Morgunblaðið - 19.05.1998, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Leikmenn Arsenal þurftu ekki mikið að hafa fyrir sigri á Newcastle í bikarúrslitunum á Wembley
Stóðust
„ÞESSI sigur er stórkostlegur og sá stærsti sem hægt er að
vinna,“ sagði Marc Overmars sem skoraði fyrra mark Arsenal
í 2:0 sigri á Newcastle í úrslitum ensku bikarkeppninnar.
„Hann jafnast á við sigur í Meistaradeild Evrópu,“ bætti hann
við og brosti ákaft enda full ástæða til. Sigur Arsenal var
öruggur og vel við hæfi hjá félaginu að enda keppnistímabilið
á honum eftir að hafa unnið enska meistaratitilinn tveimur
vikum áður. Arsenal hefur leikið frábærlega seinni hluta vetr-
ar undir stjórn franska hagfræðingsins Arsene Wengers.
Þetta var fyrsta heila leiktímabil hans með lið og hefur á þeim
tíma tekist að koma saman einstaklega skemmtilegu liði,
skipuðu leikmönnum víðsvegar að. Allir hafa þessir leikmenn
blómstrað undir stjórn Wengers sem hyggst styrkja lið sitt
enn frekar fyrir næstu leiktíð í titilvörninni og sókninni í
Meistaradeild Evrópu.
Þetta var í annað sirrn sem
Arsenal vinnur tvöfalt, þ.e.a.s.
deildar- og bikarkeppnina sama
árið. Knattspymustjórinn Wenger
er því fyrsti útlendingurinn sem
stýrir liði til tvöfalds sigur á sömu
leiktíð. Hann bar mikið lof á lið sitt í
leikslok enda fyllsta ástæða til.
„Liðið hefur unnið stórkostlega síð-
ustu mánuði," sagði Wenger í leiks-
lok.
Arsenal var sterkari aðilinn í
íyrri hálfleik og því kom engum á
óvart er Hollendingurinn hrað-
skreiði, Overmars, kom Arsenal á
bragðið á 24. mínútu. Lið Newcastle
náði aldrei að ógna andstæðingi sín-
um verulega enda sóknarleikurinn
máttlaus. I síðari hálfleik færðu
leikmenn Newcastle sig heldur upp
á skaptið. Nikolaos Dabizas átti
skalla í slá upp úr miðjum hálfleik
og skömmu síðar slapp Alan Shear-
er inn fyrir vöm Arsenal og skaut í
stöng úr upplögðu færi.
Við svo búið mátti ekki standa hjá
norður-Lúndúnarliðinu og hinn 19
Trappatt-
oni fékk
kveðjugjöf
MARK Mario Baslers á 89.
mínútu, beint úr aukaspyrnu,
tryggði Bayern Miinchen
þýska bikarinn f knattspyrnu
sem var um leið kveðjugjöf
leikmanna tii þjálfarans,
Giovannis Trapattonis,
lokatölur, 2:1. Leikmenn
Bayern lentu hins vegai- í
kröppum dansi gegn Duis-
burg að viðstöddum tæplega
80.000 áhorfendum á
Ólympíuleikvanginum í
Berlín. Duisburg hefúr ekki
verið á meðal aðsópsmestu
liða í deildinni, en skaut
stuðningsmönnum Bayera
skelk í bringu með því að
skora fyrsta markið á 20.
mínútu og var þar að verki
Bachirou Salou. Bayern gekk
illa að snúa leiknum sér í hag
ogyar marki undir í hálfleik.
í síðari hálfleik var allt
annað að sjá til Iærisveina
Trappattonis og strax á
þriðju mínútu skallaði Christ-
ian Nerlinger í stöng. Markus
Babbel jafnaði metin 20
mfnútum fyrir leikslok og
glæddust vonir Bæjara og
greinilegt var að af þeim var
þungu fargi Iétt.
„Nú get ég yfirgefið Þýska-
land stoltur," sagði
Trappattoni, en hann tekur
við þjálfun Fiorentina í sumar.
Arsenal ætlar ekki að láta staðar
numið eftir árangur leiktíðar-
innar. Allt verður lagt í sölumar til
þess að ná árangri í Meistaradeild
Evrópu á næsta keppnistímabili þar
sem enskt félag hefur ekki unnið
Evrópukeppni meistaraliða í 14 ár.
Fyrir utan nýjan samning við
Arsene Wenger, sem tryggir hon-
um rúmlega 130 milljónir í laun á
ári, þá fær hann um 25 milljónir
punda til leikmannakaupa, eða upp-
hæð sem svarar til um 3 milljarða
króna.
„Mér líður vel hjá Arsenal og ef
ég fæ það frelsi til að vinna sem ég
óska eftir þá verð ég áfram hjá
félaginu," segir Wenger. „Ég geri
mér vonir um að fá tvo sterka leik-
menn til liðsins auk þess sem ég vil
halda öllum þeim sem eru í liðinu í
dag,“ bætir Wenger við. Ósk hans
er sú að geta gengið frá leikmanna-
kaupunum áður en heimsmeistara-
keppnin hefst 10. júní nk.
Dave Dein, varaformaður stjóm-
ar Arsenal og maðurinn sem fékk
Wenger til félagsins, segist gera sér
grein fyrir miklvægi þess að Frakk-
inn verði áfram við stjórnvölinn.
„Það er ekkert leyndarmál að við
höfum fengið boð í Wenger og ég
get staðfest að meðal þeirra sem
borið hafa víumar í hann er franska
knattspyrnusambandið sem nú leit-
ar logandi ljósi að landsliðsþjálfara.
A hreinu er hins vegar að hann fer
hvergi," segir Dean. „Hann kann
vel við sig og þær aðstæður sem
hann vinnur við. Wenger hefur
gjörbreytt liðinu til hins betra. Þeg-
ar hann tók við gerðum við okkur
vonir um að vinna titilinn innan
fjögurra ára. Á fyrsta heila árinu
sem hann er við stjórnvölinn vinnur
liðið tvöfalt, það er stórkostlegt.
Fyrst og fremst sannar árangurinn
að stjóm félagsins gerði hárrétt er
það samþykkti að ráða Wenger til
Arsenal, hvað svo sem öllum mót-
mælum viðkom og efasemdarödd-
um.“
Daginn eftir sigurinn í bikar-
keppninni komu nærri 300.000
stuðningsmenn liðsins saman á göt-
unum nærri Highbury til þess að
fagna hetjum sínum. Þeim var öll-
um fagnað innilega og gleðin náði
hámarki þegar Wenger gekk fram á
sviðið og ávarpaði mannfjöldann og
þakkaði þeim stuðninginn, einkum í
nóvember og desember þegar allt
gekk á afturfótunum. „Ef andinn í
kringum félagið er réttur þá geri ég
það sem því er fyrir bestu. Peningar
skipta þar engu máli, þeir drógu
mig ekíd til Arsenal og þeir hafa
aldrei verið aðalatriðið í lífi mínu,“
sagði Wenger m.a. í ávarpi sínu.
ára gamli Frakki, Nicolas Anelka,
stakk sér inn fyrir vöm Newcastle
og stakk varnarmenn þess af á
sprettinum á 24. mínútu síðari
hálfleiks. Hann skoraði auðveldlega
og innsiglaði sigurinn. Eftir þetta
var allt loft úr lærisveinum Kenny
Dalglish sem játuðu sig sigraða.
„Ungu mennimir í liðinu hafa
tekið miklum framfórum og hðsand-
inn hefur batnað mikið á síðustu
mánuðum og hver sigur hefur aukið
sjálfstraustið,“ segir Wenger um þá
breytingu sem hefur orðið á
Arsenal frá því fyrir áramót. „Leik-
menn hafa náð betur saman og í
raun ótrúlegt hvað það hefur tekið
stuttan tíma að fá þennan ólíka hóp
til þess að vera sem ein heild.“
Um bikarúrslitaleikinn sagði
Wenger að mikið álag hefði verið á
liðinu að mæta til leiks sem meistar-
ar, krafa stuðningsmanna og
margra annarra hefði verið um sig-
ur. „Það hefðu orðið mér vonbrigði
að vinna ekki. e.t.v. stýri ég ekki liði
í úrslitaleik á Wembley að nýju.“
Hann viðurkenndi þó að deildar-
meistaratitillinn væri sér mikilvæg-
ari.
Dalglish sagði Arsenal
verðskulda sigurinn þó vissulega
hefði hann viljað fá mark í síðari
hálfleik. „Arsenal lék ekki eins vel
og það best getur að þessu sinni,
mér fannst mega greina þreytu-
merld á leikmönnum í síðari
hálfleik."
Reuters
TONY Adams, fyrirliði Arsenal, og markvörðurinn David Seaman, fagna eftir að Adams tók við bik
arnum á Wembley. Adams er orðinn sigursælasti leikmaður Arsenal fram til þessa, hefur verið í átta
siguriiðum, sjö sinnum sem fyrirliði. Hann hefur þrisvar orðið enskur meistari, tvisvar bikarmeistari,
tvisvar deildarbikarmeistari og einu sinni fagnað sigri í Evrópukeppni bikarhafa. Það eru tíu ár síðan
Adams varð fyrirliði Arsenal.
Bikar eftir
36 ára bið
HEARTS vann Rangers, 2:1, í
úrslitum skosku bikarkeppn-
innar og fagnaði því innilega að
þetta var í fyrsta sinn í 36 ár
sem félagið vinnur stórmót þar
í landi. Þetta er aftur á móti í
fyrsta sinn síðan 1985 sem
Rangers vinnur ekkert af stóru
mótunum þremur í Skotlandi.
Leikmenn Hearts byrjuðu af
miklum krafti og strax á 2.
mínútu fengu þeir vítaspymu
eftir að fyrirliðinn Steve Fulton
var felldur innan vítateigs. Col-
in Cameron skoraði af öryggi
úr spymunni. Frakkinn Steph-
ane Ádam innsiglaði sigurinn í
síðari hálfleik er hann komst
einn inn fyrir vörn Rangers og
skaut föstu skoti, hægra megin
úr vítateignum án þess að Andy
Goram fengi vörnum við komið.
Markahrókurinn Ally
McCoist kom inn á í byrjun síð-
ari hálfleiks. Þetta var síðasti
stórleikur hans fyrir Rangers.
Hann minnkaði muninn á 81.
mínútu með skoti rétt utan vita-
teigs, en lengra komust leik-
menn Rangers ekkd þrátt fyrir
ákafar tilraunir.
Geri það sem er
Arsenal fýrir bestu
álagið