Morgunblaðið - 19.05.1998, Page 18

Morgunblaðið - 19.05.1998, Page 18
18 D ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐALSKIPULAG ÖLFUSHREPPS 1997-2009 Þorlákshöfn HELZTU breyting-arnar frá eldra skipulagi byggja á fyrirhugaðri lagningu svonefnds Suðurstrandarvegar, sem á eftír að hafa mikii áhrif á þróun byggðarinnar. Til viðbótar kemur skipulagning nýs grófiðnaðarsvæðis og athafnasvæðis, sem sést ofarlega tíl vinstri á uppdrættinum. Það á eft- ir að laða að margs konar atvinnustarfsemi. Við suðuijaðar byggðarinnar er gert ráð fyrir fjórum nýjum íbúðarsvæðum. Þorlákshöfn Ný skipulagstillaga á að varða leið inn í næstu öld Ný skipulagstillaga fyrir Þorlákshöfn er nú til kynningar. Athygli vekur fyrirhugað- ur Suðurstrandarvegur, sem mun tengja bæinn við byggðina á Reykjanesi. Nýjar lóðir fyrir atvinnustarfsemi munu gera Þorlákshöfn eftirsóknarverða fyrir margs konar fyrirtæki. Magniis Sigurðsson kynnti sér tillöguna. “■j HIN NÝJA skipulagstil- laga fyrir Þorlákshöfn er mjög metnaðarfull, en ■ hún nær til ársins 2009 og tekur til þéttbýlis í bænum og aðliggjandi svæða innan jarðarinn- ar Þorlákshöfn eða um 33 ferkm. alls. Tillagan er byggð á núgildandi ^skipulagi með frávikum og nær til þess landrýmis, sem duga á bænum næstu 12 árin. Helztu breytingamar felast í fyr- irhugaðri lagningu svonefnds Suð- urstrandarvegar, sem á eftir að hafa mikil áhrif á þróun byggðar- innar. Til viðbótar kemur skipu- lagning nýs grófiðnaðarsvæðis og athafnasvæðis, sem á eftir að laða að margs konar atvinnustarfsemi vegna nálægðar sinnar við höfnina í Þorlákshöfn. Skipulagstillagan er gerð af könnunar- og skipulagsstof- ^unni Landmótun og að tillögunni hafa einkum unnið landslagsarki- tektarnir Gísli Gíslason og Ingi- björg Kristjánsdóttir. Nú eru íbúar í Þorlákshöfn um 1230 og um 1550 í Ölfushreppi öll- um. Atvinnulíf í bænum byggist á útgerð og fiskvinnslu og margir koma úr næstu byggðarlögum á hverjum degi til að stunda þar vinnu. Eins eru nokkrir, sem búa á Þorlákshöfn en vinna í Reykjavík. Samgöngur til og frá Þorlákshöfn eru greiðar mikinn hluta af árinu og þaðan eru ekki nema 28 km. til Selfoss og um 50 km. til Reykjavík- ur. Þjónusta við íbúana er góð, en í bænum er heilsugæzla með lækni og hjúkrunarfólki. I bænum er ein- setinn grunnskóli og í sama húsnæði er einnig deild frá Tónlist- arskóla Arnessýslu. Iþróttakennsla og sundkennsla fara fram í íþrótta- miðstöðinni við skólann. f bænum er ennfremur þriggja deilda leikskóli og nýbúið er að bjóða út rúmlega 2200 ferm. byggingu, sem mun m. a. hýsa menningarmiðstöð Ölfushrepps. Mikið Iandrými Landrými er mikið við Þorláks- höfn, höfnin góð og vegna staðsetn- ingar sinnar er bærinn vel í stakk búinn sem tengistaður íslands við Evrópu. Um leið er Þorlákshöfn mjög heppilegur staður fyrir iðnað- ar- og þjónustufyrirtæki, sem vilja vera utan við höfuðborgarsvæðið en þó skammt undan. Önnur auðlind, sem Þorlákshöfn státar af, er ótæmandi gnægð af bergvatni og samkvæmt skipulags- áætluninni er lögð mikil áherzla á að standa vörð um það. Hraunið er lagskipt og vatnið flæðir frá Heiðinni háu undir hraunið og fram í sjó. Alls staðar er grunnt að bora -ofan á góðar vatnslindir og það svo, að vatnsfrekustu fyrirtæki bæjar- ins hafa eigin borholu á lóðum sín- um. Nóg er einnig af heitu vatni í Þorlákshöfn til húshitunar og iðnaðar. Heita vatnið er mjög ódýrt og er selt í gegnum hemil til íbúðar- húsa en um magnmæli til fyrir- tækja. Hitaveitan nýtir jarðhita í landi Bakka í Ölfusi og er vatn leitt í ofanáliggjandi pípu um 11 km leið. Reiknað er með, að hitaveitan geti séð Þorlákshöfn fyrir nægu heitu vatni um langa framtíð. Talsverður þróttur hefur verið í athafnalífinu á Þorlákshöfn að und- jmfornu og atvinnuástand gott. Af- leiðingin er góð eftirspum eftir bæði íbúðarhúsnæði og atvinnu- húsnæði. Talsvert hefur því verið byggt af íbúðarhúsnæði og nýjar íbúðir eru nú stærri en áður, auk þess sem íbúum á hverja íbúð hefur fækkað. Nýjar íbúðir eru flestar í einbýlishúsum, en nokkuð hefur verið byggt af fjölbýlishúsum. Sam- kvæmt skipulagstillögunni er gert ráð fyrir, að í framtíðinni verði meira byggt af minni einbýlishús- um og raðhúsum í bænum. Grunnt ofan á fast Hraunið hefur mikil áhrif á alla byggingastarfsemi í Þorlákshöfn, en bærinn stendur á hrauni og svæðið umhverfis er líka hraun. Yf- irborðið er fremur slétt og ósprungið, þannig að grundun mannvirkja er auðveld eins og sagt er á fagmáli. Ný íbúðarsvæði eru einkum fyrir sunnan núverandi byggð, þannig að grunnskólinn í bænum verður í framtíðinni meira miðsvæðis í byggðinni. Samkvæmt skipulagstiliögunni er gert er ráð fyrir fjórum nýjum byggingarsvæðum fyrir íbúðar- byggð. Þar af eru tvö, sem er ætlað að geti byggzt á skipulagstímabil- inu og eru þau ásamt auðum lóðum, sem enn eru til staðar við svo- kallaða Norðurbyggð um 14 hekt- arar. Það er líka hagkvæmt að byggja í Þorlákshöfn. „Við bjóðum góðar einbýlishúsalóðir á hagstæðu verði,“ segir Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi bæj- arins. „Þannig kostar 800 ferm. lóð um 900.000 kr. og það óháð rúmmetrastærð hússins. Inni í þessari fjárhæð eru gatnagerðar- gjöld og annað, en engin aukagjöld eru tekin fyrir úttektir. Eftir því sem ég bezt veit, eru þetta mun hagstæðari kjör en á höfuðborgar- svæðinu.“ Verzlunar og þjónustufyrirtæki eru einkum við tvær helztu aðkomuleiðimar inn í byggðina. Samkvæmt skipulagstillögunni verður miðbæjartengdri starfsemi beint að miðju byggðarinnar þar sem ný aðkomugata tengist Sel- vogsbraut og svo til austurs meðfram Selvogsbraut norðan- verðri. Iðnfyrirtæki í bænum byggja all- flest á þjónustu við útgerðina. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, m. a. er þar starfrækt fyrirtæki í jarðefnaiðnaði, bifreiðaverkstæði, vélsmiðja o. fl. Umfang jarðefna- iðnaðar hefur aukizt mikið í seinni tíð og landþörf þeirrar starfsemi er mikil. Samkvæmt skipulagstillög- unni er tekið frá rúmt svæði fyrir grófiðnað við gamla Þorlákshafnar- veginn norðan byggðarinnar eða alls um 50 ha svæði. Afram er gert ráð fyrir fiskeldi á þremur svæðum við ströndina fyrir vestan bæinn. Nýjar iðnaðarlóðir of- an fyrirshugaðs Suðurstrandarveg- ar eiga líka að henta vel fyrir vatns- freka starfsemi á borð við fiskeldi. Þáttaskil með Suðurstrandarvegi Suðurstrandarvegur á eftir að breyta miklu fyrir Þorlákshöfn, en samkvæmt skipulagstillögunni mun vegurinn liggja til vesturs út frá bænum og fylgja síðan ströndinni um Selvog allt til Grindavíkur. „Hellisheiðin er oft teppt á vetuma, þannig að umferðin fer þá jafnvel meira um Þrengslaveginn," segir Sigurður Jónsson. „Suðurstrandar- vegur myndi breyta mjög miklu, en hann myndi tengja Þorlákshöfn við allt Suðurland og síðan og ekki sízt við Reykjanes. Þá myndu skapast möguleikar á útflutningi frá Þorlákshöfn um Keflavíkurflugvöll á ferskfiski, sem fluttur yrði út flugleiðis. Vöruupp- skipun og vörudreifing frá Þorláks- höfn myndi einnig aukast til muna og útskipun á vörum sömuleiðis, þar sem siglingaleiðin til Evrópu myndi styttast, en það tekur meðal- skip um 9 klukkutíma að sigla fyrir Reykjanes. Þorlákshöfn yrði um leið miklu meiri þjónustumiðstöð fyrir Suðurland í heild en nú er.“ Með fyrirhuguðum framkvæmd- um við höfnina myndast 7 ha svæði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.