo í landsliðshópn- um sem hann valdi fyrir vináttuleik- inn við Belga í vikunni. „Ég vildi sjá v- fleiri en 20 leikmenn. Ég valdi 22 en sambandið hafnaði því, sagðist ekki eiga pening til að borga fyrir 22 menn.“ Einnig er óánægja með að starfsmenn landsliðsins hafa ekki fengið greitt það sem þeim ber í aukagreiðslur samkvæmt samning- um. ■ MIRCEA Sandu, formaður sam- bandsins, sagði að peningaleysi kæmi ekki niður á undirbúningi liðsins en sambandið þyrfti um 700.000 dollara, um 50 miilj. kr., til að standa straum af kostnaði vegna undirbúnings A-liðsins fyrir HM og U-21 liðsins fyrir úrslitakeppni Evr- ópumótsins sem verður í Rúmeníu i iok maí. „Við eigum 200.000 dollara en þar sem okkur vantar 500.000 dollara verðum við að skera niður kostnað," sagði hann. Of „ÞÆR voru of sigurvissar og á þvi réðust úrslitin auk þess, sem við ætluðum ekkert að gefa eftir,“ sagði Alma Hallgrímsdóttir mark- vörður Hauka, sem fór á kostum í fjórða leiknum við Stjörnuna á fimmtudaginn og að öðrum leik- mönnum ólöstuðum lagði grunn að 28:25 sigri Hafnfirðinga. Þar með hafa liðin unnið sína tvo leikina hvort og í dag klukkan 16.20 fer því fram oddaleikur í Garðabænum og þá er að duga eða drepast. „Það var líka mikil stemmning í húsinu og það kem- ur manni í stuð en við urðum líka að vinna - það kom ekkert annað til greina. Mér líst vel á oddaleik og hann vinnum við,“ bætti Alma við en hún byrjaði að æfa síðari hluta vetrar þegar aðalmarkvörð- ur Hauka fór í barneignafrí. Sri fán Stefánsson skrifar Leikmenn voru greinilega búnir að fara vandlega yfir mistök síðustu leikja því fram eftir leik var vandað til sóknarleiksins enda nýtti hvort lið 8 af tíu fyrstu sóknum sínum. Stjarnan hafði þá leikið sína hefð- bundnu 5+1 vörn með Herdísi Sigurbergsdóttur fyrirliða fremsta en Haukastúlkur spiluðu ýmist flata vörn eða tóku Herdísi úr umferð. Eftir að Lijana Sadzon markvörður Stjörnunnar skoraði frá marki sínu þvert yfír völlinn um miðjan fyrri hálf- leik kættust stöllur hennar og náðu þriggja marka forskoti. En það þarf meira til að slá Haukastúlkur útaf lag- inu því með seiglu náðu þær að jafna og komast yfír. Alma tók til sinna ráða eftir hlé og sá til þess að jafnt var á öllum tölum fyrstu tiu mínúturnar. Þá kom slæmur kafli Garðbæinga, sem tókst ekki að skora í rúmar 9 mínútur á meðan Haukar skoraðu fjögur mörk, en á þeim leysti Guðný Agla Jónsdóttir fé- laga sinn Ölmu tvisvar af til að verja vítaskot. Þrjú mörk Stjörnunnar á tveimur mínútum dugðu ekki til að jafna - ekki munaði miklu en þá bretti Aima aftur upp ermar. Haukastúlkum tókst að halda sínu striki og létu ekki mikilvægi leiksins trufla sig of mikið. Þær voru að venju grimmar í vörninni með Ölmu í ham fyrir aftan sig og sóknarleikurinn var mun betri en þær hafa sýnt að undan- fórnu því lykilleikmenn náðu að sýna hvað í þeim býr, til dæmis Judit Ez- stergal og Auður Hermannsdóttir. Harpa Melsteð fyrh-liði og Hulda Bjai-nadóttir hafa leikið vel í vetur og varð engin breyting þai- á, auk þess sem Thelma Björk Arnadóttir gerði oft vel. Líklega hefur blundað í hugum sumra Stjörnustúlkna að þær ættu einn leik til góða þó að leikurinn tapaðist. Liðið lék samt ekki illa en getúr betur og litlu mátti muna. Herdís fyrirliði og Ragnheiður Stephensen voru ágætai- og tóku oft af skai-ið, Inga Fríða Tryggvadóttir fékk lítið að athafna sig á línunni og Nína K. Bjömsdóttir og Anna B. Blöndal áttu góða kafla. Lijana í mai-kinu varði vel, 16 skot og eitt vítakast, sem er ekki eins mikið og í undanförnum leikjum en hún verður ekki sökuð um tapið því vörnin hélt illa. 90 dra. afmæli Fram Föstudaginn 1. maí 1998 verður Knattspyrnufélagið Fram 90 ára. í tilefni dagsins hefst skemmtun í íþróttahúsi Fram við Safamýri kl. 12.00. I félagsheimilinu við Safamýri verða kaffiveitingar fýrir gesti og gangandi í boði félagsins frá kl. 14.00. Afmælishátíð félagsins verður haldin í Gullhömrum, Hallveigarstíg 1, og hefst klukkan 19.00 með borðhaldi. Skemmtiatriði, afhending heiðursmerkja og síðan dansleikur. Miðar eru seldir í félagsheimili Fram og íþróttahúsi Fram við Safamýri. Aðalstjórn. Þannig vörðu þær í Hafnarfirði (í sviga eru skot, sem fóru aftur til mótherja.) Alma Hallgrímsdóttir, Haukum 20(8). 13(4) langskot, 3(1) úr horni, 2(2) af línu, 1(1) eftir gegn- umbrot og 1 eftir hraðaupphlaup. Guðný Agla Jdnsdóttir, Ilaukum 3/2. 2 vítaköst, 1 langskot. Lijana Sadzon, Stjömunni 17/1 (8). 7(4) langskot, 3(1) eftir hraðaupphlaup, 3(2) af línu, 2(1) úr horni, 1 eftir gegnumbrot og 1 vítakast. HANDKNATTLEIKUR sigunrissar"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.