Morgunblaðið - 30.06.1998, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 B 5
HM í FRAKKLANDI
Trezeguet
Chilavert
Iffll
Grodas
'Mh'ÍSjS;
ksssísim
SIGURMARK LAURENT BLANCS
VIERI TRYGGÐIÍTALÍU SIGUR
NOREGUR
Hetjuleg vörn Paragvæmanna dugði ekki til gegn Frökkum í Lens
Frakkar með fyrsta
gullmarkið í sögu HM
Vieri
sökkti
norsku vík-
ingunum
FRAKKAR tryggðu sér sæti í
átta liða úrslitum HM á
sunnudag með 1:0 sigri á
Paragvæ. Sigurmarkið gerði
varnarjaxlinn Laurent Blanc á
lokamínútum framlengingar,
svonefnt gullmark, og er
þetta í fyrsta sinn í sögu HM,
sem slíkt fyrirkomulag ræður
úrslitum.
Fyrirfram var búist við auðveld-
um sigri gestgjafanna, en ann-
að kom á daginn. Leikmenn
Paragvæ vörðust geysilega vel og
beittu síðan öflugum skyndisókn-
um. Við þessu áttu Frakkar
lengst af ekkert svar og undir lok-
in var farið að hilla undir víta-
spyrnukeppni. Henni komust
Frakkar naumlega hjá og geta nú
tekið til við undirbúning fyrir
viðureignina við ítali í átta liða
úrslitum, en Paragvæmenn geta
borið höfuðið hátt og haldið heim
á leið.
Blanc, sem gerði gullmarkið á
116. mínútu leiksins, hefur lengi
notið vinsælda í heimalandi sínu,
en búast má við að þær vinsældir
nái nýjum og óþekktum hæðum
eftir mark hans í fyrradag. Hann
viðurkenndi eftir leikinn, að hann
hefði ekki verið fylgjandi reglunni
um gullmarkið - fyrr en nú. „Eg
var andsnúinn þessari hugmynd
og leist ekki vel á framkvæmd
hennar á HM. Nú hef ég skipt um
skoðun. Jafnvel þótt ég hefði trú á
sigri okkar, má vel halda því fram
að gullmarkið sé heldur ósann-
gjarnt fyrirbæri. Þetta var erfítt
fyrir leikmenn Paragvæ, en við
erum komnir áfram og því er ég
hamingjusamur."
Eins og nærri má geta, fögnuðu
leikmenn franska liðsins feikilega
í leikslok og var greinilega þungu
fargi af þeim létt. Að sama skapi
var hreint átakanlegt að sjá
Paragvæmennina, sem fyrstir
HM-liða þurftu að kynnast mis-
kunnarleysi gullmarksins.
„Ég sá leikmenn Paragvæ gráta
eftir leik og mig tók það sárt,“
sagði Didier Deschamps, fyrirliði
franska liðsins. „Ég er ánægður
með sigur okkar og fannst hann
sanngjarn. En það hlýtur að vera
hrikalega erfítt að falla úr leik á
HM á þennan máta.“
Þjálfarinn Aime Jacquet tók í
sama streng. „Ég er ánægður að
Italir tryggðu sér sæti í átta liða
úrslitum heimsmeistarakeppn-
innar með 1:0 sigri á Norðmönnum
á laugardag. Leikurinn þótti lítil
skemmtun, en Italir gerðu það sem
þurfti og að venju sat Christian Vi-
eri einn að kjötkötlunum í framlín-
unni og hefur þessi stórvaxni mið-
herji nú tekið forystu í keppninni
um markakóngstitilinn - hefur gert
fimm mörk í fjórum leikjum.
Raunar má segja um mark Vier-
is, að það hefði allt eins getað verið
norskt að uppruna. Það kom nefni-
lega á 18. mínútu eftir talsverða
orrahríð Norðmanna að marki Itala
og byggðist á langri sendingu fram
völlinn og síðan hreint snilldarlegri
afgreiðslu Vieris í netið. Fram að
því hafði verið nokkurt jafnræði
með liðunum og í raun má segja að
það jafnræði hafí haldist allt til
leiksloka.
Norðmenn áttu nokkur ágæt
marktækifæri, en Pagliuca í marki
Itala varði eins og berserkur og
hinum megin fékk Alessandro Del
Piero nokkur upplögð færi, sem
honmum tókst ekki að nýta.
Þetta var fyrsta tap Norðmanna í
tuttugu leikjum.
Töpuðum fyrir
slöku liði ítala
Egil Olsen, sem stýrði norska liðinu
í síðasta sinn, sagði bæði lið hafa
leikið illa. „Þetta var ekki góður
•leikur. Við áttum okkar tækifæri og
hefðum getað skorað. Italirnir virt-
ust þreyttir og ég er vonsvikinn yf-
ir úrslitunum. Mínir menn stóðu sig
ekki sem skyldi."
Olsen bætti því við að hitinn
hefði haft áhrif á leikmenn beggja
liða. „Við fengum dauðafæri í seinni
hálfleik og hefðum átt að nýta það.
ítalirnir voru litlu skárri og ég held
að leikurinn hafi ekki verið mikið
fyrir augað.“
Cesare Maldini, þjálfari ítala,
varði sína menn og sagði þá hafa
leikið mjög vel. „Þegar komið er í
sextán liða úrslitin, ei-u allir leikir
eiFiðir. Við unnum leikinn, erum
komnir áfram og ég er afar ánægð-
ur með það.“
Athygli vakti, að Maldini lét Ro-
berto Baggio hvíla á varamanna-
bekknum allan tímann, en Baggio
hefur verið einn besti maður liðsins
í undanförnum leikjum. „Ég hef
mínar ástæður og það er mitt að
velja liðið. Del Piero er að leika bet-
ur og betur í hverjum leik, sem lið-
ur og meiðsli hans hrjá hann ekki
eins og áður. Ég var afar sáttur við
frammistöðu hans.“
Reuters
LAURENT Blance (5) fagnar sigurmarki sínu ásamt Lilian Thuram og Alain Boghossian.
sleppa við vítaspyrnukeppni,"
sagði hann. „Hún er jafnvel enn
grimmilegri aðferð til að úrskurða
sigurvegara.“
Hætt er þó við, að þessi um-
mæli séu leikmönnum Paragvæ
lítil huggun. Liðið stóð sig framar
vonum í riðlakeppninni, jafnvel
þótt það hafí verið í hinum svo-
nefnda „dauðariðli". Jafntefli við
Búlgaríu og Spán og 3:1 sigur á
Nígeríu tryggði þeim áframhald-
andi þátttöku og fá önnur lið
fengu aðeins eitt mark á sig. Gríð-
arsterkur varnarleikur með
markvörðinn og fyrirliðann Jose
Luis Chilavert í broddi fylkingar
stóð vaktina í naumar tvær
klukkustundir, en svaf síðan á
verðinum í eitt andartak og þá var
draumurinn úti.
„Við þekkjum reglurnar, en
þetta er hrikalegt áfall. Ég hugsa
að þessi úrslit muni ekki víkja úr
huga mér á næstunni," sagði Car-
los Paredes.
Francisco Arce, sem ásamt öðr-
um varnarmönnum liðsins átti
stórleik, var nánast orðlaus.
„Svona er þetta nú. Þetta er
kannski gullmark fyrir Frakka,
en mér sýnist þetta miklu fremur
líkjast svartholi."
Sóknarvandræði Frakka
Frakkar voru mun sterkari aðil-
inn í leiknum og sóknir liðsins
urðu fjölmargar áður en yfír lauk.
Þær voru þó ekki sérlega beittar
og aðeins er hægt að tala um eitt
verulegt dauðafæri, er Thierry
Henry skaut í stöngina eftir lag-
lega sókn. Frábært skipulag varn-
ar Paragvæmanna lokaði iðulega á
miðvallarleikmenn Frakka og ein-
angraði þannig sókarmenn þeirra
frá þátttöku í leiknum. David
Trezeguet, Bernard Diomede, Ro-
bert Pires og Stephane Guivarch
gerðu sig aukinheldur allir seka
um kæruleysi í upplögðum færum
og virtist sumum hreinlega fyrir-
munað að gefa nákvæma sendingu
til samherja.
Frakkar eru enn í vandræðum
með framlínuna. Enginn framherji
liðsins er beinlínis á heimsmæli-
kvarða og það kom berlega í ljós á
sunnudag. Ljósið í myrkrinu er þó
sú staðreynd, að Zinedine Zidane
hefur tekið út tveggja leikja bann
sitt og verður klár í slaginn gegn
Itölum. Ef hann hefði leikið gegn
Paragvæ eru allar líkur á að út-
sjónarsemi hans og snilld hefðu
komið að gagni mun fyrr í leiknum.
En þá hefði leikurinn heldur ekki
orðið jafn spennandi og sögulegur
og raun bar vitni.
Pires
Blanc
Laurent Blanc
PARAGUAY
114. mín.
Prinsar í
óvæntum
félagsskap
FJÖLDI fólks, sem keypti miða
á svörtum markaði á leik Eng-
lands og Kólumbíu á dögunum,
sat í heiðursstúku leikvangsins í
Lens við hlið Karls Bretaprins
og sonar hans, Hai-alds. Lög-
reglan á staðnum sagði að sjálf-
boðaliði í miðasölu hefði verið
færður í gæsluvarðhald eftir að
hafa orðið uppvís að því að selja
miða á svörtum markaði.
Skipulagsaðilar á heimsmeist-
arakeppninni urðu undrandi á
leiknum síðastliðinn föstudag,
þegar þeir sáu um fímmtíu
manns, sem voru augljóslega
ekki heiðursgestir, setjast niður
við hlið feðganna. Þessir fimm-
tíu áhorfendur voru ekki taldir
hættulegir prinsunum, en rann-
sókn málsins hófst tafarlaust.
Yfirmaður miðasölunnar í Lens
var yfirheyrður en engin ákæra
var gefin út á hendur honum.