Morgunblaðið - 06.11.1998, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Afmælissýning
Félags íslenskra
landslagsarkitekta
I TILEFNI 20 ára afmælis Félags
íslenskra landslagsarkitekta
(FÍLA) er efnt til sýningar í Tjarn-
arsal Ráðhúss Reykjavíkur dagana
7. - 20. nóvember 1998. Félagið var
stofnað 24. febrúar 1978 og er því
20 ára á þessu ári. Fjörutíu og fimm
ár eru síðan fyrsti íslenski lands-
lagsarkitektinn kom úr námi og hóf
störf hérlendis. Stofnfélagar voru
fimm en félagsmenn eru nú 40 tals-
ins. A þessum tíma hefur byggst
upp íslensk landslagshönnun, sem
tekur mið af sérstæðum skilyrðum
hér á landi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Markmið félagsins era að stuðla
að þróun landslags- og garðbygg-
ingarlistar, vinna að skynsamlegri
landnotkun og þróun byggðar og
tryggja varðveislu náttúru- og
menningarverðmæta. Ennfremur að
gæta hagsmuna félagsmanna og efla
góða samvinnu og kynningu þeirra.
Landslagsarkitektúr er 4-6 ára
háskólanám sem lýkur með BA- eða
mastersnámi í viðurkenndum skól-
um og er lögvemduð starfsgrein hér
á landi. Námið verður að sækja er-
lendis og hafa Islendingar sótt skóla
til Kanada, Noregs, Svíþjóðar, Dan-
merkur, Bretlands, Bandaríkjanna,
Þýskalands og víðar.
Sýningin í tilefni af 20 ára afmæl-
inu spannar nær hálfrar aldar sögu
landslagsarkitektúrs á íslandi og
gefur ágætt yfirlit yfir fjölbreytt
verksvið landslagsarkitekta á sviði
hönnunar og skipulags:
Sýningin verður síðan tengd við
umhverfið með gönguleið um
áhugaverð opin svæði í nágrenni
Ráðhússins. Félagið hefur í sam-
vinnu við Borgarskipulag unnið að
gerð „garðvísis" í þessu skyni og
liggja frumdrög hans frammi á sýn-
ingunni. Gönguleiðin þræðir upp
áhugaverða garða og útivistarsvæði
í Miðborginni þar sem áningarstað-
ir eru gamlir og nýir garðar, stofn-
analóðir og torg. Á sama hátt og
Kvosin er elsti kjarni byggðarinnar,
sem borgin hefur þróast og vaxið
frá, em garðarnir þar elsti hlekkur-
inn í útivistarvef Reykjavíkur. Sum-
ir þessara garða eru frá því fyrir
aldamót og eru því mjög mikilvægir
fyrir garðsöguna og hafa menning-
arsögulegt gildi á landsvísu, segir í
tiikynningunni.
Arlegur jólabasar Hringsins
HRINGURINN heldur sinn árlega
handavinnu- og kökubasar sunnu-
daginn 8. nóvember nk. kl. 13 í
Perlunni.
Þar verða margir fallegir munir
hentugir til jólagjafa og heimabak-
aðar kökur. Jólakort Hringsins
með mynd eftir Louisu Matthías-
dóttur verða einnig seld á basarn-
um. Allur ágóði rennur til Barna-
spftalasjóðs Hringsins.
Hringskonur hafa unnið að
mannúðarmálum í marga áratugi.
Sérstaka rækt hafa þær lagt við
Barnaspftala Hringsins og allan
búnað hans. Áætlað er að heíja
framkvæmdir á byggingu fullkom-
ins og sérhannaðs barnaspítala á
Landspitalalóð nú fyrir áramót en
Hringskonur hafa lofað 100 millj.
kr. til byggingarinnar, segir f
fréttatilkynningu.
Basarmunir eru til sýnis í
glugga Hans Petersen í
Bankastræti. Hringskonur vilja
þakka öllum velunnurum félags-
ins, bæði einstaklingum og fyrir-
tækjum fyrir stuðning og traust
sem félaginu hefur verið sýnt i
gegnum árum, segir ennfremur.
0
Fundaröð Arna Johnsen
alþingismanns á Suðurlandi
Fundir í Aratungu,
Njálsbúð og
Flúðum færðir til
ALMENNIR fundir í Aratungu,
Njálsbúð og Flúðum í 25 funda
röð Árna Johnsen, alþingis-
manns á Suðurlandi, hafa verið
færðir til frá auglýstri dagskrá.
Fundurinn á Flúðum sem átti
að vera mánudaginn 9. nóvem-
ber verður miðvikudaginn 25.
nóvember kl. 21 en ræðumenn
þar verða Sigurgeir Þorgeirs-
son, framkvæmdastjóri Bænda-
samtaka íslands, Hjálmar Jóns-
son alþingismaður og Árni.
Fundur sem vera átti í Ara-
tungu miðvikudaginn 11. nóvem-
ber verður mánudaginn 23.
nóvember kl. 21. Ræðumenn
verða prófessor Sigmundur Guð-
bjarnason, Egill Jónsson alþing-
ismaður og Árni.
Fundur í Njálsbúð sem vera
átti 10. nóvember verður þriðju-
daginn 24. nóvember kl. 21 en
þar verða ræðumenn Friðrik
Sophusson, alþingismaður og
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Árni Johnsen alþingis-
maður.
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1998 59
Taktu þátt í skemmtilegum leik % \L
á mbl.is og þú gætir unnið miða á m
myndina, Maura-bol, Maura-stækk-
unargler og síðast en ekki síst glæsilega
iMac-tölvu frá Aco-Applebúðinni.
Um þessar mundir er
kvikmyndin Maurar (Antz)
frumsýnd. Hún er um margt sérstök en hún er að
öllu leyti unnin með tölvugrafík og sýndarveruleika-
tækni. Margar af skærustu stjörnum Hollywood Ijá
persónum Mauranna (Antz) rödd sína.
Ein ný spurning birtist á dag á mbl.is meðan á leiknum
stendur en hægt verður að svara eldri spurningunum.
Aco •Ajiplebúðin
HASKOLABIO