Morgunblaðið - 03.09.1998, Qupperneq 8
8 B FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Sífellt fleiri atvinnurekendur kaupa sér sérfræðiþjónustu kynningarfyrir-
tækja í markaðs- og upplýsingamálum
FJÁRFEST ÍÍMYND
STJÓRNENDUR í
atvinnurekstri leita
í auknum mæli eftir
sérfræðiráðgj öf
kynningarfyrir-
tækia.
Fyrirtæki, bæði á íslandi og erlendis, hafa und-
anfarin ár lagt æ ríkari áherslu á að fá utanað-
komandi sérfræðiaðstoð við kynningar- og fjöl-
miðlaumfjöllun. Elmar Gíslason kynnti sér þróun
mála og ræddi við sérfræðinga hér á landi um
hvaða ástæður liggja að baki auknum umsvifum
kynningarfyrirtækja og hvar við stöndum í sam-
anburði við nágrannalöndin.
Inýlegri grein í
evrópska fjár-
málablaðinu
Wall Street Jo-
urnal er fjallað
um þróun þessara
mála í Svíþjóð á liðn-
um mánuðum. Þar
kemur fram að gífur-
leg aukning hefur orð-
ið á stærð og umfangi
slíkra kynningaríyrir-
tækja bæði þar í landi
og á Norðurlöndunum
almennt.
Ástæðurnar íýrir
þessu eru sagðar Jón Hákon
margvíslegar. Bent er Magnússon
á að fjölmiðlum hafi
fjölgað og áhrif þeirra
vaxið. Þá hefur það
færst í vöxt að einka-
fyrirtæki sæki um
skráningu á markaði
með tilheyrandi hluta-
fjárútboðum og fjölg-
un hluthafa. Almennir
hluthafar sem ekki
koma að daglegum
rekstri þeirra fyrir-
tækja sem þeir hafa
fjárfest í gera miklar
kröfur um skilvirkar
og ítarlegar upplýs-
ingar um afkomu og
þeirri þörf hafa fjöl- Valþór
miðlar mætt með auk- Hlöðversson
inni áherslu á viðskiptaíréttir.
í umfjöllun Wall Street Journal
er tekið dæmi af
sænska raforkuíyrir-
tækinu Vattenfall AB,
sem hleypti af stað
nýrri þjónustuleið í
maí sl. I stað þess að
kynna nýjungarnar
með einfalclri hefð-
bundinni fréttatil-
kynningu fór félagið
ótroðnar slóðir og
fékk til liðs við sig ut-
anaðkomandi sérfræð-
inga í almannatengsl-
um sem skipulögðu
fjölmiðlakynningu á
þeim nýjungum sem
verið var að kynna.
Sjónvarpsstöðvar og
dagblöð fengu afhent
kennslu- og kynning-
armyndband um nýju
þjónustuna, forsvars-
mönnum fyrirtækisins
var ráðlagt að gefa sér
ríflegan.tíma í
alla fjöl-
miðlaum- ' a., ® ;
fjöllun um
málið auk þess
sem verkefninu var
gefið grípandi slagorð,
„smart electricity", til
að auðvelda markaðs-
setningu. Kynningar-
herferðin, sem kostaði
um 5 milljónir ís-
lenskra króna, þótti heppnast vel.
Vattenfall fékk fréttaumfjöllun hjá
fjölmörgum dagblöðum og sjón-
varpsstöðvum daginn eftir, nokkuð
sem menn áttu ekki að venjast frá
þeim tímum sem slíkir atburðir
voru einfaldlega afgi-eiddir með
einni fréttatilkynningu.
Þessar miklu breytingar sem
orðið hafa í markaðssetningu
fyrirtækja eru taldar eiga
sér nokkrar skýringar. Bent
er á að fjölmörgum opinber-
um iyrirtækjum hafi verið
breytt í hlutafélög með það
fyrir augum að einkavæða
þau í framtíðinni og skrá þau
á markaði. Sú þróun virðist
nokkuð almenn á Norður-
löndum og reyndar víðar.
Með breyttu eignarhaldi og
auknum markaðsumsvifum
sem skráning hlutafélaga á
markaði leiðir til eykst öll við-
skiptaumfjöllun fjölmiðla því
fjárfestar, sem eru fleiri en áður,
gera eðlilega kröfu um viðunandi
arð af þeim fyiirtækjum sem þeir
eiga hlutafé í. Upplýsingaþörfin
verður því að sama skapi meiri en
áður þegar mörg stór fyrirtæki
voru alfarið í eigu ríkisins.
Það gefur því augaleið að góð
kynning og fréttir geta haft áhrif á
verðmyndun hlutabréfa sem gerir
það að verkum að fyrirtæki verja
meiri tíma og fé í að tryggja að
þau skilaboð sem
þau vilja koma á
framfæri berist
til sem flestra á
þann hátt sem þau
telja æskilegt.
Starfsemin lýtur
að fleiri þáttum
íslenskur markaður hefur ekki
farið varhluta af þessari þróun.
Valþór Hlöðversson, fram-
kvæmdastjóri kynningarfyrirtæk-
isins Athygli, ségir engan vafa
leika á að þessi vettvangur hafi
vaxið mikið hér á landi síðustu ár.
Bæði leiti æ fleiri aðilar eftir slíkri
þjónustu auk þess sem meira beri
á sömu viðskiptavinunum aftur og
aftur sem telja þessa fjárfestingu
skila sér: „Aður fyrr var algengt
að kynningarmál væru á ábyrgð
einhverra aðila innan fyrirtækja,
s.s. framkvæmdastjóra, sem
sinntu þeim samhliða daglegum
störfum. Það er hins vegar reynsla
okkar að slík verkefni séu betur
komin í höndum utanaðkomandi
aðila sem sérhæfa sig í þess konar
vinnu. Þannig er hægt að vinna
markvisst að uppbyggingu og
framsetningu einstakra mála-
flokka til fjölmiðla og sjá til þess
að þeim sé fylgt eftir á viðeigandi
hátt. Eins vitum við að sum mál
vekja meiri athygli fjölmiðla en
önnur og þar reynum við einnig: að
ráðleggja mönnum hvernig best er
hægt að koma skilaboðum á fram-
færi svo tekið sé eftii-. Munurinn á
þessum markaði hér á landi og er-
lendis er hins vegar sá að sökum
smæðar íslensks samfélags og við-
skiptalífs getum við ekki leyft okk-
ur að sinna eingöngu ráðgjöf í al-
mannatengslum líkt og þekkist
víða í nágrannalöndunum, heldur
lýtur okkar starfsemi að fleiri
þáttum. Segja má að við sjáum að
auki um alhliða dreifingu upplýs:
inga og útgáfuþjónustu almennt. í
því felst að auk hefðbundinnar
ráðgjafar tökum við að okkur út-
gáfu upplýsingabæklinga og
íréttabréfa, umsjón með kynning-
arherferðum o.s.frv."
u:
*
II
Kínversk sendinefnd ræðir viðskipti við
íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
Grundvöllur við-
skipta kannaður
KÍNVERSK sendinefnd frá Tianj-
in-borg er nú stödd hér á landi og
heimsækir sjávarútvegsfyrirtæki
til að kanna möguleika á viðskipt-
um, einnig verður kannaður
grundvöllur fyrir samvinnu um
nýtingu jarðvarma og forseti ís-
lands tekur á móti hópnum.
í gær heimsótti nefndin m.a. ís-
lenskar sjávarúfurðir og Nýsi ehf.
í dag verður farið til Nesjavalla og
Þorlákshafnar. A morgun mun
nefndin hitta fulltrúa frá utanríkis-
ráðuneytinu og forseti íslands,
heira Ólafur Ragnar Grímsson,
tekur á móti henni á Bessastöðum.
Nefndin á einnig eftir að heim-
sækja Marel, Samherja, Harald
Böðvarsson og fleiri fyrirtæki og
fulltrúar frá Utgerðarfélagi Akur-
eyringa munu eiga með þeim fund.
Nefndarmenn sem eru ellefu tals-
ins eru fulltrúar bæði fyrirtækja
og yfirvalda Tianjin-borgar, þeir
komu til landsins i fyrradag og
verða til áttunda september.
Samvinna
um nýtingu
jarðvarma
Tilgangur nefndarinnar er að
stofna til viðskipta við íslensk fyr-
irtæki á sviði sjávarútvegs og auka
samvinnu þjóðanna um nýtingu
jarðvarma. Ahugi er fyrir því að
gera um það sérstakan samning
við Reykjavíkurborg, að sögn Arn-
ar Óskarssonar frá Samleið ehf.,
sem skipuleggur ferðina í sam-
starfi við Euro Technology Ltd
Aps í Kaupmannahöfn.
Örn Óskarsson hefur staðið að
kynningu íslensks sjávarútvegs í
Kína í nokkur ár og segist hafa
lagt áherslu á að íslensk þjóð lifí á
hátækni sjávarútvegi. Kínverjarn-
ir hafi áhuga á að kaupa sjávaraf-
urðir og svo íslenskan hátækni-
Morgunblaðið/Halldór
KÍNVERSKA sendinefndin ásamt Erni Óskarssyni og Steingrími Þorbjarnarsyni túlk á leið til fundar við
fulltrúa Islenskra sjávarafurða í gær.
búnað sem notaður er við veiðar
og vinnslu.
Fjögurra manna sendinefnd
kom í apríl síðastliðnum og átti
fundi með ýmsum fyrirtækjum til
að undirbúa komu nefndarinnar
sem nú er hér. Að sögn Arnar er
svo von á annarri sendinefnd frá
Tianjin strax í lok þessa mánaðar
til að halda áfram samningavið-
ræðum þar sem samstarfsgrand-
völlur hafi reynst fyrir hendi.