Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
Pétur Marteinsson gefur
kost á sér í landsliðið þrátt
fyrir nárameiðsl
Kemur í Ijós
hvort ég spila
Landsliðshópurinn
Morgunblaðið/Golli
PÉTUR Marteinsson og Lárus Orri Sigurðsson, sem eiga hér í höggi við einn frönsku sóknarmannanna í landsleiknum á
dögunum. í dag kemur væntanlega í Ijós hvort Pétur getur leikið landsleikina tvo sem framundan eru vegna meiðsla.
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Norrköping................53
Árni Gautur Arason, Rosenborg..................1
Aðrir leikmenn:
Rúnar Kristinsson, Lilleström.................68
Sigurður Jónsson, Dundee Utd..................57
Arnar B. Gunnlaugsson, Bolton.................25
Þórður Guðjónsson, Genk ......................24
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke..................22
Helgi Sigurðsson, Stabæk .....................21
Ríkharður Daðason, Viking ....................18
Hermann Hreiðarsson, Brentford................15
Brynjar Björn Gunnarsson, Moss................12
Sverrir Sverrisson, Malmö FF ..................9
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö ...................8
Helgi Kolviðsson, Mainz .......................8
Steinar Adolfsson, ÍA..........................7
Pétur H. Marteinsson, Hammarby.................7
Stefán Þór Þórðarson, Brann ...................3
Auðun Helgason, Viking ........................2
fltargtmÞfafeft
1998
MIDVIKUDAGUR 7. OKTOBER
BLAD
„ÞETTA voru sömu nárameiðsiin og voru að htjá
mig í síðasta leik og ég geri mér ekki grein fyrir
liversu alvarleg þau eru,“ sagði Pétur Marteins-
son, leikmaður með Hammarby í Svíþjéð, en hann
lék aðeins fyrstu 35 mfnútunar gegn Gautaborg á
mánudagskvöld. „Ég kem heim á morgun [í dagj
og fæ þá íslenska sérfræðinga til þess að skoða
mig og leggja dóm á þessi meiðsi. Eftir það verður
bara að koma í ljós hvort ég get verið með í lands-
leikjunum tveimur sem framundan eru eða ekki.“
Landsliðshópurinn sem mætir Armeníu og Rúss-
landi var valinn í gær.
Pétur sagðist hafa tekið
nokkurra daga hlé frá æfing-
um eftir að meiðslin komu upp
fyrir rúmri viku, en æfði síðan
I wjr T á laugardag og sunnudag og
| ekkert fundið fyrir meiðslum.
„Það er bara allt annað að æfa
en að leika. Strax í fyrsta
spretti í leiknum við Gautaborg
fann ég fyrir meiðslunum og
var því ekki að taka áhættu og
bað um skiptingu. Framundan
eru fjórir síðustu leikirnir i
deildinni auk landsleikja og því
borgaði sig ekki að tefla á tvær
hættur.“
Hammarby er í efsta sæti
sænsku úrvalsdeildarinnar og
hefur verið það undanfamar
vikur, en deildarkeppninni lýk-
ur snemma í nóvember.
Hammarby á eftir að leika við
Halmstad og Malmö á lieima-
velli og Vestra-Frölunda og
Örebro á útivelli. „Það er gríð-
arleg speniia í deildinni, sem er
mjögjöfn, ogþað lið sem hefur
bestu stemmninguna verður
meistari."
HANDKNATTLEIKUR / KONUR
Landsliðið í ævintýra
ferð til lyrklands
Tómas Ingi
og Baldur
til AGF
DANSKA blaðið Jyllands-Posten
segir frá því að tveir íslenskir leik-
menn séu að koma til æfinga hjá úr-
valsdeildarliðinu AGF, sem Olafur
H. Kristjánsson leikur með. Það eru
Tómas Ingi Tómasson, miðherji
Þróttar Reykjavík og Baldur
Bragason, miðvallarspilari Leifturs.
Blaðið segii- að þjálfarinn, Peter
Rudbæk, hafi hug á að stækka leik-
mannahóp sinn. Rudbæk segir að
lið AGF sé ungt og þegar ekki sé
hægt að styrkja það með dönskum
leikmönnum, sé sjálfsagt að leita út
fyrir Danmörku.
Kvennalandsliðið í handknatt-
leik tekur þátt í sterku sex
þjóða móti í Tyrklandi 14. til 18.
október. Tyrkir halda mótið í til-
efni 75 ára lýðveldi Tyrklands og
fer mótið fram í borginni Diyar-
bakir við Tígrisfljótið, en borgin
er á svæðum Kúrda við Sýrland.
Þetta er sannkölluð ævintýraferð
fyrir stúlkurnar í landsliðinu.
Auk landsliðs Tyrklands taka
lið frá íslandi, Króatíu, Portúgal,
Hollandi og Austurríki þátt í mót-
inu.
Landsliðshópurinn heldur til
Tyrklands á mánudaginn og verð-
ur ferð liðsins erfið - komið verð-
ur til Diyarbakir á þriðjudag, með
viðkomu í London, Istanbúl og
Ankara.
Sex stúlkur sem leika með lið-
um í Noregi, Danmörku og Þýska-
landi verða í landsliðshópnum.
Það eru þær Hrafnhildur Skúla-
dóttir og Helga Torfadóttir, sem
leika með Bryne í Noregi, Heiða
Erlingsdóttir, sem leikur með
HSG Albstadt í Þýskalandi,
Brynja Steinsen, sem leikur með
Minden í Þýskalandi, Fanney
Rúnarsdóttir, sem leikur með
Tertnes í Noregi og Ágústa Edda
Bjömsdóttir, sem leikur með Ribe
í Danmörku.
Theódór Guðfinnsson, þjálfari
kvennalandsliðsins, mun tilkynna
landsliðshóp sinn á morgun, en þá
kemur það saman til æfinga.
■ Ferðakort / C3
KNATTSPYRNA: BRIAN LAUDRUP HELDUR UPPI HEIÐRI FJÖLSKYLDUNNAR / C4