Morgunblaðið - 01.07.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
145. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR1. JÚLÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bandarísk herþota skýtur flugskeyti að íraskri ratsjárstöð
Irakar fordæma árásina
og segja hana óverjandi
Washington, Shanghai, Bagdad. Reuters.
BANDARISK F-16-herþota skaut
flugskeyti að ratsjárstöð í suður-
hluta Iraks í gær eftir að Irakar
höfðu fest ratsjármið á breskar her-
þotur sem voru á eftirlitsflugi á
svæðinu. A1 Gore, varaforseti
Bandaríkjanna, sagði að ekki væri
ljóst hvort írakar hefðu ögrað her-
þotunum af ásettu ráði en Irakar
neituðu því að hafa reynt að miða
loftvarnabyssum á þær. Stjórn
Iraks fordæmdi árás bandarísku
herþotunnar, lýsti henni sem
„óverjandi árás að fyrra bragði“
sem gæti leitt til „allsherjarárása" á
írak. Hún sagði að flugskeytið hefði
ekki hæft ratsjárstöðina.
Herþoturnar hafa framfylgt flug-
banni yfír suðurhluta Iraks sem
Serbar og Albanar í
Kosovo gagnrýndir
Sakaðir
um árásir
á saklausa
borgara
London, Kosovo Polje. Reuters.
ÁTOK serbneskra öryggissveita og
albanskra uppreisnarmanna í
Kosovo hafa leitt til ógnvekjandi
árása á saklausa borgara af beggja
hálfu, að því er fram kemur í skýrslu
sem mannréttindasamtökin Amn-
esty International birtu í gær.
„Stríðsglæpir eru framdir í Kosovo
núna,“ sagði Pierre Sane, fram-
kvæmdastjóri Amnesty, á blaða-
mannafundi í London. Hann bætti
við að ill meðferð beggja aðila á íbú-
um héraðsins gengi í berhögg við al-
þjóðlegar mannréttindareglur og
jafnaðist á við glæpi sem framdir
voru í stríðinu í Bosníu.
í skýrslunni eru Serbar og
Kosovo-Albanar sakaðir um að hafa
gert árásir á íbúa héraðsins af ásettu
ráði, drepið þá, pyntað eða hrakið frá
heimilum sínum. Serbnesku öryggis-
sveitirnar hafí beitt stórskotavopn-
um í árásum á bæi og þorp albanska
meirihlutans í héraðinu og albanskir
uppreisnarmenn hafí einnig gerst
sekir um árásir á saklausa borgara.
Að sögn samtakanna hafa
serbneskar sérsveitir dregið farþega
út úr lestum og rútum, barið, auð-
mýkt eða rænt þá. Fangar serb-
nesku lögreglunnar hafi verið barðir
og pyntaðir og mörgum þeirra hafi
verið haldið í fangelsi án ákæru eða
aðgangs að lögfræðingum. Óstað-
festar fregnir hermi jafnvel að báðir
aðilar hafí komið sér upp leynilegum
fangelsum.
Amnesty áætlar að um 45.000
manns, aðallega Albanar, hafi flúið
heimili sín frá því átökin hófust og
hundruð manna hafí horfíð eða verið
handtekin. Átökin hafi kostað 250
manns lífið.
sett var skömmu eftir stríðið íyrir
botni Persaflóa árið 1991.
Atvikið olli í fyrstu verðhækkun á
olíumörkuðum, sem eru viðkvæmir
fyrir atvikum sem gætu aukið
spennuna við Persaflóa, en olíuverð-
ið lækkaði aftur síðar um daginn
þar sem talið var að átök væru ekki
í aðsigi.
Bandaríska herþotan skaut flug-
skeytinu klukkan 6.30 að íslenskum
tíma í gærmorgun. Bandarískur
embættismaður í föruneyti Bills
Clintons Bandaríkjaforseta í Kína
sagði að forsetanum hefði ekki verið
skýrt frá atvikinu fyrr en átta tím-
um síðar. „Flugmennimir brugðust
rétt við og verið er að rannsaka
málið,“ sagði hann.
Meintir
morðingjar
áreittir
FIMM Bretar á þrítugsaldri, sem
voru ákærðir en aldrei dæmdir
fyrir morðið á Stephen Lawr-
ence, unglingi í London, voru
áreittir í gær er þeir höfðu borið
vitni við opinbera rannsókn á
þætti lögreglunnar í málinu.
Hópur fólks lét reiði sína í ljós
með því að kasta eggjum og
flöskum í mennina.
Þetta er í annað sinn sem til
átaka kemur vegna rannsóknar-
innar, en henni var frestað á
mánudag vegna óláta. Stephen
Lawrence var myrtur árið
1993 og virtist ástæðan hafa
verið sú að hann var svartur á
hörund.
Embættismenn í bandaríska
varnarmálaráðuneytinu sögðu að
írakar hefðu fest ratsjármið á fjór-
ar breskar herþotur af gerðinni
Tomado þegar þær voru á eftirlits-
flugi með sex bandarískum herþot-
um nálægt borginni Basra. „Slíkt er
álitið útheimta árás í varnarskyni,"
sagði talsmaður Bandaríkjahers.
Viðbúnaðurinn
ekki aukinn
A1 Gore sagði að Bandaríkjaher
myndi halda eftirlitsfluginu áfram
og svara hugsanlegum hernaðarað-
gerðum Iraka af fullum þunga.
William Cohen, varnarmálaráð-
hema Bandaríkjanna, sagði að ekk-
ert benti til þess að Irakar væm að
BILL Clinton Bandaríkjaforseti,
sem staddur er í Kína, ítrekaði í gær
þá stefnu stjórnar sinnar að Tævan
ætti ekki að verða sjálfstætt ríki og
lagði áherslu á að í öllu Kína ætti að-
eins að vera ein ríkisstjórn. Tævan-
ar mótmæltu þegar ummælunum.
„Bandaríkjamenn og kínversku
kommúnistarnir hafa engan rétt til
að efna til tvíhliða viðræðna um eitt-
hvað sem snertir málefni okkar,"
sagði talsmaður tævanska utanrík-
isráðuneytisins, Roy Wu, í gær.
Hann sagði jafnframt að ummæli
Clintons merktu ekki breytingu á
undirbúa hernaðaraðgerðir og
Bandaríkjastjórn hefði því ekki í
hyggju að svo stöddu að auka hern-
aðarviðbúnað sinn við Persaflóa.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins hvatti Iraka og Banda-
ríkjamenn til að forðast aðgerðir,
sem gætu leitt til átaka.
Embættismaður í menningar- og
upplýsingamálaráðuneyti Iraks
sagði að eldflaugin hefði ekki hæft
skotmarkið og lent um 18 km frá
næstu ratsjárstöð Iraka.
Herþotur Bandaríkjamanna og
Breta hafa haldið uppi eftirliti norð-
ur að 33. breiddarbaugi, rétt sunnan
við Bagdad, til að tryggja að írakar
ógni ekki Kúveit eða ráðist á shíta-
múslima í suðurhluta Iraks.
afstöðu Bandaríkjanna sem vilja að
sameining Kína og Tævans verði
friðsamleg.
Stjórnarandstæðingar á Tævan
voru hins vegar á því að Clinton
ræki með ummælum sínum erindi
Pekingstjómarinnar og tæki ekkert
tillit til þess að Tævanar hefðu kom-
ið á lýðræði síðustu árin. Eina úr-
ræði Tævana væri að lýsa yfír sjálf-
stæði og gefa upp á bátinn þá stefnu
að Kína sé eitt ríki er verði samein-
að stjórnarfarslega þegar lýðræði
verði tekið upp á meginlandinu. Ný
könnun á Tævan gefur til kynna að
Atök eftir
tap Eng-
lendinga
ÁTÖK blossuðu upp í St. Etienne
í Frakklandi í gærkvöldi eftir að
Englendingar töpuðu fyrir Arg-
entínumönnum í 16 liða úrslitum
heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu.
Um leið og leiknum lauk
streymdu stuðningsmenn enska
landsliðsins af börum í miðbæn-
um, þar sem þeir höfðu horft á
leikinn í sjónvarpi, og börðust við
ungmenni af norður-afrískum
uppruna sem söngluðu „Argent-
ína“.
Flöskum og stólum var kastað
og fjölmennt lið lögreglumanna
fór á staðinn til að binda enda á
óeirðirnar. Lögreglumenn hand-
taka hér eina af knattspyrnubull-
unum.
Argentína sigraði 4:3 í víta-
spyrnukeppni eftir að fram-
lengdum leik lauk með jafntefli,
2:2. Englendingar léku einum
færri frá 47. mínútu þar sem
David Beckham var vikið af velli
eftir að hafa sparkað í Argent-
ínumann sem braut á honum.
Mikill áhugi var á leiknum í
Bretlandi og talið er að 30 millj-
ónir Breta, rúmur helmingur
þjóðarinnar, hafi horft á sjón-
varpsútsendingu frá honum.
■ Æfíngin skapar/Bl
mikill meirihluti sé andvígur því að
eyjan verði sameinuð Kína með
svipuðum skilmálum og viðhafðir
voru þegar Hong Kong komst undir
yfu-stjórn ráðamanna í Peking.
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, sagði í
gær að Kína væri nú óðfluga að
breytast í nýtt risaveldi. „Við ætt-
um að einbeita okkur að því að
fylgjast með hernaðarmætti Kín-
verja og markmiðum þeirra," sagði
hún í grein í The Daily Telegraph.
■ Friðkaup/21
Reuters
Bill Clinton vill eina
ríkisstjórn í öllu Kína
Tæpei, London. Reuters.