Morgunblaðið - 07.10.1998, Side 4
Bríans
KNATTSPYRNA
Danski landsliðsmaðurinn Brian Laudrup heldur uppi heiðri fjölskyldunnar
Eftir Bjöm
Inga
Hrafnsson
Hann er aðeins þrítugur að
aldri en hefur samt sem áður
náð að leika með nokkrum af
stærstu knattspyrnuliðum Evr-
ópu. Faðir hans þótti frábær
afreksmaður á sinni tíð og
eldri bróðir hans er einnig
goðsögn í lifanda lífi. Hann er
danskur, heitir Brian Laudrup
og gekk til liðs við Lundúnalið-
ið Chelsea nú í sumar.
rian Laudrup er hlédrægur
'maður sem fremur tjáir sig á
knattspymuvellinum en í fjölmiðl-
um. Þannig hefur
hann eftir megni
reynt að forðast
kastljós fjölmiðl-
anna, en seint verður
þó sagt að brotthvarf hans á vor-
mánuðum frá skoska stórliðinu
Rangers í Glasgow hafi gengið
átakalaust fyrir sig.
í Skotlandi hafði hann leikið um
þriggja ára skeið og átt einna
stærstan þátt í meistaratitli félags-
ins tvö fyrstu árin, m.a. verið út-
nefndur leikmaður ársins. Samning-
ur hans vai- að renna út og honum
frjálst að yfirgefa herbúðir liðsins
án nokkurra eftirmála. Reyndin
varð þó ekki svo einfold og í hönd
fór erfiður tími; enska stórliðið
Chelsea undir stjóm Hollendings-
ins Ruuds Gullits bar víumar í Dan-
ann snjalla og hið sama gerðu hol-
lensku meistaramir í Ajax, en með
þeim leikur einmitt eldri bróðir
hans, Michael. Bæði lið töldu sig
eiga góða möguleika, ekki síst hol-
lenska liðið sem kvaðst hafa munn-
legt samþykki leikmannsins. Hjá
Chelsea var staðan öllu óljósari -
Gianluca Vialli, leikmaður liðsins,
hafði milligöngu um fund með
Laudrup í umboði félagsins, sem á
sama tíma stóð fyrir uppsögn
Gullits og óvæntum samningi við
Vialli um stöðu knattspyrnustjóra í
kjölfarið. Inn í þau
leiðindamál bland-
aðist Brian og stóm
orðin vora síst
spörað. Ekki bættu
fullyrðingar Ajax úr
skák og loks kastaði
tólfunum er forráða-
menn Rangers kúventu í afstöðu
sinni og kröfðust hárrar greiðslu
fyrir leikmanninn, sem samkvæmt
samningum átti að vera laus allra
mála.
í kjölfarið fylgdu hártoganir á
laganna bókstaf, menn greindi á um
hvort flutningur leikmanns frá
Skotlandi til Englands heyrði til
innanlands- eða milliríkjaviðskipta.
Loks fóru þó málin að skýrast;
.Chelsea hótaði að draga Rangers
fyrir Evrópudómstólinn og féllu þá
Skotamir frá kröfum sínum. Hið
sama gerðu forráðamenn Ajax eftir
að Brian bað þá afsökunar, á því
sem hann kallaði ótímabærar yfir-
lýsingar, og því var komið grænt
ljós á flutning til Vestur-Lundúna.
Útslagið gerði þó þegar Colin
Hutchison, stjómarmaður í Chel-
sea, mætti á einn samningafundinn,
opnaði skjalatösku sína og tók út
bláa skyrtu liðsins og afhenti hana
Brian. Aftan á henni var ritað Niko-
lai - nafn sonar leikmannsins. Ekki
spillti svo fyrir að launin vora ekk-
ert til að fúlsa við og þar komust
fjölmiðlar í feitt - vikukaup hans er
áætlað á bilinu sex til níu milljónir
íslenskra króna. Ýmsir urðu til að
býsnast yfir svo fáheyrðum launa-
greiðslum og í kjölfarið óx þeim ás-
megin er töldu of mikla aukningu í
fjölda erlendra leikmanna í ensku
knattspymunni.
Það var því ljóst, að hinn hógværi
og allt að því feimni Laudrap naut
óskiptrar athygli hvar sem hann
kom að málum. „Slíkt er mér ekki
að skapi,“ sagði hann í félagsskrá
Chelsea fýrir skemmstu, aðspurður
um fárið í kringum félagaskiptin.
„Eg sem hugðist eitt sinn snúa mér
að tennis eða skák svo mér væri
ekki sífellt líkt við fóður minn eða
bróður og væri ekki alltaf í sviðs-
ljósinu."
Sífelldur samanburður
Það reyndist Brian erfitt að vera í
sífellu líkt við þá frægu feðga, Finn
og Michael. Finn Laudrup, faðir
Brians, var á áram áður sérlega
snjall knattspyrnumaður og mikil
stjama í heimalandinu. Hann var á
sínum tíma fyrirliði danska lands-
liðsins og tók m.a. þátt í þeim fræga
leik, Danmörk - Island, á Idræt-
sparken í Kaupmannahöfn 1967
sem lyktaði 14:2. Eldri soninn,
Michael, þarf vart að kynna, og víst
er að hann bar hróður fjölskyldunn-
ar enn víðar með stórliðum á borð
við Juventus, Barcelona, Real Ma-
drid og síðast Ajax. Síðast gafst
okkur Islendingum tækifæri nú í
sumar til að fylgjast með listfengi
hans og leikni með knöttinn er hann
lék með Dönum á HM í Frakklandi.
Þar lék hann einmitt við hlið yngri
bróður síns, sem smám saman færði
sig úr skugganum og skóp sitt eigið
orðspor sem einn snjallasti leikmað-
ur samtímans.
Brian Laudrup hóf feril sinn hjá
danska liðinu Bröndby og naut þar
jafnan óskiptrar athygli fjölmiðla,
fyrst sökum ættarnafnsins en
seinna vegna eigin verðleika. Hæfi-
leikar hans þóttu nefnilega miklir
og þeir lágu ekki síst í boltameð-
ferðinni sem var einstök. Sá hæfi-
Laudrup
Fæddur:
22. febrúar 1969 í Vínarborg í
Austurríki.
Fcrilb
Bröndby
Bayer Ú.
Bayem M.
Fiorentina 31 leikur - 5 mörk.
AC Milan 9 leikir -1 mark.
G. Rangers 131 leikur - 44 mörk.
68 leikir -18 mörk.
34 leikir - 6 mörk.
44 leikir -11 mörk.
BRIAN Laudrup í baráttu við Jamie Redknapp, leikmann Liverpool.
Skyrtan gerði útslagið
leiki hefur fylgt honum æ síðan.
Frá Bröndby hélt Brian til
Þýskalands, fyrst til Bayer
Uerdingen og síðan til Bayern
Múnchen. Hjá báðum liðum komu
ótvíræðir hæfileikar hans í Ijós og
fræg era þau ummæli stjóra
Leverkusen á sínum tíma, að Brian
væri því miður alltof góður leikmað-
ur fyrir þetta lið. Daninn ungi var
orðinn frábær leikmaður á alþjóð-
legan mælikvarða, vissulega stóð
hann enn í skugga eldri bróður síns,
en leiðin virtist greið og framtíðin
björt. Næsti áfangastaður var í
samræmi við það - Italía.
Vonbrigði og sigur
Brian Laudrap var leikmaður Fi-
orentina frá Flórens keppnistíma-
bilið 1992-3 og komst lítt áleiðis í
ákaflega vamarsinnaðri knatt-
spyrnu heimamanna. Ekki bætti úr
skák að kastljós þarlendra fjölmiðla
hvíldi stöðugt á leikmönnum liðsins
og það átti sem fyrr ekki við pilt.
Hann fluttist því næst um set til
risaliðs AC frá Mflanó og þar var
hið sama uppi á teningnum, Brian
fékk fá tækifæri, enda liðið með
sannkallaða úrvalssveit og náði ekki
nema níu leikjum á leiktíðinni. Það
var því ljóst að framtíðin lá ekki hjá
því félaginu og því var hann seldur
til skosku meistaranna í Glasgow
Rangers. Þetta þótti ekki stórt
skref upp á við, en menn töldu orðið
ljóst að lengra kæmist Brian ekki
og hann myndi aldrei njóta saman-
burðarins við eldri bróðurinn Mich-
ael.
Þar reyndust menn ekki alveg
sannspáir. Vissulega er skoska úr-
valsdeildin ekkert í líkingu við þá
ítölsku, en í Skotlandi naut Brian
þess að vera laus við ágang ítölsku
pressunnar og hann fór aftur að
njóta sín sem knattspyrnumaður.
Hróður hans tók aftur að berast um
Evrópu og áhrif hans á leikstíl liðs-
ins vora augljós. Hann var valinn
leikmaður ársins og vann til allra
mögulegra titla með liðinu og þess
vegna segir hann að tími hafi verið
kominn á breytingar.
„Vissulega era meiri peningar í
ensku knattspymunni en þeirri
skosku og fleiri lið era sterk á al-
þjóðlegan mælikvarða," segir hann.
„Vissulega vora leikirnir erfiðir í
Skotlandi, en samt voru sum lið þar
miklu sterkari en önnur og krafan
hjá okkur snerist um stóra sigra.
Eg er í knattspymu til að vinna til
metorða og við unnum allt sem er í
boði þar. Enska knattspyman hent-
ar mér vel og staðreyndin er sú að
Chelsea hefur ekki unnið meistara-
titilinn síðan 1955. Liðið er Evrópu-
meistari bikarhafa, handhafi deild-
arbikarsins og Meistari meistar-
anna í Evrópu. Hjá liðinu era firna-
sterkir leikmenn víðs vegar að úr
Evrópu og margir þeirra era marg-
faldir sigurvegarar með öðram lið-
um. Fyrir metnaðarfullan leikmann
er vart hægt að hugsa sér það
betra.“
Fast sæti í liðinu?
Fyrstu leikir Chelsea á leiktíðinni
hafa gengið upp og ofan, en ljóst er
að liðið styrkist með hverjum leikn-
um. Eins og venjulega standa þó
deilur um val framkvæmdastjórans
á byrjunarliðinu hverju sinni. Þar
hafa fáir átt öraggt sæti og mann-
valið er geypilegt.
Af því hefur Laudrup sjálfur þeg-
ar þurft að súpa og hann fékk lítið
að spreyta sig í byrjun, en í síðustu
leikjum hefur komið betur í ljós
hvaða hlutverk Laudrup er ætlað að
inna af hendi í liðinu. Spá menn því
nú að leikstíll Chelsea muni einkum
byggjast upp í kringum hann.
Maurice Malpas, íyrrverandi
leikmaður og þjálfari skoska liðsins
Dundee United, hefur reynsluna af
því að leika gegn Brian og hann
spáir honum miklum frama í ensku
knattspyrnunni, enda sé hann
magnaður leikmaður. „Hann getur
sprett skyndilega úr spori og hraða-
breytingamar era magnaðar. Hann
skiptir sífellt um stefnu án þess að
vamarmaðurinn fái við neitt ráðið
og þess vegna verða flest lið að láta
einn vamarmann taka hann úr um-
ferð.
Slíkt gekk stundum í Skotlandi, en
ég sé það ekki ganga upp í ensku
úrvalsdeildinni, því Brian sækir
beint að vamarmönnunum og hefur
alltaf þann möguleika að gefa á
samherja. I Chelsea era þeir ekki
beinlínis af verri gerðinni. Hvernig
sem fer er því alltaf stórhætta á
ferðum," segir hann.
í fjölþjóðlegum leikmannahópi
Chelsea eru margir landsliðsmenn.
Brian Laudrup er þó ekki einn
þeirra, því hann kvaddi landsliðið
með snilldarframmistöðu á HM í
sumar og segist nú vilja einbeita
sér að félagsliðinu og fjölskyldunni.
„Ég hef orðið Evrópumeistari með
danska landsliðinu og það tók öll-
um væntingum fram. Svo vorum
við næstum búnir að slá Brasilíu út
úr fjórðungsúrslitunum á HM og
því kveð ég sáttur.“