Morgunblaðið - 01.07.1998, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.07.1998, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 35** AÐSENDAR GREINAR Svanur Kristjánsson staðinn að verki í NÝBIRTRI álitsgerð Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæsta- réttarlögmanns um starfslok þriggja bankastjóra Landsbankans kemur fram, að þeir hafi ekki gerst sekir um refsiverða háttsemi, en fjTÍrgert trausti, þar eð þeir hafi sagt viðskiptaráðherra ósatt og ekki gætt hófs um risnu, auk þess sem einn þeirra hafi leigt sjálfum sér laxveiðiá. Þess vegna var al- mennt talið sjálfsagt, að banka- stjórarnir vikju. Með hvaða rökum á há- skólaprófessor sem fyr- irgert hefur trausti flokkur og Framsóknarflokkur, hefur magnast nýlega vegna ásak- ana um spillingu og vanhæfni í bankageiranum." Hér fer Svanur Kristjánsson með augljós ósannindi. Sjálfstæðis- flokkurinn fékk svipað fylgi í þess- um byggðakosningum og fyrir fjór- um árum og vann raunar víða góð- an sigur. Flokkurinn getur vel við unað, því það hefur ekki gerst áður að hann hafi haldið sínu eftir sjö ár í stjómarforystu. Aföll flokksins í Reykjavík 1978 og 1994, þegar hann missti borgarstjórnarmeiri- hlutann, voru miklu meiri en nú, þótt honum tækist nú ekki að end- urheimta meirihlutann. Á kosn- inganóttinni bentu starfsbræður Svans á þetta allt, þeir dr. Ólafur Hai’ðarson dósent í Sjónvarpinu og dr. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son prófessor á Stöð tvö. Vinstrimenn bættu aðeins við sig 0,6% í Reykjavík frá kosningunum 1994. Það var allur sigurinn. Víðast þar sem Alþýðuflokkur, Alþýðu- bandalag og Kvennalisti buðu fram saman varð fylgi þeirra miklu minna en þessir flokkar höfðu áður haft hver í sínu lagi. Auk þess buðu vinstriflokkarnir fram í Reykjavík með Framsóknarflokknum, sem er í stjórn. Sú skýring Svans Krist- jánssonar á naumum varnarsigri vinstrimanna í Reykjavík, að hann sýni óánægju með ríkisstjómina, er því bersýnilega röng. Sam- kvæmt sömu skoðana- könnunum og sögðu tiltölulega vel fyrir um úrslit byggðakosning- anna njóta stjómar- flokkamir ótrúlega mikils fylgis. Ult er til þess að vita, þegar prófessor í stjórnmálafræði er staðinn að beinum ósannindum erlendis um íslensk stjómmál. Ekki fer heldur vel á því, að Svanur Krist- jánsson skuli hafa stór orð uppi um vanhæfni og spillingu annarra. Hann var sjálfur um langt skeið höfuðpaur tímaritsins Þjóðlífs. Það seldi sem kunnugt er ófyrirleitnum inn- heimtumönnum falsaðar áskrifta- skuldir, og eltu þeir fjölda fólks með hótunarbréfum og öði*um að- gerðum, uns tímaritið varð gjald- þrota og eltingaleiknum linnti. í félagsvísindadeild hefur Svan- ur Kristjánsson enn- fremur iðkað það ár- um saman að taka að sér meiri kennslu en hann hefur sjálfur get- að sinnt og síðan feng- ið konu sína, Auði Styrkársdóttur, til að kenna með sér. Þannig hefur hann út- vegað henni allt að því fullt starf, án auglýs- ingar og án eðlilegrar samkeppni. Þetta er auðvitað ekkert annað en aðstöðubrask. Þrír Landsbanka- stjórar urðu að víkja vegna ósanninda og , _ aðstöðubrasks. Með hvaða rökum á þá háskólaprófess- or, sem hefur fyrirgert trausti vegna ósanninda, fjármálaóreiðu og aðstöðubrasks, að sitja sem fastast í embætti og hafa þaðan uppi stór orð um aðra? Höfundur er stjómmálafræðingur. Jón Kristinn Snæhólm vegna ósanninda, spyr Jón Kristinn Snæhólm, að sitja sem fastast í embætti? Gilda miklu vægari reglur í Há- skóla íslands? Daginn eftir byggðakosningamar 23. maí síð- astliðinn var í Financial Times haft eftir Svani Kristjánssyni, prófessor í stjórnmálafræði, að nú hefði Sjálfstæðisflokkurinn orðið fyrir mesta ósigri í sögu sinni. „Þetta er mesta tap Sjálfstæðisflokksins og mikilvægasti sigur vinstriafla á Is- landi í sögu íslands,“ sagði Svanur. „Óánægja með samsteypustjóm- ina, sem að standa Sjálfstæðis- ^aimuuiín Blöndunartæki Moraterm sígild og stílhrein. Með Moraterm er alltaf kjörhiti í sturtunni og öryggi og þægindi í fyrirrúmi. Mora sænsk gæðavara. Heildsöludreiflng: TCQGIehf Sími564 1088.fax564 1089 Fæst í bvggingauöruverslunum um land allt. SlDAN 1972 MÚRVIÐGERÐAREFNI ALLAR GERÐIR !l steinprýði STANGARHYL 7, SIMI 567 2777 Þú átt greiða leið að reiðufé í næsta banka eða hraðbanka! Hraðbankar eru nú orðnir yfir 150 á landinu öllu og er að finna við helstu bankaútibú og innan seilingar við fjölmargar verslunarmiðstöðvar. Með VISA kortið upp á vasann og PIN-númerið* bak við eyrað geturðu því náð þér í skotsilfur í skyndi hvenær sem þú þarft á að halda, jafnt á afgreiðslutíma BÓNUSOGÁTVR 4 sem á kvöldin og um helgar. LÆKKAÐ ÍJTTEKTARGJALD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.