Morgunblaðið - 12.08.1998, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 C 5"
Dögun á Sauðárkróki vinnur 1.800-2.000 tonn af rækju á ári
Framleiðslan löguð
að eftirspurn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
UNNIÐ við hreinsun rækju hjá Dögun ehf.
RÆK JUVE RKSMIÐ JAN Dögun
ehf. var stofnuð árið 1984 af
nokkrum einstaklingum á Sauðár-
króki. Eignarhaldið hefur breyst og
nú eiga Ottar Yngvason og Islenska
útflutningsmiðstöðin hf. rúman
helming hlutafjár á móti allmörgum
einstaklingum. Óttar er stjórnarfor-
maðm’ félagsins.
Ágúst Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Dögunar, segir að
markmið fyrirtækisins sé að taka á
móti 1.800 til 2.000 tonnum af rækju
til vinnslu á ári, ef það teljist hag-
kvæmt hverju sinni. „En við lögum
framleiðsluna ávallt að eftirspurn-
inni. Við erum með það litla verk-
smiðju að við eigum auðveldara með
það en ýmsir aðrir framleiðendur,“
segir hann.
Veiðin að glæðast
Hráefnisöflun Dögunar byggist
á nokkrum þáttum. Fyrirtækið á
Röst SK 17 sem gert er út á út-
hafsrækjuveiðar allt árið. Verk-
smiðjan kaupir auk þess rækju
sem veiðist á Skagafírði. Priðja
stoðin í hráefnisöfluninni er kaup á
rækju á almennum markaði. Ágúst
segir að verksmiðjan hafi til dæmis
fengið nokkuð af rækju af
Flæmska hattinum, aðallega frá
útgerð sem félagið á hlut í en rekin
ÁGÚST Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Dögunar.
er frá Eistlandi.
Hefur það komið sér vel að eiga
kost á að kaupa hráefni annars stað-
ar frá síðustu mánuði því rækju-
veiðin hefur gengið illa. Þannig hef-
ur verið hægt að fylla upp i göt í
hráefnisöfiuninni. „Það hefur komið
í ljós á þessu ári hversu mikilvægt
er að byggja hráefnisöflunina á
fleh’i en einum þætti,“ segir Ágúst.
Að vísu segir hann að veiðin hafi
Stjórnendur Dögunar
ehf. á Sauðárkróki laga
rækjuframleiðsluna að
eftirspurn og loka frek-
ar en að framleiða á
lager, Það er lykillinn
að velgengni fyrirtæk-
isins á undanförnum
árum. Helgi Bjarnason
kynnti sér starfsemina
og ræddi við fram-
kvæmdastjórann.
nokkuð glæðst í júlí, bæði fyrir
norðan land og austan. Skip félags-
ins hefur að undanfórnu verið gert
út til veiða á Héraðsflóa. Aflanum
hefur verið landað á Vopnafirði og
ekið þaðan til Sauðárkróks.
Sterkir á innanlandsmarkaði
Ástandið í rækjuiðnaðinum er að
mörgu leyti gott. Ágúst segir að sal-
an sé viðunandi. Islenska útflutn-
ingsmiðstöðin selur afurðirnar og
segir Ágúst að hún standi sig vel.
Telur að sveiflur séu minni hjá því
sölufyrirtæki en mörgum öðrum og
minni birgðasöfnun.
Um helmingur útflutningsins fer
til Bretlands en hinn helmingurinn
á markað í Danmörku og Þýska-
landi. Dögun ehf. hefur einnig selt
mikið á innanlandsmarkaði, ekki
síst í verslanir Hagkaups og Bón-
uss. Um einn tíundi hluti framleiðsl-
unnar er seldur innanlands og segir
Ágúst að það komi vel út því mark-
aðurinn hér sé ekki eins sveiflu-
kenndur og erlendir markaðir.
Hagkvæm stærð
Dögun ehf. hefur komist vel frá
umrótinu á rækjumarkaðnum.
Ágúst segir að árin 1994 og 1995
hafi verið mjög góð hjá félaginu. Þá
hafi tækifærið verið notað til að
stækka og endurbæta húsnæði
verksmiðjunnar og vélvæða fyrir-
tækið og það hafi því haft góða
stöðu í verðlækkunarhrinunni sem
reið yfir 1996. Ágúst segir ekki
áform um að stækka fyrirtækið
frekar. Það er nú með þrjár pillun-
arvélar og kemur ekki fleiri tækjum
inn i húsnæði sitt. Auk þess segir
hann að stærðin sé hagkvæm til að
mæta sveiflum í þessari erfiðu
starfsgrein.
„Við getum lagað okkur mjög
vel að sveiflum. Við högum fram-
leiðslunni eftir eftirspurn og lok-
um frekar verksmiðjunni en að
framleiða á lager. Það hefur komið
fyrir að við höfum þurft að loka en
gert það án þess að segja starfs-
fólkinu upp,“ segir Ágúst. Segir
hann að mun hagkvæmara sé að
greiða starfsfólkinu kaup þótt
verksmiðjan sé lokuð heldur en að
þurfa sífellt að þjálfa upp nýtt
starfsfólk.
Þróun
f pökkun
Um 15 manns vinna við vinnsluna
hjá Dögun ehf. og fimm sjómenn að
auki. Stefna fyrirtækisins er að
ráða fólk í hálfsdagsstörf og eru þá
gjarnan unnar tvær 4-5 tíma vaktir
og stundum á laugardögum. Ef
mikið er að gera er teygt á vöktun-,
um.
Stjórnendur Dögunar hafa lagt
áherslu á að vera framarlega í vél-
væðingu rækjuvinnslunnar. Ágúst
segir að það sé lykilatriði að nýta
hráefnið sem best, ekki síst í þeirri
hörðu samkeppni sem um það er.
„Þeir sem framleiða hagkvæmast
geta boðið best í hráefnið.“ Hann
telur að næst verði þróun í vélbún-
aði pökkunarinnar og þá eigi Dögun
enga aðra kosti en að brjótast út úr
húsi sínu að norðanverðu til að
koma fyrir nauðsynlegum tækja-
búnaði.
ESB og Japanir funda
JAPAN og Evrópusambandið hafa ákveðið að hittast reglulega til að ræða
fiskstjórnunarmál, eftir að hafa átt fund hinn 15. júlí sl. í Brussel. Á þessum
fyrsta fundi voru rædd ýmis mál, þ.ám. túnfískveiðar í Atlantshafi. í
fréttatilkynningu sem gefin var út eftir fundinn kemur fram að það sé
„sameiginlegur áhugi“ á stofnstærð og að viðræður gætu skilað sér í „virkri
samvinnu". Hins vegar gefa þessar yfirlýsingar minna upp um ágreining
milli Japana og Evrópusambandsins um fiskstjórnun í Baskaflóa og í
Miðjarðarhafinu, þar sem Japanir vilja banna veiðar á ungfiski en
Evrópusambandið kýs að takmarka fiskveiðar með afmörkuðum
veiðitímabilum.
Syuji Ishida, forstöðumaður japanska fiskveiðiráðsins, hóf máls á
takmörkuðum hvalveiðum, þrátt fyrir að í 11 af 15 löndum
Evrópusambandsins séu hvalveiðar bannaðar með öllu. Ishida benti á að
hvalveiðar yrði að skoða frá „vistvænu“ sjónarmiði en einnig ætti að taka
tillit til efnahagsþátta. ÁÍcveðið var að fundir milli Japans og
Evrópusambandsins yrðu árlegir og verður næsti fundur haldinn í Tókýó á
næsta ári.
Saga felaganna
Á Fótboltavef Morgunblaðsins
finnur þú
alla réttu
takkana
Titlar og afrek
Leikmenn og
frammistaða þeirra
Liðsstjórinn,
gagnvirkur Netleikur
Dagbók, yfirlit yfir leiki
www.mbl.is/boltinn
Fótboltavefur mbl
Þar sem þú getur fylgst með boltanum í sumar.