Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 6
6 B FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Nokkrar hræringar hafa átt sér stað á fornbókamarkaði undanfarið
Bókavarðan
og Bókin
sameinast
REKSTUR tveggja stærstu fornbóka-
verslana borgarinnar verður sameinaður á
næstunni í kjölfar kaupa Bókavörðunnar
ehf. á Bókinni hf. Kjartan Magnússon
kynnti sér breyttar áherslur og ræddi við
eigendurna Braga Kristjónsson og Ara
Gísla Bragason.
FEÐGARNIR Bragi Kristjónsson og Ari Gísli Bragason eru umsvifa-
miklir á íslenskum fornbókamarkaði.
UM ER að ræða tvær gamalgrónar
fornbókaverslanir sem starfræktar
hafa verið í hjarta Reykjavíkur um
áratugaskeið. Aðdragandi kaupa
Bókavörðunnár á Bókinni var frem-
ur stuttur og er tilgangurinn með
sameiningunni sá að ná fram bætt-
um og hagkvæmari rekstri fyrir-
tækjanna.
Fornbókaverslunin Bókin hf.
hefur verið starfrækt frá árinu
1962. Að undanförnu hefur hún ver-
ið rekin af Gunnari Valdimarssyni
verslunarstjóra og Snæ Jóhann-
essyni, en Stefán Oddur Magnús-
son hefur verið stjórnarformaður
verslunarinnar frá upphafi. Versl-
unin var lengi til húsa að Laugavegi
1 en var síðast við Grundarstíg 2.
Bókavarðan ehf. var stofnuð
1977 af Braga Kristjónssyni bóka-
kaupmanni. Verslunin var fyrst til
húsa við Skólavörðustíg, síðan við
Hverfisgötu, þá við Vatnsstíg, flutt-
ist síðan í Hafnarstræti en hefur
síðastliðin þrjú ár verið við Vestur-
götu 17. Bragi rekur verslunina nú
í samstarfi við son sinn, Ara Gísla
Bragason.
Að sögn Ara Gísla var aðdrag-
andinn að kaupunum
fremur stuttur. Forráða-
menn fyrirtækjanna hitt-
ust í júlí og náðist brátt
samkomulag um kaupin
og sameiningu fyrirtækj-
anna. Kaupverð Bókar-
innar fæst ekki gefið upp.
Ari Gísli segir að tilgangurinn
með sameiningunni sé að ná fram
bættum og hagkvæmari rekstri
fyrirtækjanna í breyttu umhverfi.
„Þróunin á hinum íslenska forn-
bókamarkaði hefur verið svipuð
hérlendis og í öðrum löndum. Með
myndvæðingu frétta og mikilli
aukningu í afþreyingu í myndrænu
fonni, hefur bókin látið verulega
undan síga sem afþreyingarmiðill
fyrir myndböndum, sjónvarpsrás-
um, sólarlandaferðum og ótal
annarri nútímalegri aðréttu í
svokölluðu upplýsingasamfélagi.
En þróunin á hinum íslenska bóka-
markaði er líka afkvæmi breyttrar
bóksölustefnu íslenskra forlaga,
sem gefa út bækur fyrir jólin og
lækka síðan verðið strax eftir ára-
mót á alls konar mörkuðum og upp-
ákomum. Þannig hefur verð ný-
legra bóka lækkað all verulega á
liðnum árum, einkum þar sem
framboð á bókum helst svipað frá
ári til árs, þrátt fyrir minni sölu
margra nýrra bóka.“
Engin venjuleg
verslun
Þegar komið er inn í Bókavörð-
una við Vesturgötu verður maður
þess fljótt áskynja að það er engin
venjuleg verslun því þar inni er
samræðulistin einnig óspart stund-
uð ásamt kaffidrykkju. Margir virð-
ast ekki síður koma við í þeim til-
gangi að ræða um menningu og
listir eða bara daginn og veginn.
Eftir heimsókn þangað
finnst manni Bókavarðan
vera menningarsetur
ekki síður en verslun.
Bókavarðan hefur um
árabil gefið út bóksölu-
skrár, sem sendar eru til
tvö þúsund áskrifenda hérlendis og
erlendis nokkrum sinnum á ári. Að
sögn þeirra feðga hefur sala til út-
landa verið mjög vaxandi þáttur í
starfseminni á síðustu árum og er
ætlunin að auka hana enn frekar.
„Til að auka þjónustuna við við-
skiptavini hefur Bókavarðan nú
opnað heimasíðu á alnetinu og þar
er hægt að nálgast upplýsingar úr
bókaskrám og beina til okkar fyrir-
spurnum um einstakar bækur.
Ekki hefur enn verið ráðist í að
skrá hvern einasta bókatitil á Net-
ið enda skipta þeir tugum þúsunda.
Grúskarar verða því enn um sinn
að heimsækja verslunina og leita í
sjálfum bókaskápunum.“
Bókin við
góða heilsu
Bragi segir að gamla bókin lifi enn
nokkuð góðu lífi þrátt fyrir rask í
þjóðfélaginu og breyttar áherslur í
menningarneyslu. „Fjöldi einstak-
linga og stofnana leita til fornbóka-
verslana vegna áhuga á tilteknum
bókum í fræðum og skáldskap.
Ýmsir safnarar bóka af yngri kyn-
slóðum hafa komið sér upp falleg-
um söfnum fágætra bóka á seinni
árum. Markvisst grúsk þúsunda
einstaklinga fer fram í fornbóka-
verslunum eins og þessari, sem
selja gamlar og nýlegar bækur.“
Fornbókaverslanir eru alþjóð-
legt fyrirbrigði og hafa áunnið sér
fastan sess erlendis, ekki síður en í
Reykjavík. Víða um heim teljast
fombókaverslanir til menningar-
setra og eru margar þeirra heims-
þekktar. T.d. má nefna Foyle’s og
Maggs Brothers í Lundúnum, The
Raven Bookshop í New
York, Lynges Antikvari-
at í Kaupmannahöfn,
Thulin og Ohlsson í
Stokkhólmi og eru sumar
þeirra nokkurra alda
gamlar. Hérlendis hóf
Sigfús Eymundsson bóksali og ljós-
myndari að selja gamlar bækur á
síðari hluta nítjándu aldar og síðan
hafa fornbókaverslanir verið starf-
ræktar í Reykjavík og nú einnig á
Akureyri og Egilsstöðum.
Bragi rifjar upp hvernig bóka-
söfnun hefur fylgt Islendingum
gegnum aldirnar. Gömlu biskup-
arnir voru helstu safnarar fyrri
alda en einna þekktastur er Árni
Magnússon, sem safnaði bókum og
handritum og flutti til Kaupmanna-
hafnar. „Á þessari öld hafa margir
þekktir menn komið upp merkileg-
um einkabókasöfnum. Benedikt
Þórarinsson kaupmaður var mikill
safnari en hann gaf Háskólanum
safn sitt árið 1936 og myndar það
nú sérstakt safn í núverandi Þjóð-
arbókhlöðu.. Þorsteinn Þorsteins-
son, sýslumaður og alþingismaður,
eignaðist mikið og fágætt bókasafn,
einkum eldri bækur frá gömlu ís-
lensku prentstöðunum, en nú er
það í eigu íslensku þjóðkirkjunnar
og hýst í Skálholti. Þorsteinn M.
Jónsson, alþingismaður og bókaút-
gefandi, átti eitt merkasta safn ald-
arinnar en það er nú í Stofnun Árna
Magnússonar á Islandi, Handrita-
stofnun. Þorsteinn Jósepsson,
blaðamaður og rithöfundur, aflaði
ótrúlegs fágæts safns ferðabóka og
bóka um Island, sem við fráfall
hans dreifðist til safna og einstak-
linga. Páll bókavörður Jónsson átti
eitt fegursta og vandaðasta bóka-
safn samtímans, einkum í skáld-
skap og fögrurn listum, og var það
gefið til Bókasafnsins í Borgarnesi.
Torfi Hjartarson, fyrrverandi toll-
stjóri, eignaðist mikið safn og fá-
gætt, einkum undirstöðurit í ís-
lenskum fræðum, textaútgáfur og
skyld rit. Séra Ragnar Fjalar Lár-
usson, prestur í Hallgrímssókn,
hefur á síðari árum eignast ótrálegt
safn bóka frá hinum gömlu, ís-
lensku prentstöðum."
Mörg önnur íslensk bókasöfn
hafa orðið þekkt, m.a. safn Davíðs
Stefánssonar frá Fagraskógi, Þórð-
ar Bjömssonar ríkissaksóknara,
Haralds Sigurðssonar bókavarðar,
Friðjóns Skarphéðinssonar ráð-
herra, Sigurðar Líndals lagapró-
fessors og ótal aðrir hafa eignast
minnileg bókasöfn að sögn Braga.
Bókaverð
afstætt
Hluti af starfsemi fyrirtækisins
er mat á bókum og bókasöfnum
fyrir einstaklinga, fyrirtæki og
stofnanir. Hefur sá þáttur farið
vaxandi í starfseminni á undan-
förnum árum. Verð bóka getur ver-
ið afstætt og segja þeir feðgar að
oft viti fólk ekki hvaða verðmæti
það hafi í höndunum þegar það
finni gamlar bækur. Á sama hátt
telji fólk sig stundum hafa mikil
verðmæti í höndunum er
það finnur gamlar bæk-
ur og tímarit sem fari
síðan ekki fyrir háar
upphæðh- á almennum
markaði. „Umsýsla gam-
alla og nýlegi-a bóka er
ótrúlega fjölbreytt og þarfir við-
skiptavinarins eru margbreytileg-
ar. Með sameiningu Bókarinnar hf.
og Bókavörðunnar ehf. munum við
auka úrvalið og vonumst þannig til
að geta þjónað viðskiptavinum enn
betur en áður,“ segja feðgarnir og
bókakaupmennirnir Bragi Krist-
jónsson og Ari Gísli Bragason að
lokum.
Tilgangurinn
að ná fram
hagkvæmari
rekstri
Hafa nýiega
opnað
heimasíðu á
Netinu
Taktu flugið
sameina alla þessa kosti og gott betur
Fljúgðu hærra mað IBM ThinkPad.
Skaftahlíö 24 • Simi 569 77DD
http://www.nyherji.is