Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
Ragnar og
samherjar mega
ekki gifta sig
SVIINN Kenneth Rosén, þjálfari norska
liðsins Bryne, hefur tilkynnt að leikmenn sínir
megi hér eftir ekki gifta sig meðan á
keppnistímabili stendur. Þeir verði að velja
annan tíma til þess.
Þrír leikmenn liðsins hafa gift sig á þessu
tímabili og allir valið að ganga upp að
altarinu einum degi fyrir leik. Rosén segir að
giftingin trufli auðvitað mjög einbeitingu
Ieikmanna. „Nú er nóg komið í bili og
leikmenn geta valið sér brúðkaupsdag utan
keppnistimabilsins," segir Rosén.
Einn íslenskur leikmaður er í liði Bryne,
Ragnar Arnason sem lék áður með
Sljörnunni.
Á fullri
ferð
LANDSLIÐSMENN íslands í
knattspyrnu vom kampakátir á
æfingu á Laugardalsvelli í gær.
Þeir reyndu m.a. með sér í sprett-
hlaupum og er Birkir Kristinsson
markvörður fremstur í flokki.
Hermann Hreiðarsson kemur
næstur en þeir Steinar Adolfsson,
Rúnar Kristinsson, Tryggvi Guð-
mundsson, Sigurður Örn Jónsson,
Sverrir Sverrisson, Árni Gautur
Arason og Ólafur Örn Bjarnason
fylgja í humátt á eftir. Liðið býr
sig undir Evrópulandsleik við
Frakka sem verður á Laugardals-
velli á laugardag. Á sama tíma og
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálf-
ari, stjórnaði fyrstu æfingunni fyr-
ir leikinn í Reykjavík, var Roger
Lemerre að stjórna æfingu hjá
Frökkum í rigningu í Claire-
fontaine í Frakklandi. Frakkar
koma til landsins á morgun.
Morgunblaðið/Golli
Adams gagnrýnir Hoddle
Reuters
ÞAÐ fór vel á með þeim Glenn Hoddle og Tony Adams á
landsliðsæfingu í Burnham í gær.
GLENN Hoddle, landsliðsþjálf-
ari Englendinga, er gagnrýnd-
ur nokkuð af Tony Adams, fyrirliða
Arsehal, í bók sem hann sendir frá
sér í næstu viku. Kaflar úr bókinni
hafa verið birtir í dagblaðinu Sun.
Adams gagnrýnir Hoddle m.a. fyr-
ir að hafa hvatt Paul Gascoigne til
að drekka áfengi daginn áður en
hann tilkynnti endanlegt lið fyrir
HM í Frakklandi. Eins og kunnugt
er hefur Gascoigne átt við drykkju-
vanda að etja og því heimskulegt af
Hoddle að hvetja hann til drykkju.
Hann gagnrýnir þjálfarann fyrir
að velja Alan Shearer sem fyi-irliða
og taka hann fram yfír sig. Adams
hefur verið fyrirliði Arsenal í tíu ár
og stýrt liðinu innan vallar m.a. til
meistara þrisvar sinnum. Hann
hafi því reynslu til að gegna þessu
hlutverki sem fyrirliði landsliðsins.
Þá segir hann í bókinni að
Hoddle hafi auðmýkt David Beck-
ham fyiár framan alla leikmenn
landsliðsins á æfingu meðan á HM
stóð. Liðið var að æfa aukaspyrnur
og þegar Beckham mistókst skot
öski’aði Hoddle að hann væri ein-
faldlega ekki nægilega góður til að
framkvæma aukaspyrnur.
Adams fer einnig jákvæðum orð-
um um störf Hoddles í bókinni, en
þau ummæli eru ekki bh’t í „Sun“.
Talsmenn enska knattspyrnusam-
bandsins segja að það megi ekki
taka þetta of bókstaflega því mörg
þessara ummæla í „Sun“ séu slitin
úr samhengi.
Bók Adams kemur í kjölfar bók-
ai' landsliðsþjálfarans, „The 1998
World Cup Story“. Hoddle segir að
þó svo að Adams hafi ýmislegt við
störf sín að athuga komi það ekki
til með að bitna á vali hans í lands-
liðið. Þeh’ hafa rætt saman og það
er ekkert illt á milli þeirra. ,Adams
hefur rétt tfi að segja sína mein-
ingu eins og hver annar,“ segir
Hoddle.
Englendingar leika á laugai’dag-
inn fyrsta leik sinn í undankeppni
EM og mæta þá Svíum. Adams er í
enska leikmannahópnum.
Adams tjáði sig í gær um blaða-
skrif um bókina og sagði að hann
hafi ekki haft í hyggju að særa
Hoddle í bók sinni. „Eg ber mikla
vh’ðingu fyrh- honum. Þegar rætt
er um knattspyrnu, verður hann
frábær félagi. Bókin var nokkuð
sem ég þurft að senda frá mér, til
að segja frá ýmsu sem á daga mina
hafa drifið. I henni er einnig farið
lofsamlegum orðum um Hoddle, en
það er greinilegt að menn hafi mest
áhuga að segja frá neikvæðu hlið-
unum,“ sagði Adams.
ALÞJÓÐARALLIÐ: „EKKERT ELSKU MAMMA NÚNA!“ / C2, C3