Morgunblaðið - 01.07.1998, Síða 41

Morgunblaðið - 01.07.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 41 FRÉTTIR Ferð í eyðibyggðir á skaganum milli Eyja- fjarðar og Skjálfanda i—i BRAUTSKRÁÐIR nemendur frá Endurmenntunarstofnun HÍ. Auk nemendanna eru á myndinni stjórnarfor- maður Endurmenntunarstofnunar, Valdimar K. Jónsson prófessor, rektor HÍ, Páll Skúlason prófessor, Mar- grét S. Björnsdóttir, forstöðumaður Endurmenntunarstofnunar, og Ingjaldur Hannibalsson, prófessor og stjórnarmaður í Endurmenntunarstofnun. * Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands Um áttatíu nemend- ur brautskráðust FERÐAFÉLAG íslands hefur á undanfórnum árum efnt til ferða um eyðibyggðir norðanlands, á Austfjörðum og Vestfjörðum. Mesta athygli hafa vakið ferðir á Hornstrandir en ferðir um eyði- byggðir á Austfjörðum og á svæð- inu milli Eyjafjarðar og Skjálfanda Gengið á milli fjarða í GÖNGUFERÐ Hafnar- gönguhópsins í kvöld, mið- vikudagskvöld, verður farin leið sem minnir á fjölbreyti- leika náttúrunnar, upphaf ís- landsbyggðar, framþróun ís- lenska þjóðfélagsins, forna og nýja atvinnuhætti, strauma lista og annarrar menningar og leiðin minnir einnig á vís- indi og tækni nútímans og tengir skemmtilega saman firðina tvo, Kollafjörð og Skerjafjörð, segir í fréttatil- kynningu. Farið verður frá Hafnar- húsinu að austanverðu kl. 20 upp Grófina um Víkugarð, með Tjöminni, yfir Vatns- mýrina, um skógargötur Öskjuhlíðar og niður í Naut- hólsvík. Þaðan með strönd- inni vestur í Sundskálavík og um Háskólahverfið, yfir Tjarnarbrúna og um Þing- holtin að Faxaskála neðan Arnarhóls. Við lok ferðarinn- ar verður lífríki hafnarinnar skoðað í botnsjánni um borð í Árnesinu. Ferðinni lýkur við Hafnarhúsið. Allir eru vel- komnir. Ungmenni til Lettlands og Rússlands AUSTJOBB er nýtt ung- mennaskiptaverkefni sem Norræna félagið er að hleypa af stokkunum. Á næstu dög- um munu tvö íslensk ung- menni halda af landi brott á vegum Austjobb, annars veg- ar til Sankti Pétursborgar í Rússlandi og hins vegar til Cesis í Lettlandi. Austjobb gefur ungu fólki tækifæri til að heimsækja ná- grannasvæði Norðurlanda fyrir austan Eystrasalt í sex vikur til að kynnast landi og þjóð af eigin raun. Norræna félagið hefur nú fjögur ung- mennaskiptaverkefni á sinni könnu og nær vettvangur þeirra frá heimkynnum Vest- ur-íslendinga í Kanada og Bandaríkjum Norður-Amer- íku, um Norðurlönd til Rúss- iands og Eystrasaltsríkj- anna. njóta vaxandi vinsælda, segir í fréttatilkynningu. Næstkomandi fostudag 3. júlí hefst slík ferð undir leiðsögn Val- garðs Egilssonar læknis sem stjórnað hefur þessum ferðum síð- ustu sumur. Þetta er sjö daga ferð þar sem farið er frá Grenivík um Látraströnd, Keflavík, Fjörður, Flateyjardal, siglt í Flatey og farið í Náttfaravík. Grillveisla er í miðri ferð og farangur er fluttur hluta af ferðinni. Ekká þarf að vera með all- an tímann, t.d. er hægt að byrja ferðina að kvöldi þriðja dags í Fjörðum eða kvöldi fimmta dags á Flateyjardal. Áhugafólki um þessar ferðir og aðrar eyðibyggðaferðir á vegum ferðafélagsins er bent á að hafa samband við skrifstofu félagsins í Mörkinni 6. ---------------- Námskeið í almennri skyndihjálp REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp sem hefst fimmtudag- inn 2. júlí kl. 19. Kennsludagar verða 2., 6. og 7. júlí. Kennt verður frá kí. 19-23. Námskeiðið telst vera 16 kennslu- stundir og verður haldið í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka er heimil öll; um 15 ára og eldri. Félagar í RKÍ og nemendur í framhaldsskólum fá 50% afslátt. NÝLEGA bættist fimmtiu þús- undasti GSM notandinn í hóp viðskiptavina Landssímans. Það var Björn Jónasson á Sauðár- króki sem keypti fimmtíu þús- undasta GSM-kortið. Af því til- efni færði Landssíminn honum GSM síma að gjöf ásamt fimmtíu þúsund króna gjafabréfi fyrir VIÐ athöfn í hátíðarsal Háskóla ís- lands laugardaginn 20. júní sl. braut- skráðust tæplega áttatíu nemendur úr viðbótarnámi hjá Endurmenntun- arstofnun Háskóla íslands. Nemendumir útskrifuðust af þremur brautum. Þrjátíu luku rekstrar- og viðskiptagreinanámi stofnunarinnar, en alls hafa um fjög- ur hundruð og fimmtíu manns lokið því námi frá þvi það hófst árið 1990. Þrjátíu og þrír luku markaðs- og út- flutningsfræðanámi stofnunarinnar, en því námi hafa lokið um hundrað manns frá því það hófst fyrir rúm- lega tveimur árum. Fjórtán manns luku 30 eininga námi í rekstrarfræð- símkostnaði. Notendum GSM á íslandi heldur áfram að fjölga jafnt og þétt en um siðustu ára- mót voru þeir tæplega 41 þúsund talsins og hefur því fjölgað um nær tíu þúsund hjá Landssíman- um það sem af er árinu, segir í fréttatilkynningu frá Landssím- anum. um, en það er framhaldsnám ætlað þeim sem áður hafa lokið rekstrar- og viðskiptanámi. Boðið var upp á það nám fyrst árið 1993 og hafa þrír hópar útskrifast eða um 50 manns. Námsbrautirnar eru mislangar, frá einu ári upp í eitt og hálft ár. Bestum námsárangri að þessu sinni náðu þau Skúli Skúlason í rekstrar- og viðskiptanámi, en hann hlaut 8,88 í aðaleinkunn, Jóhanna Hansen í markaðs- og útflutnings- fræðanámi sem hlaut 8,98 í aðalein- kunn og í 30 eininga rekstrarfræðá- námi náði bestum árangri Steinunn Bjamadóttir með 8,97 í aðaleinkunn. Við athöfnina flutti hátíðarræðu Lýður Guðmundsson, framkvæmda- stjóri hjá Bakkavör hf., en einn starfsmanna hans, Heiða Jóna Hauksdóttir, brautskráðist að þessu sinni. Ávörp fluttu einnig fulltrúar nemendahópanna þriggja, þau Jak- obína Sigurðardóttir, sem starfar hjá Mónu ehf., Sigurjón Einarsson, sem starfar hjá Vörumerkingu hf., og Skúli Skúlason sem starfar hjá Iþrótta- og tómstundaráði Reykja- víkur. Rektor Háskóla íslands, Páll Skúlason prófessor, stýrði braut- skráningunni. 30 eininga nám í rekstrarfræðum Andrés Ólafsson, Arinbjöm Sigui’- geirsson, Björg Jónsdóttir, Elín Sig- ríður Ingimundardóttir, Guðbrandur K. Jónasson, Guðrún Ruth Eyjólfs- dóttir, Jakobína Sigurðardóttir, Ólöf S. Björnsdóttir, Pétur Friðriksson, Ragnai- Ragnarsson, Sigrún Kjart- ansdóttir, Sigþrúður Guðmundsdótt- ir, Steinunn Bjamadóttir, Þórarinn Þórarinsson. Rekstrar- og viðskiptanám Aðalbjörg Lúthersdóttir, Andrea Guðnadóttir, Áslaug Guðjónsdóttir, Áslaug Pétursdóttir, Benedikt Egils- son, Guðlaug Sveinsdóttir, Guð- mundur Gunnarsson, Guðmundur Pálsson, Guðrún Hansdóttir, Gunnar Björnsson, Hákon Hákonarson, Heiða Jóna Hauksdóttir, Helgi Björn Kristinsson, Hermann Björn Erlingsson, Hilmar Guðmundsson, Jensína Valdimarsdóttir, Jón Ingi Einarsson, Karl Garðarsson, Kristín Björg Kristjánsdóttir, Magnús Hjartarson, Pétur J. Jónasson, Sig- ríður Helga Sverrisdóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Sigurjón Sigurðsson, Skúli Skúlason, Soffía Jónsdóttir, Sæmundur Alfreðsson, Sæmundur Grétarsson, Viðar Austmann, Vigdís Jóhannsdóttir. Markaðs- og útflutningsfræði Aiexander Lórensson, Anna Þóra Gísladóttir, Áse Gunn Bjömsson, Baldvin Örn Berndsen, Björn Helga- son, Egill Örn Einarsson, Guðbjörg Pálsdóttir, Guðmar E. Magnússon, Guðmundur Óskar Guðjónsson, Gunnar Hermannsson, Gunnar Kjartansson, Gunnar Kristófersson, Gylfi Guðmundsson, Helga Harðar- dóttir, Huld Konráðsdóttir, ísleifur Arnarson, Jakob Ingi Jakobsson, Jó- hann Hafsteinn Hafsteinsson, Jó- hanna Hansen, Jón Rafn Valdimars- son, Jónína Ingvadóttir, Jónína Páls- dóttir, Karl Geirsson, Lovísa María Gunnarsdóttir, Ragnheiður Birgis- dóttú, Sigurður Friðriksson, Sigurð- ur ívarsson, Sigurjón Einarsson, Steinþór Einarsson, Sölvi Ólafsson, Valgerður Helga Schopka, Þorlákm- Björnsson, Þorvaldur Olafsson. ------♦♦-♦------- LEIÐRÉTT Mesta fossasvæði heims í FRÉTTATILKYNNINGU frá Heimsklúbbi Ingólfs í blaðinu í gær varð meinleg prentvilla sem breytti merkingu málsgreinar. Þar segir að Iguassu á landamærum Argentínu, Paraguay og Brasih'u sé mesta „forar- svæði“ heims en rétt er að það er mesta fossasvæði heims. Biðst blaðið velvirðingar á þessum leiðu mistökum. Nafn hönnuðar í FRÉTT um ný íslenzk húsgögn í móttökusal Höfða í fasteignablaði Morgunblaðsins í gær, var farið rangt með nafn húsgagnahönnuðar- ins í myndatexta. Þar var nafn hönn- uðarins sagt vera Guðrún Zoéga. Hið rétta nafn er Þórdís Zoéga, eins og kemm’ fram í greininni sjálfri. Beðizt er velvirðingar á þessum mistökum. Á MYNDINNI eru hjónin Hólmfríður Þórðardóttir og Björn Jónasson, sem varð fimmtíu þúsundasti notandiun í GSM dreifikerfi Landssím- ans, ásamt Guðmundi Björnssyni forstjóra Landssimans og Þóroddi E. Jónssyni á markaðsdeild Símans. Yfír fímmtíu þúsund GSM notendur hjá Landssímanum www.simaskra.is SÍMASKRÁIN gefin út daglega!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.