Morgunblaðið - 22.08.1998, Page 14
14 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Björn Gíslason
FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, flutti ávarp við setningu ráðstefnu um gæðastarf í menntakerfinu, sem haldin er í Menntaskólanum
á Akureyri. Hér situr á hann á milli Tryggva Gislasonar, skólameistara MA, og Þorsteins Gunnarssonar, rektors Háskólans á Akureyri.
Forseti Islands við setningu skólaráðstefnu á Akureyri
Brýnt að nálgast nýja
veröld með opnum huga
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónusta í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 23. ágúst kl. 21.00.
Ferðafólk sérstaklega velkomið.
Séra Guðmundur Guðmundsson,
héraðsprestur messar.
GLERÁRPRESTAKALL:
Kvöldmessa verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju sunnudaginn 23.
ágúst kl. 21.00. „Komið og njótið
kyrrðar í helgidómi Guðs.“ Séra
Gunnlaugur Garðarsson.
Aksjon
Laugardagur 22. ágúst
21.00ÞSumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Ákureyringa í ferðahug.
Sunnudagur 23. ágúst
21 .OOÞSumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Ákureyringa í ferðahug.
Mánudagur 24. ágúst
21.00ÞSumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Ákureyringa í ferðahug.
Sýnt á RenniOerkstœðinu
Akureifri
Á sama tíma að ári
í kvöld 22/8 kl. 20.30 uppselt
Fjögur hjörtu
fimmtud. 27/8 kl. 20.30 örfá sæti
föstud. 28/8 kl. 20.30 örfá sæti
laugard. 29/8 kl. 20.30
MlfíASALA Í SÍMA 1,61-3690
FORSETI íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, flutti ávarp við
setningu ráðstefnu um gæðastarf í
menntakerfinu, sem haldin er í
Menntaskólanum á Akureyri í gær
og í dag. Yfirskrift ráðstefnunnar er:
Að hvaða árangri er stefnt í skóla-
starfi? Um 200 gestir sitja ráðstefn-
una, sem nær til allra skólastiga, þ.e.
leikskóla, grunnskóla, framhalds-
skóla og háskóla.
Ólafur Ragnar sagðist í ávarpi
sínu fagna því að efnt væri til um-
ræðu og málþings um þann mikla
vanda að skilgreina gæði og árangur
í síbreytilegri veröld náms og skóla.
„Það er í senn mikilvægt og brýnt
að við öll sem að fræðslu og menntun,
uppeldi og þjálfun komum í iandi
okkar nálgumst þessa nýju veröld
með opnum huga. Tilbúin til endur-
mats og breytinga, reiðubúin að læra
sjálf að fara nýjar leiðir og láta ekki
hagsmuni eða gamla fordóma byrgja
okkur sýn eða loka á samstarf. Þó má
eigi missa sjónar á þeim gildum sem
um aldir hafa gefíð menntun kjöl-
festu og einstaklingum nægilegan
sjálfsþroska,“ sagði Olafur Ragnar.
Forseti Islands kom inn á megin-
atriði í stefnuskrá Bessastaðaskóla,
eina lærdómsseturs þjóðarinnar á
fyrri tíð. Hann sagði að í þeirri
stefnuskrá hefðu menn verið að
glíma við að fínna jafnvægið milli ný-
sköpunar og hefða, frjálsræðis og
aga. Hún væri einnig þörf árétting
þess að jafnvel frá upphafi slíks
skólahalds á Islandi hefði það verið
höfuðstefnan að viðurkenna þörfina
á breytingum og þróun.
Kynslóð sem fer sjálf
inn á Netið
„Viðleitni okkar nú að ná réttum
áttum, að svara á viðhlítandi hátt
grundvallarspurningum um kennslu
og skóla, nám og menntun, er þó
ótvírætt erfiðara viðfangsefni en á
dögum lærimeistaranna í Bessa-
staðaskóla."
Ólafur Ragnar sagði að sú kynslóð
sem hefði með höndum forræði í ís-
lenskum skólum væri líklega síðasti
fulltrúi þeirra uppvaxtartíma þegar
heimsmyndin var álitin stöðug og
óbreytanleg. „Að vísu voru hundur í
gervihnetti og síðan geimfarinn
Gagarín að gefa okkur ungum
ábendingar um að kannski væri eitt-
hvað nýtt að gerast."
Ólafur Ragnar spurði að því
hvernig þeir sem eru á starfsvett-
vangi stjórnkerfis skóla og fræðslu-
staifis ættu nú að móta menntun og
uppeldi kynslóða sem fari sjálfar inn
á Netið áður en þær verða læsar og
fletti alfræðisöfnum á CD-ROM-
diskum áður en þær viti í raun hvað
sé bókasafn.
„Þau senda bréf, teikningar og
kveðjur með hjálp tölvu og ljósleið-
ara út um allan heim, án þess að
hafa nokkru sinni heimsótt pósthús-
ið eða sleikt frímerki og bréf.“
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, setti ráðstefn-
una formlega og sagði að hin mikla
þátttaka í ráðstefnunni væri tU vitnis
um að efni hennar væri vel í takt við
þá umræðu sem ætti sér stað í þjóð-
félaginu. Þorsteinn sagði að miklar
breytingar hefðu orðið í íslenska
skólakerfinu á síðustu árum og nýjar
og breyttar áherslur í hugmynda-
fræði um menntun og skólastarf
komið fram.
Vinna þarf með kennurum
að umbótum
,Aukin vitund er um tengsl mennt-
unar og hagsældai- og lífsgæða. Vax-
andi ki'öfur eru frá almenningi og
stjórnvöldum um árangur og gæði í
skólastarfi. í opinbem umræðu er
lögð áhersla á að rekstur skólastofn-
ana nálgist meira rekstur fyrirtækja,
þar sem m.a. eru hagnýttar vinnuað-
ferðir gæðastjómunar. Þessar
breyttu áherslur endurspeglast síðan
í stjómsýslu skólakeifiisins."
Þorsteinn sagði að fagleg hæfni,
menntun og dugnaður væri auðlindin
sem byggi í kennurum og öðru
starfsfólki skólans. „Kennarai' em
fagfólk sem ekki verður stýrt ofan
frá. Meginforsendan fyrir því að
skólaþróun eigi sér stað og meiri ár-
angur í skólastarfi náist er að vinna
með kennurum að umbótum," sagði
Þorsteinn.
Blaðbera
v^ntar í eftirtalin hverfi:
Innbae, miðbæ og Ásabyggð/Jörvabyggð.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
► Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og
upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að
meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík
þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Það eru
hraðamaetingar
framundan |
Morgunblaðið/Sigurbjörn Gunnarsson
„Lifandi umferðarskiltiu
ÓlafsQörður/Morgunblaðið.
Umferðaröryggisfulltrúi Norður-
lands, ásamt slysavarnakonum
frá Ólafsfirði og Dalvík og lög-
reglunni á Dalvík, var á dögun-
um með lifandi skilti við Þor-
valdsdalsá milli Dalvíkur og
Akureyrar, en þar hafa orðið
mjög alvarleg slys. Að sögn Sig-
urbjörns Gunnarssonar umferð-
aröryggisfulltnía voru skiltin
uppi í tvær klukkustundir og
fóru 89 bflar framhjá. Meðalhraði
bflanna var um 70 km og er ljóst
að skiltin hafa haft þau áhrif að
ökumenn hægðu ferðina, því fyrr
um daginn var hraðinn meiri.
Gallerí Svartfugl
Sigríður
Helga sýn-
ir leirmuni
SIGRÍÐUR Helga Olgeirs-
dóttir opnar sýningu á leir-
munum í Galleríi Svartfugli á
Akureyri laugardaginn 22.
ágúst kl. 15. Sigríður Helga
sýnir að þessu sinni leirskúlpt-
úra af ýmsu tagi sem þó eiga
það sameiginlegt að taka mið
af náttúrunni.
Ákveðið formstef gengur í
gegnum alla muni sýningar-
innar og gefur henni ákveðinn
heildarsvip. Yfirborðsmeðferð
er með finmstæðri brennslu
eða glerungum, unnum úr leir-
kenndri mold úr Aðaldal, það-
an sem listakonan er uppalin.
Þetta er önnur einkasýning
Sigríðar Helgu en auk þess
hefur hún tekið þátt í fjölda
samsýninga á undanfórnum
árum. Hún lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskólan-
um vorið 1992 en hefur auk
þess sótt fjölda námskeiða í
Myndlistarskóla Reykjavíkur
og í Kaupmannahöfn.
Sýningin stendur til 6. sept-
ember og er opin írá kl. 14-18
alla daga nema mánudaga.
Sýning
Aðalsteins
Yestmanns
AÐALSTEINN Vestmann
opnar myndlistarsýningu í
Deiglunni laugardaginn 22.
ágúst kl. 16.00. Aðalsteinn hef-
ur haldið nokki’ar einkasýn-
ingar hér og þar um landið.
Hann notar blandaða tækni
við málun; olíu, vatnsliti, acríl
og túss. Hann vinnur list sína
sem tómstundaverk sem unnin
eru við dagsins amstur og
hann sjálfan, glímuna við um-
hverfið, landslagið og söguna í
landslaginu. Sýningin stendur
til 30. ágúst.
Vegagerðin
Framkvæmdir
í Eyjafírði
og á Mel-
rakkasléttu
FYRIRTÆKIÐ Hafnarverk
ehf. á Akureyri átti lægsta til-
boð í styrkingu og lagningu
malarslitlags í Eyjafirði en sex
fyrirtæld gerðu tilboð í verkið.
Tilboð Hafnarverks hljóðaði
upp á rúmar 4,4 milljómr
króna, sem er tæplega 54% af
kostnaðaráæltun, sem var
rúmar 8,1 milljón króna.
Um er að ræða kafla á
Finnastaðavegi, Dalsvegi,
Eyjafjarðarbraut vestri og
eystri og Hólavegi, samtals um
49 km. Að sögn Sigurðar
Oddssonar, deildarstjóra
framkvæmda hjá Vegagerð-
inni á Norðurlandi eystra, er
stefnt að því að taka tilboði
lægsbjóðanda.
Þá hefur Vegagerðin gengið
frá sámningi við Jarðverk ehf.
í Nesi í Fnjóskadal um lagn-
ingu malarslitlags á Melrakka-
sléttu, samtals um 42 km.
Jarðverk átti lægsta tilboð en
alls bárust átta tilboð í verkið.
Jarðverk bauðst til að vinna
verkið fyrir rúmar 6,8 milljón-
ir króna, sem er rúmlega 64%
af kostnaðaráætlun. Kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar
hljóðaði upp á rúmar 10,6
milljónir króna.