Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 4

Morgunblaðið - 10.07.1998, Síða 4
Sigurmark á síðustu mín. á Akranesi Skagamenn sluppu með skrekk- inn á Akranesi í gærkvöldi er þeir náðu að gera sigurmarkið á síð- ustu mínútu leiksins Stefán gegn baráttuglöðum Stefánsson IR-ingum sem áttu eitthvað skilið fyrir sinn snúð því þeir spiluðu vörnina af skynsemi og náðu ágætum færum eftir skyndi- sóknir. Akumesingar, með þrjá menn í fremstu víglínu, náðu fljót- lega að reka gesti sína í vörnina en fátt var um færi. Heimir Guðjóns- son náði þó góðu skoti rétt framhjá marki IR á 15. mínútu, sex mínút- um síðar skallaði Zoran Ivsic fram- hjá. IR-ingar beittu hins vegar skynseminni, reyndu spretti fram völlinn og tókst að skapa einhveija hættu en mark var ekki í augsýn nema undir lok fyrri hálfleiks þegar Þórður Þórðarson var vel á verði við lúmsku skoti Kristjáns Brooks. Mínútu fyrir leikhlé uppskáru ÍR- ingar þó mark en litlu munaði að Jóhannes Harðarson jafnaði á sömu mínútu. Síðari hálfleikur hófst eins og sá fyrri, Skagamenn sóttu óþreyjufull- ir og reyndu að koma háum send- ingum fýrir mark ÍR en þar var fyr- ir fjölmenni og IR-ingar yfirleitt ekki í vandræðum með að hreinsa frá. Þetta skapaði einnig hættu fyr- ir heimamenn, sem gleymdu sér í sókninni og litlu munaði að ÍR-ing- ar bættu við marki eftir að Kristján tók á rás upp vinstri kant upp að endamörkum þar sem hann gaf á Geir Brynjólfsson sem skaut rétt framhjá. Skagamenn biðu síns tíma og eft- ir langa sókn á 62. mínútu kom þeirra tími og Zoran jafnaði. Skaga- menn ætluðu ekki að láta sér jafn- tefli duga og Breiðhyltingar gleymdu sér augnablik mínútu fyrir leikslok sem var nóg fyrir Zoran til að tryggja Skgamönnum sigur. „Við ætluðum að draga þá framar á völlinn til að komast afturfyrir vörn þeirra í homunum en þeir lok- uðu fyrir það með því að leika vöm- ina aftarlega," sagði Logi Ólafsson, þjálfari ÍA, eftir leikinn. „Við gerð- umst hins vegar óþolinmóðir en það sýndi sig að það á aldrei að gefast upp. Það var gott fyrir Zoran að skora þar sem hann hefur átt erfitt uppdráttar. Sigurinn var mikilvæg- ur því ef við ætlum að hanga ofar- lega í deildinni verðum við að ná stigum hér heima, sérstaklega gegn liðum neðarlega í deildinni, en í kvöld sýndu IR-ingar mjög góðan leik,“ sagði Logi. Skagamenn sluppu með skrekkinn, en áttu ekki skilið að fá stig fyrir óþolinmæðina en á móti kemur að sigur fyrir seigl- una var sann- gjam. Kristján Halldórsson, fyrirliði ÍR, var ekki glaður í bragði eftir leik- inn. „Við börð- umst í 90 mínút- ur en sofnuðum tvisvar á verðin- um og fengum þá á okkur mörk því Skagamenn refsa fyrir slíkt. Við lögðum okk- ur alla fram og gerðum það sem fyrir okkur var lagt,“ sagði Kristján. 1a^\Fyrsta markið kom strax á ■ \J2. mínútu. Þá átti Guðmund- ur Steinarsson skot að marki. Boltinn skoppaði á hrjúfum vellinum og þótt Fjalar Þorgeirsson verði, náði hann ekki að halda boltanum og Sasa Pavic áttu því ekki í vandræðum með að skora af markteig í opið markið. ■ tM Þróttur jafnaði á 7. mínútu. I ■ I Tónias Ingi Tóinasson komst þá framhjá tveimur vamar- mönnum, gaf á Pál Einarsson og eftir að hafa fengið boltann aftur var auð- velt fyrir hann að skora undir Bjarka í martónu, a JJBrotið var á Ásmundi Har- ■ ■áCaldssyni innan teigs. Tómas Ingi Tómasson skoraði örugglega úr vítaspymunni á 19. mínútu. Enn var Tómas Ingi á ferð- 1.0 ■ w hann skot á markið af kantinum, Bjarki varði en missti boltann frá sér og Hreinn Hringsson náði að skora úr þvögunni af stuttu færi. ■1 a y| Hreinn • sendi boltann á I ■ "wTómas Inga Tómasson á 44. mínútu. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina, heldur þrumaði boltanum efst í markhomið fjær. Stórglæsilegt mark og þrennan fullkomnuð. ■i BjCóestur Pálsson rauk upp I ■ ^Jhægri kantinn á 68. mín., komst inn fyrir varnarmann og sendi ínn fyrir á Ásmund Haraldsson sem skoraði af öryggi. Oa tM Kristján Brooks ■ ■ sendi knöttinn á Kjartan Kjartansson, sem sendi hann fyrir mark Skaga- manna. Þvaga var fyrir framan markið, knötturinn barst til Geirs Brynjólfssonar, sem skoraði með hægri fæti frá markteig - í markhornið á 44. mín. 1a Jj Sigurður R. Eyjólfs- ■ i son vann aukaspymu fyiir utan vitateig ÍR á 62. mín. Jóhannes Harðarson renndi knettinum til Zoran Ivsic, sem sendi knöttinn í blá- hornið hægra megin. 2a J| Skagamenn náðu ■ ■ góðri sókn upp hægri kantinn á 89. mín. Jó- hannes Harðarson sendi knött- inn á Sigurð R., sem lék upp að endamörkum og sendi knött- inn þaðan inn í markteig - þar var Ivsic á réttum stað og þramaði knettinum í netið af stuttu færi. KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Amaldur TÓMAS INGI Tómasson gerði þrjú mörk gegn Keflvíkingum í gærkvöldi. Hér biður hann eftir sendingu frá Páii Einarssyni, en Guð- mundur Oddsson gerir sitt til að koma í veg fyrir hana. Róbert Sigurðsson (nr. 8) fylgist grannt með. Tómas Ingi Tómasson var ósáttur með að gera „aðeins“ þrjú mörk Keflvíkingar kjöl- dregnir af Þrótturum ÞRÓTTARAR, nýliðarnir í efstu deildinni, virðast svo sann- arlega vera komnir til að vera í keppni þeirra bestu. í gær- kvöldi gerðu þeir sér lítið fyrir og nánast kjöldrógu Keflvík- inga á útivelli, 5:1 í frábærum leik, þar sem sóknarleikur var í hávegum hafður. Tómas Ingi Tómasson gerði þrennu og Ásmundur Haraldsson og Hreinn Hringsson sitt marki hvor eftir sannkallaða óskabyrjun Keflvíkinga. Bjöm Ingi Hrafnsson skrifar Keflvíkingar náðu forystu í leiknum eftir nákvæmlega eina mínútu og fjórtán sekúndur. Sú óskabyrjun þeirra dugði þó skammt, því í hönd fór sannkölluð stórskotahríð og næsta mikilfenglegur sóknar- leikur gestanna. I stað þess að brotna við mótlætið og gefast upp, tóku Þróttarar að sækja býsnin öll og virtust á tímabili vera með fjóra menn í framlín- unni. Það gafst enda mjög vel og mörk þeirra komu á færibandi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. A köflum var hreinasta unun að fylgjast með sóknartilburðum Þróttarliðsins. Ásmundur Har- aldsson og Tómas Ingi Tómasson unnu sem einn maður í fremstu víglínu og þeim til aðstoðar voru kantmennirnir Hreinn Hringsson og Gestur Pálsson, einkum sá síð- amefndi, sem virtist óþreytandi við að vinna boltann og koma hon- um á samherja. Gestur hefur leik- ið skínandi vel að undanfömu og er sérstaklega laginn við að skila boltanum á framherjana tvo. Þeir eru líklega þeir „heitustu" í deild- inni um þessar mundir, skora mörg og falleg mörk og gera vamarmönnum lífið leitt með leikni og mikilli útsjónarsemi. Staðan í leikhléi var 1:4 og leik- mönnum Keflvíkinga hefur ef- laust verið boðið upp á þrumu- ræðu þjálfarans í búningsklefan- um. Alltént komu þeir mun ein- beittari til leiks í seinni hálfleik og höfðu þá lengst af í fullu tré við gestina. Á köflum héldu Kefl- víkingar boltanum mun meira, en gekk illa að skapa sér marktæki- færi. Þróttarar færðu sig aftar á völlinn og byggðu á skyndisókn- um, enda með afar vænlega stöðu. Þær sóknir nýttu þeir sér síðan til að bæta enn einu markinu við um hálfleikinn miðjan og hefðu vel getað gert enn betur, því Tómas Ingi hefði getað gert fjórða mark sitt úr vítaspymu, en hann skaut hátt yfir. Undir lokin hefði Marko Tanasic síðan átt að minnka mun- inn, en skaut í stöngina úr upp- lögðu færi. Sannkallaður stórsigur Þrótt- ara var því staðreynd og hetja kvöldsins, Tómas Ingi, var vitan- lega kátur. „Þetta gekk svo sann- arlega upp hjá okkur í kvöld,“ sagði hann. „Við nýttum færin okkar vel í fyrri hálfleik og nutum þess hve leikurinn var opinn. Eg hefði hins vegar átt að gera eitt mark í viðbót.“ Þegar Islandsmótið er hálfnað hafa Þróttarar þrettán stig. Tómas Ingi segir það vera í samræmi við væntingar. „Við þurfum að vísu mun fleiri til að tryggja sæti okkar í deild- inni, en þessi sigur er mikilvægur fyrir sjálfstraustið. Við reynum því að byggja á honum.“ Keflvíkingar hafa eflaust um margt að hugsa eft- ir þennan leik. Lið- ið náði ekki að nýta sér óskabyrjun og hrundi gjörsamlega eftir jöfnunarmark- ið. Marko Tanasic nýttist ekki sem skyldi í framlínunni - væri betur kom- inn á miðjunni. Þá verður að teljast undarlegt, að ekki sé pláss fyrir „bjargvættinn“ Þórarin Kristjáns- son í leikmannahóp liðsins, einkum þegar haft er í huga að hinn 35 ára gamli Óli Þór Magnússon hefur verið viðloðandi byrjunarliðið í undanfórnum leikjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.