Morgunblaðið - 22.08.1998, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Nesti og mataraðstaða skólabarna
Morgunblaðið/Jim Smart
Þegar Brynhildur er spurð hvað
hægt sé að gefa börnum sem fái
fljótt leiða á brauði með osti og
agúrkum segir hún hægt að breyta
til með því að smyrja kringlur,
bruður, hrökkbrauð og flatkökur
með mismunandi ostategundum og
reyna að skipta út ávöxtum og
grænmeti reglulega.
„Mergur málsins er að það er
þarft að börnin borði fjölbreytta
fæðu og það er mjög jákvætt að nú
skuli vinnuhópur vera að hefja störf
til að móta stefnu í þessum málum.
Forráðamenn skólabarna fara
sjaldnast með nesti í vinnuna og
semja um það í kjarasamningum að
hafa mötuneyti. Það er því undar-
legt að ætlast til þess að nemendur
borði samloku við vinnuborðið sitt
allan veturinn. Ætli borgarstjórinn
og skólastjórnendur myndu láta sér
það lynda að borða alltaf samloku
við sitt vinnuborð?"
Fullorðnir
myndu ekki
sætta sig við
aðstæðurnar
Skólastarfsemin er að hefjast á ný og
skóladagurinn er alltaf að lengjast. Yfír-
leitt matast börn og unglingar að minnsta
kosti tvisvar á dag á skólatíma.Guðbjörg
R. Guðmundsdóttir skoðaði hvað börnum
er boðið upp á og fjallar um nesti.
Ferskur
kalkún
til sölu
NÓATÚN hóf sölu á ferskum
kalkún í vikunni en fram að
þessu hefur slík vara aðallega
verið á boðstólum fyiár stórhá-
tíðir.
„Við höfum verið að auka
framleiðsluna og ætlum að
prófa að markaðsetja kalkúna
núna á öðinm árstíma en fyrir
jól og páska. Um er að ræða
ferskt kjöt, leggi, vængi
bringur og snitsel," segir Guð-
mundur Jónsson hjá Reykja-
búi.
„Auk þess er í boði léttreykt
læri og leggir.
Kalkúnakjötið er á kynning-
arverði enn sem komið er og
það er þegar fáanlegt í versl-
unum Nóatúns en verður
væntanlega fáanlegt víðar eft-
ir helgi.
ÞAÐ ER mjög misjafnt
hvað skólar gefa börnum
kost á að kaupa í matar-
tímum. Sumir selja ekkert
annað en mjólk og safa, margir
bjóða upp á jógúrt líka og jafnvel
samlokur en aðrir eru með heitan
mat í hádeginu. Flest börn matast
við vinnuborðið sitt.
„Það eru engar samræmdar regl-
ur til um hvað bjóða eigi börnum
upp á í skólanum en nú er vinnu-
hópur að bjTja að skoða þessi mál
og móta stefnu í framhaldi af því“,
segir Anna Kristín Sigurðardóttir
hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
en hún situr í þessum vinnuhópi um
viðmiðunarskólann.
„Við munum vinna að stefnumót-
un skólaeldhúsa í samráði við Bryn-
hildi Briem næringar- og matvæla-
fræðing og Laufeyju Steingríms-
dóttur forstöðumann Manneldis-
ráðs.“
Mötunej'ti eða
næðisstund?
Anna Kristín
segir að ýmsar
leiðir verði skoð-
aðar, s.s. hvort
bjóða eigi upp á
heitan mat eða
létta hressingu á
skólatíma. Þá er
spurning hvort
kaupa á matinn að
eða laga hann á staðn-
um. 1 N
Hún bendir á að það hafi
gefist mjög vel að hafa matar-
tækna í skólunum sem eldi léttan
hádegisverð eins og grjónagraut og
súpur og smyrja brauð.“
-Er þá stefnt að því að koma
upp mötuneytum í öllum skólum?
„Það hefur engin ákvörðun verið
tekin enda er þessi vinna að fara í
gang. Við munum athuga hvort
bjóða eigi upp á slíkan valkost. Sú
hugmynd hefur einnig komið upp
að keyra vagna í stofur til yngstu
bamanna þar sem þau borða með
kennara sínum í ró og næði.“
Æskilegt að skólar hafi kæla
fyrir nesti
Foreldrar smyrja oft nesti klukk-
an sjö á morgnana bg barnið borðar
það síðan í hádeginu. Er ekki viss
hætta á að bakteríur nái að fjölga
sér í nestisboxinu?
„Jú, vissulega og sérstaklega
þegar um viðkvæmt álegg eins og
soðið kjötálegg og majónessalöt er
að ræða,“ segir Jónína Stefánsdótt-
ir, matvælafræðingur hjá Hollustu-
vernd ríksins.
„Við herbergishita geta bakterí-
ur náð að fjölga sér hratt en tíminn
fram að morgunhressingu ætti að
vera í lagi. Ef barnið er að geyma
nestið í töskunni í fímm til sex
klukkustundir býður það hætt-
unni heim.“
- Er æskilegt að skólar bjóði
upp á kæliaðstöðu?
„Já, það er í raun alveg nauð-
synlegt eins og fiestir vinnustað-
ir bjóða upp á.“
- Hvernig geta foreldrar þá
tryggt sem best að nestið hald-
ist í lagi?
„Það er hægt að smyrja
nestið að kvöldi og frysta það
til morguns. Það hentar ekki
fyrir allt nesti, t.d. fyrir
grænmetisálegg. Þá helst það
lengur kalt. Þá hafa einnig
verið til sölu nestisbox með
kælikubbi og ef þau eru ekki
of umfangsmikil geta slík
nestisbox hjálpað við að
halda nestinu köldu fram að
hádegi. Það skiptir líka máli
að nota nýtt álegg þannig að
sem mest sé eftir af geymsluþol-
inu.“
Jónína ítrekar að hreinlæti og
rétt hitastig skipti miklu
við gerð nestis fyrir börn
og það sé aldrei of var-
lega farið.
-Hver eru einkennin
ef barnið borðar mat þar
sem bakteríur hafa náð
að fjölga sér of mikið?
„Þau eru mismunandi
eftir bakteríutegundum
og koma misfljótt í ljós.
Helstu einkenni matar-
eitrana og matarsýkinga
eru uppköst, niðurgang-
ur, magaverkur, höfuð-
verkur og hiti.“
Gróft brauð, grænmeti
og ávextir
„Æskilegt nesti er
gróft brauð með áleggi
eins og osti og agúrku-
sneiðum og síðan er gott
að hafa með annað græn-
meti og ávexti," segir
Brynhildur Briem mat-
væla- og næringarfræð-
ingur en hún er lektor
við Kennaraháskólann.
„í haust þegar úrvalið
af grænmeti er mikið er
upplagt að hafa með í
Svona er best að
pakka nestinu
1. Ef ekki er kæliaðstaða í skólanum veljið þá nest-
isbox með kælikubbi ef mögulegt er. Annars er ráð
að smyrja nesti að kvöldi og frysta það. Þá helst
það kaldara fram að hádegi
2. Leggið alltaf smjörpappír milli brauðsneiða og
pakkið samlokum í litla poka ef vill.
3. Leggið salatblað undir blautt álegg svo það
bleyti ekki brauðið.
4. Hafið tómatana heila með þá bleyta þeir ekki
brauðið.
Svona gæti nestis-
boxið litið út
1. Gróft brauð
2. Ostur. Þar sem skólar bjóða sjaldnast upp á kæli-
aðstöðu þá er best að forðast kjötálegg og salöt
4. Grænmeti
5. Ávextir
Æskilegir drykkir
Léttnýólk eða vatn eru bestu valkostirnir. Safar og
kókómjólk ættu að vera hluti af nesti barnsins til
hátíðarbrigða. Gosdrykkir eiga ekki heima í nestis-
boxinu.
skólann ferska tómata, gulrætur og
t.d. rófubita og mismunandi ávexti
eins og banana og epli. Kökur, kex
og annað sætt ætti ekki að fara í
nestisboxið."
Brynhildur segir að best sé auð-
vitað að hafa fjölbreytnina að leið-
arljósi en hún segir að þar sem fáar
áleggstegundir geymist vel, eins og
t.d. lifrarkæfa og skinka, þá standi
osturinn uppúr.
„Það er síðan gott að eiga brauð í
frysti og smyrja það frosið
á kvöldin eða morgnana.
Nestið er síðan geymt í
frysti ef það er smurt að
kvöldi."
- Hvað með drykki?
„Það er ekki hægt að ætl-
ast til að börn drekki volga
drykki svo þeir verða að
koma frá skólanum. Besti
kosturinn er léttmjólk en sá
næstbesti vatn“, segir
Brynhildur. Hún segir safa
og kókómjólk ekki vera
góðan valkost nema til til-
breytingar því hvoru-
tveggja ei' slæmt fyrir
tennurnar.
Ýmsar mjólkurvörur
of sætar
-Hvað með jógúrt og
skólaskyr sem margir skól-
ar bjóða uppá?
„Margar af þessum
mjólkurvörum eru svo sæt-
ar að það er ógerningur að
mæla með þeim.“
-LGG er vinsælt nesti
meðal skólabarna? Er það
æskilegur kostur?
„LGG er álíka sætt og
sykrað jógúrt og skyr og
böm þurfa ekki á LGG að
halda neitt sérstaklega
nema þau séu með við-
kvæman maga.“