Morgunblaðið - 25.10.1998, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.10.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 C 7 Ástandiö er stríö Döðlur eru írökum mikilvægar því úr þeim fð þeir nauðsynleg vítamín. Höll í byggingu í höfuðborginni Bagdad, ætluð forsetanum. LIFIÐ I LANDINU SVO virðist sem vióskiptabann Sameinuðu þjóðanna hafi ekki haft mikil áhrif á stjðmvöld í írak. Opin- ber stefna er óbreytt og engin lík- indi til að forsetinn og fólk hans sé á leiö út í kuldann. Þeir fáu sem fengust til aö ræða málin segja ranghugmyndir Vestur- landabúa um stjórnarfariö í írak miklar; auövitaö ríki ekki lýöræði eins og á Vesturlöndum og per- sónufrelsi sé takmarkaö - allur póstur er til aö mynda opnaður og bréf ritskoðuö, símalínur til útlanda hleraöar og feröafrelsi mjög skert, bæði úr landi og milli svæða innan- lands. Aftur á móti hafi stjórn Ba- ath-flokksins stuólaö að mörgum þjóðþrifamálum eins og heilsu- gæslu og hvers kyns félagslegum velferöarmálum. En fólk skipti sér ekki af stjórnmálum. Reglan sé ein- föld; láti fólk þaö ógert er það ekki beinlínis í vanda statt. Stígi menn hins vegar út af „réttri" braut er voöinn vís; fólk getur þá til dæmis átt von á því aö lenda í fangelsi. Enn er veriö aö byggja hallir fyrir Saddam Hussein í Bagdad. Svo viróist sem fólki finnist eölilegt að hann búi við bestu hugsanlegar aö- stæöur, en að sama skapi eru framkvæmdir af þessu tagi ákveðin ögrun viö Vesturveldin. Stjórnvöld vilja sýna þeim fram á aö þau haldi sínu striki þrátt fyrir allt. Fólk sem rætt var viö í landinu hefur blendn- ar tilfinningar gagnvart þessu; þvf finnst rétt aö standa uppi f hárinu á Vesturlöndum, en er samt sem áöur fráleitt ánægt meö ástandiö. Vill aö hörmungunum Ijúki, en virð- ist samt sem áöur kjósa núverandi ástand frekar en enn eina styrjöld- ina, eftir því sem starfsmenn hjálp- arstofnana skynja. Þeir finna fyrir gremju vegnu stefnu Vesturlanda; þau vilji þreyta þjóöina, jafnvel í því skyni aó stofna til borgarastyrjaldar með þaö að markmiöi aö Saddam veröi komiö frá völdum. Heyrst hef- ur aö vilji Vesturveldin koma hon- um frá eigi þau einfaldlega að sjá um það sjálf. írakar séu ekki tilbún- ir f átök. Sumir landsmanna segja reyndar: Núverandi ástand er Ifka stríö, bara annars eölis. Með refsi- aögeröunum eru stjórnir Vestur- landa í strföi gegn almennum borg- urum í írak. Landið er afar frjósamt, þar er gnægö vatns og stór ræktanleg svæöi þannig aö brauöfæöa mætti milljónir manna. En þrátt fyrir þess- ar aðstæöur eru írakar ekki sjálfum sér nógir í matvælaframleiöslu. Hluti ástæðunnar er sú að áöur fyrr treystu írakar meira á innflutning matvæla frá nágrannaríkjunum en eigin framleiöslu, meö þaö í huga raunar að aöstoöa þau fjárhags- lega. Sú stefna reynist slæm nú, þegar ekkert má flytja til landsins. Vegna viöskiptabanns- ins er skortur á ýmsum tækjum fyr- ir landbúnaöarframleiðslu, fræjum, skordýraeitri ogfleiru, auk þess sem íraka skortir fé til slíkra kauþa. Bifreiöir í landinu eru flestar orönar gamlar og beinlínis hættu- legar, einkum á hraöbrautunum þar sem einmitt er mikiö um umferðar- óhöpp. Flutningabílum á vegum hins opinbera fækkar f umferö og gerir þaó m.a. aö verkum aö rusl er ekki hirt nema annað veifið. Þar af leiöandi fjölgar ýmiskonar nagdýr- um og sjúkdómar breiöast hraöar út fyrir vikiö. Mengun veróur sffellt meira vandamál, bæói vegna út- blásturs lélegra bifreiöa og lélegrar sorphirðu, og algengt aö rusl sé einfaldlega brennt úti á víöavangi. írakar hafa þolaö miklar þjáning- ar síðustu árin og viðhorf þeirra al- mennt oröið neikvæöari og skv. ný- legum heimildum frá Sameinuðu þjóöunum eru 43% landsmanna vannærö. Hnignun og spilling eykst á öllum stigum samfélagsins. Glæpum fjölgar, þjófar bera sig aö í dagsbirtu, lauslæti er sagt orðiö áberandi í öllum stéttum samfé- lagsins og ýmiskonar ósiölegt at- hæfi annað oröið nánast eölilegur hluti af venjulegu Iffi í írak. Fólk er gagnrýnið á þessar breytingar en getur ekki spornaö viö þeim. Þetta þykir hættumerki vegna þess að írakar eru þekktir fyrir aö vera íhaldssamir og mjög siöprúöir. Raforkukerfiö er víöa í lamasessi eftir sprengjuárásir, sem orsakar . meöal annars aö margar vatns- hreinsistöóvar eru óstarfhæfar. Skólp lekur sums staðar inn í neysluvatnsleiöslur og miðað við sýnatöku fyrir skömmu eru 10% alls neysluvatns í Bagdad til að mynda meö öllu óhæf til neyslu. Skólp rennur í miklum mæli út í árnar Tígrís og Efrat, sem hefur stuðlað að útbreiðslu sjúkdóma á borö við taugaveiki og lömunar- veiki. Kólerutilfellum hefur einnig fjölgaö mikiö og berklar, sem nán- ast haföi verið útrýmt fyrir stríð, hafa breiöst ört út upp á síökastið. Ljósmyndari fór á uppboö þar sem teppi voru m.a. til sölu. Skv. íröskum lögum má ekki flytja fom- minjar úr landi og persnesk teppi - þótt glæný séu - og annað vandaö handverk flokkast sem fornminjar þegar um útflutning er aö ræða. Margt fólk úr erlendum sendiráðum var á markaðnum, m.a. æöstu embættismenn sendiráða sumra vestrænna ríkja, og þeir sagöir vera stórtækir við smygl á ýmiss konar vörum úr landi; sérstaklega pers- neskum teppum, en talið er aö þau seljist erlendis á 20 til 30-földu kaupveröi. Fleiri myndir á Netinu www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.