Morgunblaðið - 01.07.1998, Síða 44
* 44 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
^OðkaupsveísJuf—Glisamkomur—skemmtanlr — tönleJkar — sýningar—kynriingar og fl. og fl. og fl.
' Ekldl
0“ skiDuleaaia á eftii
Ekki treysta á veðrið.
' skipuleggja á eftirminnilegan viðburS -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
..og ýmsir fylgihlutir
skátum á heimavelli
rimi 5621390 >«0X352 6377
BEKOfékk viðurkenningu
í hinu virta breska tímariti
WHATVIDEOsem bestu
sjónvarpskaupin.
w
1 Myndlampi Black Matrix
1 100 stöðva minni
1 Allar aðgerðir á skjá
» Skart tengi • Fjarstýring
1 Aukatengi f. hátalara
1 íslenskt textavarp
Umboösmenn:
Lógmúla 8 • Sími 533 2800
Reykjavík: Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi.Kf.Borgfiröinga,
Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfiröir: Geirseyrarbúðin.Patreksfirði.Rafverk.Bolungarvík. 55
Straumur.ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún.,Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blðnduósi. Hegri, |
Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri.KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: KHB, Egilsstööum. §
Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kf. Stööfiröimga, Stöðvarfirði. °
Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes.Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík. |
Rccbok
vandaðir
. skór
pýmingarsala
verðhru/7
bakvið Bónus, Faxafeni
hlaupaskór
gönguskór
alhlióa íþróttaskór
Verðdæmi:
Vigor; 700 (áður 2.490)
Odyssey; 3.990 (áður 7.990)
Slice Canvas; 1.990 (áður 3.990)
OPIÐ
4.JULÍ. GKG UÍFILSSTflÐflUÖLLUR
GLŒSILEG UERÐLHUN. HEILDHRUERÐMIETI UINNINGH KR. 500.000,-
UERÐLHUN BfEÐI í KBRLR OG KUENNRFLOKKI
1., 2. OG 3. SIETI ME0 OG ÓN FORGJ.
aiuia FERÐRHLJÓMTIEKI RÐ UERÐMfETI KR. 22.000,- STK.
FVRIR RO UERR NIEST HOLU EFTIR TEIGHÖGG Ó ÖLLUM
PHR 3 BRRUTUM 2., 4., 8., 11. OG 16.
aiuia HLJÓMTIEKI RO UERÐMIETI KR. 33.00B,- STK.
FVRIR LENGSTR TEIGHÖGG Ó 6. OG 17. BRRUT OG FVRIR RO UERR NIEST HOLU
EFTIR TUÖ HÖGG R 7. 0G 14. BRRUT.
UTRNLRNDSEERÐ MEÐSRS EVRIR HOLU í HÖGGI Ó 2. 0G 16. BRHUT.
DREGIÐ UEROUR ÚR SKORKORTUM í UERÐLRUNRRFHENDINGU.
Í UEROLRUN ERU GLIESILEG 0111/0 URSRDISKÓ OG
FERÐRGEISLRSPILRRRR RO UEROMIETI KR. 115.500,-
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Lélég bólstrunar-
þjónusta
í NÓVEMBER 1996
ákvað ég að láta yfir-
dekkja hornsófa sem ég á.
Ég bý á Skagaströnd og
ég hringi í bólstrun Gunn-
ars Leifssonar á Hvamms-
tanga og kanna verð.
Hann kemur og gerir til-
boð upp á 100.000 kr. með
efni og vinnu. Mér fannst
þetta ansi dýrt en ákvað
að taka því gegn afborgun-
um á raðgreiðslum. Hann
nær í settið, sem er 6 sæta
og 2 borð, og við göngum
frá raðgreiðslunum. Petta
var 12. nóvember og lofaði
hann að vera búin 22. nóv-
ember en þann 25. sama
mánaðar var hann ekki
byrjaður. Settið kom svo
rétt fyrir jól. Þegar ég
skrúfa sófann saman þá
passa sessurnar alls ekki í
grindina, það munaði 13
cm að sessurnar næðu
saman. Ég hringdi í Gunn-
ar eftir áramót og lét hann
vita að þetta væri ekki
nógu gott því hann hafði
sniðið og saumað allt of lít-
ið utan um allar sessurnar.
Hann lofaði að taka þetta
aftur og laga þetta, það
leið og beið og ekki lét
hann sjá sig og var ill-
mögulegt að ná í hann.
Svo ég hringi í Neytenda-
samtökin sem höfðu sam-
band við hann og var kom-
ið fram á mitt ár þegar
hann loks kom. Ég fór
fram á að hann setti nýtt
utan um sessurnar því
þetta væri allt of lítið. Al-
deilis ekki, hann spretti
bara upp utan af púðunum
og minnkaði pífurnar sem
eiga að vera á þannig að
sessurnar passa ekki enn í
grindina. Og ofan á þetta
eru vinnubrögðin ömurleg,
rennilásar sitt af hvoru
tagi og snúa meira að
segja öfugt, svo hanga
spottar út úr öllu saman.
Borðin eru líka bólstruð
og glerplata ofan á, annað
borðið var saumað úr
bútasaumi og skeytt sam-
an á sjö stöðum og hitt
borðið fékk ég 6 mánuðum
eftir að hann fékk settið í
upphafí. Ég fór fram á að
hann endurgreiddi mér
lágmark 20.000 kr. en það
hefur hann ekki gert og
ansar ekki bréfum eða
skilaboðum frá mér og
N eytendasamtökunum.
Einnig bað ég um nótu
fyrir efniskostnaði og
vinnu en það hef ég ekki
getað fengið. Mig langaði
að vekja athygli á þessu
máli og vara fólk við að
láta Gunnar Leifsson
bólstrara vinna fyrir sig,
allavega ef fólki er annt
um húsgögnin sín. Það má
þó segja honum til hróss
að hann var snöggur að
verðleggja og koma með
raðgreiðslubréfið.
Rósa Högnadóttir,
Miðnes 1, Skagaströnd.
Tapað/fundið
Lyklakippa fannst
Á VÍÐIMEL í síðustu viku
fannst lyklakippa. Uppl.
hjá Ásu í v.s. 569-4176 milli
kl. 8.30-16 og h.s. e. kl. 18
551- 4710 Ása.
Rafmagrisrakvél
tapaðist
RAFMAGNSRAKVÉL í
brúnum poka tapaðist 19.
júní sennilega í biðskýli
SVR við Hringbraut. Skil-
vís fínnandi hringi í síma
552- 3159. Fundarlaun.
Hringur tapaðist
GULLHRINGUR með sjö
demöntum tapaðist sl.
mánudag 29. júm' í Lík-
amsræktarstöðinni Mætti í
Faxafeni. Finnandi vin-
samlegast hafi samband í
síma 588-2321 e. kl. 17.
Hjól tapaðist
SVARBLÁTT 26 tommu
strákahjól af gerðinni
Pacific tapaðist frá Kapla-
skjólsvegi 61 sunnudaginn
28. júlí. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í síma
552-2526. Fundarlaun.
Seðlaveski tapaðist
SVART seðlaveski tapað-
ist fimmtudaginn 25. júní
annaðhvort í leigubíl eða
íyrir utan Urðastekk 4.
Finnandi vinsamlegast
hafi samband í s. 557-4062
Auður.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
SVARTUR og hvítur kett-
lingur fannst á Sundlauga-
veginum sl. fimmtudag.
Uppl. í síma 568-9589.
Læða í óskilum
GRÁBRÖNDÓTT síams-
blönduð læða, u.þ.b. 8-10
mánaða, fannst falin í und-
irvagni bifreiðar mánudag-
inn 29. júlí sl. Líklega frá
Skeifusvæðinu (Vogar) eða
Grensásvegi (Gerði).
Heimilisvön en ólarlaus.
Uppl. í símum 568-3401
eða 568-6862 Eggert.
Morgunblaðiá/Jim Smart
Lukkulegur með lífíð.
Víkverji skrifar...
HEIMSÓKN í Árbæjarsafnið er
ávallt skemmtileg að mati Vík-
verja. Slík heimsókn var a.m.k. ár-
leg á meðan ungviðið á heimili Vík-
verja var yngra, en hefur orðið
sjaldgæfari með árunum. Það er
virkileg skemmtilegt að ganga um
svæðið og kynnast því upp á nýtt
hvernig lífið var á íslandi hér áður
fyrr, til sjós og lands, í bæjum og
sveitum. Þegar viðrar eins og gert
hefur undanfarnar vikur, þá er al-
veg upplagt að gera heimsókn í Ár-
bæjarsafnið lið í stærri heimsókn og
ganga upp Elliðaárdalinn. Tilvalið
er að skilja bílinn eftir á bílastæð-
unum við gamla Fáksheimilið og
ganga upp dalinn, sem er alveg ein-
staklega fallegur. Svo er heppilegt
að fara yfir stífluna, þegar upp eftir
er komið og þá er prýðisgöngustíg-
ur þaðan og yfir í Árbæjarsafn og
ekki þarf að ganga yfir götuna, því
lítil göng eru undir veginn.
XXX
HAFI Göngu-Hrólfar ekki feng-
ið næga hreyfmgu við þennan
göngutúr, er ekki úr vegi að halda
göngunni áfram, upp að Elliðavatni,
en það er svona góður hálftími í við-
bót. Það er sérstaklega ánægjulegt
fyrir okkur Reykvíkinga og reyndar
einnig gesti okkar, hversu skemmti-
legar gönguleiðir við eigum, beinlín-
is í hjarta borgarinnar. í öðrum höf-
uðborgum, a.m.k. þar sem Víkverji
þekkir til, þarf að leita langar leiðir
út fyrir borgarmörk, til þess að geta
með sama hætti komist í snertingu
við náttúruna og hægt er hér vel
innan borgarmarka.
xxx
MIKILL dagamunur getur verið
á Víkverja, eins og lesendur
hafa væntanlega oft orðið varir við.
Til dæmis er Víkverji dagsins afar
ánægður með hversu vel Ríkissjón-
varpið stendur sig í beinum útsend-
ingum á leikjum frá HM í knatt-
spyrnu, sem nú stendur yfir í
Frakklandi og mun gera enn um
sinn. Þvert á Víkverja gærdagsins,
telur Víkverji dagsins fullkomlega
eðlilegt þegar viðburður á stærð við
heimsmeistaramótið í knattspyrnu
á sér stað, að fréttatíminn sé færður
til svo þeir sem vilja fylgjast með
leikjunum fái að njóta þeirra í
beinni útsendingu. Það er allt önnur
tilfinning og skemmtun að horfa á
leiki í beinni útsendingu, þegar þeir
eru að gerast, heldur en að horfa á
þá eftir á, niðursoðna á myndbandi
og vera hugsanlega búinn að frétta
hver úrslitin voru.
XXX
ETTA á ekkert sérstaklega við
um beinar útsendingar af knatt-
spyrnuleikjum, heldur af öllum við-
burðum sem mönnum finnst skipta
máli. Hver vill ekki frekar horfa á
geimskot í beinni útsendingu, held-
ur en að horfa á það niðursoðið?
Sama á við um alla raunverulega
fréttaviðburði. Víkverji er eindregið
þeirrar skoðunar að heimsmeistara-
mótið í knattspymu sé fréttavið-
burður, sem mörg hundruð milljón-
ir, ef ekki milljarðar manna vilja
fylgjast með í beinni útsendingu og
slíkt réttlætir að hans mati það, að
frjálslega er farið með útsendingar-
tíma frétta, þegar þær rekast á við
útsendingar frá HM.