Morgunblaðið - 01.07.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
Kvikmyndir frá köldum klaka
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
KÁNTRÝBÆR er fínnskt bjálkahús upp á tvær hæðir.
Stefan Laudyn er
framkvæmdastj óri
kvikmyndahátíðarinnar
í Varsjá í Póllandi og
kom hingað til lands
fyrir nokkru til að
kynna sér íslenska
kvikmyndagerð ásarnt
því að skoða landið.
Ottó Geir Borg hitti
1 —
V.VEST dansflokkurinn sýndi
kántrydansa á opnunarhátíðinni.
Kántrýbær
opnaður að
nýju
FJÖLMARGIR samfögnuðu með
Hallbirni Hjartarsyni „kántrý-
kóngi“ við vígslu nýs Kántrýbæj-
ar og færðu honum blóm og gjaf-
ir í tilefni dagsins. Eins og kunn-
ugt er brann Kántrýbær 21.
október síðastliðinn og héldu þá
margir að þar mundi kántrýæv-
intýri Hallbjörns enda. Sú varð
HALLBJÖRN Hjartarson þakk-
ar byggingaraðilum og fleiri
fyrir vel unnin störf og stuðn-
ing í sinn garð.
Stefan að máli á sýn-
ingu skopmyndateikn-
arans Andrzejs
Mleczko í listasafni
Kópavogs og spurði
hann um kvikmyndir,
Island og Pólland.
VÞETTA er önnur heimsókn mín til
Islands og ég mun dvelja hér í viku í
þetta skiptið. Síðast þegar ég var
hérna hafði ég aðeins tvo daga til
umráða og auk þess var vetur, svo
aðstæður eru talsvert öðruvísi núna
og ætla ég gerast túristi og fara að
sjá t.d. Gullfoss og Geysi. Friðrik
Þór hefur einnig boðist til þess að
fara með mér í skoðunarferð."
Þú getur þess að kvikmynd Fríð-
riks, A köldum klaka, hafí heillað
þg■
„Já, einmitt. Kvikmyndir Frið-
riks, Skytturnar, Bíódagar, Á köld-
um klaka og Djöflaeyjan, voru
sýndar á kvikmyndahátíðinni í Var-
sjá fyrir nokkrum arum. Sú sem
snart mig mest var Á köldum klaka,
en myndmál hennar er stórfenglegt
og það býr yfir henni kynngimagn-
aður kraftur. Hún er einning ein
besta landkynning sem ég hef séð
og ákvað ég strax eftir að hafa séð
myndina að égjjyrfti að koma hing-
að og kynnast íslandi."
þó ekki raunin. Nú hefur risið
nýr „stærri, bjartari og betri
bær“, eins og HalIbjörn komst að
orði.
Hinn 16. apríl var byrjað að
reisa finnskt bjálkahús upp á
tvær hæðir. Nú tíu vikum síðar
er húsið tilbúið og Kántrýbær
opnaður á ný. Húsið stendur á
sama stað og gamli bærinn stóð.
Er það hið glæsilegasta í alla
staði og hefur á sér sannan kán-
trýblæ. í húsinu mun verða rekin
veitingasala sem áður ásamt kán-
trýútvarpinu. Að sögn Hallbjörns
kostar húsið milli 25 og 30 millj-
ónir eins og það er í dag tilbúið
til rekstrar.
í tilefni af opnuninni bauð
Hallbjörn til vígsluathafnar. Þar
færðu margir Hallbirni kveðjur
og árnaðaróskir, sóknarprestur-
inn Guðmundur Karl Brynjars-
son blessaði húsið, starfsfólk þess
og gesti. Nokkrar stúlkur sungu
syrpu af lögum eftir Hallbjörn og
dansflokkurinn V.Vest sýndi kán-
trýdansa. Hljómsveitin
Lukkulákarnir flutti tvö af lög-
um Hjallbjörns og söng hann
sjálfur með hljómsveitinni seinna
lagið við góðar undirtektir við-
staddra. Hallbjörn þakkaði síðan
öllum þeim sem að byggingu
hússins komu og öllum þeim sem
veittu honum stuðning á einn eða
annan hátt og sagði meðal ann-
ars: „Það er ljóst að þetta hús
hefði aldrei risið nema fyrir
hvatningu og stuðning ótrúlegs
fjölda fólks um allt land, fólks
sem ég þekki ekkert en virðist
ekki vera sama um það sem ég er
að gera. Því vil ég segja við þetta
fólk það sama og oft hefur heyrst
í auglýsingum frá Kántrýbæ, en
nú af enn meiri sannfæringu en
áður: Kántrýbær er bærinn
þinn.“
-POSTVERSLUNIN
SVANNI
Stangarhyl 5,
pósthólf 10210, 130 Reykjavík,
sími 567 3718 - Fax 567 3732
Föt fyrir
verðandi mæður
15% afsláttur
Opið virka daga frá kl. 10-18. Lokað á laugardögum í sumar.
N°7
Maskarar
-/ Lengja ogþykkja sérstaklega
'í Klessast ekki
■L Fvrir viðkvæm augu/linsur
■/ Tárhelílir Kr. 795,-
Fívsí íujHitckiim jnnu
Morgunblaðið/Golli
STEFAN Laudyn framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar í Varsjá.
Hefurðu horft á aðrar íslensk-
ar myndir?
„Ég fór á fund með Breka Karls-
syni hjá Kvikmyndasjóði íslands og
hann lét mig fá níu spólur með ís-
lenskum myndum en ég mun ekki
hafa tíma til þess að horfa á þær fyrr
en ég er kominn til Varsjár. Þegar
ég er búinn að horfa á þær mun ég
ákveða hvaða myndir verða sýndar á
kvikmyndahátíðinni í október. Há-
tíðin, sem stendur yfir dagana 1.-12.
október, er alþjóðleg og er þetta í 14.
sldptið sem hún verður haldin og
mun einn af dagskrárliðunum verða
yfirlit yfir kvikmyndagerð á Norður-
löndum. Auk myndanna verða
nokkrir norrænir kvikmyndagerðar-
menn viðstaddir og er ætlunin að
koma af stað umræðum um hvemig
dreifingu og markaðsetningu mynda
frá smáþjóðum er háttað og held ég
að við munum læra mikið af félögum
okkar frá Norðurlöndum."
Þurfa myndirnar á hátíð-
inni að vera nýjar?
„Nei, aldur myndanna skiptir
ekki máli. Einu skilyrðin eru að
myndin hafi ekki verðið sýnd í Pól-
landi áður og þar sem ég sé um val-
ið á myndunum komast aðeins þær
myndir að sem mér líkar. T.d. ein
af myndunum sem verður sýnd á
hátíðinni er heimildarmyndin
„Rokk í Reykjavík". Ég frétti það
að Björk væri í henni og þar sem
hún er mjög vinsæl í Póllandi er
þetta mjög áhugaverð mynd fyrir
aðdáendur hennar.“
Ertu búinn að horfa á myndir frá
hinum Norðurlöndunum?
„Nei, ísland er fyrsta landið sem
ég kem til, en ég á eftir að fara til
allra hinna landanna og velja mynd-
ir þaðan.“
Áttu von á því að koma aft-
ur hingað?
„Ég vona að þetta sé ekki síðasta
ferð mín til íslands, það væri gaman
að kynna pólska kvikmyndagerðar-
menn og aðra listamenn fyrir ís-
lendingum.“
alla fimmtudaga í
VIÐSlOFn MVINNULÍF