Morgunblaðið - 01.07.1998, Side 21
o
MORGUNBLAÐIÐ____________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 21
ERLENT
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti heilsar upp á hinn sjö ára gamla Yang Ke og móður hans í verslanahverfi í
Shanghai í gær. Drengurinn vissi hver forsetinn var og gat með hjálp móðurinnar sagt halló á ensku.
berri heimsókn Clint-
ons i Kína er fyrst og
fremst að tryggja góð
samskipti ríkjanna á
næstu öld en umdeilt er
hve langt eigi að ganga
til að friðmælast við
Peking-stjórnina.
MANNRÉTTINDASAMTÖK í
Hong Kong segja að síðastliðna þrjá
mánuði hafi verið efnt til skipu-
lagðra mótmæla gegn stjórn komm-
únista í Kína víðs vegar um landið.
Reynt sé að stofna mannréttinda-
hópa og stjórnarandstöðuflokk,
einnig dreift ritlingum um mann-
réttindi. Ennfremur segja þau að í
gær hafí um 1.000 verkamenn á eft-
irlaunum efnt til þögulla mótmæla á
gatnamótum í borginni Wuhan
vegna þess að vinnuveitandinn, illa
stödd bílaverksmiðja í ríkiseigu, hef-
ur ekki greitt þeim efth-laun í
nokkra mánuði.
Fólkið hvarf á brott átakalaust
eftir að embættismaður hafði lofað
að málum þess yrði sinnt. Samtökin
í Hong kong sögðu að sex sinnum
hefði komið til aðgerða af þessu tagi
í Wuhan einni síðustu vikurnar.
Hversu öflugt er Kína og getur
kommúnistastjórnin leyst þau
vandamál sem umskiptin yfir í
markaðsbúskap hafa í för með sér?
Bent er á að Kínverjar eigi eftir að
leysa megnið af þeim vanda sem olli
efnahagsóreiðunni í Rússlandi við
hrun sovétveldisins.
Fariama ríkisfyrirtæki, sum með
milljónir starfsmanna, eru enn með
mikinn hluta framleiðslunnar á sinni
könnu. Bankarnir eru skuldum vafn-
ir, fjármálamarkaðir frumstæðir ef
Hong Kong ermndanskilin.
Beitt er sérstökum forritum til að
ritskoða alnetið, komi orð eins og
„Tíbet“ eða „andófsmaður" fyrir í
texta á heimasíðum er þeim hafnað,
kínverskir borgarar fá ekki að skoða
þær.
Milljónir sveitamanna streyma til
borganna í leit að vinnu og betri lífs-
kjörum, ekkert skipulegt velferðar-
kerfi sér um hagsmuni þessa fólks
sem er margt á vergangi. Dómskerf-
ið er í molum og þótt réttindi ein-
staklinga séu meiri en áður hefur
spilling farið hamfórum. Kerfið ver
sig auk þess af hörku þótt æðstu
ráðamenn vilji draga úr ofstýringu.
„Uppbyggileg samskipti"
Vikuritið The Economist segir í
leiðara að varast beri að oftneta
Kína, það sé vaxandi veldi en geta
þess til að hafa raunveruleg áhrif á
gang mála í Asíu núna sé lítil. Hin
raunverulega kjölfesta Asíu sé Jap-
an. Ef mönnum virðist að stöðugleiki
ríki í Kína borið saman við Indónesíu
eða Suður-Kóreu sé um sjónhverf-
ingu að ræða; enn eigi eftir að koma
á sársaukafullum umbótum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti er
nú í opinberri heimsókn í Kína og
stefna Bandaríkjastjómar er að
vingast eftir föngum við núverandi
stjórnendur í Peking. Þannig verði
helst hægt að halda aftm- af hugsan-
legri árásarstefnu, koma á „upp-
byggilegum samskiptum“ í staðinn
fyrir að reyna að einangra Kína.
Clinton hefur gagnrýnt mannrétt-
indamál í Kína í opinberri heimsókn
sinni en jafnframt komið mjög til
móts við gestgjafana í mikilvægum
málum á borð við deiluna um sjálf-
stæði Tævans. Hann hefur einnig
hrósað Kínverjum fyrir ábyrga
stefnu í gengismálum en þeir hafa
ekki gripið til þess ráðs að felli
gengi júansins sem á í vök að verjast
vegna efnahagskreppunnar í Asíu.
Öflugustu samstarfsmenn Banda- •
ríkjanna í Asíu, Japanar, hafa á hinn
bóginn orðið að sæta ákúrum Clint-
ons fyrir ráðleysi. Þeir þrjóskist við
að koma á frjálsræði í viðskiptamál-
um. Illa gangi að auka innanlands-
neysluna sem hagfræðingar benda á
að verði að aukast til að landið geti
keypt meira af grannríkjunum.
Sparnaður almennings, keppikefli
stjórnenda í flestum löndum, stend-
ur Japönum og þar með Asíu allri
fyrir þrifum.
En fréttaskýrendur benda margir
á að ofuráhersla stjórnvalda í Was-
hington á Kína skjóti skökku við
þegar litið sé á að varnarsamningur-
inn við Japan er hornsteinn áhrifa
Bandaríkjamanna í Austur-Asíu og
þar er meginhlutinn af herliði þeiiua
í álfunni.
Einnig að efnahagsmáttur Japana
er sex sinnum meiri en Kínverja að
ekki sé minnst á yfirburði í tækni-
legum efnum og síðan það sem
gagmýnedur Clintons heima fyrir
nefna helst: Kína er einræðisríki
sem hefur uppi ógnandi tilburði
gagnvart nágrönnum sínum, lætur í
það skína að þeir verði beittir her-
valdi samþykki þeir ekki landakröf-
ur Kínverja.
Clinton hefur valið sömu leið og
forveri hans, repúblikaninn George
Bush, milliveginn. Hann keyrir í
gegn á þingi að Kinverjar fái áfram
svonefnd bestukjör í viðskiptum en
gagnrýnir stefnu kommúnista í
mannréttindamálum og hvetur til
aukins frelsis. Samtímis kemur hann
mjög til móts við kommúnista á
mörgum sviðum. Gott dæmi er að í
gær notaði han skyndilega tækifær-
ið er hann tók þátt í spjallþætti í út-
varpi, sem fram fór í Shanghai, til að
ítreka stefnuna í málefnum Tævans.
„Við teljum ekki að Tævan ætti að
eiga aðild að neinum samtökum sem
eingöngu sjálfstæð ríki geta gengið
í,“ sagði hann. Fram til þess hefur
hann forðast að taka svo skýrt til
orða sjálfur, látið það eftir ráðherr-
um sínum.
Geta til góðs _ og ills
Einn af aðstoðarmönnum forset-
ans sagði Pekingstjórnina hafa
þrýst mjög á forsetann um slíka
tæpitungulausa yfirlýsingu. Clinton
hefði reynt að draga úr vægi hennar
með því að koma henni á framfæri
með þessum óformlega hætti og
ekki í höfuðborginni. Tævanar
brugðust þó þegar ókvæða við og
sögðu það fjarstæðu að kommún-
istastjórnin og Bandaríkjamenn
gætu tekið ákvarðanir um skipan
mála á Tævan.
Economist segir að ekki sé hægt
að vænta mikils áþreifanlegs árang-
urs af Kínaför Clintons eða náins
samstarfs. Of margt skilji ríkin tvö
að og reyndar sé of margt sem
Kæínvrja greini á um við granna
sína til að hægt sé að búast við
kraftaverkum. En fundir Clintons
með ráðamönnum Kína séu þó gagn-
legir vegna þess að næstu árin verði
geta Kínverja til að valda tjóni í As-
íu miklu meiri en getan til að verða
að gagni. Fundirnir séu þrátt fyrir
allt gott tækifæri til að ræða ágrein-
ingsmálin.
Friðkaup við væntan-
legt risaveldi Asíu?
Markmiðið með opin-
Reuters
Kínversk í eitt ár
Hong Kong. Reuters.
JIANG Zemin, forseti Kína, kom
í gær til Hong Kong til að vera
viðstaddur hátíðardagskrá í til-
efni þess að í dag er eitt ár liðið
síðan Hong Kong varð hluti af
Kína á nýjan leik eftir 150 ár
undir breskum yfirráðum. Tals-
maður kínverskra stjórnvalda
sagði í gær að reynsla þessa
fyrsta árs sýndi að stjórnarskipt-
in hefðu gengið vel.
Fréttaskýrendur sögðust í gær
óttast að kínversk stjórnvöld
myndu smátt og smátt herða af-
stöðu sína til hinna frjálsu fjöl-
rniðla í Hong Kong. Jiang fékk
snyörþefinn af þeim réttindum
sem Hong Kong-búar njóta í gær
því blaðið Apple Daily birti þá
áskorun til kínverskra stjórn-
valda um að þau létu blaðamann-
inn Gao Yu úr haldi meðan á
heimsókn Jiangs stæði. Gao var
fangelsuð árið 1993 eftir að hún
hafði birt leynilegar upplýsingar
um sljórnarfarsbreytingar sem
sljórnvöld í Peking hugðust
koma á í Hong Kong er þau
tækju þar við stjórnartaumunum.
Stjórnendur Þjóðminjasafnsins
í Hong Kong sjást hér skoða vax-
mynd af Deng Xiaoping, fyrrum
leiðtoga Kína. Myndin af Deng er
hluti af verki sem kallast „sögu-
leg stund“ en á henui er einnig
Margaret Thatcher, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands, er
samdi um afsal Hong Kong.
donnay H
Hágæða hvítvínsþrúgur
30 flöskur
4.600 kr.
Nóatún 17 ■ Faxafen 12
Kringlan ■ Háholt 24, Mosfellsbær
(JL
Sjálfboðaliðar óskast við
29. Ólympíuleikana í eðlisfræði
Þakkir fyrir góðar viðtökur
Ólympíuleikar ( eðlisfræði eru árleg samkoma afburða
námsmanna í eðlisfræði og í ár verða þeir haldnir í fyrsta sinn
á íslandi dagana 2.—10. júlí. Menntamálaráðuneytið er
gestgjafi leikanna en að framkvæmd þeirra koma jafnt leikir
sem lærðir. Störf fyrir vinnufúsar hendur eru fjölmörg á þessari
500 manna ráðstefnu og er hún upplagt tækifæri fyrir
áhugasama að leggja vísindunum lið og stofna til tengsla við
úrvals fólk alls staðar að úr heiminum.
Framkvæmdanefnd vill þakka þeim 86 gestgjöfum - einstak-
lingum, sendiráðum og ræðismönnum - sem bjóða
þátttakendum leikanna til kvöldverðar á meðan á leikunum
stendur. Einnig fá bestu þakkir þær 26 stofnanir og fyrirtæki
sem boðið hafa þátttakendum leikanna að skoða starfsemi
sína. Fjöldi sjálfboðaliða hefur boðið vinnu sína við
undirbúning og framkvæmd leikanna en enn vantar
sjálfboðaliða á öllum aldri til að vinna við Ijósritun, símsvörun,
akstur og keppnisaðstoð. Sérstaklega vantar fólk til að:
1. Vinna á skrifstofunni við símavörslu, sendiferðir og aðstoðar
störf á dagtíma einhvern eða alla dagana 2. —10. júlí.
2. Vinna við kennilegu keppnina laugardaginn 4. júlí kl 13—17.
3. Vinna við verklegu keppnina sunnudaginn 5. júlí kl 10— 17 og
mánudaginn 6. júlí kl 13—20.
Nánari upplýsingar gefa skrifstofustjóri, Þórdís Eiríks-
dóttir, í síma 525-5812 eða framkvæmdastjóri, Viðar
Ágústsson, í síma 898-5966.
Einnig má sjá frekari upplýsingar á heimasíðu leikanna
www.hi.is/ipho og senda tölvupóst til ipho@rhi.hi.is