Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
FH-ingar lögðu Blika og
skutust í annað sætið
FH-ingar eru komnir í annað sæti 1. deildar eftir 2:0-sigur á
Breiðabliki, efsta liði deildarinnar, á Kópavogsvelli í gærkvöldi,
en Blikar þurfa enn eitt stig til að gulltryggja þátttökurétt sinn í
efstu deild að ári. Guðmundur Sævarsson gerði bæði mörk Hafn-
firðinga í síðari hálfleik.
Fyrri hálfleikurinn var mjög róleg-
ur. FH-ingar áttu eina merkilega
færið, en það var skot Jóns Gunnars
Gunnarssonar á 40. mínútu, sem fór í
hliðamet Blikamarksins. Eldmóðinn
virtist vanta í leikmenn, sérstaklega
leikmenn Kópavogsliðsins. Þeir voru
meira með boltann, leituðu of mikið
inn á miðjuna og voru of lengi að
koma boltanum frá sér til samherja.
Gestimir áttu því ekki í teljandi
vandræðum með að brjóta sóknar-
lotur þeirra grænu á bak aftur.
Sjálfír áttu FH-ingar nokkra
spretti, aðallega upp hægri kantinn
þai- sem Guðmundur markaskorari
Sævarsson var að verki. FH-ingar
voru þó of fámennir fremst og send-
ingarnar ekki nógu nákvæmar.
Baráttugleði leikmanna jókst í síð-
ari hálfeik. Guðmundur kom gestun-
um yfir er þrjár mínútur vora liðnai-
af honum. Það gerði hann með við-
stöðulausu skoti eftir að Sveinbjöm
Allansson, markvörður Breiðabliks,
náði að teygja sig aftur og slá bolt-
ann frá marki þegar fyrirgjöf Davíðs
Jónssonar breytti óvænt um stefnu
af vamarmanni.
Blikar fengu tvö tækifæri til að
jafna metin. Sigurður Grétai-sson
þjálfari átti gott skot að marki, sem
Daði Lárasson varði og Bjarki Pét-
ursson skaut yfir úr opnu færi eftir
fyrirgjöf. Guðmundur gerði síðara
markið fyrir FH á 69. mínútu af
stuttu færi eftir undirbúning Jóns
Gunnars. Við það drógu FH-ingar
sig aftar á völlinn og beittu þeir
snörpum skyndisóknum, sem hefðu
hæglega getað fært þeim þriðja
markið. Bjargað var á markh'nu eftir
að Guðmundur hafði leikið laglega á
tvo Blika og Brynjar Gestsson skall-
aði rétt yfir markið.
Pétur Ormslev, þjálfari FH, var
ánægður efth' mikilvægan sigm', en
sagði lið sitt oft hafa leikið betur.
„Nú verðum við að vinna báða leik-
ina sem við eigum eftir til þess að
eiga möguleika. Blikarnir eru nærri
því öruggir með að komast upp og
voru ef til vill með daufara móti í
dag. Vitaskuld var ég þó smeykur
fyrir leikinn, en við stóðumst álagið
og náðum að skora og bæta öðra
marki við. Við áttum heldur ekki í
teljandi erfiðleikum með vai'narleik-
inn og mér finnst úrslitin sanngjörn
þegar á heildina er litið,“ sagði Pét-
ur.
Maður leiksins:
Guðmundur Sævarsson, FH.
ÚRSLIT
Knattspyma
1. deild karla
Breiðablik - FH..............0:2
- Guðmundur Sævarsson (48., 69.).
Fj. leikja U J T Mörk Stig
BREIÐABLIK 16 12 0 4 31:13 36
FH 16 9 2 5 27:14 29
VÍKINGUR 15 8 4 3 25:15 28
FYLKIR 15 8 3 4 27:20 27
KA 15 6 3 6 17:21 21
SKALLAGR. 15 5 5 5 28:28 20
STJARNAN 15 5 5 5 15:17 20
KVA 14 5 3 6 16:19 18
ÞÓARAk. 15 2 2 11 14:28 8
HK 14 1 1 12 16:41 4
Vináttulandsleikir
Malta - Þýskaland ...................1:2
Joe Brincat (26.) - Darren Debono (6. -
sjálfsm.), Stephan Passlack (72.). 5.000.
Nis, Júgóslaviu:
Júgóslavía - Sviss...................1:1
Dejan Stankovic (51.) - David Sesa (58.).
15.000.
Búkarest, Rúmeníu:
Rúmenía - Liechtenstein..............7:0
Gheorghe Popescu (18.), Catalin Munteanu
(30.), Adrian Ilie 3 (32., 45., 51.), Viorel
Moldovan (56.), Modestus Haas (60. -
sjálfsm.). 6.000.
England
1. deild:
Manchester City - Walsall ........3:1
Belgía
Harelbeke - Beveren...............1:1
Lierse - Kortrijk.................5:1
Eenendrecht - Ekeren .............5:0
Lokeren - Charleroi ..............3:1
Standard Liege - Ghent ...........2:0
Sint Truiden - Club Bruges........1:1
Lommel - Westerlo.................0:1
Morgunblaðið/Golli
GUÐMUNDUR Sævarsson gerði bæði mörk FH-inga í sigri á Breiðabliki, efsta liði 1. deildar, í gær-
kvöldi. Hér skorar hann síðara markið eftir fyrirgjöf frá Jóni Gunnari Gunnarssyni.
ÍR með tvö
lið í 1. deild
HANDKNATTLEIKUR
Handknattleiks-
menn á ferðina
ÍR-ingar verða með tvö lið 1.
deild í bikarkeppni FRÍ næsta
ár. B-lið þeirra varð í öðru sæti
í 2. deild um helgina og vann
sér þar með rétt til að keppa í
1. deild ásamt Breiðabliki. Það
verður þá í fyrsta skipti í sögu
keppninnar seip tvö lið eru frá
sama félagi. Önnur lið í deild-
inni eru FH, HSK, LÍMSS, Ár-
mann og UMSE/UFA. UMSB
féll niður í 2. deild, en þar fyrir
er aðeins eitt, iið - Afturelding.
Uppi eru raddir um að breyta
fyrirkomulagi bikarkeppniunar
* næsta ár, en það kemur í ljós á
næsta ársþingi FRI.
UMSK sendi ekki lið í 2. deild
að þessu sinni, en aftur á móti
kepptu tvö félög innan sam-
bandsins undir eigin merkjum -
Breiðablik og Afturelding.
Opna Reykjavíkurmótið í hand-
knattleik hefst í kvöld. Leikið
verður á þremur stöðum - í Graf-
arvogi, Austurbergi og Seljaskóla
föstudag, laugardag og sunnudag.
Urslitaleikirnir fara fram í Austur-
bergi á sunnudag - kl. 19 hjá kon-
um og kl. 21 hjá körlum.
Riðlaskiptingin er þannig í
karlaflokki, leikið verður í Selja-
skóla og Austurbergi.
A-riðilI: Fram, FH, Selfoss, Fjöln-
ir.
B-riðiIl. Valur, Stjarnan, Þór, ÍR b.
C-riðill: Afturelding, ÍR a, Breiða-
blik, KR-Grótta.
D-riðill: KA, ÍBV, HK, Hörður.
Tveir riðlar eru í kvennaflokki,
en leikið er í Grafarvogi:
A-riðill: Haukar, Valur, KR-
Grótta, FH, ÍR.
B-riðill: Stjaman, ÍBV, Víkingur,
Fram.
Sigurvegarar mótsins fá 170 þús.
kr. í verðlaun, lið í öðru sæti 57
þús. og lið í þriðja sæti 25 þús. kr.
■ Leikir / C2
EEK golfrnót cí ISÍesvelli
Laugardaginn 5. sept. verður LEK golfmót á Nesvelli.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Karlar 55 ára og eldri með og án forgjafar.
Karlar 50-54 ára með forgjöf + besta skor.
Flokkur 70 ára og eldri með forgjöf (rauðir teigar).
Konur 50 ára og eldri með forgjöf + besta skor.
A flokkur forgjöf 0-20 - B flokkur forgjöf 21-36.
Nándarverðlaun fyrir karla og konur á par 3 holum.
Golfferð til írlands með Samvinnuferðum-Landsýn
verður dregin úr skorskortum í mótslok.
Þátttökugjald kr. 1.500.
Skráning í síma 561 1930
Golfmót Víkings
Afmælismót Víkings í golfi verður
haldið sunnudaginn 6. sept. nk. á Oddfellowvellinum
við Urriðavatn. Ræst verður út kl. 13:00.
Fjöldi glæsilegra vinninga
Víkingai' fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skráning í Víkinni s. 581 3245, hjá Emi s. 897 9247
og 553 2899, hjá Atla s. 892 4814.
Fulltrúaráðið.
Firmakeppni Golfklúbbsins Keilis verður haldin
laugardaginn 5. september nk.
Ræst verður út frá kl. 9:00.
Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni með frullri forgjöf,
þó að hámarki 1 punktur á holu.
Tveir keppa saman fyrir hvert fyrirtæki og telur betri bolti.
Verðlaun fyrir þrjtí fyrstu sœtin er 25.000þús. kr.
gjafabréf fyrir hvom keþþanda uþþ í utanlandsferð.
Fyrirtæki sem ætla að taka þátt í firmakeppni Keilis em vinsamlegast beðin
að tilkynna þátttöku í síma 565 3360 fyrir kl. 13:00 föstudaginn 4. september.
Innifalið í mótsgjaldi er léttur málsverður að keþþni lokinni.