Morgunblaðið - 01.07.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.07.1998, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 USTÍR MORGUNBLAÐIÐ Sumartónleikaröð Kaffíleikhússins ÞÓRARINN og Ragnheiður munu leita m.a. í smiðju lagahöfunda eins og Inga T. Lárussonar og Harðar Torfasonar á tónleikunum í Kaffi- leikhúsinu á fimmtudagskvöld. „Konu sína enginn kyssti betur/né kvað um hana líkt og ég“ ÞRIÐJU tónleikamir í sumartón- leikaröð Kaffileikhússins verða fimmtudaginn 2. júlí og hefjast kl. 21.00. . Djasssöngkonan Ragnheið- ur Ólafsdóttir mun þá, ásamt Þór- ami Hjartarsyni, syngja gömul og ný lög sem samin hafa verið við ljóð Páls Ólafssonar. Ragnheiður og Þórarinn leita meðal annars í smiðju lagahöfunda eins og Inga T. Lárussonar og Harðar Torfasonar. Auk þessa verða flutt þjóðlög og stemmur, ljóð eftir Pál lesin upp og þeim fléttað saman við líf skáldsins. I kynningu segir: „í dagskránni er mest áhersla lögð á sérstæðan ástarkveðskap skáldsins til Ragn- hildar, ástkonu og síðar eiginkonu hans, en sá kveðskapur á ekki sinn líka í íslenskum bókmenntum.“ Gott kaffí í Bonn Þjóðleikhúsið sýndi á fimmtudagskvöld „Kaffí“ eftir Bjarna Jónsson á leiklistar- hátíðinni „Bonner Biennale“ í Þýskalandi. Sýningunni var afar vel tekið, segir Guðrún S. Gísladóttir sem stödd var í Bonn. „ALLTAF slá Islendingar í gegn og allir eru jafn góðir við okkur. A íslandi er fullt af rithöfundum sem skrifa og skrifa - í Þýska- landi ekki. A íslandi er nóg af áhorfendum sem koma aftur og aftur - í Þýskalandi ekki. A sýningunni í Bonn á Kaffi eftir Bjarna Jónsson var pakkað út úr dyrum og jafnt fínnskir, tékkneskir sem þýskir áhorfend- ur sögðu mér að þeir væru af- skaplega ánægðir, en hefðu bara aldrei getað ímyndað sér að hægt væri að skrifa Ieikrit um „kaffi“. Þeir hefðu frekar átt von á leikriti um brennivín frá íslandi. „Leikararnir ykkar eru svona Þ J ÓÐLEIKHÚ SIÐ sýndi á fimmtudagskvöld „Kaffi“ eftir Bjarna Jónsson á leiklistarhá- tiðinni „Bonner Biennale“ í Þýskalandi. Átján manna hópur frá Þjóð- Ieikhúsinu tók þátt í leikferð- inni til Bonn. góðir. Hvers vegna? Sýningin og leiktjöldin líka. Hvers vegna? Hlýtur allt að vera ríkisstjórn- inni að þakka.“ Annars eru hér allir í góðu skapi og höfundurinn hefur fengið fyrirspurnir frá mörgum löndum. Róbert Arnfinnsson, einn leikaranna í Kaffí, nýtur þess að horfa á ljósgrænu vorlit- ina í Þýskalandi enn einu sinni. I morgun voru allir í sparifötun- um hjá Ingimundi Sigfússyni sendiherra og frú og fengu kampavúi og lax og jarðarber. Við eru svoddan lukkunnar pamfflar og á mörgum hef ég séð togna andlitin hér þegar kynntur er „aus Island" sjálfur Ibsen. Þar er að vísu á ferð Árni, en ekki Henrik afturgeng- inn. Ofundsjúki rakarinn ERLEMIAR RÆKIJR Smásögur Lars Saabye Christensen er kunnur höfundur í Noregi, hefur sent frá sér eitthvað á þriðja tug bóka, skáldsagna, smásagna og ljóða síð- an hann kom fram fyrir rúmum tuttugu árum. Nýjasta bók hans er með fjórum smásögum og heitir eftir einni þeirra: Ofundsjúki rak- arinn (Den misunnelige frisoren). HÉR er sagt frá hversdagsleg- um aðstæðum og yfirleitt á hlut- lægan hátt, reyndar er lýsing hlutlægra aðstæðna nákvæm og samstillt þannig að hún verður þrungin hugblæ, sýnir sálará- stand persóna. Einnig er mikið beitt þeirri gamalkunnu aðferð að hafa persónu í sögumiðju sem átt- ar sig ekki á atburðum eins vel og lesendur. í tveimur sagnanna er barn í sögumiðju, en í einni karl- maður sem bælir svo niður allt neikvætt, að hann getur ekki átt- að sig á því hvað er að gerast. Hann kemur að konu sinni grát- andi á sturtugólfinu, en lætur sem ekkert sé, dagamir líða við mál- tíðir, rauðvín, bíóferðir, íþróttir, en skyndilega verður skýringa- laust rof. En það er efni þriggja sagna af fjórum að kona yfírgefur karl sem'hún býr með. Þessi sam- eiginlegu einkenni sagnanna verða til að þétta bókina og veita hverri sögu aukinn styrk. Titilsagan hefur þó ekki fram- angreind einkenni, en tengist hin- um sögunum á dýpra lagi, þ.e. í því að sýna vamarleysi einstæðings. Hún segir frá manni sem kom ut- an af landi fyrir mörgum áram til náms, en fékk sumarstarf sem burðarmaður á Landspítalanum. En smám saman varð sumarstarf- ið aðalstarf, og námið datt uppfyr- ir. Hann býr einn, étur raslfæði og horfir á myndbönd, lætur sig svo- lítið dreyma um afgreiðslustúlk- una í myndbandaleigunni. Hann er ófullnægður, en ekkert gerir hann til að losna úr þessum víta- hring. Það birtist í því hvernig ómerkilegt atvik vindur upp á sig. Maðurinn lætur reglulega klippa sig hjá rakaranum í hverfinu, það er svip- laus miðaldra maður eins og viðskiptavin- imir, fátt sagt þar nema: „stutt í hnakk- ann“, eða eitthvað því um líkt. Einn dag þegar hann er að koma úr vinnunni vill hann sleppa inn úr ausandi rigningu, og fer því á nálæga rak- arastofu. Þar er allt með nýjasta uppa- hætti, og maðurinn klipptm- samkvæmt því. En svo er hann lagður í einelti af gamla rakaran- um sínum og öðram fastavið- skiptavinum hans, uns hann gefst upp og fer i sína reglulegu klipp- ingu til hans, nýklipptur. Lítil stelpa er með foreldrum sínum í sumarbústað á eyju. Spennan í fjölskyldunni birtist í því, að eng- inn sinnir henni neitt, um móður- ina segir það helst að hún er síreykjandi og pakkar niður í ferðatösku, en faðirinn hefur allan hugann við að mæla oft á dag hvort flugið á Oslóarflugvelli handan fjarðar standist áætlun. Stelpan fer á hverjum degi til að taka á móti ferjunni, heilluð af því hve lipurlega sjómaður kastar trossunni yfir pollann á bryggj- unni. Hún fer að æfa sig í þessu jafnframt sundnámi, og það sýnir tómleikann í lífi hennar þama, að allt snýst um þetta tvennt. Og það þéttir enn söguna að lokahnútur hennar felst í þvi að einmitt þetta tvennt mistekst. Lokasagan þótti mér einna best. Hún gerist í litlum bæ, víðsfjarri helsta þéttbýli Nor- egs. í sögumiðju er lítill strákur sem býr með fóður sínum, móðirin fór fyrir viku, og drengurinn fær heldur óljósar skýr- ingar á því hjá föður sínum, sem er mikill í hans augum. Raunar stingur sögumaður að okkur annarri sýn inn á milli, og þegar í upphafi: „Margir sögðu að faðir Hartvigs væri hégómlegur maður. Á hverjum laugar- degi setti hann skókrem í hárið. Faðir Hartvigs hét Wilhelm Nikolaisen, en flestir kölluðu hann bara Yilla. Hann þekkti alla og átti enga vini.“ Um kvöldið á að vera ball, og faðirinn miklar fyrir drengnum hve mikilvægur hann sé í því, það standi allt og falli með frammi- stöðu hans í fatageymslunni. Strákur fær að hjálpa honum þar, en heyrir þá óvart aðra túlkun, móðirin hefur yfirgefið fóðurinn, sem hlegið er að í þorpinu. Þetta verður strák svo mikið áfall, að hann sér föðurinn í nýju ljósi, ekki snyrtimennskuna sem hann gengst svo mjög upp í, heldur allt sem á hana skortir. Og hann rúst- ar skóskilakerfinu sem faðir hans var svo stoltur af að hafa fundið upp, svo staða föðurins hrynur. En þegar þeir horfast í augu við sameiginlegt umkomuleysi ná þeir loksins raunverulegu sambandi. Það finnst mér vera grunntónninn í þessari bók. Örn Ólafsson Lars Saabye Christensen Finnskir tónlistarmenn í Norræna húsinu TÓNLEIKAR verða í Norræna hús- inu miðvikudaginn 1. júlí kl. 20.30 þar sem fram koma tveir ungir finnskir tónlistarmenn, Harri Lidsle sem leikur á túbu og Tarmo Járvi- lehto sem leikur á píanó. Á efniskránni er Fantasía f. túbu og píanó eftir Vai-tan Ajemian, Three Miniatures eftir Anthony Plog, In narissima tuba eftir Harri Saarinen, Þrír þættir úr Petrúsku eftir I. Stravinsky og Didgeridoo eft- ir Harri Vuori. Aðgangur að tónleik- unum er 800 kr. í kynningu segir: „Harri Lidsle leikur með Sinfóníuhljómsveitinni í Lahti sem fyrsti túbuleikari. Hann hefur stundað nám hjá mörgum þekktum málmblásuram., leikið ein- leik á túbu með mörgum hljómsveit- um þar á meðal Sinfóníuhljómsveit íslands. og hann hefur þegar frum- Harri Lidsle Tarmo Jarvilehto túbuleikari. pfanóleikari. flutt 20 ný verk fyrir túbu. Að loknu námi við tónlistarskóla lauk Tarmo Jarvilehto magisterprófi frá Sibelíusarakademíunni 1993 og vinnur nú að doktorsverkefni. Auk þess er hann í doktorsnámi í stærð- fræði við háskólann í Helsingfors. Tarmo Jarvilehto er jafnframt pí- anókennari og undirleikari og kennir nú við tónlistarskólann í Lahti. Myndverk eftir Guð- björgu Lind í Vigur GUÐBJÖRG Lind Jónsdóttir sýnir nú í sumar myndverk í eyjunni Vigur í Isafjarðardjúpi. Viðfangs- efni Guðbjargar Lindar hafa lengi verið tengd vatni, í upphafí foss- um og síðar óræðum eyjum á haffleti. Sýning þessi ber yfir- skriftina Eyjar og vættir. Sýningin er tileinkuð ímynduðum eyjum, sæfarendum og vættum sjávar. „Um er að ræða tíu málverk sem eru til sýnis í Viktoríuhúsi og eru þau flest af eyjum. Úti í náttúrunni standa svo þrjú þrívíð málverk sem eru þjóðsagnalegs eðlis og fjalla um það sem við ekki sjáum en trúum sum hver að búi í undir- djúpum sjávar," segir í kynningu. GUÐBJÖRG Lind. Uppáhelling fyrir sæfarendur. Olía á tré 1998. Guðbjörg Lind er fædd árið 1961 á Isafirði og alin þar upp. Vorið 1985 útskrifaðist hún frá málaradeild Myndlista- og hand- íðaskóla Islands. Guðbjörg hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningunni lýkur 1. september.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.