Morgunblaðið - 23.08.1998, Side 2

Morgunblaðið - 23.08.1998, Side 2
2 B SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ GLIMT við grænlenska rifskafla. nonuró köldum klaka Ijk AR sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarð- Wj neskt, en jörðin fær hlut- V deild í himninum, þar búa ^ ekki framar neinar sorgir og þess vegna er gleðin ekki nauð- synleg, þar ríkir fegurðin ein, of- ar hverri kröfu.“ Þessi orð Halldórs Kiljans Laxness virðast eiga einna best við ætli maður að lýsa þeim til- fínningum sem ferð á jökul eða yfir jökul vekur manni. Þó að þau segi þeim sem heima sitja kannski fátt um hvað þar virkilega á sér stað, endur- vekja þau með ferðalanginum heim jökulsins og nánast hvert einasta smáatriði ferðarinnar rennur Ijóslif- andi fyrir hugskotsjónum manns. Það var í lok apríl að við stöllur lögðum upp í leiðangur á vegum ís- lenskra fjallaleiðsögumanna hvers takmark var að ganga yfir Græn- landsjökul. Við vorum orðnar óþreyjufullar að komast af stað því flestar höfðum við tekið ákvörðun um þátttöku í för þessari fyrir margt löngu. Vorum líka farnar að lýjast á þeim neikvæðu viðbrögðum sem við hlutum í leit okkar að styrktaraðil- um, vildum sumsé bara komast af stað og byrja þetta ævintýri. Ekki aftur snúið Ferðin yfir til Grænlands gekk klakklaust og komumst við og allt okkar hafurtask yfir til Tasilaq laug- ardaginn 25. apríl, vógum á tímabili salt því ekki var með öllu ljóst hvort við gætum haldið för okkar áfram strax daginn eftir því sunnudagur frídagur og flugvöllurinn lokaður þar í bæ. En gæfan var okkur hliðholl og við komumst í þyrlunni upp á Hahn- jökul upp úr hádegi á sunnudag og þá stóð maður frammi fyrir því að ferðin væri virkilega hafín, héðan af yrði ekki aftur snúið, leiðin til Rómar lægi í vestur. En það var svosem ekki ætt beint af stað því fyrst var að koma röð og reglu á farangurinn og skipta niður sameiginlegum búnaði; mat, elds- neyti, tjöldum. Það var ekki laust við að spennings gætti þegar við tókum svo til við að raða öllu á púlkurnar og ýmsir höfðu með sjálfum sér efa- semdir um það hvort þetta kæmist virkilega allt saman fyrir og ef við RjlT.jUT.T.n WHKÍJtT íCíliJKWLANLV v|uinM iMtailfliy Kuírti I laVí RiQit! jpnl tfjwriiasuúq jtaJlúp Uíl Uppi I laffr rÍTx'i i H Jfi J pil iJUtlltX;*' svo tókum á fundum við ekki fyrir þessum 75/80 kílógrömmum sem hver leiðangiu-smaður hafði í eftir- dragi, en gengum á vit jökulsins í einhverri barnslegri gleði og eftir- væntingu og drukkum í okkur sjón- deildarhringinn að hálfu kringdan fjöllum sem í bláma sínum brutu upp hvítu snjóbreiðunnar. Loksins vorum við komnar á þessa miklu snæbreiðu, sjálfan Grænlands- jökul, stað sem ekki er í alfaraleið og þó að vissulega hefðu konur gengið þessa leið sem fyrirhuguð var, vorum við fyrstu íslensku konurnai- til að takast á við þennan stærsta jökul á norðurhveli jai-ðar. Staðreynd sem var í senn uppörvandi og skemmtileg því það er jú alltaf gaman ef manni finnst maður sé að brjóta blað í sög- unni eða marka einhver tímamót á hvaða sviði sem er. Er það vonandi að íslenskum konum verði þetta hvatn- ing til að láta nú ekki bara karlmenn- ina um landvinninga á þessu sviði. Jökullinn skartaði sínu fegursta Og jökullinn virtist kunna þessari heimsókn okkar vel, skartaði sínu fegursta fyrstu dagana í sól og blíðu þannig að manni þótti nóg um og sá mest eftir að hafa fengið sér nær- fatnað jafn svartan og raun bar vitni, hitinn virtist margfaldast í ull- VERIÐ að afferma þyrluna áður en lagt er á jökulinn. Vinsæl leið LEIÐ okkar lá frá Sermiliqfirði yfir til Kangerlussuaq með við- komu í kaldastríðsstöðinni Dye2, u.þ.b. 600 km. Er þetta nú til dags býsna vinsæl leið að glíma við og eru árlega allt að tíu hóp- ar sem leggja jökul undir fót þótt ekki komist kannski allir á leið- arenda. Leið þessi var fyrst farin af Bretunum Rymill og Hampton árið 1931 íþeim tilgangi að kanna hæð jökulsins vegna fyrir- hugaðrar flugleiðar frá London til vesturstrandar Ameríku. Áhugi manna á leyndardómum jökulsins hafði þó vaknað strax á 18. öld og var talið að inni á hjarnbreiðunni væru vinjar og jafnvel að um eyjasvæði væri að ræða líkt og í nyrsta hluta Kanada. Segir þó ekki af skipulegum leiðöngrum inn á jökulinn fyrr en 1870 er sænski land- og jarð- fræðingurinn Nordenskjöld hélt í júlimánuði með 30 daga birgðir inn á þessi ókönnuðu lönd og sneri við eftir 56 km. Hann lagði svo aftur upp 1883 og komst þá 117 km inn á hjarnbreiðuna og tveir Samar í föruneyti hans, sem héldu áfram með léttan búnað, komust 200 km betur. Niðurstaða þessa leiðangurs var m.a. sú að engar sprungur væru á jöklinum er innar dró. Sama ár fóru þeir Peary og Maigard ferð inn á Græniandsjökul og komust 170 km. Lfkt og Nordenskjöld drógu þeir sleða sína sjálfir og hug- kvæmdist Peary það snjallræði að beisla vindinn með því að spenna tjalddúk á sleðana. Það var svo árið 1888 að Frið- þjófur Nansen lagði upp í leið- angur sem komst heilu og höldnu yfir jökulinn. Byggði hann á reynslu forvera sinna og lét sér- smiða sleða sem voru m.a. reyrð- ir saman en ekki negldir, hafði meðferðis segl og gengu leiðang- ursmenn á skíðum. Hann brá einnig á það ráð að leggja upp frá austurströndinni og ganga vestur jökul, en fyrri leiðangrar höfðu lagt upp frá vesturströnd- inni. Hugðist hann leggja upp frá Sermiliqfirði en vegna rekíss sem leiðangursmenn lentu í komust þeir á jökul talsvert sunnar. Jökulganga þeirra stóð 40 daga og er þeir komu af jökli brugðu þeir á það ráð að smíða bát úr sleðum og seglum og róa til Nuuk. Það var svo á árunum 1912-13 að fyrsti íslendingurinn fór yfir Grænlandsjökul, var það Vigfús Sigurðsson landpóstur með meiru. Var hann meðlimur í dönskum leiðangri undir stjórn J.P. Koch og höfðu þeir vetur- setu í Dronning Louise Land áð- ur en lagt var yfir jökul. I leið- angri þessum voru auk Vigfúsar bæði fslenski hundurinn Glói og íslenskir hestar er draga skyldu sleðana yfir jökul. Má lesa um þetta í bókum eftir þá Vigfús og Koch. Fyrsti alíslenski Ieiðangurinn yfir Grænlandsjökul var svo leið- angur þeirra feðga Ólafs og Har- alds ásamt Ingþóri Bjarnasyni, sem lagði af stað frá þorpinu Isortoq innst í Sermiliqfirði í apr- íl 1993. Árið 1996 lagði Einar Torfi Finnsson í för með fransk- ítölsku pari sem hófst á Hahnjökli í Sermiliqfirði, hvar við stöllur, ásamt Einari Torfa, byijuðum líka okkar göngu nú í apríl 1998. inni og á göngu var manni að jafnaði allt of heitt, varð hugsað til öllu létt- ari fatnaðar sem ekki var við hönd- ina, ætti enda heima á öllu ólíkari stöðum. Maður gerir jú oftar ráð fyrir kulda og trekki í ferð sem þessari og það kom líka á daginn að þessir sólskinsdagar í byrjun ferðar voru líkt og lognið á undan storminum. Stormi sem kom þó ekki fyrr en eft- ir mikið púl og puð enda fór hann að snjóa linnulaust þannig að umvafin flosmjúkri úrkomu sem rændi mann öllu fjarlægðar- og rýmdarskyni skiptumst við á um að troða braut í nýsnævið sem þyrlaðist um kálfa og hné. Ekki urðu dagleiðir okkar langar við slíkar aðstæður og það var eins og veröldin minnkaði öll, fór úr þessu ægistóra í hið agnarsmáa. Það var á engan hátt hægt að gera sér grein fyrir því hvar maður var eða hvert maður stefndi þegar mað- ur sá þetta einn til tvo metra fram fyrir sig og oftar en ekki voru fram- hlutar skíðanna á kafi í snjó og þar með glötuð sú kjölfesta sem ávallt má reiða sig á í ferðum sem þessum, skíðin eru jú það sem maður hvílir augun á þegar búið er að horfa yfir sig á víðemi snævarins. Þrælast gegnum púðursnjóinn Umluktur þessari snædrífu var fátt annað til bragðs að taka en að þrælast í gegnum púðursnjóinn og biðja þess hátt sem í hljóði að hann færi nú að blása duglega svo hagur okkar vænkaðist. Vindinum yrði ekki skotaskuld úr að þyrla upp þessu púðri og blása því veg allrar veraldar og þar með yrði leiðin greið eða alltént greiðari því það er tvennt ólíkt yfirferðin í þessu færi og þegar vindurinn hefur sorfið yf- irborðið í rifskafla og skaföldur sem eru allajafna fastari undir fót. Og dag nokkum hlutu bænir okkar náð fyrir eyrum veðurguðanna og við lögðum vongóð af stað í stinnings- golu sem herti eftir því sem á leið og fyrr en varði var snjórinn tekinn að fjúka um í þokkalegasta lága- renningi. Þegar við stoppuðum í hádeg- ispásu var með engu móti hægt að njóta harðfiskbitans, sitjandi á púlkunni, því þótt við snérum baki í vindinn þá virtist hann hafa ein- stakt lag á að þyrlast um þar sem maður átti þess síst von svo ekki varð það langt stopp. Það er kúnst að smyrja hrökkbrauð á hnjám sér hvað þá þegar maður er með vett- linga og utanyfirvettlinga að auki og getur ekki einu sinni setið. Við gleyptum því í okkur nokkrar kex- kökur og marsípan og héldum áfram. Og enn bætti hann í sig blessaður vindurinn, þyrlaðist langt yfir höfð- um okkar svo skíðagleraugu komu nú að góðum notum og úlpur vora renndar og reimaðar eins og kostur var svo kuldaboli næði nú hvergi tangarhaldi á manni þar sem þram- mað var áfram á ská upp í vindinn og horft á snjóinn liðast um fæt- urna. Það var ekki laust við að manni liði eins og maður stæði í miðju stórfljóti sem æddi áfram og virtist engan endi ætla að taka því bakkinn hinumegin var ekki einu sinni í augsýn. Þá var loks dreginn upp vindmælirinn góði og þegar hann sýndi að við áttum í baráttu við 7 vindstig var ákveðið að láta staðar numið og hefjast handa við að undirbúa það að koma sér fyrir, það yrði ekki auðveldara ef hann herti enn vindinn og ef hann lægði þá gerði það ekkert til. Barist við vindinn Við hófumst handa við að byggja skjólgarða sem gegndu því hlutverki að beina vindinum framhjá tjöldun- um. Þannig varð bæði auðveldara að koma þeim upp og eins gat maður legið við inni í þeim nokkurn veginn áhyggjulaus færi svo að maður þyrfti að láta þar fyrirberast um einhvern tíma. Hann blés býsna hressilega og bætti enn í sig meðan á framkvæmd- um okkar stóð og vii-tist eins og vindurinn syrfi jafnóðum af snjó- hnullungunum sem við bárum í vegginn. Vildi ekki betur til en svo að hluti annars veggjarins hrundi og varð þetta þannig öllu tímafrekara verkefni en við áttum að venjast. Sjá bls. 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.