Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 4

Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 4
4 B FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ VERÐUM ALLTAF AÐ STANDA OKKUR BEST Margir urðu undrandi þegar Tryggvi Jónsson hjá KPMG endurskoðun ákvað að söðla um og gerast aðstoðarforstjóri Baugs hf. I samtali við Þórodd Bjarnason segir hann frá nýja starfinu og viðskilnaðinum við það gamla. Morgunblaðið/Jim Smart TRYGGVI Jónsson, aðstoðarforstjóri Baugs hf. TRYGGVI Jónsson, að- stoðarforstjóri eins stærsta fyrirtækis landsins, Baugs hf., sameinaðs félags Ný- kaups, Hagkaups og Bónuss, segir að íyrsta hugsun sín þegar honum var boðið starf aðstoðarforstjóra fé- lagsins fyrr á þessu ári, hafi verið „demba sér út í laugina". Tryggvi var einn eigenda stærstu endur- skoðunarskrifstofu landsins, KPMG endurskoðun, og hafði starfað þar í 20 ár. Fyrirfram hafði hann ekki hugsað sér til hreyfings. Tryggvi átti hlut í KPMG endur- skoðun og hefur nú selt hann og af- skiptum hans af fyrirtækinu lauk formlega hinn 31. ágúst sl. Tryggvi er 43 ára gamall, giftur og faðir þriggja stúlkna, tveggja, níu og ellefu ára gamalla. „Hjá KPMG endurskoðun var ég að vinna að mörgum spennandi verkefnum og það hafði ekki hvarfl- að að mér að hætta að vinna þar. Þegar þessi staða kemur síðan upp ákveð ég hins vegar eftir vandlega íhugun að láta slag standa. Þetta er nú bara eitt líf sem við lifum og það var nú eða ekki að breyta til,“ segir Tryggvi. Erum liðsheild „Mín fyrsta hugsun var að ég skyldi láta slag standa og oft er sagt að fyrsta tilfmning við ákvarðana- töku sé í 80% tilfella rétt. Ég trúi því að svo hafi verið í þessu máli og eftir því sem tíminn leið varð ég sannfærðari og sannfærðari um að ég væri að gera rétt.“ Tryggvi segir að allflestir sem þekki hann hafí orðið mjög undr- andi þegar hann ákvað að söðla um. Margir hafa sjálfsagt líka furðað sig á því að Tryggvi skyldi sætta sig við að setjast í stól aðstoðarforstjóra eftir mikla velgengni hjá sínu eigin fyrirtæki. Það atriði segir hann litlu máli skipta, enda vinni hann og for- stjóri saman sem heild. „Forstjórinn, Jón Ásgeir, er einn allra hæfasti smásöluverslunarmað- ur hér á landi og það er engin spurning að fyrirtækið nýtur þess best að hafa hann við stjórnvölinn. Við erum hins vegar með mjög að- greind verksvið og sjálfstæði beggja er mikið. Þó að annar sé for- stjóri en hinn aðstoðarforstjóri er- um við fyrst og fremst liðsheild, styrkjum hvor annan og vinnum vel saman. Mér fmnst nýja starfíð ögrandi og mér fínnst geysilega spennandi að koma inn í eitt stærsta fyrirtæki landsins og reyna að gera hlutina þar öðruvísi en áður hefur verið gert,“ segir Tryggvi. Hann segir t.d. möguleika í samnýtingu fjármagns í sameinuðu fyrii’tæki, sem er að velta 20 millj- örðum, séu miklir og hagkvæmara sé að hafa allt undir einum hatti en að vera með fyrirtækin hvert í sinni skúffu, eins og hann orðar það. „Það þarf t.d. ekki miklar breytingar á vaxtakjörum til að ná tugum millj- óna í aukinn hagnað," segir Tryggvi. Nokkur dæmi eru um það að for- stjóramennska endurskoðenda í fyrirtækjum sé ekki alltaf happa- drjúg. Tryggvi segist kannast við þau dæmi en segir að það sé ekki al- gilt. „Það er með endurskoðendur eins og aðra að þeim gengur misvel í sínum störfum og það má finna dæmi um hvort tveggja. Það eru mun fleiri dæmi um endurskoðend- ur sem hefur gengið mjög vel í starfí. Ég held að það séu engin tengsl þarna á milli.“ Þríþætt starfssvið í viðtali í Morgunblaðinu í síðustu viku sagði Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs hf., að fjármála- stjórn hefði skort hjá fyrirtækinu. „Það sem Jón átti við þar var að það var enginn til að hugsa um heildina þó í hverju fyrirtækjanna fyrir sig væru afbragðs fjármála- stjórar. Það sem ég var að víkja að áðan er að með því að hafa allt und- ir einum hatti getur maður farið að hafa sameiginlega fjármálastjórn," segir Tryggvi. „Mitt starf er hins vegar þríþætt. Umsjón með starfsmannasviði, fjár- málum og aðfangasviði. A starfs- mannasviði og aðfangasviði eru síð- an sérstakir stjómendur í forsvari, en ég hef engan sérstakan annan í fjármálunum og það svið heyrir því beint undir mig.“ Hann segir að mál sem sé ná- tengt fjármálastjórninni sé t.d. þró- un bankaþjónustu í búðunum. „Fólk vill klára sín mál frá a-ö á einum stað. Hefðbundnar banka- stofnanir eru að breytast í þjón- ustuborð þar sem fólk leitar m.a. eftir ráðgjöf en hin almennu banka- viðskipti eiga mjög mikla samleið með verslunarfyrirtæki. Bæði með greiðslukort, sem við erum að und- irbúa, og svo með innlán og aðra greiðslumiðlun." Tryggvi segir að þessi þróun sé komin vel á veg í Bretlandi, Banda- ríkjunum og fleiri löndum. Fyrr í sumar var sagt frá því að verslanir á Norðurlöndunum væru farnar að bjóða viðskiptavinum sín- um að leggja peninga inn í verslun- ina og taka síðan vörur út á reikn- ing sinn. Verður þetta hluti af þeirra bankastarfsemi? „Það getur orðið þannig. Þú legg- ur peninga inn á reikning og ert svo með kort á þann reikning. Þá átt þú peninga inni og færð vexti á þá, en þeir vextir yrðu þá gjarnan hærri en annars staðar er boðið. Ef þú notar kreditkortsmöguleikann í kortinu þá borgarðu vexti af því sem þú skuidar. Við stefnum að því að bjóða betri kjör í okkar banka- starfsemi en aðrir gera þannig að fólk sjái sér hag í að koma til okkar. I hvaða formi þessi kjör verða er ekki tímabært að fjalla um en þau munu örugglega falla viðskiptavin- um okkar vel í geð.“ Baugskortin tilbúin fyrir jól Góð reynsla er af útgáfu greiðslu- korta sem notuð eru í Bónus, að sögn Tryggva, og segir hann að nú komi viðskiptavinir í búðirnar sem komu ekki áður. Undirbúningur útgáfu Baugs- kortanna, sem auk debet og kredit möguleika verða vildarpunktakort, er nú í fullum gangi í samvinnu við SPRON. Kortin verða tilbúin nokk- uð fyrir jól, að sögn Trygva. Samstarf Tryggva við fram- kvæmdastjóra hverrar keðju fyrir sig, Hagkaups, Bónuss og Nýkaups, er mikið, en hins vegar er samstarf milli framkvæmdastjóranna þriggja mjög takmarkað. „Þeirra dagskipan er sú að þeir eru í samkeppni við hinar keðjurnar eins og aðra aðila. Skerpan í samkeppninni myndi minnka ef samvinna væri á milli verslananna og þá yrði til pláss fyr- ir nýja aðila á markaðnum. Við- skiptavinurinn á í rauninni ekki að verða þess var að Baugur eigi allar verslanirnar." Hann segir að neytendur séu sér meðvitandi um þetta og treysti því að samkeppni sé hörð. „Neytendur yrðu mjög harðir dómarar ef sam- keppni myndi minnka og verð hækka.“ Á verðbréfaþing í haust Sem endurskoðandi lá verksvið Tryggva ekki síst í ráðgjöf fyrir fyr- irtæki. Nú hefur dæmið snúist við, Tryggvi er í hlutverki þess sem tek- ur ákvarðanir og segist hann sjálfur ekki feiminn við að leita sér ráðgjaf- ar. „Nú kaupi ég þjónustu í stað þess að þjónusta. Ég tel að það sé lykil- atriði fyrir góðan stjórnanda að vera ófeiminn við að leita sér ráða og nýta sér sérþekkingu annarra. Sá sem er feiminn við það mun staðna og einangrast," segir Tiyggvi. Að hans sögn fer mikill tími í það þessa dagana að undh-búa skrán- ingu félagsins á Verðbréfaþing ís- lands, en það mun væntanlega ger- ast í október eða nóvember, að hans sögn. „Við skráninguna breytist um- hverfí okkar enn frekar, en við verð- um, eftir sem áður, alltaf að standa okkur best, hvað sem á dynur." Vöxturinn verður í sérvörunni Tryggvi segir að vaxtarbroddur- inn á næstu árum muni einkum verða í sérvörunni, enda sé það miklu stærra svið en nú má finna í verslunum Baugs. „Það eru margir möguleikar þar. í dag erum við með 18% markaðshlutdeild í sérvörunni. Við teljum að vöxturinn verði eink- um þar, ekki einungis af því við vilj- um auka okkar hlutdeild, heldur teljum við að markaðurinn eigi eftir að vaxa svo mikið í þeim vöruflokki. íslendingar kaupa mun minna af ýmissi sérvöru heldur en margar vestrænar þjóðir. Þeir kaupa færri pör af skóm og minna af snyrtivör- um svo dæmi séu tekin.“ Ef iitið er fram á veginn telur Tryggvi að samkeppnin haldi áfram að vera hörð á næstu árum, enda sé það best fyrir neytendur. „Því mið- ur fyrir suma þá tel ég að „kaup- mönnunum á horninu" muni fækka og verslun muni færast í færri og stærri keðjur til aukinnar hagræð- ingar fyrir alla aðila.“ Mikilvægt er að taka strax á vandanum og greina ástand tölvukerfa með tilliti til alda- mótanna. Hægt er að forða stórtjóni með úr- ræðum í tæka tíð og þá er lykilatriði að velja réttu lausnina. Tæknival býður heildarráðgjöf til fyrir- tækja varðandi 2000 vandamálið. • Verkefnaúttekt • Val á ieiðum til úrbóta • Gerð neyðaráætlunar • Verkefnastjórnun • Eignaskráningahugbúnaðinn Árdísi Á heimasíðu Tæknivals má finna fjölmargt sem tengist 2000 vandanum: s.s. prófunar- rekla, fréttir frá framleiðendum, ýmsar upplýsingar um 2000 vandann, og þær lausnir sem Tæknival býður. HEILDBRLOUSNIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.