Morgunblaðið - 01.07.1998, Side 43

Morgunblaðið - 01.07.1998, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 43 BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hvers vegna samfylking vinstri manna? Grettir HVAP VAR£> AF þasSARí LBIÐINPA RLUaU-5> ■jnr KOP Ljóska tfeyrÍL) núísá. sem e£ur mérheirp d kvö/d i/eréur u Sjrnf- stofunnl þ/nni Un cw i/inna, þin, stórf Smáfólk IF you're not happy, CHARLIE BROU)N, IT'5 PR0BA8LY YOUR U06'5 fault ^YOUR 006 15^ 5UPP0SED TO MAKE YOU 1ME .. ‘ -CiS Ef þú ert ekki ánægður, Kalli Bjarna, þá er það líklega hundinum þinum að kenna Hundurinn þinn á að gera þig ánægðan... Kannski get ég gefið lionum blöðru... Frá Teiti Bergþórssyni: FYRIR dyi’um stendur aukalands- fundur Alþýðubandalagsins, þar sem tekist verður á um hugsanlega samfylkingu vinstri afla íslenskra stjórnmála. Ekki er ólíklegt að nið- urstaða fundarins ráði miklu um framgang þess máls. Áður en ákvörðun um samfylk- ingu er tekin þarf sérhver lands- fundarfulltrúi að leggja niður fyrir sér með hvaða hætti hugsanleg samfylking væri skynsamlegust, svo og kosti og ókosti við þann gjörning. Skal hér drepið á örfá at- riði. Kostir 1. R-listinn hefur rutt ákveðna braut sem þýðir að það ætti til muna að auðvelda Abl. og Al- þýðuflokki að feta í svipuð fót- spor. 2. Tiltrú fólks hefur aukist verulega • á hugsanlegri sameiningu við það að R-listanum tókst að halda meirihluta áfram. 3. Fjárhagur beggja fiokkanna er í molum og ætti þvi sameiginleg kosningabarátta að létta þeim róðurinn fjárhagslega. 4. Ungt fólk myndi sýna slíku fram- boði mikinn stuðning, þar sem stór vinstri flokkur hugnast þeim betur, sem mótvægi við íhaldið, fremur en margir smáir flokkar. 5. Hægt væri að drepa þann frjáls- hyggjuvírus Hannesar frjálsa, sem tekið hefur sér bólfestu í Al- þýðuflokknum, og hreinlega vír- us-hreinsa þann flokk. Ókostir 1. Verði til einn stór jafnaðar- mannaflokkur er hætt við að næstu 2-3 kjörtímabil yrðu 3 stórir ílokkar - Jafnaðarmanna- flokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur. Það þýðir aftur á mannamáli að Framsókn- arflokkurinn væri sjálfkrafa kominn í oddaaðstöðu. Svoleiðis gera menn ekki. 2. Málefnagrunnur yrði orðaður í almennum klisjum þannig að kv- urgi væri hönd á festandi og kaflanum um utanríkismái að mestu sleppt vegna sundur- þykkju og óeiningar. 3. Eldri og íhaldssamari kynslóðin innan Abl., sem er að vísu það fólk sem hefur haldið flokknum gangandi um árabil með óbilandi eljusemi og dyggilegri vinnu, sæi veldi sínu ógnað og myndi mjög líklega stofna til nýs framboðs. 4. Gamalt fólk og sjúklingar - sem aldrei geta gleymt hvernig Al- þýðuflokkurinn lék heilbrigðis- kerfið myndi ekki það sem eftir væri lífsins geta hugsað sér að ljá þeim flokki lið, sem hefði heil- an Alþýðuflokk sér til samstarfs. 5. Að mínu mati er ekki rétt leið að byrja á málefnavinnu. Byrja þarf á því að finna sterkan leiðtoga og láta honum eftir að stýra mál- efnavinnunni. Hann er ekki í sjónmáli - tímasetningin er því röng. Hvers virði er samfylkingin? Er samfylkingin þess virði að kljúfa Abl. og jafnframt tryggja Framsókn ævarandi völd og þar með sæti í sérhverri ríkisstjórn á komandi árum? Með öðrum orðum - tryggja þeim oddaaðstöðu í þriggja flokka kerfí. Mitt svar er nei. Hitt er annað mál, svo hægt sé að sætta mismunandi sjónarmið, að ég tel í þessari stöðu rétt að gera eina tilraun til samstarfs við Alþýðu- flokkinn fyrir næstu kosningar. Til- raunin byggist á því að þessir tveir flokkar geri með sér bandalag um fullt samstarf í kosningum sem og eftir þær - hvort svo sem þeir lendi í stjórn eða stjómarandstöðu. Bjóð- ist öðrum flokknum þátttaka í stjórn fylgi hinn sjálfkrafa með, sem og öfugt. Flokkarnir bjóði samt fram hvor í sínu lagi, en hefðu sam- eiginlega fjármálastjórn í kosninga- baráttu - sameiginlega auglýsinga- herferð - ásamt sameiginlegum málefnasamningi. Gagnrýni þessara flokka myndi því ekki beinast hvor að öðrum í kosningabaráttunni heldur að stjórninni og verða mun beinskeyttari fyrir bragðið. Kvennalistinn Vilji þær tuttuguogtvær konur sem eftir eru í Kvennalistanum taka þátt í þessu samstarfi, þá standi þeim til boða, eins og hverjum öðr- um að ganga í hvorn flokkinn sem þær vilja - ella horfa á úr fjarlægð eins og þær hafa gert frá upphafi. Kvennalistinn hefur verið, strax frá byrjun, dragbítur á allt vinstra sam- starf og ástæðulaust með öllu að elta ólar við þær lengur. Þeirra tími er liðinn. Landsfundur Ég hef, svipað og margir aðrir, lengi átt mér draum um stóran jafn- aðarmannaflokk á íslandi. Jarðveg- ur fyrir sh'kan flokk er ekki til stað- ar hjá almenningi þegar efnahags- leg uppsveifla á sér stað í þjóðfélag- inu. Þá hafa flestir nóg að bíta og brenna og kjósa þvi gamla íhaldið - í hvaða mynd sem það birtist. Jarðvegurinn er frjór þegar kre_ppir að. Og það kemur að því. Eg vona að landsfundarfulltrúar horfi á mismunandi samfylkingar- hugmyndir af skynsemi og í röklegu samhengi við allar aðstæður en ekki eingöngu af eintómri tilfmninga- semi og hástemmdri rómantík. Fari svo að landsfundi loknum að mönnum sé mikið mál að sameina helst eitthvað legg ég til að hafist verði handa við að sameina Alþýðu- bandalagið í Reykjavík - sem klofið hefur verið í ótal anga um árabil. Stundum er það svo að fólk sér ekki skóginn fyrir trjánum. TEITUR BERGÞÓRSSON, kennari, Maríubakka 22, Reykjavik. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.