Morgunblaðið - 01.07.1998, Qupperneq 4
Keilis-
fólkið
trónir á
toppnum
BJÖRGVIN Sigurbergsson og
Ólöf María Jónsdóttir, kylfing-
ar úr Keili, eru efst í stiga-
keppni sumarsins til landsliða
karla og kvenna er tveimur
mótum um af sex er lokið í ís-
lensku mótaröðinni. Bæði eiga
þau titil að verja.
jörgvin hefur leikið vel í sumar
og sigrað í báðum mótunum,
en það fyrra fór fram á Hellu 6. og
7. júní sl. Keilismenn hafa því verið
áberandi efst á verðlaunapallinum,
en Olöf María varð að sætta sig við
annað sætið er Ragnhildi Sigurðar-
dóttur, reyndum kylfingi úr GR,
tókst að skáka Islandsmeistaran-
um á Heliu.
Þórður Emil Ólafsson, íslands-
meistarinn frá Akranesi, og Akur-
eyringurinn Sigurpáll Geir Sveins-
son, fyrrum Islandsmeistari, veita
Björgvini harða keppni. Sigurpáll
hefur leikið best, ef miðað er við
meðalhöggafjölda á hverjum átján
holu hring. Hann leikur hvem
hring á 2,2 höggum yfir pari að
jafnaði, en Þórður Emil er á 2,6
höggum yfir pari. Björgvin, sem nú
er efstur, leikur á 3,6 höggum yfir
pari að meðaltali. Þeir Kristinn G.
Bjamason, GR, og Davíð Jónsson,
GS, hafa aðeins tekið þátt í fyrsta
móti sumarsins á Hellu og hafa
báðir leikið átján holur á 2,66 högg-
um yfir pari að jafnaði.
Landsliðið er þó ekki valið eftir
meðalhöggafjölda, heldur fá
kylfingamir aukastig ef þeir lenda
í einu af þremur efstu sætunum í
tilteknu móti. A landsmótinu í
holukeppni höfðu aukastigin aukið
vægi, því þar var leikið samkvæmt
útsláttarfyrirkomulagi eftir tvo
hringi í undankeppni.
Sömu sögu er að segja frá
keppni í kvennaflokki. Efsti kepp-
andinn, Ólöf María, hefur ekki
lægsta meðalhöggafj öldann. Hún
leikur á átta höggum yfir pari, en
Ragnhildur leikur að jafnaði á 7,8
höggum yfir pari. Herborg Arnars-
dóttir, GR, er í þriðja sæti með 8,8
högg yfir pari að meðaltali og Þór-
dís Geirsdóttir, Keili, er á níu
höggum yfir pari.
TVeimur kylfingum hefur tekist
að leika átján holur undir pari,
Þórði Emil og Erni Ævari Hjartar-
syni frá Suðurnesjum. Sá síðar-
nefndi lék annan hringinn á
Strandarvelli á Hellu á 68 höggum,
tveimur höggum undir pai-i, en
Þórður Emil lék sama hring á 69
höggum.
Morgunblaðið/Frosti
BJÖRGVIN Sigurbergsson hefur fimmtán stiga forskot á íslands-
meistarann, Þórð Emil Ólafsson, í íslensku mótaröðinni.
Næsta stigamót fer fram á
Hólmsvelli í Leiru síðustu helgina í
júlí - tíu dögum fyrir landsmótið,
sem fer fram á sama stað. Því má
búast við að Suðurnesjamennirnir
fari að láta að sér kveða. Þeir Örn
Ævar, Helgi Birfdr Þórisson og
Davíð Jónsson.
Árangur 15 efstu karla og 5 efstu kvenna í stigamótum GSÍ til þessa
Staða f} Sí - f\ " A n keppni Kylfingur, golfklúbbur 1. cn CT) :0 X sti c s. gai HR Pa C3 g nót Str '70 o> o> :0 X G! and - §. 51, e arvc :r- ö S i.-7. Ilur r1 o> o> :0 X jún a í O S La 19 o> o> :0 X I +/- par rb q. >mc • jú 3ar CJ £ >tí lí, G n o> o> :0 X ho R, < C §. *í uk< 3raf 3 73 i >ppni arholt STIG f. sæti STIG f. sæti STIG samt. Meðalfjöldi högga yfir pari vallar
1. Björgvin Sigurbergsson, GK 70 0 26 71 +1 25 72 +2 24 79 +8 19 78 +7 20 20 10 144 +3,6
2. Þórður Emil Ólafsson, GL 72 +2 24 69 -1 27 73 +3 23 77 +6 27 74 +3 24 4 6 129 +2,6
3. Sigurpáll Sveinsson, GA 70 0 26 73 +3 23 71 +1 25 74 +3 24 75 +4 23 2 3 126 +2,2
4. Sveinn Sigurbergsson, GK 76 +6 20 74 +4 22 74 +4 22 75 +4 23 74 +3 24 10 121 +4,2
5. Ólafur Már Sigurðsson, GK 77 +7 19 75 +5 21 76 +6 20 76 +5 22 77 +6 21 15 118 +5,8
6. Birgir Haraldsson, GA 74 +4 22 74 +4 22 75 +5 21 75 +4 23 79 +8 19 4 111 +5,0
7. (var Hauksson, GKG 75 +5 21 73 +3 23 74 +4 22 77 +6 21 79 +8 19 4 110 +5,2
8. Helgi Birkir Þórisson, GS 71 +1 25 77 +7 19 75 +5 21 80 +9 18 75 4-4 23 2 108 +5,2
9. Öm Ævar Hjartarson, GS 77 +7 19 68 -2 28 72 +2 24 79 +8 19 81 +10 17 107 +5,0
10. Sæmundur Pálsson, GR 77 +7 19 75 +5 21 76 +6 20 73 +2 25 81 +10 17 2 104 +6,0
11. Björgvin Þorsteinsson, GA 77 +7 19 76 +6 20 78 +8 18 74 +3 24 77 +6 21 2 104 +6,0
12. Hjalti Pálmason, GR 70 0 26 73 +3 23 75 +5 21 81 +10 17 83 +12 15 102 +6,0
13. Ottó Sigurðsson, GKG 79 +9 17 77 +7 19 71 +1 25 75 +4 23 82 +11 16 2 102 +6,4
14. Tryggvi Pétursson, GR 75 +5 21 81 +11 15 73 +3 23 77 +6 21 78 +7 20 2 102 +6,4
15. Auðunn Einarsson, GÍ 75 +5 21 74 +4 22 74 +4 22 81 +10 17 79 +8 19 101 +6,2
1. Ólöf Maria Jónsdóttir, GK 79 +9 19 82 +12 16 72 +2 26 77 +6 21 82 +11 16 20 6 124 +8,0
2. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 74 +4 24 81 +11 17 72 +2 26 76 +5 22 88 +17 10 10 70 119 +7,8
3. Herborg Arnardóttir, GR 72 +2 26 80 +10 18 82 +12 16 81 +10 17 81 +10 17 15 3 112 +8,8
4. Þórdís Geirsdóttir, GK 76 +6 22 83 +13 15 77 +7 21 76 +5 22 85 +14 13 7 100 +9,0
5. Katla Kristjánsdóttir, GR 86 +15 12 86 +15 12 4 28 +15,0
IÞROTTAMANNVIRKI
Öll íþróttamannvirki lands-
ins skráð á einum stað
„ÉG lýsi yfir ánægju minni og
okkar hjá fþróttasambandinu
með þá vinnu sem Mannvirkja-
nefnd ÍSÍ hefur unnið við
skráningu á íþróttamannvirkj-
um á íslandi. Þetta kemur
íþróttahreyfingunni að miklu
gagni. Hér liggja fyrir á einum
stað miklar upplýsingar, sem
koma þeim að ómetanlegu
gagni sem vinna við og að upp-
byggingu eða viðhaldi á
íþróttamannvirkjum," sagði
Ellert B. Schram, forseti
fþróttasambands Islands, þegar
Mannvirkjanefnd ÍSÍ kynnti í
gær skráningu á íþróttamann-
virkjum á fslandi í öllum
íþróttagreinum og hjá öllum
sveitarfélögum landsins.
Verkið hefur verið unnið sl.
fimm ár í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið. Logi Kristjáns-
son, formaður mannvirkja-
nefndar, sagði að nefndin væri
aðeins að skila ákveðnum
áfanga. „Það er mikilvægt að
viðhalda þessu starfí, halda
áfram á sömu braut.“
750 íþróttamannvirki víðs
vegar um landið eru á skrá, en
90 mannvirki hafa verið aflögð
að undanförnu. Skráin yfir
mannvirkin var formlega opnuð
á heimssíðu ÍSÍ á netinu - slóð
www.toto.is - í gær af Ellert B.
Schram, sem sagði við það tæki-
færi: „Þetta er létt verk,“ þegar
hann smellti á tölvumúsina og
bætti síðan við: „Hér opnast nýr
heimur, sem á eftir að koma
mörgum að gagni.“
Þess má geta að önnur Norð-
urlönd eru nú að vinna að
skráningu íþróttamannvirkja.
Clinton
sár yfir
tapj fyr-
ir íran
BILL Clinton Bandaríkja-
forseti viðurkenndi í viðtali
í gær að tap bandariska
liðsins fyrir fran hefði ver-
ið sár vonbrigði. „Betri að-
ilinn vann leikinn, svo ein-
falt var það.“
Ummæli Clintons féllu í
viðtali við útvarpsstöð í
Shanghai, en liann er sem
kunnugt er í tveggja vikna
opinberri heimsókn til
Kína. „Ekki hefur verið
mikil vinátta á milli írans
og Bandaríkjanna í gegn-
um tíðina,“ viðurkenndi
foi-setinn, en bætti svo við:
„Leikurinn var þó prúð-
mannlega leikinn og snerist
aðeins um íþróttir. Þar
höfðu íranar vinninginn, en
áhorfendur urðu vitni að
frábærum leik.“
Clinton sagði að eftirlæt-
is íþrótt sín væri golf og
viðurkenndi, að hann væri
li'till sérfræðingur í knatt-
spyrnufræðum. Hann sagð-
ist þó telja Brasilíumenn
sigurstranglega á HM. „Ég
hef séð marga leiki með
þeim í gegnum tíðina og
þeir eni alltaf erfiðir viður-
eignar.“
Charlton
fékk
áminningu
BOBBY Charlton hefur loks fengið
staðfestingu hjá Alþjóðaknatt-
spyrnusambandinu, FIFA, á því að
hafa fengið áminningu frá dómara
á ferli sínum með enska landsliðinu
í knattspyrnu. Var hún rakin til
undanúrshtaleiks Englands og Ar-
gentínu í heimsmeistarakeppninni
árið 1966, þegar Englendingar
urðu heimsmeistarar.
Charlton vissi ekki að hann hefði
fengið tiltal frá dómara leiksins,
Þjóðverjanum Rudolf Kreitlein,
vegna ringulreiðarinnar sem ríkti
innan vallar eftir misskilning og
samskiptaörðugleika á milli leik-
manna og dómara. Öll lætin hófust
eftir að fyrirliði Argentínu, Anton-
io Rattin, neitaði að yfirgefa völlinn
þegar hann var rekinn af velli.
Lögreglan var kölluð inn á völlinn
og átta mínútna hlé var gert á
leiknum.
Gul og rauð spjöld tíðkuðust
ekki í þá daga, en voru tekin í notk-
un í heimsmeistarakeppninni árið
1970 í Mexíkó. Sagan segir að
spjöldin hafi verið fundin upp af
eftirlitsmanni leiks Englands og
Argentínu, er bifreið hans nam
staðar við umferðarljós eftir um-
ræddan leik.
Á ráðstefnu FIFA síðastliðið
haust spurði Charlton hvort hann
hefði nokkum tíma fengið áminn-
ingu í landsleik. Hann vissi að hann
hefði fengið áminningu í ensku
deildarkeppninni eftir að hafa mis-
skilið bendingar dómarans um
framkvæmd aukaspyrnu. „Við leit-
uðum í gagnasafni FIFA og sáum
að Charlton hefði vissulega fengið
áminningu, en hann varð ekki var
við hana sjálfur,11 sagði Keith
Cooper, talsmaður FIFA.