Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 4
KÖRFUKNATTLEIKUR
Helgi Jónas og Anna María
best að mati leikmanna
HELGI Jónas Guðfinnsson, leik-
stjórnandi Grindvíkinga og Anna
María Sveinsdóttir úr Keflavík
voru bestu leikmenn efstu deilda
karla og kvenna í körfuknattleik í
vetur að mati leikmanna deild-
anna. Niðurstaðan í kjöri leik-
manna var tilkynnt um miðnætti í
nótt í lokahófi Körfuknattleiks-
sambands íslands á Broadway.
Baldur Ólafsson miðherji úr
KR var valinn besti nýliði úrvals-
deildar (DHL-deildar), og í 1.
deild kvenna er Guðrún Arna Sig-
urðardóttir úr ÍR besti nýliðinn.
David Bevis hjá KFI var valinn
besti erlendi leikmaðurinn í DHL-
deildinni og Jennifer Boucek hjá
Keflavík er besti útlendingurinn í
1. deild kvenna.
Kristinn Óskarsson úr Keflavík
var valinn besti dómarinn í úrvals-
deild og Jón Halldór Eðvaldsson,
einnig úr Keflavík.
Jón Sigurðsson, sem tók við liði
KR á keppnistímabilinu, var kjör-
inn besti þjálfarinn.
Úrvalsdeildar 1. deild kvenna,
Nike-liðið svokallaða, er svona:
Erla Reynisdóttir Keflavík, Alda
Leif Jónsdóttir ÍS, Guðbjörg
Norðfjörð KR, Anna María
Sveinsdóttir Keflavík og Erla Por-
steinsdóttir Keflavík en eftirtaldir
voru valdir í Nike-lið karla úr
DHL-deildinni: Falur Harðarson
Keflavík, Helgi Jónas Guðfinnsson
UMFG, Teitur Örlygsson UMFN,
Sigfús Gizurarson Haukum og
Friðrik Stefánsson KFÍ.
Stjömurnar
stóðu undir
væntingum
Kinder frá Ítalíu varð Evrópu-
meistari félagsliða í körfuknatt-
leik, vann AEK frá Grikklandi 58:44
í úrslitaleik í Barcelona á Spáni í
fyrrakvöld. Aður vann ítalska liðið
Benetton Partizan frá Júgóslavíu
96:89 í keppni um þriðja sætið.
Leikmenn Kinder voru mun
ákveðnari í úrslitaleiknum og betur
undir álagið búnir. Liðið komst í 5:0
og lét forystuna aldrei af hendi.
Staðan var 28:20 í hálfleik og þegar
sjö mínútur voru til leiksloka var
munurinn 12 stig, 41:29. Gríska liðið
komst í 45:41 en Júgóslavinn Pe-
drag Danilovic og Frakkinn Antoine
Rigaudeau voru vandanum vaxnir
og skoruðu mikilvæg stig.
Ahangendur gríska liðsins hurfu
fljótt á braut en fógnuður Itala var
að vonum mikill. „Ég vissi að bestu
menn mínir stæðu undir vænting-
um, yrði viðureignin jöfn, og þeir
gerðu það,“ sagði Ettore Messina,
þjálfari meistaranna. „Það er auð-
velt að kenna einstaklingum um en
leikur liðsins vekur athygli," sagði
þjálfari AEK, Yannis Ioannidis,
sem hefur sex sinnum stýrt liði til
úrslita í keppninni síðan 1989 og
aldrei fagnað sigri.
Rigaudeau var stigahæstur með
14 stig, Danilovic skoraði 13 stig og
Hugo Sconochini 10 stig. Banda-
ríkjamaðurinn Willie Anderson,
sem gerði 21 stig fyrir AEK í und-
anúrslitum, var haldið niðri og skor-
aði aðeins fjögur stig. Jose Lasa var
stigahæstur með sjö stig og Bran-
islav Prelevic skoraði sex stig.
Reuters
AUGUSTO Binelli, leikmaður Kinder Bologna, lyftir Evrópubik-
arnum hátt á loft eftir að liðið sigraði AEK í úrslitaleik.
Bæði Utah og Phoenix hefja úrslitakeppnina með því að tapa á heimavelli
Stórleikur hjá nýliðanum
Houston kom Utah svo sannai'-
lega í opna skjöldu með góðum
leik í Salt Lake City er félögin áttust
við í fyrstu umferð úrslitakeppni
Vesturdeildar. Houston sigraði
103:90. San Antonio var einnig á sig-
urbraut á útivelli í fyrstu viðureign
sinni við Phoenix og vann sex stiga
sigur, 102:96. í leikjum Austurdeild-
ar höfðu heimaliðin betur í sínum
viðureignum, Charlotte lagði Atl-
anta, 97:87 og Indiana vann
Cleveland nokkuð örugglega, 106:77.
Clyde Drexler, sem hefur ákveðið
að leggja keppnisskóna á hilluna að
lokinni þessari leiktíð, var greini-
lega ekki tilbúinn að hætta snemma
og lagði sig verulega fram í leikn-
um. M.a. fór hann hamförum í
þriðja leikhluta og gerði þá 13 af 22
stigum sínum. „Við lögðum okkur
fram í þessum leik,“ sagði Rudy
Tomjanovich, þjálfari Houston.
„Fyrir leikinn sagði ég mínum önn-
um að ég væri óánægður með
hvernig um okkur væri talað, nú
væri kominn tími til að afsanna það
sem sagt væri. Leikmennirnir tóku
af skarið og vísuðu orðum ýmissa
um liðið til föðurhúsanna."
„Við kokgleyptum þær fullyrð-
ingar að leikmenn Houston væru
orðnir gamlir og þeir þyldu ekki
álagið í úrslitakeppninni," sagði
JeiTy Sloan þjálfari Utah.
Kevin Willis gerði 18 stig og tók
14 fráköst og Hakeem Olajuwon var
16 stig og 13 fráköst. Charles
Barkley var með 12 stig. Karl Ma-
lone gerði 25 stig fyrir heimamenn
auk þess að ná 11 fráköstum.
Tim Duncan átti öðrum leik-
mönnum fremur þátt í sigri San
Antonio á Phoenix. Hann skoraði 32
stig, þar af 18 í fjórða og síðasta
leikhlutanum. „Það gekk bara allt
upp hjá mér,“ sagði Duncan í leiks-
lok, en þess má geta að hann gerði
aðeins fjögur stig í fyrri hálfleik.
Síðan fóru hlutirnir að ganga upp
hjá þessum nýliða. David Robinson
félagi hans tók 15 fráköst jafnframt
því að gera 26 stig. Hjá heimamönn-
um var Kevin Johnson með 18 stig
og Jason Kidd 17 auk þess að taka
11 fráköst.
Indiana gerði út um viðureign
sína á heimavelli við Cleveland með
stórskotahríð í fyrri hálfleik þar
sem leikmenn liðsins gerðu m.a. 8
þriggja stiga körfur. Náðu þeir fyr-
ir vikið góðri forystu sem gestirnir
áttu aldrei möguleika á að minnka.
Chris Mullin var með 20 stig í leikn-
um og félagi hans Reggie Miller
gerði einu stigi minna.
Leikmenn Indiana voru með 69%
skotnýtingu í fyrri hálfleik og voru
með 21 stigs forskot er komið var
að hálfleik. „Leikurinn var okkur
erfiður, því Cleveland-liðið hefur
verið að fara illa með okkur í vetur,“
sagði Miller í leikslok. „Við þurftum
því að sanna okkur, en ekki þeir.“
Shawn Kemp var með 25 stig fyrir
gestina og tók 13 fráköst. Þá gerði
Zydrunas Ilgauskas 16 stig auk
þess að ná 10 fráköstum fyrir gest-
ina sem aðeins einu sinni hafa tapað
leik í úrslitakeppni með meiri mun.
Charlotte tókst loks að sigra Atl-
anta í úrslitakeppni í fyrsta sinn í 3
ár, er liðið vann 97:87 á heimavelli.
Glen Rice gerði 34 stig fyrir heima-
menn og skoraði úr 15 af 19 lang-
skotum sínum. Tíu af stigum sínum
gerði hann í þriðja leikhluta þegar
leiðir skildi með liðunum í fyrsta og
eina skiptið. Steve Smith var at-
kvæðamestur gestanna með 35 stig,
en samt sem áður var skotnýting
hans ekkert sérstök.
Kiel hamp-
aði EHF-
bikarnum
EFSTA lið þýsku 1. deildar-
innar í liandknattleik, Kiel,
lagði Flensborg-Handewitt
26:21 í síðari leik liðauna í úr-
slitum EHF-keppninnar, Evr-
ópukeppni félagsliða, á mið-
vikudagskvöldið. Flensborg
hafði betur í fyrri leiknum
sem fram fór í Flensborg sl.
helgi, 25:23. Það ríkti mikil
gleði í leikslok á meðal fjöl-
margra stuðningsmanna Kiel,
en uppselt var á leikinn, 7.250
höfðu borgað sig inn er Svíinn
Magnus Wislander fyrirliði
tók á móti bikarnum. Er þetta
annar titillinn sem hann
hampar á þessari leiktíð því
liðið vann líka þýska bikarinn
á dögunum og stendur vel að
vígi í deildinni.
FOLK
■ PAUL Ince, fyrirliði Liverpool,
varð fyrir aðkasti eftir landsleik
Englands og Portúgals á miðviku-
dagskvöld. Þegar landsliðsmaður-
inn yfirgaf Wembley var hann sleg-
inn í andlitið svo sprakk fyrir á vör.
Árásannaðurinn var handtekinn.
■ HVER leikmaður í 23 manna
hópi hjá Real Madrid fær sem sam-
svarar tæplega 18,4 millj. kr. sigri
liðið Juventus í úrslitaleik Meistara-
deildar Evrópu 20. maí.
■ JUPP Heynckes, þjálfari Real,
er hins vegar með í samningi sínum
ákvæði um að hann fái 27,5 millj. kr.
í aukagreiðslu verði liðið Evrópu-
meistari.
■ REAL Madrid fær 13.900 miða á
leikinn fyrir stuðningsmenn sína en
66.000 ársmiðahafar eru hjá félag-
inu og meira en 44.000 manns hafa
óskað eftii' miða á úrslitaleikinn.
■ AC Milan hefur hækkað tilboð
sitt í Brasilíumanninn Flavio
Conceicao hjá Deportivo Coruna í
tæplega 690 millj. kr. úr 560 millj.
kr. Leikmaðurinn, sem er samn-
ingsbundinn til 2003 með ákvæði
um að hann megi fara á samnings-
tímanum séu greiddir um 2,3 millj-
arðar kr„ er með um 84 millj. kr. í
árslaun og sagði að þau myndu tvö-
faldast færi hann til ítalska liðsins.
■ ENZO Scifo hefur ákveðið að
brjóta odd af oflæti sínu og gefur
kost á sér í belgíska landsliðið í
knattspyi'nu á ný. „Þegar barn rýk-
ur að heiman og kemur svo aftur og
bankar á dyrnar opnar maður fyrir
því,“ sagði Georges Leekens, lands-
liðsþjálfari Belga, en bætti við að
miðjumaðurinn, sem er 32 ára, ætti
ekki vísa stöðu í liðinu.
■ BELGAR voru mjög ánægðir
með ákvörðun Scifos. „Þetta er gott
fyrir belgíska knattspyrnu," sagði
varnarmaðurinn Eric Van Meir.
■ RUUD GuIIit sagði í fyrradag að
hann vildi ekki taka að sér enskt lið
á næsta keppnistímabili en ef til vill
síðar og þá helst lið sem hefði aldrei
unnið neitt.
■ PELE tilkynnti á sumardaginn
fyrsta að hann styddi Svíann Lenn-
art Johansson í kosningu forseta
FIFA. Hann sagðist ekki hafa neitt
á móti Blatter en Johansson væri
lýðræðislegri.
■ GARY McAlIister, fyrirliði
Skotlands, missir af HM vegna
meiðsla en fékk í fyrradag það verk-
efni að fylgjast sérstaklega með
landsliði Brasilíu, mótherja
Skotlands í fyrsta leik.