Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LAND SMANN A
ptorfttttMg&fö
B
1998
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER
BLAD
Einn kemur
þá annar fer
ÍR-ingar léku við Aftureldingu í 1. deild karla í
handknattleik í gærkvöldi. Róbert Þór Rafns-
son lék að nýju með IR eftir að sættir náðust
um félagaskipti hans úr Gróttu/KR yfir í ÍR.
Eins og komið hefur fram missti hann af síð-
asta leik ÍR vegna þess að leikheimild hans var
afturkölluð af Handknattleiksráði Reykjavíkur.
Liðin sömdu síðan um ákveðna greiðslu fyrir
leikmanninn um síðustu helgi.
Þó svo að ÍR-ingar hafi getað fagnað endur-
komu Róbert Þórs, urðu þeir fyrir áfalli í gær-
kvöldi þegar hin aðalskytta liðsins, Ólafur
Gylfason, handarbrotnaði í fyrstu sókninni.
Hann gat því ekki leikið meira eftir það. Þetta
sló ÍR-inga út af laginu og máttu þeir sætta sig
við fyrsta tap á heimavelli sínum í íþróttahús-
inu í Austurbergi.
Kristinn Lárusson eftir-
sóttasti leikmaðurinn
Þorvaldur
Makan í KA
ÞORVALDUR Makan Sig-
björnsson hefur ákveðið að
ganga til liðs við 1. deildarlið
KA. Þorvaldur er samnings-
bundinn sænska liðinu Oster
og á tvö ár eftir af samningi
sfnum við félagið, en það féll
úr úrvalsdeildinni í haust og
sagði í kjölfarið lausum samn-
ingi sínum við Þorvald.
Ákvörðun Þoi-valdar er háð
samþykki sænska félagsins, en
ekki er talið að það muni
standa í veginum. „Ég hyggst
samt sem áður leita réttar
míns gagnvart Öster, enda
hafa þeir ekki staðið við gerða
samninga," sagði Þorvaldur í
gærkvöldi.
KA endaði í neðri hluta 1.
deildar á sl. tímabili og hefur
ekki leikið í efstu deild síðan
1992. Nú er stefnt að því að
rífa upp liðið og koma því aft-
ur í hóp þeirra bestu.
Slobodan Milisic er kominn
frá ÍA og skv. heimildum
Morgunblaðsins eru líkur á
því að Framarinn Þoi-valdur
Ásgeirsson gangi til liðs við
KA úr Fram. Þorvaldur Mak-
an segist bjartsýnn á gengi
liðsins næsta sumar. „Það er
hugur í mönnum og að sjálf-
sögðu á að vera lið frá Akur-
eyri í efstu deild," sagði Þor-
valdur, en þrjú lið úr efstu
deild leituðu eftir kröftum
hans; ÍBV, Valur og Leiftur.
Reuters
KÖRFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Stort tap i Kroatiu
ISLENDINGAR töpuðu í gær, 111:77,
fyrir Króötum í Evrópukeppni Iandsliða
í körfuknattleik en leikið var í Sibenic.
Króatar voru mun sterkari en leikmenn
íslands og voru 62:44 yfir í leikhléi. Falur
Harðarson var stigahæstur í liði Islands,
gerði 21 stig. Falur er. hér á fleygiferð
framhjá Jure Ruzic sem gerði 14 stig
fyrir Króata.
KNATTSPYRNA
Kristinn Lárusson, sem lék með
ÍBV á síðasta tímabili, er líklega
eftirsóttasti knattspyrnumaður lands-
ins. Að minnsta kosti þrjú lið eru á
eftir framherjanum - Fram, Valur og
Víkingur og samkvæmt úttekt Morg-
unblaðsins eru fonáðamenn allra fé-
laganna bjartsýnii- á að fá Kristinn í
sínar raðii' fyrir næstu leiktíð.
Kristinn er ekki eini leikmaður
ÍBV sem hyggst fara frá liðinu.
Miðjumaðurinn Steinar Guðgeirsson
er einnig á leið til Reykjavíkur. Bæði
Fram og Víkingur hafa átt í viðræð-
um við Steinar.
Birkir Kristinsson, markvörður ís-
lenska landsliðsins, hefur ákveðið að
hætta í atvinnumennsku á Norður-
löndum og flytjast heim. Nokkur lið,
þar á meðal ÍA og Fram, hafa átt í
viðræðum við markvörðinn.
Samkvæmt ítarlegri úttekt Morg-
unblaðsins á liðunum í efstu deild
karla er ljóst að þau munu mörg
hver mæta talsvert breytt til leiks á
næsta tímabili. Þannig hefur mjög
kvarnast úr liði Skagamanna og
framkvæmdastjóri liðsins telur ljóst
að styrkja verði hópinn. „Það er þó
alveg á hreinu að ekki verður leitað
til Júgóslavíu," segir framkvæmda-
stjórinn, þeim kafla er lokið,“.
Framai'ar virðast einna stórtæk-
astir á leikmannamarkaðnum þessa
dagana og fjölmai'gir leikmenn virð-
ast á leið til Safamýi'arliðsins.
Ágúst Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
Fram, staðfestir að félagið hafi átt í
viðræðum við þá Birki Kristinsson,
Ki'istin Lárusson og Steinar Guð-
geirsson. Liðið hyggst styrkja hóp-
inn enn frekar fyrir átök sumarsins.
„Ég á von á því að við sækjum tvo til
þrjá góða leikmenn til útlanda þegar
líða tekur á vorið,“ sagði Ágúst enn-
fremur.
Guðmundur Oddsson, formaður
knattspyrnudeildar Breiðabliks, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs á aðal-
fundi sl. mánudag. Ekkert framboð
kom í embættið og varð að boða séi’-
stakan aukaaðalfund sem verður í
næstu viku til að finna nýtt fólk í
stjórnina.
„Þetta er nú ekkert stórmál,"
sagði Guðmundur við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Ég sagði á sínum tíma
að ég gæfi mér þrjú ár sem formað-
ur og ætla mér að standa við það.
Fólk virðist ekki hafa trúað þessu og
á aðalfundinum var einfaldlega eng-
inn tilbúinn að taka við.“
Miklar sögur hafa gengið um
meint leikmannakaup Víkinga í
haust. Guðmundur H. Pétursson,
formaður knattspyrnudeildar Vík-
ings, segir að þetta séu aðeins
draugasögur. „Ég hef heyrt þetta
sjálfur og að fjölmargir leikmenn séu
bendlaðir við félagið. Ég kannast
hins vegar minnst við það sjálfur,"
sagði Guðmundur.
■ Liflegur.../B2
KÖRFUKNATTLEIKUR: HENNING HENNINGSSON HÆTTUR MEÐ SKALLAGRÍMI / B8