Morgunblaðið - 19.05.1998, Síða 8
SNÓKER
■ MAGSÚS Teitsson hefur verið
ráðinn þjálfari meistaraflokks FH í
handknattleik kvenna á næstu
leiktíð. Magnús hefur undanfarin
Kristján Helgason varð Evrópumeistari áhuga/atvinnumanna í Helsinki
Loksins
hafðist
það
„ÞETTA var frekar léttur sigur, altjent mun auðveldari en ég átti
von á,“ sagði Kristján Helgason eftir að hann hafði sigrað á Evr-
ópumóti áhuga/atvinnumanna í snóker sem fram fór í Finnlandi.
í tæplega fjögurra tíma úrslitaleik á sunnudaginn vann Kristján
Möltubúann Alex Borg 7:2 eftir að hafa haft yfir nær allan leik-
inn. „Loksins hafðist þetta hjá mér,“ bætti Kristján við því hann
hefur verið í úrslitum tvö sl. ár en beðið lægri hlut í bæði skipt-
in. „Það var virkilega kominn tími til að vinna. Sigurinn er mikil-
vægur áfangi á ferli mínum og verður vonandi til þess að vekja
aukna athygli á mér og auðvelda mér að fá styrktaraðila,“ sagði
Kristján, sem nýlega vann sér keppnisrétt sem atvinnumaður í
snóker.
Borg vann fyrsta rammann í úr-
slitaleiknum, sem var frekar
lokaður eins og Kristján orðaði
það, þ.e.a.s. báðir keppendur fóru
sér hægt, lögðu mikla áherslu á að
verjast til þess að gefa ekki á sér
færi og sýndu mikla þolinmæði.
Kristján jafnaði metin í öðrum
ramma, en Borg svaraði um hæl.
Kristján vann þvínæst þrjá næstu
ramma og hafði 4:2 þegar tekið var
hlé. Eftir hlé horfði Kristján ekki
um öxl, vann þrjá ramma og inn-
siglaði sigur sinn á mótinu með
glæsilegum hætti. „Leikurinn var
frekar lokaður allan tímann,
kannski eins og við mátti búast, en
ég hafði þó reiknað með að hann
myndi opnast þegar á leið.“
Staðráðinn
að vinna
snóker, en Kristján segist hafa lagt
stund á íþróttina síðan 1989.
Morgunblaðið/Halldór
KRISTJÁN Helgason mundar kjuðann. Hann fagnaði sigri á Evr-
ópumóti áhuga/atvinnumanna sem fram fór í Finnlandi.
KNATTSPYRNA / DEILDARBIKARINN
Einokun
Breiðabliks
órofin
Morgunblaðið/Jon Svavarsson
SIGRÚN Óttarsdóttir fyrirliði Breiðabliks hampar deildarbikarn-
um eftir sigur á Valsstúlkum.
Kristján sagði það ekki hafa haft
neikvæð áhrif á sig þó hann hefði
tapað í úrslitum tvö síðustu ár.
„Það efldi mig frekar til dáða en
hitt og gerði mig enn staðráðnari í
að vinna.“ Hann sagði ennfrernur
að undanúrslitaleikurinn við N-ír-
ann Mark Esdale hefði verið erfið-
ari. „Það var opinn leikur og tók
virkilega á.“ Kristján vann þá viðu-
reign 6:3. Eins sagði hann leikinn
við félaga sinn, Jóhannes B.
Jóhannesson, í átta manna úrslit-
um hafa verið erfiðan. „Við þekkj-
umst mjög vel, enda varð úr
æsispennandi leikur, þar sem við
unnum ramma á víxl.“ Kristján
vann að lokum, 5:4.
Kristján er ekki alveg ókunnur
Borg því þeir mættust í undanúr-
slitum í fyrra og þá vann Kristján
6:1. „Þessi leikur var ósköp svipað-
ur.“
Næsta mót Kristjáns er íslands-
meistaramótið um næstu helgi, en
síðan taka við æfingar þar til hann
fer til Englands í ágúst til þátttöku
í undankeppni atvinnumannamót-
anna. Hann er 24 ára og varð
heimsmeistari unglinga 1993. Síð-
an þá segist hann hafa haft það
takmark að verða atvinnumaður í
Knattspyrnukonur gáfu góð
fyrirheit um sumarið á gervi-
grasinu á Ásvöllum á sunnu-
daginn þegar fram fór úrslita-
leikurinn í deildarbikarkeppni
kvenna, því Breiðablik og Val-
ur buðu upp á baráttuleik með
fimm mörkum, framlengingu
og vítaspymu. Af þessum
fimm mörkum skoraði Margrét
Ólafsdóttir þrjú fyrir Breiða-
blik en Ásgerður H. Ingibergs-
dóttir tvö fyrir Val svo að
Kópavogsstúlkurnar hömpuðu
deildarbikarnum þriðja árið í
röð, jafnoft og spilað hefur
verið um hann.
Vonandi gáfu veðurguðirnir ekki
sín fyrirheit á sunnudaginn, með
strekkingsvindi og rigningarskvettu
við og við. Blikar voru
Stefán atkvæðameiri tO að
Stefánsson byrja með en það kom
skrifar ekki í veg fyrir að Ás-
gerður kæmi Val í 1:0
á 17. mínútu eftir langa sókn. Blikar
héldu eftir sem áður tökum á leikn-
um en smám saman komust Vals-
stúlkur inn í hann.
Þegar tuttugu mínútur voru liðnar
af síðari hálfleik kom Margrét Blik-
um á blað með glæsUegu marki þeg-
ar hún vippaði boltanum af tám
vamarmanna Vals nokkrum metrum
utan vítateigs og þrumaði honum
síðan yfir markvörð Vals. Fimm
mínútum síðar kom svo Margrét
Blikum í 2:1 þegar hún stökk allra
hæst eftir homspymu og skallaði
boltann af krafti í netið. Eftir það
höfðu Blikastúlkur meiri völd á vell-
inum, en Valsstúlkur skal ekki van-
meta og eftir góðan sprett fjórum
mínútum fyrir leikslok jafnaði As-
gerður í 2:2 svo að framlengja varð
leikinn. Hart var barist en á 12.
mínútu framlengingarinnar vai-
Sigríði Þorláksdóttur bragðið innan
vítateigs og vitaspyrna dæmd. Úr
henni skoraði Margrét sitt þriðja
mark og sigurmark Breiðabliks.
Bæði lið voru skipuð í bland þraut-
reyndum leikmönnum og stúlkum
sem era að stíga sín fyrstu skref í
meistaraflokki og áhugafólk um
kvennaknattspyrnu þarf ekki að ótt-
ast framtíðina, því þessi blanda
skilaði ágætum leik. Auðvitað var oft
svolítill vorbragur á spilamennsk-
unni en leiktíðin er að byrja. Hjá
Breiðabliki var Margrét best en
Sigrún Óttarsdóttir og Kristrún L.
Daðadóttir voru ágætar. Sigrún Þor-
láksdóttir átti góða spretti og 15 ára
nýliði, Erna Sigurðardóttir, stóð sig
með prýði í vöminni. Af Valsstúlkum
áttu Bergþóra Laxdal, Soffía
Ámundadóttir og Hjördís Símonar-
dóttir bestan leik.
Sýnishom af sumrinu
„Mér líst mjög vel á sumarið og
þessi leikur var sýnishorn af knatt-
spymunni í sumar, því það var barist
fram á síðustu sekúndu og deildin
verður jöfn og skemmtileg. Það var
líka gott að byrja sumarið með
þrennu og sigri,“ sagði Margrét
tvö ár þjálfað kvennahð Hauka og
stýrði því til sigurs á Islandsmót-
inu og bikarkeppninni í fyrra.
Magnús tekur við af Viðari Símon-
arsyni.
■ MAGNÚS Aron Hallgrímsson
kringlukastari úr HSK kastaði
60,08 m á móti í Hafnarfirði á
sunnudaginn sem haldið var í
tengslum við vígslu fijálsíþrótta-
vallar þar í bæ. Þetta er besti
árangur Magnúsar í kringlukasti
og í fyrsta skipti sem hann kastar
yfir 60 m.
■ VÉSTEINN Hafsteinsson úr ÍR,
lærimeistari Magnúsar og Islands-
methafi í kringlukasti varð annar
með 57,20 m og Jón Arnar
Magnússon, UMFT, varð þriðji
með 49,50 m sem einn hans besti
árangur.
■ DAVÍÐ Jónsson, kylfingur úr
GS, setti glæsilegt vallarmet á
Hvaleyrarholtsvellinum í Hafnar-
firði er hann lék völlinn á 67 högg-
um á vormóti Hafnarfjarðar.
Gamla metið átti Sveinn Sigur-
bergsson, GK, sem lék á 69 högg-
um 1997.
■ ANJA Andersen og félagar
hennar í norska liðinu Bækkelaget
unnu um helgina Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik. Eftir
jafntefli við Kars Zagreb í fyrri
leiknum vann Bækkelaget 28:17 á
heimavelli að viðstöddum 7.000
áhorfendum. Er þetta í fyrsta
skipti sem norskt félagslið vinnur
Evrópukeppni í handknattleik.
Ólafsdóttir úr Breiðabliki, sem sýndi
að hún er ein af bestu knattspyrnu-
konum landsins. En verður róðurinn
ekki þungur íyrir Breiðablik, sem
misst hefur marga sterka leikmenn?
„Mér líst æ betur á liðið okkar því
hópurinn hefur þjappast mikið sam-
an. Það eru komnar góðar stelpur og
sérstaklega er gaman að sjá nýja
vamarmenn, sem ég treysti fullkom-
lega þrátt fyrir ungan aldur.“