Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.07.1998, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA C 1998 FOSTUDAGUR 10. JULI BLAD Osvaldur Knudsen til KFÍ KFÍ á ísafirði hefur fengið góðan liðsstyrk, þar sem KR-ingurinn Osvaldur Knudsen skrifaði undir samn- ing við liðið í gærkvöldi. Osvaldur er framherji eins og Bandaríkjamaðurinn James Cason sem félagið hefur einnig gert samning við. Sá er 195 sentimetra hár framheiji og segja hann mjög góðan og minna um margt á Rondey Robinson sem lék um árabil með Njarðvíkingum. fsfirðingar eru enn að leita að mið- heija og ættu þau mál að skýrast í næstu viku. Þjálf- ari KFI næsta vetur hefur verið ráðinn Englending- urinn Tony Garbalotto sem var aðstoðarþjálfari hjá enska landsliðiuu þegar Lazlo Nemeth þjálfaði það. ■■ Morgunblaðið/Sigfus G. Guðmundsson Markakóngur á ferð STEINGRÍMUR Jóhannesson skorar seinna mark sitt gegn KR f Eyjum, án þess að Kristján Finnbogason og Bjami Þorsteinsson koml vörnum við. Steingrimur hefur skorað 11 mörk á íslandsmótinu og er marka- hæstur. Eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson, Þrótti R., er næstur með níu mörk. Camacho hættur hjá Real Madríd JOSE Antonio Camacho, þjálf- ari Real Madrid, er hættur hjá liðinu aðeins þremur vikum eft- ir að hann var ráðinn, 17. júní. Hann fékk ekki að ráða vin sinn, Carlos Lorenzana, sem að- stoðarmann, en þeir unnu sam- an hjá Espanyol. Camaclio, sem er 43 ára, hóf aldrei störf hjá liðinu, þar sem hann hefur ver- ið í sumarfríi síðan hann skrif- aði undir samning við það. Camacho lék með Real Madrid í sextán ár, 1974 til 1989, og varð meistari með því níu sinn- um. Hann lék 81 landsleik. Dómari frá Afríku SMD Belqola frá Marokkó verð- ur fyrsti dómarinn frá Afióku til að dæma úrsiitaleikimi á HM. Hann dæmir leik Frakklands og Brasilíu í París. Aðstoðardómar- ar verða Mark Warren, Englandi og Achmat Salie, Suður Afríku. Abdul Rahman A1 Zeid, Saudi Arabíu, verður til vai-a. Epifanio Gonzalez Chavez frá Paraguay dæmir leik Hollands og Króatíu um þriðja sætið. Hafþór Guðmundsson um Sundmeistaramótið sem hefst í dag ,,\ fél ski pað í öllum greinum Sundmeistaramót íslands hefst í Laugardalslauginni í dag. 144 sundmenn stinga sér til sunds um helgina, freista þess að slá met, keppa um Islandsmeistaratitla og landsliðssæti fyrir keppnisferð á írska meistaramótið eftir tvær vikur. Átta færeyskir sundmenn verða með og er búist við góðri keppni frá þeim. Háfþór Guðmundsson, landsliðs- þjálfari í sundi, á von á góðu móti og mikilli skemmtan - sérstaklega ef veðrið verður jafn gott og það var er Morgunblaðið tók hann tali í gær. „Mér sýnist á öllu að það sé vel skipað í öllum greinum. Allt okkar besta sundfólk verður með; t.d. Kol- brún [Ýr Kristjánsdóttir], Eydís [Konráðsdóttir] og Örn [Arnarson]. Örn hefur æft mjög vel að undan- förnu, en lagt minni áherslu á keppni. Hann verður þó ekld með í sínum sterkustu greinum í baksundinu - er að hvíla sig á þeim. Hann verður eigi að síður með í fjórsundinu,“ segir Hafþór. Hann segir að fróðlegt verði að fýlgjast með keppni í kvennaflokki, en grunar að Kolbrún Ýr standi upp úr. „Ég á von á að Kolbrún verði mjög góð, reyndar Lára Hrund [Bjargardóttir] líka. Þær hafa tekið þátt í nokkrum mótum upp á síðkastið. Elín Sigurðardóttir verð- ur með að þessu sinni í sprettsund- unum og þar reikna ég með nokk- urri keppni á milli hennar og Kol- brúnar. Eydís [Konráðsdóttir] æfði stíft í Danmörku síðastliðinn vetur, en hefur verið við æfingar hjá Kefl- víkingunum að undanfómu. Kefl- víkingamir verða væntanlega sterk- ir,“ segir landsliðsþjálfarinn. Á hann jafnvel von á að Suðurnesja- mennirnir komi öðrum að óvörum. „Já, ég yrði ekki hissa á því.“ „í karlaflokknum er Öm sterkast- ur. Að vísu verður Ríkarður Rík- arðsson ekki á meðal keppenda, en hann hefði eflaust sett skemmtileg- an svip á mótið. Hjalti Guðmunds- son er í mjög góðri æfingu og gerir áreiðanlega einhvem usla í bringu- sundinu," segir landsliðsþjálfarinn. En á Hafþór von á metaregni? „Já, ég held að við fáum að sjá töluvert af íslands- og unglingametum." FRJALSAR IÞROTTIR Bubka felldi byijunarhæð SEXFALDUR heimsmeistari í stangarstökki karla, Ukraínu- maðurinn Sergei Bubka, var ekki lengi á meðal keppenda á Bislett- leikunum í Ósló í gærkvöldi. Hann náði ekki að stökkva yfir byrjunarhæð sína, 5.60 m. „Ég vil ekki láta hafa neitt eftir mér,“ sagði Bubka þegar hann yfirgaf völlinn. Þetta var það fyrsta af svokölluðum „Gullmótum", en sjöunda og síðasta mótið í þeirri röð verður í Moskvu 5. septem- ber. Bandaríska stúlkan Marion Jones þurfti hins vegar ekki að ganga sneypt af leikvelli því hún sigraði í 100 metra hlaupi á 10,82 sekúndum, sem er fjórði besti tíminn í ár og mótsmet. Hún er ein af tólf íþróttamönnum sem enn eiga raunhæfa möguleika á að hljóta milljón dalina sem eru í boði fyrir þann sem sigrar í sinni grein á öllum mótunum. „Sigurinn kom mér ekki á óvart því ég hef verið að hlaupa á 10,71 á æfingum. Ég er hins veg- ar ánægð með að setja mótsmet fyrir framan svona skemmtilega áhorfendur," sagði Jones. Tveir þeirra íþróttamanna sem töldust líklegir til að krækja sér í milljón dalina náðu ekki að sigra í gær og eiga því ekki möguleika, Bubka og Michael Johnson, heimsmeistari í 400 metra hlaupi, en Mark Richardson frá Bret- landi kom á undan honum í mark í gær. Tveir Lit- háar til Aftureld- ingar? MIKLAR líkur eru á að tveir landsliðs- menn frá Litháen leiki með Aftureld- ingu í 1. deildar keppninni í hand- knattleik næsta vet- ur. Þá hafa Trúfan- feðgamir Alexei og Maxím gengið til liðs við Aftureldingu, en þeir voru í herbúð- um Víkings. Sigurður í Finnlandi SIGURÐUR Karls- son, UMSS, tekur þátt í Norðurlanda- meistaramóti ung- linga í tugþraut í Hyvinkaa í Finn- landi. Hann á best 6.553 stig og hefur bætt sig um rúmlega 500 stig frá því að hann varð í fjórða sæti á mótinu í fyrra, þannig að hann er til alls líklegur. KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA: TÓMAS INGI MEÐ ÞRJÚ ER ÞRÓTTARAR BURSTUÐU KEFLVÍKINGA/C4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.