Morgunblaðið - 26.05.1998, Blaðsíða 1
BÆJAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGAR 1998
ÚRSLITV
Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 26. maí 1998 Blað B
Kosið í Reykjanesbæ
Morgunblaðið/Björn Blöndal
ELLERT Eiríksson, efsti maður á lista sjálfstæðis- laugardag ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ágústu
manna og bæjarstjóri í Reykjanesbæ, á kjörstað á Sigurðardóttur, og Guðbjörgu Ósk, dóttur þeirra.
Reykjanesbær
Ellert Eiríksson
D-lista
Traust við
Sjálfstæðis-
flokkinn
og meiri-
hlutann
ELLERT Eiríksson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokks í Reykjanes-
bæ, kvaðst síðdegis á sunnudag
mjög sáttur og ánægður með sigur
flokksins í bæjar- og sveitarstjórn-
arkosningunum á laugardag. Sjálf-
stæðisflokkurinn bætti við sig níu
prósentustiga fylgi frá kosningun-
um fyrir fjórum árum og einum
manni þannig að hann hefur nú
fímm bæjarfulltrúa.
„Það er langt síðan við höfum
haft jafn hátt hlutfall, 44,9% fylgi,“
sagði hann. „Þetta er reyndar
annað skipti sem kosið er í samein-
uðu sveitarfélagi, sem áður var
Keflavík, Njarðvík og Hafnir, en
þetta er samt með því besta sem
við höfum fengið.“
Hann sagði að rekja mætti sig-
urinn til þess að bæjarbúar hefðu
lagt mat á störf meirihlutans og
Sjálfstæðisflokksins á síðasta
kjörtímabili og þetta hefði verið
niðurstaðan um leið og tekin hefði
verið afstaða til framtíðarsýnar
flokksins fyrir næsta kjörtímabil.
Að sögn Ellerts lýstu allir flokk-
ar yfir þvi að þeir gengju óbundnir
til kosninganna, en Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði í langan tíma átt
gott samstarf við Framsóknar-
flokkinn, og skipti það áratugum ef
Ktið væri til Keflavíkur.
Byrjum á viðræðum við
Framsóknarflokkinn
„Eðli málsins samkvæmt verður
náttúrulega framhald á því ef
menn ná saman og ég á ekki von á
öðru,“ sagði hann. „Við sjálf-
stæðismenn höfum rætt í okkar
hópi hvaða afstöðu við tækjum ef
niðurstaðan yrði þessi og niður-
staða okkar er sú að það sé full-
komlega réttlætanlegt að byrja á
því að ræða við Framsóknarflokk-
inn.“
Hann sagði að samstarf meiri-
hlutans hefði verið gott eftir að
sameinast var og sameiningin
hefði tekist vel.
„Það gefur til kynna hvað koma
skal,“ sagði hann. „Það má líka
benda á að Framsóknarflokkurinn
heldur sínu og vinnur varnarsigur.
Niðurstaðan er þá sú að meiri-
hlutaflokkarnir hafa sjö bæjarfull-
trúa af ellefu og það má því leiða
að þvi getum að úrslitin séu
traustsyfírlýsing við Sjálfstæðis-
flokk og meirihlutann."
Jóhann Geirdal,
J-lista
Ákveðinn
varnarsig-
ur fyrir
nýtt af I
JÓHANN Geirdal, sem leiddi J-lista
Bæjarmálafélags jafnaðar- og
félagshyggjufólks í Reykjanesbæ,
sagði að kosningarnar á laugardag
hefðu verið góð reynsla fyrir sam-
starf Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags. J-listinn kom að fjórum mönn-
um í bæjarstjóm, en A-flokkarnir
höfðu flmm samanlagt áður.
„Það er auðvitað ákveðinn varnar-
sigur að Sjálfstæðisflokkurinn fékk
ekki þann meirihluta, sem honum
hafði verið spáð í könnunum," sagði
Jóhann á sunnudag. „Við hefðum
vissulega viljað sjá meira fylgi, en
teljum hins vegar þennan árangur
nokkuð góðan.“
Hann sagði að Bæjarmálafélagið
væri nýtt afl, sem hefði unnið vel fyr-
ir kosningar. Hópurinn væri orðinn
samhentur og það væri kannski meg-
inárangurinn í þessum kosningum.
„Ég sagði þegai' við stofnuðum
Bæjarmálafélagið í nóvember eitt-
hvað á þá leið að árangurinn af þess-
ari tilraun okkar kæmi ekki aðeins
til með að mælast í því hvort við
fengjum einum bæjarfulltrúanum
meira eða minna, heldur hvernig
andinn yrði í hópnum og hvemig
hann myndi hristast saman í starf-
inu,“ sagði Jóhann þegar hann var
spurður um viðbrögð sín við því að
A-flokkarnir fengju minna fylgi í
samstarfi en hvor í sínu lagi. „I því
ljósi er ég mjög ánægður með þetta
samstarf og tel að uppskeran geti
orðið betri við næsta tækifæri.“
Jóhann sagði að það ætti eftir að
koma í ljós hvort breyting yrði á
meirihlutasamstarfi í bæjarstjóm-
inni. Sá möguleiki væri í stöðunni og
liti Bæjarmálafélagið í því sambandi
til Framsóknarflokks.
„Samstarf við sjálfstæðismenn
kemur ekki til greina á þessu stigi,“
sagði hann. „Við höfum tekið þá
ákvörðun að ræða við framsóknar-
menn og meðan það er verður ekki
tekin ákvörðun um annað.“
Sjálfstæðismenn hafa túlkað úr-
slitin sem stuðningsyfirlýsingu við
meirihlutann og sagði Jóhann að það
væri vissulega rétt að þeir hefðu
bætt við sig. „En hins vegar eru það
margar aðrar breytur í gangi, til
dæmis nýtt afl okkar, þannig að ég
held að ekki megi líta á þetta sem of
mikla traustsyflrlýsingu."
Jóhann vildi að lokum þakka þeim,
sem studdu J-listann og störfuðu
fyrir framboðið.
Skúli Þorbergur
Skúlason, B-lista
Uppskár-
um eins
og við
sáðum
„ÉG ER tiltölulega sáttur við út-
komu okkar í kosningunum. Við náð-
um að halda inni tveimur bæjarfull-
trúum sem við vorum með fyrir,
þrátt fyrir það að báðir fyrrverandi
bæjarfulltrúar væru ekki í framboði
og nýir menn væru í forystusætun-
um,“ sagði Skúli Þorbergur Skúla-
son, oddviti Framsóknarflokksins í
Reykjanesbæ.
„Niðurstöðumar komu mér ekki á
óvart, það var geysilega vel unnið
innan flokksins og hópurinn sem
kom að starfínu var mjög samhentur
og ég held við höfum uppskorið eins
og við sáðum. Skoðanakannanir voru
okkur í óhag, en kosningarnar sýndu
að bæjarbúar kunna að meta störf
framsóknarflokksins og vildu ekki að
okkar hlutur skertist. I dag er mér
efst í huga þakklæti til stuðnings-
manna, starfsfólks og meðfram-
bjóðenda. Kosningabaráttan var til-
tölulega friðsamleg og hafði á sér
jákvætt yfirbragð þannig að ég held
að flestir geti staðið uppi fremur
sáttir," sagði Skúli að lokum.
Grindavík
Hallgrímur Bogason,
B-lista
í sögulegu
hámarki
og bætum
við okkur
HALLGRÍMUR Bogason, oddviti
Framsóknarflokks í Grindavík,
kvaðst á sunnudag þakka úrslit
kosninganna starfi meirihlutans á
liðnu kjörtímabili.
„Ég er alsæll,“ sagði Hallgrímur.
„Við vorum síðast í sögulegu há-
marki framsóknarmanna. Nú sitjum
við í meirihluta og bætum örlitlu við
okkur.“ Framsóknarflokkurinn fékk
32,1% atkvæða árið 1994 og 32,5%
nú og er með tvo bæjarfulltrúa.
„Mér sýnist á öllu að þetta sé við-
urkenning á því að við séum á réttri
braut,“ sagði hann. „Það hefur ekki
verið tekið á því enn hvemig sam-
starfi verður háttað á næsta
kjörtímabili, en þetta er vísbending
um vilja fólksins. 99% atkvæðafylgis
eru óbreytt og aðeins 1% atkvæða
færist til. Þannig að ég lít þetta hýru
auga.“
Hallgrímur sagði að hann þakkaði
úrslitin heildarstefnu flokksins, en
ekki áherslu á einstök mál. í kosn-
ingabaráttunni hefði stækkun
grannskólans fyrir einsetningu og
stórframkvæmdir við innsiglinguna
verið settar á oddinn.
„Þetta á hug okkar allra núna og
það er greinilega samhugur meðal
bæjarbúa um að leggja á það
áherslu,“ sagði hann og bætti við að
lokum: „Ég er bara glaður og
ánægður og þakka öllu þvi góða
fólki, sem studdi okkur,“
Ólafur Guðbjarts-
son, D-lista
Ekki
ánægðir
með niður-
stöðurnar
„VIÐ erum ekki alltof ánægðir með
niðurstöður kosninganna, en við
héldum okkar hlut þó við hefðum
verið að vonast eftir meira fylgi. Það
var mikill áróður rekinn héma gegn
okkur, en þegar upp er staðið þá
held ég að við verðum að sætta okk-
ur við þessar niðurstöður í þetta
skiptið,“ sagði Ólafur Guðbjartsson
oddviti sjálfstæðismanna í Grinda-
vík.
„Við töpuðum talsverðu fylgi fyrir
síðustu kosningar og ætluðum að
endurheimta eitthvað af því, en það
má eiginlega segja að við höfum
staðið í stað þó við höfum fengið
0,6% aukningu á fylgi. Við höfum
myndað meirihluta með framsóknai'-
mönnum en við urðum fyrir
nokkrum vonbrigðum með niður-
stöðurnar í heild,“ sagði Ólafur.
Hafnarfjörður
Magnús Gunnars-
son, D-lista
Ánægjuleg
niöurstaða
„ÞETTA er afskaplega ánægjuleg
niðurstaða,“ sagði Magnús Gunnars-
son, oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði.
„Við erum þakklát fyrir þann
stuðning, sem bæjarbúar hafa sýnt
okkur sjálfstæðismönnum og þá sér-
staklega í ljósi þess að flokkurinn
SJÁBLS.3