Morgunblaðið - 01.07.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 01.07.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Köttur varð mnlyksa í hólfí undir gírkassa Volvo-bifreiðar Þurfti að skrúfa undirvagninn af til að bjarga kisa Morgunblaðið/Ásdís HVER á kisa? Eggert Jónasson vonast til að eigandi kattarins gefi sig fram. Hér er hann við Volvoinn sinn með köttinn sem skreið inn í lítið hólf undir sjálfskiptingunni og fór með honum í bíltúr. EGGERT Jónassyni brá í brún þegar hann settist upp í Volvoinn sinn um hálfþijúleytið á mánu- dag og heyrði mjálm í bílnum en fann hvergi kött, þótt hann leit- aði vandlega. Eggert ók á bflnum dálitinn spöl en hélt áfram að heyra mjálmið. Hann leitaði bet- ur en enginn fannst kötturinn. „Eg hélt hreinlega að ég væri orðinn brjálaður,“ sagði Eggert í samtali við Morgunblaðið. „Ég fékk svo annan til að koma með mér út í bfl og hann heyrði það sama og ég.“ Eftir þriggja klukkutima ár- angurslausa leit að kettinum ákvað Eggert að fara með Vol- voinn á fólksbflaverkstæði Brim- borgar. „Þar trúðu menn mér Islenzkt- litháískt samstarf barna- spítala SAMNINGUR um samstarf Barna- spítala Hringsins, Rannsóknastofu í sýklafræði við Landspítala fslands og barnadeildar háskólasjúkrahúss- ins í Vilnius í Litháen var undimt- aður 15. júní sl., síðasta dag opin- berrar heimsóknar Olafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur til Litháens. Samstarfið snýst um rannsóknar- verkefni sem mun standa í að minnsta kosti 2-3 ár og er styrkt af norrænu ráðherranefndinni og ís- lenzkum stjórnvöldum. Rannsóknin beinist að því að gi-eina tíðni og teg- undir fjölónæmra baktería meðal barna í Litháen. Við þetta sama tækifæri voru afhent tæki til notk- unar við rannsóknina. Er þar um að ræða hitaskáp til ræktunar baktería, frysti til geymslu á bakteríum til nánari geininga, ásamt tölvubúnaði. Samhliða þessu samstarfí milli barnaspítala Hringsins, Rannsókna- stofunnar og barnadeildarinnar í Vilníus ákvað kvenfélagið Hringur- inn í Reykjavík að gefa barnaspítal- anum þar 6 vökvadælur til notkunar á sjúkrahúsinu. Vökvadælur þessar eru afar mikilvægar við gjöf lyfja og vökva. íslenzku forsetahjónin voru við- stödd er samstarfssamningamir voru undirritaðir og tækin afhent og flutti forsetinn ávarp við það tækifæri. Kveikt íbíl SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur var kallað um klukkan 13 í gær að Völvufelli í Breiðholti þar sem kveikt hafði verið í númerslausri bifreið. Eldurinn hafði kraumað nokkra stund í bílnum og var mikill reykur af eldinum og hiti. Bíllinn er talinn ónýtur en eigandi hans hafði ætlað að gera hann upp. Talið er full- víst að um íkveikju hafi verið að ræða. ekki og héldu að það væri falin myndavél eða eitthvað slíkt, því að nijáhnið heyrðist stöðugt en enginn fannst kötturinn,“ segir Eggert. „Að lokum settu þeir bflinn upp á lyftu og eftir tíu mínútna leit fannst kötturinn í hnipri í litlu hólfi undir sjálf- skiptingunni." Skelkaður og særður en frelsinu feginn Bifvélavirkjarnir neyddust til að skrúfa hluta undirvagnsins undan Volvoinum til að ná kett- inuin út. Hann var að sögn Egg- erts mjög skelkaður og særður á fótum, sennilega vegna hitans frá pústkerfínu, en frelsinu feg- inn. Eggert og fjölskylda hans BREYTINGAR verða á fyrirkomu- lagi sorphirðu á Seltjamamesi, í Mosfellsbæ og Garðabæ á morgun. Hætt verður að hirða sorp vikulega og verður það í staðinn gert á 10-14 daga fresti. I stað plastpoka verða teknar í notkun 240 lítra plasttunnur eins og notaðar hafa verið á höfuð- borgarsvæðinu um árabil. Fjölbýlis- hús og stærri vinnustaðir og stofnan- ir eiga kost á 660 lítra gámum. Hægt verður að fá aukatunnur en sorp- hirðugjald verður innheimt í sam- ræmi við fjölda íláta. Hrafn Jóhanns- son, bæjartæknifræðingur á Seltjam- amesi, segir markmiðið með þessum breytingum vera að minnka kostnað við sorphirðu og stuðla að aukinni endumýtingu og flokkun sorps. fóru með kisa til dýralæknis, þar sem hann fékk lyf og áburð á sárin. Hann hefur siðan gist á heimili Eggerts. „Hann er dálít- ið hræddur en ósköp Ijúfur við okkur,“ segir Eggert. „Kötturinn er greinilega hús- Á næsta ári er stefnt að því að lækka fastagjald fyrir sorphirðu og mun fólk þá borga fyrir hvert kfló af sorpi sem það hendir, en strax í haust verður farið að vigta sorjúð, til að fylgjast með því hversu mikið það er. Hrafn segir mjög jákvæða reynslu af þessu víða erlendis. Kostnaður vegna sorphirðu minnki bæði fyrir bæjarfélög og einstak- linga og það sorp sem hent sé minnki um 30 til 35%. Hrafn telur augljósan hag af því fyrir bæjarbúa að taka þátt í þessum breytingum á soiyhirðu með opnum huga. I bæklingi sem bæjarfélögin þrjú vanur og við vonuin að eigandi hans gefi sig fram,“ segir Eggert. Hann segir að hugsan- legt sé að kötturinn hafi skriðið undir bflinn annaðhvort í Vogahverfi við Skeifuna eða þá í Gerðahverfi við Grensásveg. gáfu út saman er fólki er bent á ýmsar leiðir til að minnka ummál sorps, t.d. að rífa niður kassa undan flatbökum og aðrar stærri pakkn- ingar. Það er einnig hvatt til þess að flokka og koma í endurvinnslu papp- ír, drykkjarfernum, áldósum, plast- og glerflöskum. Hrafn segir að reynt verði að ýta undir þetta með ýmsum hætti, t.d. fái fólk fljótlega sérstök flát undir drykkjarfernur og svo kassa undir pappír til endur- vinnslu. Á Seltjarnarnesi sé ætlunin að koma upp gámum fyrir gler og unnið sé að því að finna staði fyrir þá. Gerður hefur verið langtíma- samningur við Gámaþjónustuna um sorphirðu á Seltjarnarnesi, i Mos- fellsbæ og Garðabæ. Arsfang- elsi fyrir skjala- fals og tollsvik HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands dæmdi á mánudag tvo menn, annan í ársfangelsi og hinn til gi-eiðslu 100 þús. króna sektar, fyiár skjalafals og tollsvik. Um var að ræða 46 tilvik þar sem mönnunum var gefið að sök að hafa framvísað fölsuðum reikn- ingum við tollafgreiðslu bifreiða til að fá aðflutningsgjöld lægi’i en rétt hefði verið. Samkvæmt ákæru mun- aði þar rúmlega 25,6 milljónum króna. Fyrstu tollafgreiðslur fóru fram 10. janúar 1996 en þær síðustu 30. september 1997. Rannsókn málsins hófst í septem- ber á síðasta ári að beiðni ríkistoll- stjóra. Þá hafði um nokkurt skeið verið til athugunar við embættið innflutningur notaðra bifreiða frá Þýskalandi á vegum mannanna tveggja og fleiri aðila. Mennirnir voru handteknir 30. september og sátu þeir í gæsluvarðhaldi í ellefu daga. Annar þeirra var í farbanni í rúmt hálft ár. títbjó 46 reikninga Annar mannanna viðurkenndi að hafa útbúið alla þá 46 reikninga sem taldir vora upp í ákæru en hélt því fram fyrir dómi að hann hefði gert það í samráði við og með samþykki seljenda bílanna ytra og hefði feng- ið til þess bréfsefni fyrirtækjanna. Um þátt hins mannsins segir í dóm- inum að sönnunargögn séu ekki af- gerandi. Ljóst sé að hann hafi árit- að talsverðan fjölda tollskýrslna en jafnljóst sé að sá fyi-ri hafi útbúið skýrslumar í samræmi við gögn er hann falsaði. Síðari maðurinn er sýknaður af ákæru um skjalafals og tollsvik. Sá mannanna er fangelsisdóm- inn hlaut er sakfelldur fyi’ir sam- tals 45 skjalafalsbrot og í 40 tilfell- um auk þess fyrir tollalagabrot. Þá er hann sakfelldur fyrir bókhalds- brot. í dóminum segir að þar sem ekki sé sannað hvaða íjárhæð mað- urinn hafi komið sér undan að greiða sé ekki fært að ákveða fjár- sekt. Þá hafi hann ekki haft um- talsverðan hagnað af brotastarf- seminni. Það hafi þó verið ætlun hans og er það, auk þess að hann var í farbanni í liðlega hálft ár, haft til hliðsjónar við ákvörðun lengdr- ar refsingar. Sjö sinnum dæmdur til refsingar Maðurinn hefur tvívegis sætt refsingum á íslandi. Hann var dæmdur til fjögurra mánaða skil- orðsbundinnar fangelsisvistar fyrir skjalafals, tékka- og tollalagabrot árið 1989 og til greiðslu 150 þús. króna sektar fyrir tollalagabrot ár- ið 1995. Hann var fimm sinnum á árunum 1989 til 1993 dæmdur til refsingar í Þýskalandi fyi'ir fjár- drátt og fjársvik, síðast til fangels- isvistar í eitt ár og tíu mánuði. Hér- aðsdómur Suðurlands dæmdi hann til fangelsisvistar í eitt ár og greiðslu sakarkostnaðar og máls- kostnaðar, alls 500 þús. krónur. Verjandi mannsins var Björgvin Þorsteinsson hrl. Hinn maðurinn hefur ekki sætt refsingum áður. Við ákvörðun refs- ingar er litið svo á að hann hafi lokið hluta hennar með því að sæta gæsluvarðhaldi í ellefu daga. Refs- ing hans er ákveðin 100.000 króna sekt, en vararefsing tuttugu daga varðhald. Hann var dæmdur til greiðsiu 1/5 hluta málsvarnarlauna verjanda síns, Páls Ai-nórs Pálsson- ar hrl. 4/5 hlutar gi-eiðast úr ríkis- sjóði. Bótakröfu ríkistollstjóra var vís- að frá dómi. Dóminn kvað upp Jón Finnbjörnsson. Málað í Vatnsmýrinni ÞEIR voru íbyggnir á svip og alvörugefnir félagarn- ir Baldur Thorlacius og Ólafur Ragnarsson þar sem þeir voru að pússa og mála brunnlok í Vatnsmýr- inni. Á hverju sumri fara flokkar unglinga á vegum Vatnsveitunnar til að lagfæra og snyrta þá staði sem fyrirtækið á og víst er að mikil prýði er af þessum störfum. Ekki fer sögum af því hvort hinir ungu málarar séu búnir að finna sitt fram- tíðarstarf en fagmennskan skein úr hverju pensil- fari. Breytingar 1 sorphirðu Markmiðið meiri endurnýting Borgað fyrir hvert kfló af sorpi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.