Morgunblaðið - 01.07.1998, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
GSlil.l
Ný sending!
GSM
tó? é-;ú..Vv.,.
12.900kr.
aðeins i verslunum Hagkaups
við Smáratorg í Kópavogi
Það gerist ekki betra
I nýrrí og glæsilegrí verslun Hagkaups
við Smáratorg f Kópavogi bjóðum við nú
hreint ótrúlegt GSM-opnunartitboð.
* Motorola d160 GSM sími
■ Leðurtaska
■ Bllhleðslutæki
■ TALkort
■ 60 mínútur fritt
Allt þetta færð þú fyrír aðeins 1Z900 kr.
Nánarí upplýsingar í síma 570 6060.
[AGKAU:
Alltaf betrí kaup
Starfsfólki Snæfells í Hrísey sagt upp
Stefnt að vaktavinnu
vegna aukinna verkefna
SNÆFELL hf hefur sagt upp öllu
starfsfólki sínu í Hrísey, en þar er
m.a. rekin pökkunarstöð þar sem
fiski er pakkað í neytendaumbúðir
fyrir erlendar verslunarkeðjur.
Ami Olafsson rekstrarstjóri hjá
Snæfelli í Hrísey sagði að verkefni
við pökkun í neytendaumbúðir
hefðu aukist mjög að undanfómu
og hefði fyrirtækið vart undan eft-
irspurn. Vegna þessara auknu
verkefna við fullvinnslu sjávaraf-
urða er stefnt að því að taka upp
vaktafyrirkomulag hjá fyrirtækinu.
Til að nauðsynlegum breytingum á
vinnufyrirkomulagi og vinnutilhög-
un verði komið á var óhjákvæmi-
legt að segja starfsmönnum Snæ-
fells í Hrísey upp störfum. Oskað
hefur verið eftir viðræðum við
starfsmenn um samning um slíkar
breytingar, en Arni sagði þær vart
hafnar og því ekki hægt að greina
frá til hvers þær myndu leiða.
Endurráðningar í júlí
Markmið fyrirtækisins er að end-
urráða sem flesta starfsmenn og
vonandi alla að sögn Arna, miðað
við nýtt vinnuskipulag og vinnu-
tíma. Er stefnt að því að ganga frá
endurráðningum nú í júlí.
„Það er aukin eftirspum eftir
fiski en minna framboð frá öðrum
stöðum í heiminum, þannig að það
skilar sér í aukinni eftirspurn til
okkar. Við höfum líka verið að fá
nýja viðskiptavini, hófum núna ný-
lega að selja til Danmerkur en það
er í fyrsta skipti sem við seljum
þangað. Með þessum aðgerðum
viljum við auka okkar framleiðslu-
getu,“ sagði Arni.
Til skoðunar er innan fyrirtækis-
ins að hefja reykingu á laxi í Hrís-
ey, en niðurstaða í því máli liggur
ekki enn fyrir.
Morgunblaðið/Kristján
í góðra vina hópi
GUÐRÚN Jóna Arinbjarnardótt-
ir úr Reykjavík var í hópi ungra
sýnenda á hundasýningu Hunda-
ræktarfélags íslands og svæðafé-
lagsins á Norðurlandi í íþrótta-
höllinni á Akureyri.
Hér er hún með vinum sínum
að sýningu Iokinni; írskum setter
hundum, Töndru Astu-SóIIilju og
Ronju, sem er íslenskur meistari
og Guðrún Jóna sýndi á sýning-
Háskólinn á Akureyri
Morgunblaðið/Kristj án
Aldraður maður gefur
tvær milljónir
LÚÐVÍK Jónsson fyrrverandi
bóndi á Grýtu í Eyjafjarðarsveit
hefur fært Rannsóknarsjóði Há-
skólans á Akureyri tvær milljónir
króna að gjöf, en gjafafénu á að
veija til að styrkja rannsóknar-
verkefni í hjúkrunar- og læknis-
fræði og öðrum heilbrigðisvísind-
um við skólann.
Þorsteinn Gunnarsson rektor
Háskólans á Akureyri sagði gjöf-
ina vitna um mikinn höfðings-
skap Lúðvíks og velvild hans í
garð háskólans. Rannsóknarsjóð-
ur háskólans hefur til umráða í
ár 3,5 milljónir króna, en upp-
hæðin hefur hækkað umtalsvert
eftir gjöf Lúðvíks og sagði rektor
það mikinn styrk fyrir rannsókn-
ir við háskólann. Nýlega var und-
irritaður samstarfssamningur
milli háskólans og Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri um
rannsóknir og kennslu og taldi
rektor að gjöf Lúðvíks myndi
styrkja það samstarf.
Reglumaður
Lúðvík bjó alla tíð á Grýtu, en
hann er nú 88 ára gamall og býr
á sambýli aldraðra við Skóla-
stíg. Hann kvaðst alla tíð hafa
verið reglumaður, ekki eytt
peningum í áfengi og tóbak en
ávallt getað lagt einhverja upp-
hæð til hliðar. Hann hefur lagt í
vana sinn síðustu ár að færa
ýmsum stofnunum eða félaga-
samtökum peningaupphæð, að
jafnaði kringum þjóðhátíðar-
daginn og fyrir jólin.
A myndinni eru þeir Þorsteinn
Gunnarsson rektor og Lúðvíks
Jónsson.
Starfsfólki Foldu
sagt upp störfum
Engin upp-
sveifla
í atvinnulífi
ÖLLU starfsfólki ullariðnaðarfyrir-
tækisins Foldu á Akureyri hefur
verið sagt upp störfum. Að undan-
fómu hafa 47 manns verið á launa-
skrá hjá fyrirtækinu, flestir í fullu
starfi.
Hermann Sigursteinsson, fram-
kvæmdastjóri Foldu, vildi ekki tjá
sig um uppsagnimar að svo stöddu,
en sagði að á næstunni yrði unnið að
því að endurskipuleggja rekstur
fyrirtækisins.
Lítið skánað
Þorsteinn Arnórsson, formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks á Akur-
eyri og nágrenni, sagði uppsagnirn-
ar mikið áfall. „Ég sé ekki að at-
vinnuástand hafi skánað mikið hér í
bænum, uppsveiflan er ekki hér, við
verðum ekki vör við hana,“ sagði
Þorsteinn. Hann sagði marga fá
betur borgað annars staðar á land-
inu og vissi hann til að menn væru á
faraldsfæti, þeir leituðu þangað sem
laun væru hærri.
„Ég bind vonir við að yfirlýsingar
sem gefnar vom fyrir kosningar,
um að byggja hér upp öflugt at-
vinnulíf skili sér. Ég vona að menn
taki skarplega við sér því ástandið
er alls ekkert til að hrópa húrra fyr-
ir,“ sagði Þorsteinn.
-----------------
„Mike Attack“
á renniverk-
stæði
„MIKE Attack“ er heiti á leiksýn-
ingu sem verður á Renniverkstæð-
inu við Strandgötu í kvöld, miðviku-
dagskvöldið 1. júlí, og föstudags-
kvöldið 3. júlí kl. 20.30.
Kristján Ingimarsson leikari
kemur fram í verkinu, sem er eftir
hann sjálfan, en í leikstjóm sviss-
neska leikstjórans Rolf Heim. Kri-
stján er ungur leikari, útskrifaðist
frá School of Stage Art í fyrra og
hefur hann tekið þátt í 11 stærri og
smærri verkefnum frá árinu 1995,
en hann hefur einnig verið þátttak-
andi í Fenris-verkefninu, samstarfi
norrænna unglingaleikhópa sem
m.a. fóm í leikför til Síberíu árið
1990.
„Mike Attack“ er uppistandsleik-
sýning, hraðskreiður einleikur í
léttum dúr án orða. Miðasala er við
innganginn.
AKSJON
Miðvikudagur l.júh'
21:00ÞSumarlandið Þáttur ætl-
aður ferðafólki á Akureyri og Akur-
eyringum í ferðahug.