Morgunblaðið - 22.08.1998, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 29
„Hrdii mun vel fyrir sjá“
VEFFÖNG
ÞETTA ÁR hefur verið mikið bolta-
ár og líklega eru margir dasaðir eft-
ir heimsmeistarakeppnina í knatt-
spymu í Frakklandi. Skammt er í að
deildarkeppnin á Englandi hefjist,
en íslenskir aðdáendur ensku knatt-
spymunnar skipta þúsundum. Öll
liðin í efstu deildinni í Englandi hafa
komið sér upp heimasíðum eða þá að
aðdáendur hafi sett upp slíkar síður
eðajafnvel umfangsmikla vefi. Is-
lenskir aðdáendur hafa einnig komið
sér upp síðum, en heldur em þær fá-
tæklegri og margar allgamlar.
•Heimasíða Arsenal er á slóðinni
http://www.arsenal.co.uk/, en svo eru
síðurnar taldar: Aston Villa
httpv7www.gbar.dtu.dk/~c937079/A
VFC/index.html,
Blackbum Rovers http://www.yorks-
hire-web.co.uk/bfc/BFC.HTML,
Charlton Athletic
http://www.charlton-athletic.co.uk/,
Chelsea http://www.chelseafc.co.uk,
Coventry City
http://www.ccfc.co.uk/,
Derby County
http://www.dcfc.co.uk/,
Everton http://195.44.47.16/,
Leeds United http://www.lufc.co.uk/,
Leicester City
http://www.lcfc.co.uk/, http://anfi-
eld.merseyworld.com/,
Manchester United
http://www.sky.co.uk/manu/,
Middlesbrough http://mem-
bers.xoom.com/theboro/,
Newcastle United
httpy/www.newcastle-utd.co.uk/nufc/,
Nottingham Forest http://www.nott-
inghamforest.co.uk/, Sheffield Wed-
nesday http://www.swfc.co.uk/,
Southampton
http://www.soton.ac.uk/~saints/,
Tottenham Hotspur
http://www.spurs.co.uk/,
West Ham United
http://www.whufc.co.uk/ og
Wimbledon
http://www.geocities.com/Colosse-
um/Loge/2092/.
•Albert Gunnlaugsson heldur upp á
Everton eins og sjá má á heimasíðu
Evertonklúbbsins á íslandi;
httpy/www.est.is'—albert/everton.ht
ml. Þar beinir hann fréttaþyrstum
beint yfir til Evertonsíðu ytra.
•Arsenal-vinir eiga líka sínar síður,
þar á meðal síðu sem Sævar Helga-
son setti upp fyrir Arsenal-klúbbinn
á Islandi. Ekki hefur reyndar mikið
gerst á þeim bæ frá því síðasta
keppnistímabil hófst en á slóðinni,
http://www.est.is/~gunner/, er sitt-
hvað að finna.
•Vinsælasta knattspyrnulið heims
er víst Manchester Únited. Það á
sér einnig aðdááendur hér á landi,
þar á meðal Rúnar Hauk Ingimars-
son, sem byrjaði á heimasíðu helg-
aðri liðinu á síðasta ári. Á slóðinni
http://artemis.centrum.is/—runar-
hi/frame_mu.htm má sjá að síðan er
enn rétt tilbúin undir tréverk og
óljóst hvort lokið verði við verkið á
þessu ári.
•Liverpool á sér fjölmarga aðdá-
endur hér á landi eins og góð heima-
síða Liverpool aðdáendaklúbbsins
ber vitni um. Þar er að finna gríðar-
legt magn upplýsinga, en stjómandi
hennar, Jón Geir Sigurbjörnsson,
hefur aftur á móti ekki bætt neinu á
síðuna síðan 1996.
MAGNÚS Bjömsson heldur úti vef-
síðunni Gleðitíðindunum á slóðinni
http://www.exodus.com/ og fékk Son-
verðlaunin fyrir skemmstu fyrir vef-
inn, útlit hans og innihald. Hann seg-
ir að vefurinn hafi verið um tvö ár í
smíðum og fyrst farið á netið í apríl
árið 1995. Magnús segist hafa góðan
tíma til að vinna að honum og lag-
færa, „ég er 72 ára, þá hefur maður
tíma“, segir hann.
Gleðitíðindin eru trúarlegur vef-
ur en Magnús segir að þegar hann
hafi fyrst tengst netinu hafi honum
fundist sem skýr skilaboð kæmu til
hans um þetta verk og þann mögu-
leika sem þar væri falinn „til að ná til
margra með orð Ritningarinnar og
nota hið ritaða orð Drottins eins og
það er í Biblíunni sjálfri og láta orðið
skýra sig sem mest án íhlutunar og
útskýringa kennimanna. Það var
bara einn hængur á þessu, ég kunni
ekkert í vefsíðugerð. Ég sá auglýst
námskeið í vefsíðugerð og fékk þar
fyrstu kynni af tækninni. En leið-
beinandinn hafði fljótlega orð á því
eftir að hann kynntist námshæfni
minni að árangurs væri varla að
vænta. Það fór líka svo að árangur-
inn lét á sér standa.
Svo ég fór að leita aðstoðar ann-
aiTa manna ef þeir vildu hjálpa mér
af stað. Ég fann velvdjaða menn sem
gjarna vildu hjálpa mér með þetta
ákveðna verk þ.e. Gleðitíðindin en
þeir bara forfölluðust, einn veiktist,
annar varð að fá frí frá vinnu og taka
að sér heimilið og börnin þar sem
konan hans varð að leggjast inn á
sjúkrahús.
Þegar hér var komið minntist ég
þess að þegar ég íyrst var tengdur
netinu voru hjá mér tveir ungir
menn til að aðstoða mig að rétt væri
tengt. Svo þegar samband var komið
á var fyrst leitað að kristilegu efni.
Það kom þægilega á óvart hve mikið
var af kristilegu efni á netinu, þó var
þar á þeim tíma ekkert af kristileg-
um toga á íslensku.
Fyrsta síðan sem opnuð var heitir
„Bethany" og þar var boðið upp á
orð dagsins. Og svo vildi til að bent
var nákvæmlega á sömu ritninga-
staði og ég hafði verið að lesa fyrir
þessa vini mína. Ég tók því ekki sem
tilviljun. Nú skildi ég að mér var ætl-
að að vinna það verk sem nú er orðið
að veruleika. Ég bað Guð að fyrir-
gefa mér að ég skyldi ekki snúa mér
strax í bæn til hans og fela honum
alla mína vegu í þessu sem öðru því
hann mun vel fyrir sjá samkvæmt
hans fyrirheiti. Þannig byrjaði þessi
vefsíðugerð mín og mun halda áfram
í skjóli vængja hans. Ég var kominn
á rétt „námskeið" og mér var gefinn
skilningur sem ekki var til staðar hjá
mér áður,“ segir Magnús og bætfr
við að Biblían sé trúlega fyrst bóka
sem sett sé fram þannig að hún sé,
vegna kaflaskipta sem var gerð af
Stephen Langton árið 1228 og versa-
skipta gert af Robert Stephanus árið
1560, raunverulega í tölvutæku
formi.
Magnús segist vinna vef sinn á
FrontPage sem hafi auðveldað hon-
um verulega alla vinnu til vefsíðu-
gerðar. í dag notar hann FrontPage
98.
Eins og gefur að skilja er ekki
mikið upp úr því að hafa að reka vef-
síðu einn síns liðs, í það minnsta
auðgast menn ekki af veraldlegum
auði. Magnús svarar því til að ver-
aldlegur auður hafi skammtímagengi
og sé raunverulega skammtímasjón-
armið, „en gengi andlegs auðs er ei-
líft og sá auður varir að eilífu. Ég hef
uppörvast af því hve margir koma
við á vef Gleðitíðindanna og hve
margir íslendingar sem dvelja og
eða eru búsettir erlendis koma við á
vef Gleðitíðindanna.“
Magnús segist leggja áherslu á að
vera sífellt að uppfæra vefinn og
koma með eitthvað nýtt með stuttu
millibili. „Ég hef verið með tilbúið
nýtt útlit fyrir Gleðitíðindin. En nú
þegar vefurinn fékk SonAward við-
urkenninguna, fór ég í bið með
breytinguna en er að vinna betur að
henni. Viðurkenningin setur mig í þá
stöðu að ég þarf að vanda vel til og
standa mig með Guðs hjálp. Og hann
mun vel fyrir sjá.“
Afkasta-
met IBM
Á HEIMASLÓÐ IBM,
http://www.s390.ibm.com/stor
ies/1998/1000mips_pr.html,
má lesa að nýjar stórtölvur
fyi’irtækisins slái öll afkasta-
met með nýrri gerð örgjörva.
Tölvur með nýja örgjörvan-
um, sem ber heitið S/390 G5,
skilar 1.040 MIPS með Parall-
el Syssplex uppsetningu, en
MIPS stendur fyrfr milljón
aðgerðir á sekúndu. G5-tölv-
urnar eru svar IBM við
harðnandi samkeppni á stór-
tölvumarkaði og með henni
segjast IBM-menn hafa náð
að minnsta kosti árs forskoti á
helstu keppinauta sína. Þær
koma í stað G4-gerða IBM
S/390 tölva, en afköst í þeim
voini um 440 MIPS.
Örgjörvinn í tölvunni bygg-
ist á CMOS-tækni og er 500
MHz CISC með yfir 25 millj-
ón smárum. Minnisband-
breidd kerfisins er 16 GB á
sekúndu og L2 biðminni er 8
MB í flögum með 60 milljón
smárum, en þessi minnishög-
un skiptir miklu máli í hraða
tölvunnar að því er segir í
fréttatilkynningu IBM.
Svindl og svínarí
MEÐAL HELSTU kosta Netsins er hversu það auð-
veldar samskipti manna á milli sem er einn helsti
galli þess um leið. Flestir sem hafa verið á Netinu
einhvern tíma kannast við ruslpóst þar sem reynt er
að véla þá til að taka þátt í söfnunum, keðjubréfum
og stofnun fyrirtækja eða gefínn kostur á að fá
„ókeypis" gjafír, svo fátt eitt sé talið. Bréfasending-
ar af þessu tagi kosta viðtakanda fyrirhöfn og fé,
enda þarf hann að sækja póstinn og borga fyrir
tengitímann, en þeir eru líka fjölmargir sem ganga í
vatnið og tapa fé.
Bandaríska viðskiptaráðuneytið, FTC, hefur sent
frá sér lista yfir tólf helstu brellur sem óprúttnir
grípa til á Netinu. Islenskir netnotendur hafa sjálf-
sagt margir fengið slikan póst, ekki síst ef þeir hafa
keypt eitthvað á Netinu eða skrá sig á póstlista þó
margt á honum eigi ekki við hér. Listann má finna á
slóðinni http://www.ftc.gov/opa/9807/dozen.htm en
helstu atriði á honum eru sem hér segir:
Viðskiptabrellur Margar brellurnar byggjast á því
að viðtakanda er boðið að leggja Iítilræði í fyrirtæki
og fá mikið fyrir.
Fé fyrir tölvupóst Viðtakanda býðst að kaupa net-
fangalista og viðeigandi hugbúnað sem auðveldi
honum að féfletta aðra. Flestir slíkir netfangalistar
eru úreltir og gallaðir, aukinheldur sem Qöldapóst-
sendingar eru almennt bannaðar.
Keðjubréf Með reglulegu millibili ganga keðjubréf
þar sem fólki er boðið að senda fé eftir lista og fá
margfalt til baka. Slik fjárplógsstarfsemi er ólögleg
hvort sem er í Net- eða mannheimum.
Heimavinna I tölvupósti berst viðkomandi kostaboð
um arðbæra heimavinnu, gegn skráningargjaldi eða
kaupum á því sem til þarf. Engin dæmi eru um að
slík heimavinna gefi nokkuð af sér.
Heilsubrellur í tölvupósti berast upplýsingar um ný
undralyf sem ýmist byggjast á nýjum uppgötvunum
eða ævagömlum sannleik. Líkt og tíðkast almennt í
þjóðfélaginu vitna menn um undraverða lækn-
ingu/megrun og „frægir“ vfsindamenn staðfesta
uppgötvunina.
Fundið fé Viðtakanda gefst „einstakur kostur“ á að
taka þátt í „löglegum" viðskiptum sem gefa tugmillj-
ónir í aðra hönd. Fólk er sífellt að falla fyrir slíku á
Netinu og utan þess, en ef það væri eins auðvelt og
menn vilja vera láta væri ekki þverfótað fyrir millj-
arðamæringum.
Ókeypis gjafir Iðulega er fólki boðið að þiggja
ókeypis gjafir, til að mynda tölvur eða langlínusíma-
kort fyrir smávægilegt skráningargjald. Þegar á
reynir þarf að gera ýmsar hundakúnstir til að fá
gjöfina, eins og borga meira eða smala fleiri fórnar-
lömbum í rúningu.
Frumlegar fjárfestingar Sá sem sendir bréfið, gjarn-
an „virtur“ ráðgjafi eða verðbréfarefur býðst til að
margfalda fé í löglegum fjárfestingum. Algengt er
að þeir sendi falsaðar eða villandi upplýsingar um
viðkomandi fyrirtæki til að villa um fyrir fórnar-
lambinu.
Lán og greiðslukort Oftsinnis berast tilboð um að út-
vega viðkomandi greiðslukort án tryggingar eða lán
án veðskuldbindinga.
Vanskilalistahreinsun Algengt er að fyrirtæki bjóð-
ist til að koma viðkomandi út af vanskilalistum gegn
greiðslu, sem er í raun ógerningur.
Verðlaunaferðir á spottprís Verðlaunaferðirnar, sem
gjarnan eru sagðar verðlaun fyrir eitt eða annað og
kallaðar „lúxusferðir“ eru í raun ódýrar ferðir og
spottprísinn oftar en ekki hærra verð en á almenn-
um markaði.
Rannsakaðu hvarf þeirra
Mulders og Scully
FBI -fulltrúarnir, Mulder og Scully,
hverfa á dularfullan hátt við
rannsóknarstörf. Þér er falið að
komast til botns í málinu en áður
en þú veist af ertu dreginn inn í
óhugnarlega atburðarrás.
Stórleikur á 7 geisladiskum. Hér
ert þú í aðalhlutverki ásamt
leikurum þáttanna.