Morgunblaðið - 01.07.1998, Side 1
f
KNATTSPYRNA / HM I KNATTSPYRNU
HM í FRAKKLANDI 1998 - ÚRSLITASLAGURINN
LEIKIÐ UM TITILINN
Sunnudagur, 12. júlí
(París, kl. 19.00)
mmwnahm
Föstudagur, 3. júlí
ÍTALÍA - FRAKKLAND
(París, kl. 14.30)
Föstudagur, 3. júlí
BRASILÍA - DANMÖRK
(Nantes, kl 19.00)
Laugardagur, 4. júli
ÞÝSKALAND - KRÓATÍA
(Lyon, kl. 19.00)
Laugardagur, 4. júlí
HOLLAND - ARGENTÍNA
(Marseille, kl. 14.30)___
LEIKIÐ UM 3. SÆTIÐ ’
Laugardagur, 11. júlí
(París Parc, kl. 19.00)
Nw^u»~..im.mi, II,II I III I ■ i. I'l 'I'X
Miðvikudagur, 8. júli
(París, kl. 19.00)
ÍSLENSKA MÓTARÖDIN í GOLFI: KEILISFÓLKK) TRÓNAR Á TOPPNUM / B4
Fimmtudagur, 7. júli
_ (Marseille, kl. 19.00)
FRAKKLAND 98
Æfingin skapar
meisfarann
ARGENTÍNA vann England 4:3
í vítakeppni eftir að staðan
hafði verið jöfn, 2:2, að loknum
framlengdum leik í 16 liða úrslitum
Heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu í St. Etienne í Frakklandi í
gærkvöldi.
Fyrri hálfleikur var frábær, hratt
og markvisst spil og mörk eins og
þau gerast best, en kaflaskipti urðu
eftir að David Beckham var vildð af
velli á 47. mínútu. Englendingar
urðu að bakka og gerðu vel að halda
fengnum hlut en Argentínumenn,
sem hafa æft vítaspyrnur reglulega,
sýndu í vítakeppninni án Gabriels
Batistutas, helsta vítaspyrnusér-
fræðings liðsins sem var farinn af
velli, að æfingin skapar meistarann.
Það á jafnt við um þá sem tóku vítin
og, ekld síður, um markvörðinn
Carlos Roa, sem varði m.a. þrjár
vítaspyrnur fyrir Mallorca í víta-
spyrnukeppni úrslitaleiks spænsku
bikarkeppninnar í maí. Frammi-
staða hans þá nægði ekki til sigurs
þar sem Barcelona varð meistari en
í gærkvöldi varði hann tvö víti og
gerði gæfumuninn. „Þetta er erfið-
ur biti að kyngja og við erum ger-
samlega örvinglaðir en engu að síð-
ur hreyknir af frammistöðu liðsins,"
sagði Glenn Hoddle, landsliðsþjálf-
ari Englands.
mrnmmhm*
fMwgiiftiMiittfr
1998
MIÐVIKUDAGUR 1. JULI
BLAD
Reuters
CARLOS Roa, markvörður Argentínu, varði tvær vítaspyrnur í vítakeppninni við England í gærkvöldi og tryggði þar með Argentínu sæti
í átta liða úrslitum HM. Samherjar hans, Nelson Vivas til vinstri og Sergio Berti til hægri, kunnu vel að meta tilþrif Roas eftir að hann
hafði varið fimmtu vítaspyrnu Englendinga, sem David Batty tók, en áður hafði hann varið frá Paul Ince.
Mörg hundrnð
leikmenn losna
ídag
á Englandi
BÚIST er við geysilegum önnum hjá félagaskipta-
nefnd enska knattspymusambandsins í dag þegar
samningar renna út hjá yfir sex hundruð atvinnu-
mönnum þar í landi. Margir kunuir kappar fá
lausan samning í dag og geta farið til hvaða liðs
sem er.
Eftir Bosman-málið, þar sem réttur leikmanna
gagnvart félagsliðum var viðurkenndur, hefur sí-
fellt færst í vöxt að leikmenn fari á milli félaga
með lausan samning, þ.e. án þess að greiðsla fáist
fyrir þá. Fræg dæmi um þetta má nefna frá seinni
tíð: Gianluca Vialli för frá Juventus til Clielsea og
hirti söluhagnaðinn sjáifur og
hið sama má segja um Brian
Laudrup, sem nýgenginn er
til liðs við Chelsea eftir nokk-
urra ára dvöl hjá Glasgow
Rangers.
Meðal leikmanna, sem fá
frjálsa sölu í dag má nefna
Steve Staunton, Aston Villa,
Peter Beardsley, Bolton, Dar-
ren Peacock, Newcastle,
Gary Mabbutt, Tottenham, og
Shaka Hislop, Newcastle.
Svissneskir
meistarar
mæta
Svissneska drengjaliðið
Signal tekur þátt í Essó-
knattspyrnumótinu sem verður
sett á Akur-
Anna ^ 1 kvöld-
Bjamadóttir Svissneska lið-
skrífar ið vann meist-
frá Sviss arakeppnina í
knattspyrnu í
Genf í sínum aldursflokki í
byrjun júní. Urslit mótsins réð-
ust í síðasta leiknum. íslending-
urinn Þórður Karlsson, mark-
vörður liðsins, lék þá úti í fyrsta
sinn og skoraði mark sem stuðl-
aði að sigri liðsins í keppninni.
Liðið ákvað í haust að taka
þátt í Essó-mótinu. Foreldi-ar
ásamt leikmönnum hafa verið
duglegir við að safna í ferðasjóð
og fótboltakapparnir fengu
nokkurra daga frí úr skóla til að
komast á mótið á Islandi. Sviss-
neska dagblaðið Tribune de
Geneve sagði frá fyrirhugaðri
Islandsferð í síðustu viku.