Morgunblaðið - 12.11.1998, Síða 4
KNATTSPYRNA
Arsenal skellt
á
Hertha lá á
heimavelli
CHELSEA, Manchester United,
Leicester City, Blackburn og
Everton tryggðu sér í gær-
kvöldi sæti í fjórðungsúrslitum
ensku deildarbikarkeppninnar.
Stærstu tíðindin urðu á High-
bury í Lundúnum þar sem
meistarar Arsenal steinlágu
fyrir Chelsea, 0:5. Stórleikur
undanúrslitanna verður viður-
eign Tottenham og Man Utd.
Chelsea þurfti ekki að hafa mikið
fyrir stórsigiinum á Arsenal,
þótt meistaramir hefðu verið sterk-
ari aðilinn í upphafi, með Svíann
Fredrik Ljungberg fremstan í
flokki. Smám saman komust gest-
imir þó inn í leikinn og náðu foryst-
unni úr umdeildri vítaspyrnu
Francks Leboeufs á 34. mínútu.
Skömmu síðai’ munaði minnstu að
Arsenal jafnaði metin, en skot
Stephens Hughes var varið á
marklínu.
Seinni hálfleikur var hins vegar
að mestu í eigu Chelsea. Mistök
austurríska markvarðarins Alex
Manningers urðu til þess að Gi-
anluca Vialli skoraði annað mark
sinna manna án teljandi erfiðleika,
Gustavo Poyet bætti þriðja markinu
við á 64. mínútu eftir glæsilegan
undirbúning Tore Andre Flos og
Vialli jók forystuna í 0:4 með góðu
skoti skömmu síðar. Poyet innsigl-
aði síðan stórsigur Chelsea tíu mín-
útum íyrir leikslok og lokatölumar
því 0:5.
Bæði lið sóttu í varalið sín og
hvíldu marga lykilmenn, einkum
Arsenal. Hollendingurinn Dennis
Bergkamp var í byrjunarliðinu eftir
Qarvem vegna meiðsla, en náði ekki
að setja mark sitt á leikinn. Hjá
Chelsea bar mest á framkvæmda-
stjóranum Vialli, sem var afar ógn-
andi í framlínunni.
Þetta var stærsta tap Arsenal í
þrettán ár, en Everton sigraði 6:1
tímabihð 1985/1986 og þá í Liver-
pool. Á heimavellinum, Highbury,
hefur Arsenal ekki tapað jafn stórt í
73 ár, eða síðan Huddersfield skellti
því í 1. deildinni í febrúar 1925.
Manchester United tefldi fram
gjörbreyttu liði gegn Nottingham
Forest, en náði samt að sigra, 2:1.
Norðmaðurinn Ole Gunnar Sol-
skjær gerði tvö mörk með skömmu
millibili í upphafi seinni hálfleiks, en
Steve Stone minnkaði muninn litlu
síðar. Forest var betra liðið í fyrri
hálfleik en varalið United náði síðan
að stilla saman strengi sína í þeim
síðari og var sigurinn sanngjam.
Lengi vel leit út fyrir að Leeds
ynni sigur í Leicester með skaUa-
marki Harry Kewells, en heima-
menn náðu að skora tvö mörk í blá-
lokin og tryggja sér sigur. Muzzy
Izzet jafnaði á 88. mínútu og Garry
Parker gerði síðan sigurmarkið úr
vítaspymu þegar komið var fram
yfir venjulegan leiktíma.
I Newcastle tóku heimamenn á
móti Blackbum og voru vítaspyrnur
þar í aðalhlutverki. Alan Shearer
kom Neweastle yfir í leiknum en
fyrirliðinn Tim Shenvood jafnaði
metin á 84. mínútu. I framlenging-
unni misnotuðu liðin sína vítaspym-
una hvort, fyrst Alan Shearer og
síðan Jeff Kenna og í vítaspymu-
keppni tókst Blackbum að hafa bet-
ur, 1:3, og samanlagt 2:4.
Einnig varð að grípa til víta-
spymukeppni í viðureign Everton
og Sunderland í Liverpool. Sunder-
land, sem leikur í 1. deild, komst yf-
ir eftir hálftíma leik, en Skotinn
John Collins jafnaði metin í seinni
hálfleik. Thomas Sörensen, mark-
vörður Sunderland, var síðan hetja
sinna manna í vítaspymukeppni eft-
ir markalausa framlengingu er
hann varði frá Ibrahim Bakayoko.
í íyrrakvöld höfðu Luton, Totten-
ham og tryggt sér sæti í fjórð-
ungsúrslitum og var dregið til
þeirra í gærkvöldi. Stórleikur um-
ferðarinnar verður án efa viðureign
Tottenham og Manchester United á
White Hart Lane í Lundúnum. Þá
mun Wimbledon taka á móti Chel-
sea, núverandi deildarbikarmeistur-
um, og Leicester fær Blackbum í
heimsókn. Einu tvö liðin utan úr-
valsdeildarinnar, Sunderiand og
Luton, drógust saman.
LEVERKUSEN batt enda á sig-
urgöngu Herthu Berlínar á
heimavell í gærkvöldi með 0:1 sigri.
Hollendingurinn Erik Meier gerði
eina mark leiksins með skalla rúm-
um stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Fyrir leikinn hafði Hertha, lið
Eyjólfs Sveirissonar landsliðs-
manns, ekki beðið ósigur á heima-
velli á þessu keppnistímabiii. Þeir
vora mun betri aðilinn í fyrri hálf-
leik, en nýttu ekki færin. „Við áttum
að skora fyrir hlé, en í seinni hálf-
leik kom styrkleiki þeiiTa í ljós og
við lentum í vandræðum. Þeir áttu
sigurinn skilinn,“ sagði Jiirgen
Röber, stjóri Herthu.
Með sigrinum er Leverkusen komið
í annað sæti deildarinnar, fimm
stigum á eftir Bayem Munchen, en
leik þeirra við Borussia Mönchen-
gladbach var frestað í fyrrakvöld
vegna vatnsveðurs.
Christoph Daum, þjálfari
Leverkusen, sagðist ánægður með
úrslitin, en liðið þyrfti þó að laga
margt. í vikunni var eftir honum
haft, að hann sæi ekki að annað lið
en Bayem gæti unnið þýska meist-
aratitilinn á þessu tímabili.
Dortmund sigraði Duisburg, 2:0,
með mörkum þeirra Lars Ricker og
Stephane Chapuisat í fyrri hálfleik.
Jafntefli varð í leik Numberg og
Bochum, 2:2, Frankfurt sigraði
Freiburg, 3:1, Stuttgart lá heima
fyrir Wolfsburg, 1:2 og lið 1860
Munchen heldur áfram að koma á
óvart með 2:1 sigri á Hansa
Rostock. Þá gerði Uwe Rösler eina
mark leiksins í 1:0 sigra Ka-
iserslautern á Hamborg.
Highbury
Reuters
ÞEIR náðu allir að skora mark gegn Arsenal - Gustavo Poyet, Uruguay, Gianluca Vialli, Ítalíu, sem
fagnar Frank Leboeuf, Frakklandi, eftir að hann skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu.
Roy Evans
mun víkja
ROY Evans hefur samþykkt
að segja af sér sem annar
framkvæmdastjóra Liverpool.
Þetta kemur fram í enskum
dagblöðum nú í morgun.
Samkvæmt fréttum frá Li-
verpool átti Evans fund með
stjórn úrvalsdeildarliðsins í
gærkvöldi þar sem m.a. kom
til álita að „hækka“ Evans í
tign og setja hann í annars
konar stjórnunarstöðu hjá lið-
inu.
Evans hefúr þjálfað Liver-
pool í á fjórða ár, en hefur
deilt framkvæmdastjórastöð-
unni með Frakkanum Gerard
Houllier frá því í sumar. Það
samstarf hefur ekki gengið
sem skyldi og því er talið að
Houllier fái nú tækifæri til að
vera einn við sfjórnvölinn.
Skv. fréttum blaða er talið að
Frakkinn Patrice Bergues,
fyrrverandi stjóri Lens, muni
verða nýr aðstoðarmaður
Houlliers.
■ BRENTFORD, lið landsliðs-
mannsins Hermanns Hreiðarsson-
ar keypti í gær enn einn leikmann-
inn og þar með þann ellefta síðan
Ron Noades keypti liðið á útmánuð-
um og tók sjálfur við stjóminni. Ga-
vin Mahon frá Hereford er nýjasti
leikmaðurinn, en Noades hefur
gjörbreytt 3. deildar liðinu á örfá-
um mánuðum.
■ BRENTFORD hyggst enn
styrkja leikmannahóp sinn og hefur
Ágúst Gylfason enn í sigtinu eftir
að hann dvaldi við æfingar hjá því á
dögunum. Ágúst dvelur nú í her-
búðum 1. deildar liðsins Tranmere
Rovers til reynslu, en samningur
hans við norska liðið Brann rann út
á dögunum.
■ SEBASTIAN Rozental, miðheiji
hjá Glasgow Rangers, hélt heim til
Chile í gær, þar sem hann verður
skorinn upp á ný vegna meiðsla í
hné. Rangers hefur lánað hann til
Universidad Catolica út þetta
keppnistímabil. Hann mun byrja að
leika með liðinu þegar hann hefur
náð sér eftir uppskurðinn.
■ ROZENTAL, sem er 22 ára, var
keyptur á fjórar millj. punda frá
Catolica 1996.
■ TÉKKNESKI markvörðurinn
Pavel Srnicek skrifaði í gær undir
tveggja og hálfs árs samning við
Sheffield Wednesday. Srnicek,
sem er 30 ára, mun leika sinn fyrsta
leik með liðinu gegn sínum gömlu
samheijum hjá Newcastle á laug-
ardaginn. Hann skrifaði undir
samning eftir að hafa æft með
Sheff. Wed. í tvær vikur.
■ BELGÍSKI miðherjinn Laurent
Delorge hjá Gent, gekk til liðs við
Coventry í gær. Kaupverð var 1,25
millj. punda.
■ DELORGE, sem er aðeins 19 ára
og leikur með ungmennaliði Belgíu,
skrifaði undir fimm og hálfs árs
samning við Coventry. Hann skor-
aði fimm mörk í tíu leikjum fyrir
Gent. „Hann er framtíðarmaður
hjá okkur,“ sagði Gordon Strach-
an, knattspyrnustjóri Coventry.
■ ÞAÐ er heldur betur byrjað að
hitna sætið hjá Louis Van Gaal,
þjálfara Barcelona, eftir að lið hans
tapaði sínum þriðja leik i röð - nú í
æfingaleik fyrir sænska liðinu Hels-
ingborg, 2:0.