Morgunblaðið - 01.07.1998, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HÁSKÓIABÍÓ HASKOLABIO
3 aujiigill -Wgrijglfcli .VííMíjBi ^-ut3%i iMJÍi3kj P
NÝTTOG BETRA
*A<„4-
Alf.ib.ikk.i Q, siml 587 8900 og 587 8905
DENNIS
QUAID
DANNY
GIOVER
Haijn cr
fgs a sHóð
BfÉpsIta l& :!s‘
ÞAU GERÐU TH£ FUGfTíVt, Oit HARD.
ALIENS OG TERMINATOR
OG NÚ FÁUM VIÐ
SWITCHBACK
Sýnd kl. 5, 6.45, 9 og 11.15 Bii4.Tnrnr,rTAi
Sýndkl. 5,7,9 og 11. Sýnd kl. 9 og 11.05.
Sýnd kl. 5. ísl. tal.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.05. «niDKm
Sýnd kl. 7.
BKtM&BtHniSS
r«aotT
Sýnd kl. 5 og 7.
www.samfilm.is
■rm.T
gönguskór
Meindl Island herra- og dömuskór
Gönguskór úr hágæða leðri. Gore-tex i innra
byrðl og góð útöndun. Vibram Multigriff sóli.
-góðlr í lengri göngu/eröir.
• -ferðin gengur vel á Meindl
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ • SÍMI581 2922
Gleðidagur á
sorglegum grunni
BRANDENBORGARHLIÐIÐ er ÞAÐ VAR sannkölluð kjöt-
hluti af leiðinni sem þessar álfa- kveðjuhátíð sem ríkti á stræt-
verur gengu í Berlín á gleðidegi um New York-borgar á „Gay
homma og lesbía. Pride Day“.
HINN árlegi baráttudagur
homma og lesbía „Gay Pride
Day“ var haldinn hátíðlegur í
Berlín og New York sl. sunnu-
dag «jg ef til vill víðar um veröld-
ina. A íslandi hefur þessi dagur
stundum verið haldinn hátíðleg-
ur meðal samkynhneigðra og þá
ganga um 100-200 manns niður
Laugaveginn og fara svo á ball
um kvöldið. „Þetta er eiginlega
sæt fjölskylduhátíð, smá viðleitni
til að minna á að við erum til,“
segir Páll Óskar í viðtali við
Morgunblaðið. Hann er mjög
fróður um þennan dag og hvers
vegna 27. júní er sá dagur sem
víðast hvar'er baráttudagurinn.
„Það voru Stonewall-uppþotin
sem áttu sér stað þennan dag ár-
ið 1968 og er síðan merkisdagur
í jafnréttisbaráttu homma og
lesbía. Það er bar í New York
sem heitir Stonewall sem var og
er samastaður drag-drottninga
þar í borg. Á þessum tíma var sí-
fellt verið að handtaka samkyn-
hneigt fólk fyrir það eitt að vera
til, það rekið úr vinnu og samfé-
lagið gaf þeim skýrt til kynna að
þau væru annars flokks þegnar.
Enn verr farið með drag-drottn-
ingarnar, en lögreglan kom oft á
Stonewall-barinn og dýfði jafn-
vel hausnum á þeim ofan í
óhrein klósett.“
Risaslagur í
New York
Drag-drottningarnar höfðu
löngum litið upp til leikkonunnar
Judy Garland og líta á hana sem
möinmu sína. Hún deyr úr eitur-
lyfjaneyslu og þetts kvöld, eftir
jarðarftirina, voru drag-drottn-
ingarnar á Stonewall ekki í sem
bestu skapi.
„Þegar lögreglan mætir enn
og aftur á svæðið til að lumbra á
hinum langþreyttu drottningum
ákveða þær að standa á móti
þeim og lemja lögguna í klessu
með háu hælunum. Sem endaði á
því að löggan Iæsti sig inni á
barnum af hræðslu. Drottning-
arnar rifu þá upp stöðumæli og
notuðu sem slagbrand á bar-
hurðina og kveiktu í. Þetta var
fyótt að kvisast út og brátt voru
200 þúsund manns í slag þar fyr-
ir utan. Þetta var í fyrsta skipti
sem jafnréttisbarátta samkyn-
hneigðra kom í heimspressunni.
Og fólk varð mest hissa á hve
margir eru samkynhneigðir."
Eitruð þögn
Páll Óskar hefur komið á
þennan merkilega bar í New
York auk þess að taka þátt í
göngunni sem er gengin frá mið-
bæ Manhattan að Greenwich
Village.
„Gangan tekur alls sjö klukku-
tíma enda er um ótrúlega mikinn
mannfjölda að ræða. Þarna koma
allra þjóða kvikindi og allir sem
hlut eiga að máli, eins og fjöl-
skyldumeðlimir. Þetta er frelsis-
hátíð sem líkist kjötkveðjuhátíð-
inni í Rio de Janeiro. Þetta er
mikill gleðidagur þrátt fyrir að
atburðirnir að baki séu mjög
sorglegir.
Þegar ég tók þátt í þessari
göngu fannst mér hápunkturinn
vera þegar allir stoppuðu, stóðu
með hnefann á lofti og þögðu í 1
eða 2 mínútur. Mér fannst sú
þögn frekar eitruð og mjög tákn-
ræn fyrir þá þögn sem ríkir í
sambandi við samkynhneigð og
þá þögn sem sumir samkyn-
hneigðir kjósa að lifa í,“ sagði
Páll Óskar um þessa sérstöku
lífsreynslu.
ÞESSI skraut-
legi náungi
tók þátt í bar-
áttugöngunni
í Berlín á
laugardaginn.
Önnur dóttir
Stallone fædd
LEIKARINN Sylvester Stallone og eiginkona hans, fyrir-
sætan Jennifer Flavin, eignuðust sína aðra dóttur og hefur
henni verið gefíð nafnið Sistine Rose. Dóttirin fæddist á
sjúkrahúsi í Los Angeles á laugardag og í yfirlýsingu frá
vöðvabúntinu segir hann þetta vera mikinn gleðidag fyrir
fjölskylduna.
Stallone og Flavin eiga fyrir dótturina Sophiu Rose sem
verður 2 ára í ágúst en auk þess á Stallone tvo stálpaða syni
af fyrra þjónabandi.
STALLONE og Flavin með eldri dóttur sína,
Sophiu Rose.