Morgunblaðið - 19.06.1998, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998
5*------------------------
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Langlundargeði
hjúkrunarfræðinga misboðið
VEGNA athugasemdar heilbrigð-
isráðherra, sem birtist í Morgun-
blaðinu 11. júní sl. þar sem hún
„sagði það umhugsunarvert að
þrátt fyrir að stjórnvöld hefðu gert
langtímasamning til ársins 2000 við
hjúkrunarfræðinga haustið 1996
væri þessi staða komin upp á miðju
samningstímabilinu“, fínn ég mig
knúna til þess að koma eftirfarandi
upplýsingum á framfæri.
Þegar kjarasamningur hjúkrun-
arfræðinga var laus 1. desember
1996 fóru í gang viðræður af hálfu
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga við viðsemjendur okkar (ríki
og borg), þessum viðræðum lauk
svo tæpum 7 mánuðum síðar eða í
júní 1997 með undirskrift miðlægs
kjarasamnings. Af þessú má sjá að
undimtun kjarasamnings átti sér
ekki stað haustið 1996 eins og ráð-
herra fullyrðir. Þennan samning
samþykktu hjúkrunarfræðingar.
Það var ekki erfitt að samþykkja
samninginn þar sem ákvæði um
röðun í nýja launaramma voru inn-
an samningsins og sáu hjúkrunar-
fræðingar nú loks fram á möguleika
um launaleiðréttingu.
Yfírfærsla í nýja launa-
ramma/stofnanasamning var auð-
vitað ekki einfalt mál. Þess vegna
var skipuð aðlögunar-
nefnd sem var falið að
raða hjúkrunarfræðj
ingum í þessa ramma. í
aðlögunarnefndinni
sátu fulltrúar sjúkra-
hússins annarsvegar og
fulltrúar hjúkrunar-
fræðinga hinsvegar.
Þessi nefnd átti svo að
skila sinni vinnu 1. nóv-
ember 1997 en greiðsl-
ur samkvæmt þessum
römmum áttu svo að
hefjast 1. febrúar sl.
Nefndinni tókst ekki að
ljúka sinni vinnu fyrir
nóvember ‘97 og ekki
heldur fyrir febrúar
Cecilie B.
Björgvinsdóttir
úrvalið!
o
Hoql ~
g'Qil
^ÓL
Sí>'
r
j
ýörutegundir
á frábæru verði!
N
5SS
N
St*.
I S*. k
%7* 1
*0,
Skeifan • Smáratorg • Akureyri • Njarðvík
HAGKAUP
Ailtaf betri kaup
;Sv
‘98. Engin lausn um
þetta mál var í sjón-
máli fyrir 1. apríl sl. og .
þá fyrst urðu hjúkrun-
arfræðingar svo
þreyttir á biðinni eftir
betri kjörum að upp-
sagnir meirihluta
stéttarinnar á stóru
sjúkrahúsunum í
Reykjavík urðu að
veruleika.
Það er skemmst frá
því að segja að aðlög-
unarnefndin lauk
störfum sínum með því
að vísa málinu til úr-
skurðarnefndar þar
sem ekki náðist sam-
komulag á milli vinnu-
veitenda annarsvegar og hjúkrun-
arfræðinga hinsvegar. Úrskurðar-
nefnd átti svo að skila sinni ályktun
um miðjan maí sl., en úrskurðinum
var frestað þar sem úrskurði nátt-
úrufræðinga við sama vinnuveit-
anda var vísað til félagsdóms. Úr-
skurður hjúkrunarfræðinga liggur
því ekki enn fyrir. Við höfum því
beðið og beðið, fyrst í 7 mánuði eftir
nýjum kjarasamningi og svo í 5
mánuði eftir röðun í nýja flokka
Nú bíðum við ekki
lengur, segir Cecilie B.
Bj örgvinsdóttir,
uppsagnarfresturinn er
að renna út og ekkert
hnikar í
samkomulagsátt.
(eða til 1. apríl sl.). Nú bíðum við
ekki lengur, uppsagnarfresturinn er
að renna út og ekkert hnikar í sam-
komulagsátt. Málið virðist því kom-
ið í hnút.
Af ofangreindu má sjá að ráð-
herra fer ekki rétt með staðreyndir.
Eg veit ekki hvort mér fínnst alvar-
legra í stöðunni að ráðherra fari vís-
vitandi með rangt mál eða það að
hún hafí hreinlega ekki kynnt sér
málið betur.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum
frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefur
þeim verið gert að spara enn frekar
á þessu fjárlagaári. Sjúkrahúsin
hafa þegar sparað umtalsverða fjár-
muni, þar er ekkert meira hægt að
spara. Það er von mín og ósk að
stjórnvöld sjái sér fært að leysa
þennan vanda á farsælan hátt áður
en ósköpin dynja yfir, því eins og
einn góður samstarfsmaður minn
(gamalreyndur læknir) sagði; „við
getum lokað sjúkrahúsunum án
hjúkrunarfræðinga".
Höfundur er hjúkrunarfræðingur á
B-6 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.