Morgunblaðið - 22.08.1998, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
STÓRT stykki brotnar úr jöklinum og fer í ána.
Morgunblaðið/Jóhann
TALSVERÐ umbrot hafa verið
í Kverkjökli í sumar og nýver-
ið hrundi stórt stykki úr jökl-
inum fyrir ofan íshellinn sem
áin Volga rennur undan.
Jóhann Óli Hilmarsson var á
staðnum þegar hrunið átti sér
stað og náði að festa atburðinn
á filmu. Jóhann segir mikla
dynki hafa verið í jöklinum áð-
ur en stykkið losnaði úr hon-
um og miklar drunur þegar
það hrundi. Jóhann gerði sér
ferð í Kverkfjöll til að líta á
jökulinn vegna umbrotanna
sem hafa verið þar í sumar og
stafa af því að jökullinn er að
fara skríða fram, að því er
talið er.
Kristín Berglind Valdimars-
dóttir, skálavörður í Kverk-
fjöllum, segir skálaverði vara
fólk við jöklinum og að fara
inn í íshellinn, hættan á hruni
sé mikil. Áin Volga, sem er ein
af fyrstu kvíslum Jökulsár á
Fjöllum, rennur undan jöklin-
um. Hún er einnig miklu
stærri en í fyrra og hljóp áin í
byrjun júlí. Þá fór göngubrúin
yfir hana og segir Berglind að
fljótlega hafi önnur brú verið
sett yfir, en hún entist ekki
lengi og nú hefur verið Iagt 15
metra ármastur yfir ána og er
það notað sem göngubrú. Áin
Skólpa, sem liggur austan
Volgu, hefur minnkað mikið í
sumar og segir Berglind jarð-
fræðinga telja að farvegir
ánna tveggja hafi runnið sam-
an vegna umbrotanna.
RÉTT fyrir hrunið.
GLÖGGT má sjá hvernig útlit jökulsins breytist á þeim örfáu sekúnd-
um sem atburðurinn stendur yfir.
Umbrot í Kverkjökli
Rannsóknarstofa Krabbameinsfélags fslands
Heilsufarsupplýsmgar geymd-
ar með samþykki nefnda
A RANNSOKNARSTOFU í sam-
einda- og frumulíffræði hjá
Krabbameinsfélagi íslands liggja
heilsufarsupplýsingar með sam-
þykki tölvunefndar og siðanefnda
sjúkrahúsanna að sögn Helgu Ög-
mundsdóttur, forstöðumanns
rannsóknarstofunnar.
Hún segir því rangt hjá Kára
Stefánssyni að ummæli hennar í
Morgunblaðinu á fimmtudag fyrir
viku séu byggð á misskilningi, en
þá sagði hún að þær heilsufars-
upplýsingar sem rannsóknarstof-
an ráði yfir komi ekki til með að
fara í miðlægan gagnagrunn. Haft
er eftir Kára Stefánssyni í Morg-
unblaðinu síðastliðinn laugardag
að rannsóknarstofan sem Helga
veiti forstöðu eigi ekki að geyma
neinar heilsufarsupplýsingar og ef
hún hafi þær sé hún að brjóta lög.
„Hér liggja ákveðnar heilsu-
farsupplýsingar um fólk, gagna-
safnið okkar er lítið og er að veru-
legu leyti aðfengið, þ.e. við höfum
ekki aflað upplýsinganna sjálf og
mér þar af leiðandi ekki frjálst að
láta þær af hendi til þriðja aðila.
Að svo miklu leyti sem ég hef afl-
að upplýsinganna sjálf í persónu-
legum samskiptum við fólk þá eru
þær upplýsingarnar veittar í
ákveðnum afmörkuðum tilgangi
og þær upplýsingar er mér ekki
heldur frjálst að láta af hendi í
öðrum tilgangi. Við höfum sam-
þykki tölvunefndar og siðanefnda
sjúkrahúsanna fyrir þeirri starf-
semi sem hér fer fram,“ sagði
Helga Ögmundsdóttir í samtali við
Morgunblaðið.
Mannfræðirannsóknir á krossgötum
Mannslfkaminn
afurð félagslegr-
ar starfsemi
Dr« Gísli Pálsson
GÍSLI Pálsson, nýr
forstöðumaður
Mannfræðistofnun-
ar frá 1. ágúst síðastliðnum,
er þátttakandi í nýju rann-
sóknarverkefni evrópskra
mannfræðinga þar sem þeir
hyggjast fylgjast með deil-
um í Evópu um ný skilyrði í
erfðarannsóknum og mark-
aðssetningu líffæra og lík-
amshluta.
- Hvemig er manníræði-
hugtakið skilgremt í fáum
orðum?
„Einfalda skilgreiningin
er: rannsóknir á manninum.
Margar aðrar greinai- rann-
saka manninn líka, svo sem
heimspeki, sálarfræði,
stjórnmálafræði og fleiri.
Mannfræðin hefur hins veg-
ar yfirleitt samanburðar-
sjónarmið í huga, það er að
segja, menn tefla saman vitneskju
um ólíka hópa á ólíkum stöðum og
tímum í þeim tilgangi að draga
fram almenna vitneslqu um teg-
undina; hvernig hún hefur orðið til
og þróast og þau félagsform sem
hún hefur búið sér til. Mannfræðin
hefur að því leyti sérstöðu að hún
teygir sig bæði yfir í náttúruvís-
indi og félagsvísindi. Það er erfitt
að átta sig á því hvernig homo
sapiens hefur orðið til án þess að
taka mið af félagshegðun forvera
okkar. Þannig hefur fléttast saman
alla tíð hinn félagslegi og líffræði-
legi þáttur.“
- Mun starf Mannfræðis tofn un-
ar taka breytingum í þinni tíð?
„Fyrrverandi forstöðumaður
stofnunarinnar, Jens Ó. P. Páls-
son, gegndi því starfi frá upphafi
en lét af störfum í hittifyrra. Hann
var sérmenntaður í líffræðilegri
mannfræði og beindust rannsóknir
hans fyrst og fremst að rannsókn-
um og mælingum á íslendingum,
líkamseinkennum þeirra og sam-
anburði á íslendingum og hópum í
nágrannalöndunum. Margir ís-
lendingar þekkja mannfræðihug-
takið og Mannfræðistofnun vegna
starfa Jens. Nú er verið að vikka
starfsemina út, bæði verið að
tengja Mannfræðistofnun við
kennslustarfið í Háskólanum, það
er innan félagsvísindadeildar, og
með því að taka inn rannsóknir í
félagslegri og menningarlegri
mannfræði.“
- Hver er staða mannfræðinnar
ísamfélaginu nú á dögum?
„Mannfræðin er á tímamótum
og að því leyti skemmtilegt að fá
að takast á við starf á borð við það
sem ég er nú að taka við. Líffræði-
legir og félagslegir þættir mann-
fræðinnar eru mikið til að renna
saman, að minnsta kosti að starfa
saman, þótt það sé að vísu breyti-
legt eftir löndum. Á því eru vissar
skýringar í samtímanum. Á síð-
ustu árum hafa róttækar breyting-
ar á þekkingu okkar á lífríkinu
valdið því að skilin á milli náttúru
og samfélags eru að
hrynja. Það má kalla
þetta „póstmódemíska"
veröld; gamlar marka-
línur eru að mást í
burtu. Einfalt dæmi um
þetta er sú staðreynd
að mannslíkaminn er í vaxandi
mæli afurð félagslegrar starfsemi.
Með því á ég meðal annars við
ígræðslu líffæra, framleiðslu lík-
amshluta og hugsanlega klónun í
framtíðinni."
- Hvernig er staða mannfræði-
rannsókna á íslandi?
„Flóran er miklu fjölbreytilegri
en hún var fyrir aldarfjórðungi.
Hópur mannfræðinga, sem mennt-
► Dr. Gísli Pálsson fæddist í
Vestmannaeyjum árið 1949.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
árið 1969 og lauk siðan BA-prófí
í mannfræði, sem þá hét almenn
þjóðfélagsfræði, frá Háskóla Is-
lands árið 1972. Að því búnu
lauk hann MA-prófi í mannfræði
frá Manchester-háskóla árið
1974 og kenndi þvínæst við
Menntaskólann í Hamrahlíð í
nokkur ár. Gísli hóf siðan dokt-
orsnám í Manchester, sem hann
lauk árið 1982. Gísli hefur kennt
við Háskóla íslands frá 1982 og
var skipaður prófessor í mann-
fræði við skólann árið 1992.
Hann er kvæntur Guðnýju Guð-
bjömsdóttur alþingiskonu og
eiga þau tvö börn, Pál Óskar og
Rósu Signýju. Gísli leikur enn-
fremur með rokkhljómsveitinni
Vinir Dóra Gunn.
aðir eru til BA-prófs á íslandi, er
til dæmis að vinna að rannsóknum
í ýmsum Afríkulöndum, Nýju-
Gíneu, Japan, á Spáni og víðar.
Einnig stunda nokkrir ungir ís-
lendingar rannsóknir í líffræðilegri
mannfræði.
Mannfræðistofnun er að hleypa
af stokkunum rannsókn sem vænt-
anlega verður gerð með þátttöku
mannfræðinga víðs vegar að úr
Evrópu. íslensku mannfræðing-
arnir eru auk mín Agnar Helgason
við Oxford-háskóla, Halldór Stef-
ánsson við Evrópsku rannsókna-
stöðina í sameindalíffræði og Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir dós-
ent við Háskóla íslands. Verkefnið
er kannski dæmi um áðurnefndar
áherslubreytingar þar sem líf-
fræðilegir og félagslegir þættir
vinna saman, en það er fólgið í því
að fylgjast með deilum í Evópu um
ný skilyrði í erfðarannsóknum og
markaðssetningu líffæra og lík-
amshluta. Mannslíkaminn er í vax-
andi mæli verslunarvara í ein-
hverju formi. Egg, sæði, vefir og
líffæri ganga kaupum og sölum, og
svo upplýsingar um lík-
amlega eiginleika, svo
sem erfðaeiginleika,
samanber umræðu um
miðlægan gagnagrunn
hér á landi að undan-
förnu. Við ætlum að
fylgjast með því hvemig umræðan
um markaðssetningu líkamshluta
og upplýsingar um líkamleg ein-
kenni hefur gengið fyrir sig á ólík-
um stöðum í Evrópu og reyna að
átta okkur á því „siðferðilega
landslagi" sem hún tekur mið af.“
- Koma Vinir Dóra Gunn fram?
„Þeir hafa komið fram einu
sinni. Óvíst er hvort þeir gera það
oftar! “
Skil milli
náttúru og
samfélags
að hrynja